Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 18

Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Í augnablikinu finnst mér þetta góð hugmynd en það gæti breyst á næstu dögum,“ segir Óskar Þór Guðmundsson, lögreglumaður og hjólreiðakappi, sem ætlar að hjóla yfir hálendið frá heimili sínu í Fá- skrúðsfirði til Reykjavíkur þar sem hann mun taka þátt í Reykja- víkurmaraþoninu 24. ágúst. Hann hleypur og hjólar til styrktar Samhjálp. Vonast eftir góðu veðri Óskar ætlar að leggja af stað í ferðalagið á laugardaginn næst- komandi og áætlar að vera um tíu daga á leiðinni sem er um 620 kílómetra löng. Vonast hann til að ná að hjóla um 60 til 70 kílómetra á dag en segir að veðrið geti spil- að inn í hvernig gengur. „Það fer eftir veðrinu hvernig þetta fer með mig. Er ekki alltaf mótvindur þegar maður fer út að hjóla?“ segir Óskar og hlær. „Ef þetta gengur vel fæ ég kannski einn eða tvo daga í pásu fyrir hlaupið en ef ég verð óhepp- inn með veður er spurning hvort ég næ þessu. En ég mun mæta í maraþonið hvernig sem ég fer að því,“ segir Óskar. Hann segist hafa fengið hug- myndina að ferðalaginu í kringum síðustu áramót og að hann hafi síðan þá verið að æfa sig fyrir ferðina. Hann hafi til dæmis tekið þátt í „spinning“ og hjólað mikið. Yfirleitt á bíl á hálendinu „Sumir segja að ég sé dellukall. Ef mér finnst ég fá góða hugmynd þá framkvæmi ég hana,“ segir hann. Óskar segist þekkja leiðina sem hann ætlar að hjóla ágætlega og kveðst hafa verið með ástríðu fyr- ir hálendisferðum frá barnæsku. „Ég hef reyndar yfirleitt verið á bílnum þegar ég er að þvælast þarna en núna er það bara hjólið,“ segir hann. Spurður um aðbúnað og gist- ingu á leiðinni segir Óskar að ferðin verði lúxusferðalag en eig- inkona hans, Málfríður Ægisdótt- ir, mun fylgja honum eftir á jeppa þeirra hjóna sem er búinn þak- tjaldi þar sem hann mun sofa. „Ég þarf ekkert að vera að setja tjaldið upp sjálfur. Það verður gert fyrir mig,“ segir hann og hlær. Vill styrkja Samhjálp Aðspurður hvernig honum líði með ferðina segir Óskar: „Ég hlakka bara til og er ekkert stressaður yfir henni.“ Óskar hljóp einnig 10 kílómetra til styrktar Samhjálp í Reykjavík- urmaraþoninu í fyrra en hann seg- ir samtökin hafa bjargað lífi dótt- ur hans sem var illa haldin af fíkniefnaneyslu og fór í meðferð hjá þeim fyrir um þremur árum. „Mér rennur blóðið til skyld- unnar fyrst ég er nú að brasa við þetta að leyfa þeim að njóta þess,“ segir Óskar sem kveðst bera hlýj- an hug til starfseminnar. Skortur á úrræðum fyrir fíkla „Ég tel að við séum ekkert að standa okkur neitt rosalega vel í því hér á Íslandi að veita fíklum og þeim sem eru í neyslu gott að- gengi að meðferðarúrræðum. Það vantar mikið upp á þar,“ segir Óskar og bætir við að fleiri hafi dáið úr neyslu en í bílslysum í fyrra. „Ég held að lykillinn að því að við förum að bæta okkur í þessum málaflokki sé að fólk sem er tilbúið til þess að fá hjálp hafi aðgengi að hjálpinni strax. Vegna þess að núna er staðan þannig að þú þarft jafnvel að bíða í nokkra mánuði þar til þú kemst í viðeig- andi meðferð. Þá ertu ekki endi- lega tilbúinn eða jafnvel bara dá- inn,“ segir hann. Hægt er að styrkja málefnið á vefnum hlaupastyrkur.is með því að leita af nafni Óskars. Hjólar 620 km yfir hálendið Leið Óskars Þórs yfi r hálendið Óskar leggur af stað á morgun frá Fáskrúðsfi rði 620 km er áætluð lengd leiðarinnar sem liggur eftir hálendisveg- um norður fyrir Vatnajökul Með því að hjóla 60-70 km á dag vonast Óskar til að ná til Reykja- víkur á 10 dögum Hjólreiðakappi Óskar ætlar að hjóla yfir hálendið á Reykjavíkurmaraþonið.  Óskar hjólar frá Fáskrúðsfirði til Reykjavíkur á Reykjavíkurmaraþonið  Hleypur og hjólar til styrktar Samhjálp sem bjargaði lífi dóttur hans Árlegt skákmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram í Árbæjarsafni sunnudaginn 11. ágúst nk. og hefst klukkan 14. Öll- um er frjálst að skrá sig til leiks en verðlaun eru veitt fyrir efstu þrjú sætin, 15 þúsund krónur fyrir efsta sætið, 10 þúsund fyrir annað sætið og 5 þúsund fyrir bronsið. Taflmót- ið fer fram í húsi sem nefnist Korn- húsið. Þátttökugjald í mótinu, sem kall- að er Stórmótið, er 1.700 kr. fyrir 18 ára og eldri, en ókeypis er fyrir yngri 17 ára og yngri. Er þátttöku- gjald jafnframt aðgangseyrir í safnið. Þeir sem fá ókeypis aðgang í safnið, t.d. eldri borgarar og ör- yrkjar borga ekkert þátttökugjald. Ókeypis aðgangur fyrir börn, ör- yrkja og menningarkortshafa, seg- ir í fréttatilkynningu safnsins. Skákmót í Árbæjarsafni á sunnudaginn Samtök grænkera á Íslandi munu halda sína árlegu hátíð, Vegan Festival, á Thorsplani í Hafnarfirði næstkomandi sunnudag. Á svæðinu verða matarvagnar með fjölbreyttan skyndimat og ann- að til sölu. Af öðru matarkyns má til dæmis nefna að það verður kaffi- bás, fæðubótaefni, ofurfæða, súrkál og sveppir á svæðinu. Að auki verð- ur vegan-listafólk að sýna og selja list og svo verður eitthvað af um- hverfisvænum vörum til sölu líka, segir í fréttatilkynningu. Einnig verður fræðsla og upplýs- ing frá Sea Shephard, Anonymous for the Voiceless og Samtökum grænkera á Íslandi. Bróðir Big mun mæta á svæðið og spila tónlist. Þá verður ísbíllinn til staðar og býður upp á vegan-ís. Vegan-búðin, sem er í næsta ná- grenni, verður opin og bakaríið í Firðinum mun bjóða upp á úrval vegan-vara þennan dag. Vegan Sannkölluð veisla verður á Thors- plani í Hafnarfirði á sunnudaginn. Grænkerar flykkjast í Hafnarfjörðinn Fjölbreytt dagskrá verður í Viðey nk. sunnudag á svonefndum barna- degi. Frá kl. 13-16 verða ýmsar uppákomur. Kenndar verða réttu húllasveiflurnar, jóga og gong- slökun verður með Arnbjörgu Kristínu jógakennara og boðið verður upp á náttúruskoðun og veiðar í fjörunni. Allir geta spreytt sig á að poppa yfir opnum eldi, leika sér á nýju leiksvæði Viðeyjar og keypt grill- aðar pylsur og drykki við Viðeyj- arstofu. Þátttaka í Barnadeginum er ókeypis en greiða þarf hefð- bundið gjald með Viðeyjarferjunni. Barnadagur í Viðey Bílaviðgerðir Almennar bílaviðgerðir fyrir tegundir bíla Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is SAMEINUÐ GÆÐI Síðumúli 13 - 108 Reykjavík - S. 577 5500 - ibudaeignir.is Til sölu glæsileg 3ja herbergja 93,6 fm íbúð á 2. hæð við Kirkjusand 1 í 105 Reykjavík með fallegu útsýni yfir sjóinn. Komið er inn í lokað sameiginlegt fremra anddyri. Forstofa með góðum skápum úr maghonývið. Gengið inn í bjart og fallegt alrými sem saman stendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhúsið er opið og bjart með vandaðri maghonýinnréttingu, ljósum flísum og borðplötu, ofn í vinnuhæð, flísar á milli efri og neðri skápa. Fallegt útsýni er frá eldhúsi með opnalegum rennanlegum gluggum. Hjóna- herbergi og auka svefnherbergi með skápum. Baðherbergi er vandað með sturtuklefa með nuddi. Þvottahús er innan íbúðar. Sérgeymsla og sameiginleg hjólageymsla, sameiginleg líkamsræktarstöð. Stæði í bílageymslu. Með eigninni fylgir hluti í séreign sem er í eigu húsfélagsins sem er húsvarðaríbúð, svo og rými sem er leigt út fyrir snyrtistofu og fara leigutekjur upp í hússjóð. Mjög stór lóð er í kringum húsnæðið, þar er m.a. púttvöllur. Húsvörður er í húsinu. Falleg og vönduð eign á góðum stað í Reykjavík. Verð 57,9 millj. Allar nánari upplýsingar veita á og utan opnunartíma: Halldór Már, löggiltur fasteignasali í síma 898-5599 eða halldor@ibudaeignir.is Halldór Már Sverrisson Viðskiptafræðingur Löggiltur fasteignasali Löggiltur leigumiðlari 898 5599 halldor@ibudaeignir.is KIRKJUSANDUR 1 - 93,6 FM ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.