Morgunblaðið - 09.08.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 09.08.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 klukkustund. Sjáist eitthvað athygl- isvert er grindinni slakað niður á botninn til að ná betri ljósmyndum. Svartamyrkur er þegar komið er niður fyrir 60-70 metra dýpi. Stein- unn sagði að sum dýr brygðust við ljósinu og skytust í burtu á meðan önnur kipptu sér ekkert upp við það þótt þrífóturinn nálgaðist. Tekin eru 600 metra löng snið hverju sinni á fyrirfram völdum svæðum og voru tekin alls 70 snið að þessu sinni. Könnunarsvæðin nú voru Jökuldjúp, Eldeyjarsvæðið, Háfadjúp og austur eftir land- grunnskantinum að Hornafjarð- ardjúpi. Í haust verður unnið nánar úr kvikmynda- og ljósmyndaefninu. búsvæðin séu viðkvæm eða fágæt og hvort þurfi að vernda þau. Tækjum slakað til botns Sama aðferðafræði hefur verið notuð við rannsóknir af þessu tagi undanfarinn áratug. Stór þrífótur ber ljósabúnað, ljósmyndavélar og kvikmyndavélar (video) og fleiri tæki. Þetta er allt tengt við skipið með ljósleiðara þar sem hægt er að fylgjast með því í rauntíma sem fyrir augu vídeóvélanna ber. Grindinni er slakað niður að hafsbotninum og reynt að halda henni um 1,5 metra frá botni meðan skipið flatrekur yfir botninn. Gott þykir ef skipið rekur á 0,5-0,7 sjómílna (1-1,3 km) hraða á Guðni Einarsson gudni@mbl.is Óþekkt dýr sást á Kötlugrunni, suð- ur af landinu, í ellefu daga löngum leiðangri hafrannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar um mán- aðamót júní og júlí. Dýrið er ljós- fjólublátt að lit og um tíu sentimetr- ar í þvermál. Fótur þess er ferkantaður og upp af honum stend- ur kambur með tvær raðir af öngum. Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjáv- arvistfræðingur hjá Hafrann- sóknastofnun og leiðangursstjóri í leiðangrinum, sagði sérstakt að sjá óþekkt dýr þar sem kalla mætti grunnsævi. „Maður hefði kannski frekar búist við þessu á 700 metra dýpi en þetta var á um 200 metra dýpi á Kötlugrunni, ekki langt frá landi og ekki mjög djúpt. Það var sérkennilegt að sjá eitthvað nýtt þar,“ sagði Steinunn. Hún sagði að myndir af dýrinu yrðu sendar til er- lendra vísindamanna í þeirri von að þeir geti greint það. Þekktar eru yfir 3.000 tegundir af botndýrum við Ís- land. Aðeins hluti þeirra hefur verið ljósmyndaður. Ekki er vitað hvort umrætt dýr er af einhverri þessara þekktu tegunda eða hvort um nýja tegund við Ísland er að ræða. Leiðangurinn var farinn til að kanna lífríki hafsbotnsins og var lið- ur í gagnasöfnun fyrir langtíma- verkefnið Kortlagning búsvæða. Í því eru ólík búsvæði á hafsbotni við landið skilgreind og fjölbreytni þeirra skoðuð. Einnig er metið hvort Ljósmyndir/Hafrannsóknastofnun Furðudýr Óþekkta dýrið er um 10 sentimetrar í þvermál. Það fannst á um 200 metra dýpi og ekki langt frá landi. Óþekkt furðudýr fannst á Kötlugrunni  Hafsbotn á völdum svæðum kannaður með myndavélum Sæfjaðrir Akur af sæfjöðrum fannst á um 570 metra dýpi. Eins og myndin sýnir leynist víða mikil fegurð í svartamyrkrinu á hafsbotninum við landið. Formannafundur Starfsgreina- sambandsins (SGS) samþykkti á fundi sínum í gær að sambandið myndi höfða mál gegn Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga fyrir Fé- lagsdómi þar sem látið verður reyna á túlkun samningsákvæðis frá 2009 um skyldu sveitarfélaga til að ganga til kjarasamningsviðræðna um jöfn- un lífeyrisréttinda. „Við erum búin að vera að deila um það við Samband íslenskra sveit- arfélaga hvort þeir hafi lofað því að jafna lífeyrisréttindi. Þeir tóku eitt og hálft prósent í kauphækkun til þess að jafna lífeyrisréttindi, bæði gagnvart opinberum starfsmönnum og gagnvart okkar starfsmönnum, en hafa ekki staðið við það að jafna réttindin hjá okkur,“ sagði Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, í sam- tali við mbl.is í gær. Eins og víða hef- ur komið fram hafa ríkið og stærsta sveitarfélag landsins, Reykjavík- urborg, gengist við breyttu lífeyr- iskerfi og sagði Björn: „Hin sveit- arfélögin hafa ekki viljað gera þetta og segjast ekki hafa skuldbundið sig til þess, og við erum að láta reyna á það.“ Í fréttatilkynningu frá SGS í kjöl- far fundarins er vísað til kjarasamn- inga frá 7. júlí 2009 og sagt: „Nú þegar hefur stærsta sveitarfélag landsins ákveðið að efna sam- komulag aðila fyrir sitt leyti en önn- ur þverskallast við og neita einfald- lega að ganga til viðræðna um jöfnun lífeyrisréttinda starfsmanna sinna á þeirri forsendu að þau hafi aldrei undirgengist slíka skyldu. SGS hafnar þeirri afstöðu alfarið enda ráð gert fyrir þessari óefndu jöfnun í öllum forsendum og út- reikningum aðila eftir 2009.“ gso@mbl.is SGS vísar deilunni til Félagsdóms  SGS segir önnur sveitarfélög en Reykjavíkurborg „þverskallast við“ Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þessi söfnun hefur farið margfalt betur af stað en ég átti nokkurn tímann von á í upphafi. Minn boð- skapur er afskaplega stuttur – ég er ekki að þessu til að klekkja á nokkrum manni. Ég er að þessu til þess að fá fram vilja sjálfstæðis- manna og um leið einhverja vit- ræna niðurstöðu í þetta ömurlega mál sem er að eyðileggja flokkinn,“ segir Jón Kári Jónsson, formaður félags sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi, í samtali við Morgun- blaðið. Vísar hann í máli sínu til undir- skriftasöfnunar sem hafin er á meðal félags- manna í Sjálf- stæðisflokknum þar sem þess er krafist að fram fari atkvæða- greiðsla innan flokksins fyrir samþykkt eða synjun þriðja orkupakka Evrópusambandsins, sem ríkisstjórn Íslands vill innleiða. Samkvæmt skipulagsreglum Sjálf- stæðisflokksins er miðstjórn hans skylt að láta fara fram almenna kosningu meðal flokksmanna um tiltekin málefni berist um það skrif- leg ósk frá minnst 5.000 flokks- bundnum félögum, en þar af skulu ekki færri en 300 flokksmenn koma úr hverju kjördæmi landsins. Jón Kári vildi í gær ekki segja hversu margir hefðu þegar ritað nafn sitt á listann, enn væri verið að safna undirskriftum. Þá segir Jón Kári mikla óeiningu ríkja í röðum sjálfstæðismanna vegna innleiðingar orkupakkans. „Það er ljóst að í þessu máli er forysta flokksins einangruð. Auðvit- að á hún einhverja meðreiðar- sveina, en mér sýnist þeir vera mun færri,“ segir Jón Kári og bætir við að talað hafi verið um í upphafi sumars að nota skyldi sumarið til að ræða orkupakkamálið við al- menna flokksmenn. „Það var aftur á móti ekkert rætt við okkur. Menn voru að vísu á einhverju lands- hornaflakki.“ Þá er vert að geta þess að búið er að boða til opins fundar í Valhöll klukkan 11 á morgun, laugardag, með þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Á fundinum mun formaður flokks- ins ræða stjórnmálaviðhorfið og sitja þingmenn síðan fyrir svörum, að því er fram kemur í fundarboði. Ekkert heyrt í forystunni Spurður hvort hann hafi heyrt í forystu Sjálfstæðisflokksins frá því að undirskriftasöfnunin fór af stað kveður Jón Kári nei við. „Nei, eng- inn hefur látið heyra í sér þaðan. Ég hef hins vegar heyrt frá stórum hópi almennra sjálfstæð- ismanna og finn fyrir miklum stuðningi þaðan.“ Jón Kári segir marga flokks- menn upplifa afstöðu forystunnar sem svik. „Að Sjálfstæðisflokkurinn sé kominn inn í einhverja vegferð sem hann hefur aldrei verið á áður – að standa ekki í lappirnar þegar fullveldi þjóðarinnar er annars veg- ar. […] Ég bara get ekki þolað að Sjálfstæðisflokkurinn sé kominn á þennan stað, það bara gengur eng- an veginn,“ segir hann. Forystan einangruð í afstöðunni  Söfnun undirskrifta vegna atkvæðagreiðslu um þriðja orkupakka ESB er sögð ganga vel meðal sjálf- stæðismanna  Formaður hverfafélags segir forystu Sjálfstæðisflokksins einangraða í orkupakkamáli Jón Kári Jónsson sp ör eh f. Haust 5 Sérlega skemmtileg ferð um Spán og Frakkland sem einkennist af glæstum borgum, sjávarbæjum og dásamlegri náttúrufegurð. Við heimsækjum m.a. Burgos sem er sögufræg borg á hinum þekkta Jakobsvegi, förum í hið fræga Guggenheimsafn í Bilbao, siglum á Garonne ánni og skoðum fagrar hallir og hallargarða. 15. - 27. september Fararstjórn: Steingrímur Gunnarsson Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 324.600 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS Mjög mikið innifalið! Bilbao & Bordeaux

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.