Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 26

Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Á maður ekki að skilja betur við heiminn en hann var áður en maður fæddist inn í hann? Er það ekki í eðli okkar Íslendinga að vilja skilja eitt- hvað eftir okkur og ná árangri?“ Þannig svarar Jóhann Kristjánsson landgræðslumaður þeirri spurningu hvað knýi hann áfram í starfinu á Fífilvöllum. Jóhann var forfallinn vél- sleðamaður á árum áður og var í hópi fólks sem kom sér upp skála við Lambahlíðar undir Þórisjökli fyrir um þrjátíu árum til að geta sinnt áhugamálinu. Áhuginn breyttist og í stað þess að bruna á sleða að vetri fór hann að ganga og hjóla um svæð- ið á sumrin. „Þá opnuðust augu mín fyrir því hvað er að gerast hér. Landið er stórskemmt, eins og eftir loftárás.“ „Ég sá hvað það er mikill upp- blástur hér. Það sást margra kíló- metra moldarhali, af brúnni gróð- urmold, fjúka út af þessari sléttu,“ segir Jóhann. Hann tók ástfóstri við landið. Hefur hann unnið baki brotnu við að bjarga því sem eftir er af gróðurmold á svæði sem hann hefur tekið í fóstur. Er í slökkvistarfi Hann byrjaði fyrir rúmum áratug að gera tilraunir með sáningu á grasfræi og dreifingu áburðar, til að sjá hvernig jarðvegurinn tæki við. Hann segist hafa séð árangur og dottið í hug að athuga hvort Lands- net sem rekur háspennulínu þarna nálægt vildi leggja þessu lið. Því var vel tekið og hefur Landsnet lagt til áburð og fræ sem Jóhann sér síðan um að flytja á svæðið og nota til upp- græðslu. Hann hefur einnig fengið ráðgjöf hjá starfsmönnum Land- græðslunnar. Eitt af uppátækjum Jóhanns í landgræðslunni var að sá fyrir stöf- unum SÁ í mel við veginn. Stafirnir eru raunar svo stórir að erfitt er að átta sig á þeim af jörðu niðri. Þeir fengu verðskuldaða athygli þegar Árni Sæberg ljósmyndari tók mynd af þeim úr þyrlu og birti á forsíðu Morgunblaðsins á síðasta ári. Jóhann leggur áherslu á tvennt í landgræðslustarfinu. Að reyna að halda moldinni í ásunum og varð- veita þá mold sem komin er niður á slétturnar. Þetta gerir hann með því að sá í jaðra rofabarðanna og dreifa áburði. „Þetta er slökkvistarf. Ég fer á milli rofabarðanna upp eftir öllu. Þarna er víðir undir og hann tekur við sér þegar þessum torfu- sneplum er sinnt.“ Niðri á sléttunni er hann smám saman að sá í gosefnablandaða moldina og styrkja gróðurinn með áburði. Fyrst þarf hann að tína sam- an stærstu steinana til þess að geta notað frumstæð tæki sem dregin eru af fjórhjóli til að rispa landið og dreifa áburðinum. Öllu fræi þarf að sá með höndunum, bæði í rofabörðin og á sléttunni. Jóhann leggur áherslu á að vinna að þessu sem fyrst á vorin því sum- arið geti verið stutt í 400-500 metra hæð á hálendinu og hver dagur mik- ilvægur. Nefnir til dæmis að í fyrra hafi aðeins verið raunverulegt sum- arveður í 40-50 daga. Nokkur ár eftir Hann er nokkuð ánægður með ár- angurinn. Búið sé að sá í stóran hluta sléttunnar en enn séu mörg rofabörð eftir. „Þegar búið er að sá verður maður að treysta á veðrið verði hagstætt næstu vikur, til þess að fræið nýtist.“ Þeir skikar sem fyrst var sáð í hafa safnað í sig jarð- vegi og eru mun hærri en landið í kring. „Mikill jarðvegur hefur fokið burt á þeim tíma sem ég hef unnið að þessu en ég finn að innstreymi af mold hefur minnkað með árunum, ekki aðeins vegna þess að búið er að loka mörgum rofabörðum heldur vegna þess að búið er að eyðileggja landið og moldin er farin.“ Árangurinn kemur einnig fram í því að fuglar eru aðeins farnir að sækja í gróðurspildurnar og jafnvel verpa. Nefnir hann mófugla, rjúpu, kjóa og hrafn. Þá hafa refir komið við. Jóhann er ekki eins hrifinn af kindunum sem enn fara þarna um. Segir að ekki þurfi stóran fjárhóp til að skemma sáningarnar. „En þetta hefur kostað ómælda vinnu, erfiða og slítandi, og heilmikil fjárútlát. Þótt ég fái fræið og áburð- inn hjá Landsneti þarf að flytja efn- ið á staðinn í kerrum og það eru margar ferðir á hverju ári. Kostn- aður minn skiptir milljónum. Miklir snúningar eru við þetta. Ég held að aðeins um helmingur af tímanum fari í eiginlega landgræðslu.“ „Ég ætla að gefa mér nokkur ár til viðbótar, ljúka uppgræðslunni og fylgjast með áfram. Svæðið þarf á umönnun að halda. Vonandi verður þetta sjálfbært eftir minn dag,“ seg- ir Jóhann. Tók ástfóstri við svæðið  Jóhann Kristjánsson eyðir ómældum tíma og fjármunum í uppgræðslu á örfoka melum og hlíðum norðaustan undir fjallinu Skjaldbreið  Segir að landið sé stórskemmt og eins og eftir loftárás Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Áhugamaður Jóhann Kristjánsson hefur tekið ástfóstri við Fífilbrekkur og Fífilvelli og reynir að gera allt það góða sem hann getur. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Grjóthreinsun Áður en hægt er að nota tæki við undirbúning lands og áburðardreifingu þarf að hreinsa stærsta grjótið af völlunum. Jóhann ber það saman í hrúgur og sums staðar myndast listaverk. Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið www.gilbert.is KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR LÍKA FYRIR DÖMURNAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.