Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 4

Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Guðrún Magnúsdóttir fagnar 100 ára afmæli sínu í dag en hún fæddist 9. ágúst 1919 í Árnessýslu. For- eldrar hennar voru Magnús Árnason bóndi, hreppstjóri og fjallkóngur í bænum Flögu í Árnessýslu, og Vig- dís Stefánsdóttir. Er hún næstelst af níu systkinum sem öll eru nú látin. Guðrún giftist Bjarna Ágústssyni, sem var fangavörður á Litla-Hrauni og síðar verkamaður í Reykjavík, ár- ið 1943 og þau hjónin byrjuðu bú- skap á Eyrarbakka sama ár þar sem þau bjuggu í 20 ár. Saman eiga þau fimm uppkomin börn. Þau fluttu til Reykjavíkur 1964 til að fá betri þjónustu fyrir fjórða barn sitt sem hlaut heilaskaða vegna heilahimnu- bólgu í æsku. Í húsi þeirra hjóna á Meistaravöllum býr Guðrún nú ein og unir sér vel en hún fer fjórum sinnum í viku í dagþjálfun hjá Múla- bæ. Í tilefni dagsins ætlar Guðrún að eiga góða stund með börnum sínum sem ætla að heimsækja hana og drekka með henni morgunkaffi í dag. Síðar í dag ætlar fjölskyldan að borða saman á veitingastaðnum Hafinu bláa. Guðrún segir að 120 manna afmælisveisla hafi verið hald- in í tilefni af 95 ára afmæli hennar og því sé það með rólegra móti í ár. Spurð um æsku sína segir Guðrún að öllum níu systkinunum hafi komið vel saman og að þau hafi átt gott samband við foreldra sína sem hafi reynt að fræða börn sín eins og hægt var. Hún er í dag ein eftirlifandi af systkinum sínum. Alltaf nóg að gera og hugsa „Sá sem er þarna uppi skilur mig bara eina eftir. Ég er bara alltaf að bíða eftir því að kallað verði á mig,“ segir Guðrún hlæjandi. Þegar hún er spurð að því hverja hún telji vera ástæðuna fyrir langlíf- inu segist hún vera fullviss um að það sé vegna þess hún hafi alltaf haft nóg að gera. Móðir hennar skadd- aðist á hendi eftir að hafa dottið af hestbaki 5 ára gömul og gat lítið gert í höndunum og því var Guðrún, ein af elstu börnunum, látin bera mikla ábyrgð á systkinum sínum og húsverkunum. „Það var alltaf nóg að gera og nóg að hugsa. Það er nú líkast til. Að sjá um að telja öll börnin og passa upp á hvort þau væru ekki örugglega öll- sömul þarna,“ segir hún og bætir við að þau hafi átt það til að sofna milli þúfna. Guðrún hefur lifað tímana tvenna og man m.a. eftir því þegar fyrsti bíllinn kom á æskuslóðirnar og rifjar upp spenninginn hjá krökkunum í nágrenninu sem allir fengu að prufa að sitja í bílnum. Hún rifjar upp tíð- ina áður en Mjólkurbú Flóamanna kom til sögunnar, þegar hún þurfti að fara ein á hestvagni með mjólk- urvörur af bænum að veginum fyrir mjólkurbílinn, aðeins 7-8 ára gömul. „Hestarnir rötuðu,“ útskýrir hún kímin og bætir við að henni þyki börn í dag fara á mis við að hafa far- ið í sveit. Gengur enn upp stiga Guðrún starfaði tvo vetur á fata- verkstæði þar til hún giftist eig- inmanni sínum. Helstu störf Guð- rúnar voru heimilisstörf og barnauppeldi en eftir að börnin fluttu að heiman starfaði hún við umönnun á Elliheimilinu Grund í 16 ár. Heimilisstörfin segir hún að séu enn hennar helsta dægrastytting en hún kveðst vilja hafa allt í röð og reglu í kringum sig. Hún bakar enn brauð og flatkökur og á alltaf nóg til í frystinum. Til hennar kemur þó kona hálfsmánaðarlega sem skúrar gólfið en að öðru leyti sér hún sjálf um íbúðina sem er 140 fermetrar og á annarri hæð. Segist hún enn ganga upp stigana nánast daglega. „Með stafinn í annarri hendinni og handriðið í hinni. Þetta er bara fer- lega gott,“ segir Guðrún. Morgunblaðið/Árni Sæberg Aldarafmæli Guðrún Magnúsdóttir ætlar að njóta 100 ára afmælisdagsins og fara út að borða með fjölskyldunni. 100 ára gömul og telur annríki lykilinn að langlífi OPIÐ ALLA H ELGINA Mögnu ð opnu nartilb oð, ís í boð i alla v ikuna o g pylsuv eisla á laugard ag Mörkin 3 • Reykjavík | Undirhlíð 2 • Akureyri Ragnar S. Halldórsson, fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Ís- lenska álfélagsins, lést á Landspítalanum í Foss- vogi síðastliðinn mið- vikudag, 7. ágúst, 89 ára að aldri. Ragnar var fæddur í Reykjavík 1. september 1929, sonur Halldórs Stefánssonar, forstjóra og alþing- ismanns, og Halldóru Sigfúsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1950 og M.Sc.-prófi í byggingaverkfræði frá DTH í Kaupmannahöfn árið 1956. Það sama ár hóf hann störf hjá Bandaríkjaher á Keflavíkurflugvelli og var yfirverkfræðingur og síðar framkvæmdastjóri verkfræðideildar sjóhersins þar á þeim tímum þegar yfir stóðu miklar framkvæmdir á vegum Varnarliðsins. Árið 1966 fór Ragnar til starfa hjá Swiss Al- uminium í Sviss og Austurríki og tók í framhaldi af því, eða ár- ið 1969, við starfi for- stjóra álvers ÍSAL í Straumsvík sem þá var verið að setja á lagg- irnar. Því starfi gegndi Ragnar til ársins 1988 og var eftir það formað- ur stjórnar ÍSAL um skeið. Vegna starfa sinna fyrir ÍSAL var Ragnar áberandi sem áhrifamað- ur í þjóðlífinu um langt árabil. Um dagana gegndi Ragnar fjöl- mörgum félags- og trúnaðarstörfum. Hann átti sæti í stjórn Verkfræðinga- félags Íslands í nokkur ár og var for- maður þess um skeið, var lengi í for- ystusveit Verslunarráðs Íslands og formaður þess 1982-1985. Þá var Ragnar lengi í framkvæmdastjórn Vinnuveitendasambands Íslands auk þess að sitja í stjórnum fjölda fyr- irtækja og félaga. Þá átti Ragnar um skeið sæti í miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins og var enn fremur í stjórn Hjartaverndar. Eftirlifandi kona Ragnars er Mar- grét Kristín Sigurðardóttir viðskipta- fræðingur í Reykjavík. Þau eignuðust fjögur börn sem eru Kristín Vala, prófessor við Háskóla Íslands, Hall- dór Páll, forstjóri verktakafyrirtæk- isins Pihl&Søn í Danmörku, Sigurður Ragnar, forstjóri ÍAV, og Margrét Dóra sem er sjálfstætt starfandi tölvu- og sálfræðingur. Barnabörnin eru átta talsins. Útför Ragnars verð- ur gerð síðar í þessum mánuði. Andlát Ragnar S. Halldórsson Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Fyrsti leikur vetrarins í enska bolt- anum verður leikinn á Anfield, heimavelli Liverpool, seinna í dag. Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá sjónvarpi Símans, og knattspyrnugoðið Eiður Smári Gudjohnsen verða á staðnum þegar flautað verður til leiks og markar leikurinn samstarf Sjónvarps Sím- ans og mbl.is um umfjöllun um enska boltann. Mbl.is verður „heimavöllur enska boltans“, eins og Tómas orðaði það í viðtali við Morgunblaðið fyrr í sumar. Lítil og stór innslög Í samtali við Morgunblaðið í gær sagðist Tómas gríðarlega spenntur fyrir komandi leiktíð, og samstarf- inu við mbl.is, og sagði að á vefnum myndi birtast ýmislegt áhugavert efni. „Þarna verða hápunktar úr öllum leikjum. Ofan á það verða valin atriði, flott mörk og alls kyns styttra efni eins og flottustu mark- vörslurnar og þvíumlíkt. Allt þetta verður hægt að nálgast á mbl.is. Svo erum við hjá Síminn-sport líka í minni og stærri dagskrárgerð fyrir helgarnar. Við erum að búa til inn- slög, lítil og stór, og valin innslög munu fara inn á mbl.is.“ Segir Tómas að Síminn-sport sé í góðu samstarfi við Premier-league productions, fyrirtækið sem býr til allt efni fyrir ensku úrvaldsdeild- ina, og segir: „Í gegnum það sam- starf fór ég á mánudaginn og tók langt viðtal við Peter Schmeich- el, fyrrverandi markvörð Man- chester United, og sem dæmi verða bútar úr því viðtali að- gengilegir á mbl.is.“ Segir hann að því geti þeir sem kannski ná ekki að fylgjast með öll- um leikjum vetrarins heimsótt mbl.is til að vera með puttann á púlsinum. „Þarna getur þú haldið þér upplýstum.“ Verða á grasinu á Anfield Spurður um daginn í dag segir Tómas: „Upphitun hefst á Síminn- sport klukkutíma fyrir leik, klukk- an sex. Ég og Eiður Smári opnum nýtt tímabil á grasinu á Anfield.“ Spurður hvort leikurinn sem um ræðir, Liverpool gegn Norwich City, sé ekki ekki ómerkilegur leik- ur til að hefja tímabilið á, enda Nor- wich ekki beint sigursælasta lið úr- valsdeildarinnar, segir Tómas að þó að leikurinn sé kannski „ekki sá stærsti á pappír“ sé frábært að hefja tímabilið á Anfield, heimavelli Liverpool, enda markhópur fyrir slíkan leik stór á Íslandi og Liver- pool-aðdáendur hérlendis margir. Auk Tómasar og Eiðs verða í sér- fræðingateymi Enska boltans á Síminn-sport Bjarni Þór Viðarsson, Margrét Lára Viðarsdóttir og Logi Bergmann Eiðsson. AFP Tækling Liverpool leikur í fyrsta leik enska bolta vetrarins í dag. Liverpool- aðdáendur hér á landi, svokallaðir „púllarar“, fylgjast líklega flestir með. Enski boltinn fer af stað í dag  Mbl.is verður heimavöllurinn Tómas Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.