Morgunblaðið - 09.08.2019, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er grátlegt að sjá þessar
skemmdir á landinu. Þær eru mann-
anna verk. Svona landnýting ber ekki
vott um samfélagslega ábyrgð,“ segir
Jóhann Kristjánsson, áhugamaður
um landgræðslu. Hann hefur tekið
land við Þórisjökul í fóstur og er að
græða það upp til að halda því sem
eftir er af jarðveginum. Hann telur
að ofbeit sauðfjár fyrr á árum sé upp-
hafleg orsök þeirra náttúruhamfara
sem orðið hafa á svæðinu og svo hafi
náttúruöflin tekið við og lokið verkinu
með vatnsrofi og jarðvegsfoki.
Landið sem Jóhann vinnur að því
að græða upp í sjálfboðavinnu er á
milli Stóra-Björnsfells við Þórisjökul
og fjallsins Skjaldbreiðar, í rúmlega
400 metra hæð yfir sjávarmáli. Það
eru ásar sem nefndir eru Fífil-
brekkur og Fífilvellir neðan þeirra en
þar munu hafa verið grónir valllend-
isvellir. Tilheyrir þetta svæði afrétti
Grímsnesinga og er nú skilgreint sem
þjóðlenda.
Þetta var eitt af grösugustu svæð-
um hálendisins fyrr á öldum en var
orðið að örfoka melum og ljót rofa-
börð voru það eina sem eftir var af
Fífilbrekkum þegar Jóhann fór að
vinna að landgræðslu þar fyrir um
áratug.
Taumlaus ofbeit
Jóhann segir að þetta svæði hafi
verið ósnortið af skepnum og mann-
fólki öldum saman og smám saman
byggt upp gróðurþekju. Rekur hann
öfugþróunina til síðari hluta 19. aldar
þegar sauðasalan til Bretlands hófst.
Sauðagullið sem bændur fengu fyrir
að selja fé á fæti hafi verið fyrstu
beinhörðu peningarnir sem sveita-
fólkið fékk. Bændur hafi farið að
fjölga fé og nýta beitarlönd á hálend-
inu sem reynslan sýni að gróðurinn
hafi ekki þolað. „Þetta voru uppgrip.
Þeir gátu keypt byggingarefni frá út-
löndum fyrir þessa fjármuni og aðrar
vörur hjá kaupmönnum.“ Þegar
Bretar bönnuðu innflutning á lifandi
fé hafi tekið við útflutningur á söltuðu
kjöti í tunnum og ofbeitin haldið
áfram.
„Menn fóru offari. Þetta var taum-
laus ofbeit og grátlegt að menn
skyldu ekki draga úr sauðfjárrækt til
að hlífa landinu. Staðan er litlu betri
núna. Bændur framleiða tvöfalt
meira kindakjöt en við borðum. Af
hverju er fólk að beita örfoka land
þegar við höfum ekkert við afurð-
irnar að gera? Það eru skattgreið-
endur og neytendur sem greiða
kostnaðinn,“ segir Jóhann. Hann
segir að margir afréttir séu ofbeittir.
Bendir á að rofabörð séu skýr merki
um ranga landnýtingu en Íslendingar
eigi Evrópumetið í rofabörðum. Það
segi sína sögu.
Jóhann hvetur til hugarfarsbreyt-
ingar hjá stjórnvöldum. Ekki þurfi að
hvetja almenning. Fólk sé almennt
jákvætt gagnvart því að halda í þann
jarðveg sem eftir er. „Stjórnvöld
þurfa að ákveða hvaða svæði eru hæf
til beitar og hvaða svæði þarf að friða.
Við eigum heimsins bestu sérfræð-
inga á þessu sviði en ekki er hlustað á
þá. Aðrir hagsmunahópar eru öfl-
ugri.“ Segist Jóhann vita vel að dýrt
sé að girða svæði af. Ef það gangi
ekki megi ráða menn í vinnu við það
að halda fé frá ofbeittu svæðunum, ef
aðgangur er að betra landi í nágrenn-
inu.
Þegar féð hafði gengið of nærri
gróðrinum í Fífilbrekkum tóku rof-
öflin við, að mati Jóhanns. Vatnið
gróf brekkurnar í sundur og fleytti
moldinni niður á vellina þar sem hún
þornaði og fauk í burtu með vind-
inum. Eftir sitja rofabörð í Fífil-
brekkum þar sem grænir ásar voru í
aldir og rofið heldur áfram. Telur Jó-
hann að milljónir tonna af jarðvegi
hafi fokið burt af þessu svæði.
„Mikil verðmæti eru í moldinni hér
í 400-500 metra hæð. Hún er eins og
þerripappír. Hún tekur við rigning-
arvatni og leysingavatni úr úr fjöll-
unum og heldur í sér yfir sumarið.
Eftir að jarðvegurinn er farinn er
enginn þerripappír eftir og ekkert
sem stöðvar vatnið,“ segir Jóhann.
Grátlegar skemmdir á landinu
Reynir að bjarga leifunum af jarðvegi í Fífilbrekkum og á Fífilvöllum við Þórisjökul Eitt
grónasta hálendissvæði landsins orðið að örfoka melum og rofabörðin eina merkið um forna frægð
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Rof Rofabörðin í Fífilbrekkum eru leifar gróðursælla ása. Jóhann hefur verið að sá í börðin til að reyna að minnka fok úr þeim.
Ljósmynd/Jóhann Kristjánsson
Landið fýkur Moldin fýkur af Fífilvöllum í þurrkum og roki, eins og algengt
var í vor. Moldarhalinn getur verið einhverjir kílómetrar að lengd.
Jónas Hallgríms-
son, skáld og
náttúrufræð-
ingur, reið í
kringum Skjald-
breið í rannsókn-
arleiðangri sínum
sumarið 1841.
Hann fór um
reiðarslóðir, dal
og hól, eins og
skáldið segir frá í
kvæði sínu Fjallið
Skjaldbreiður og
tekur fram að
hann hafi séð „á
leiti Lambahlíða
og litlu sunnar
Hlöðufell“. Hann
hefur því farið um Fífilvelli og Fífil-
brekkur eða skammt þar frá.
Í ferðadagbók Jónasar sem Páll
Valsson segir frá í ævisögu skálds-
ins kemur fram að hann hafi orðið
viðskila við samferðamenn sína og
verið kominn í mikla tvísýnu. Hann
ákvað þó að halda einn áfram á
hesti sínum Baldri þótt hann væri
hvorki með nesti né hlífðarföt og
liggja úti um nóttina í von um að
geta lokið ferðinni daginn eftir. Það
gerði hann og fann samferðamenn-
ina morguninn eftir.
Hann orti kvæðið þekkta um
fjallið Skjaldbreið og ferðalagið allt
um nóttina og næstu daga en það
hefst svo:
Fannar skautar faldi bláum
fjallið, allra hæða val;
hrauna veitir bárum bláum
breiðan fram um heiðardal.
RANNSÓKNARLEIÐANGUR JÓNASAR
Skjaldbreið Fífilvellir hafa verið algrónir þegar Jónas rann-
sakaði fjallið Skjaldbreið.
Reið í kringum Skjaldbreið
Ljósmynd/Jóhann Kristjánsson
26
VIÐ TENGJUMÞIG
KORTA býður uppá örugga greiðsluþjónustu og
hagkvæm uppgjör. Posar, greiðslusíður, áskriftagreiðslur
eða boðgreiðslur. Greiðslumiðlun er okkar fag.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is