Morgunblaðið - 09.08.2019, Page 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019
9. ágúst 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.8 122.38 122.09
Sterlingspund 147.95 148.67 148.31
Kanadadalur 91.61 92.15 91.88
Dönsk króna 18.236 18.342 18.289
Norsk króna 13.659 13.739 13.699
Sænsk króna 12.672 12.746 12.709
Svissn. franki 124.28 124.98 124.63
Japanskt jen 1.1455 1.1521 1.1488
SDR 167.45 168.45 167.95
Evra 136.12 136.88 136.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.3988
Hrávöruverð
Gull 1487.65 ($/únsa)
Ál 1740.0 ($/tonn) LME
Hráolía 58.68 ($/fatið) Brent
Skráð atvinnu-
leysi var að með-
altali 4,4% á öðr-
um ársfjórðungi
þessa árs. Þá var
atvinnuleysi 3,3%
í júní, en samtals
voru 6.800 at-
vinnulausir í
mánuðinum sam-
kvæmt árstíða-
leiðréttingu. Það
er um 1,5% minna en í maí.
Fyrir sama tímabil hækkaði leið-
rétt hlutfall starfandi fólks um 2,1%,
eða í 78,8% fyrir júní árið 2019.
Atvinnulausum í júní 2019 fjölgaði
um 400 manns frá sama tíma í fyrra,
en þá voru 6.400 atvinnulausir. Alls
voru 41.100 einstaklingar utan
vinnumarkaðar í júní 2019 en höfðu
verið 39.800 í júní 2018. Þegar litið
er til síðustu sex mánaða sýnir leitni
að árstíðaleiðréttar tölur um at-
vinnuþátttöku standa nær alveg í
stað. Hlutfall starfandi lækkaði um
0,5% á sama tíma og atvinnuleysi
jókst um sama prósentustig.
Atvinnu-
leysi var
3,3% í júní
Atvinna Atvinnu-
þátttaka var ágæt.
6.800 atvinnulausir
STUTT
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Heildartekjur vegna tónleika stór-
stjörnunnar Ed Sheeran hér á landi
um komandi helgi nema um einum
milljarði króna. Tónleikarnir fara
fram á Laugardalsvelli og von er á
miklum fjölda fólks.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins má gera ráð fyrir að um 50
þúsund miðar seljist á tónleikana.
Verði það raunin má áætla að um 35
þúsund miðanna verði seldir í stand-
andi svæði og 15 þúsund í sæti. Verð á
standandi svæði er 15.990 kr. á meðan
miðar í sæti eru allt frá 19.990 kr. til
29.990 kr. Samtals má því gera ráð
fyrir að tekjur vegna miðasölu verði
um 900 milljónir króna.
Auk tekna vegna miðasölu eiga
tónleikahaldarar von á góðri sölu veit-
inga og ýmiss varnings. Slík sala er þó
í höndum fyrirtækisins Par 3, sem sér
um söluna fyrir hönd listamannsins.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
tekjur af sölunni verði í kringum 100
milljónir króna. Samtals eru því
tekjur af tónleikunum um einn millj-
arður króna.
Listamaðurinn græðir mest
Aðspurður segist Ísleifur Þórhalls-
son, framkvæmdastjóri hjá Senu
Live, ekki geta tjáð sig um framan-
greinda útreikninga. Hann segir þó
að ágóði tónleika á borð við þessa fari
að mestu í vasa listamannsins og hans
teymis. „Stærstur hluti ágóðans fer
ávallt til listamannsins og hans teym-
is, sem er eðlilegt. Það er hann sem
selur, en við förum að sjálfsögðu ekki í
svona verkefni nema það sé hagnað-
arvon,“ segir Ísleifur og bætir við að
mikil áhætta felist í því að flytja
stjórnstjörnur hingað til lands. „Þetta
er útreikningur sem fer fram áður en
reynt er að fá listamanninn hingað til
lands. Spurningin er í raun alltaf
hvort það borgi sig fyrir þau að koma
til Íslands og hvort við séum til í
áhættuna, sem er alltaf talsverð,“
segir Ísleifur.
Spurður hver heildarkostnaður
vegna umstangs í kringum tónleikun-
um sé segist Ísleifur ekki geta gefið
það upp. Þá sé kostnaðurinn ekki al-
farið hjá Senu Live heldur beri teymi
á vegum tónlistarmannsins einnig
stóran hluta útlagðs kostnaðar. „Við
gefum ekki upp hversu mikinn kostn-
að við þurfum að sjá um, en kostn-
aðurinn skiptist milli okkar og hans
teymis. Til að mynda er uppsetning
sviðsins, hljóð og ljósabúnaðar algjör-
lega í höndum ríflega hundrað manna
starfsliðs hans,“ segir Ísleifur sem er
afar reyndur í vinnu við tónleikahald
erlendra listamanna hér á landi. Að
hans sögn eru tónleikar Ed Sheeran
langstærsti tónlistarviðburður sem
haldinn hefur verið á Íslandi. „Um-
fangið í kringum þennan listamann er
miklu meira en við höfum áður séð.
Þar nefni ég sérstaklega búnaðinn og
sviðið,“ segir Ísleifur.
Tónleikar Ed Sheeran skili
um einum milljarði króna
AFP
Stórstjarna Nú styttist óðum í að Ed Sheeran stígi á svið á Laugardalsvelli. Von er á fjölda fólks á tónleikana.
Stórtónleikar
» Fjöldi miða hefur selst á
seinni tónleikana síðustu daga.
» Uppselt er á fyrri tónleikana
sem fram fara á morgun. Bú-
ast má við um 30 þúsund
manns.
» Sala hefur gengið hægar á
seinni tónleikana, en vonir
standa til að um 20 þúsund
miðar muni seljast.
900 milljónir króna má rekja til miðasölu Heildarkostnaður ekki gefinn upp
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
● Icelandair Group lækkaði um 1,35% í
Kauphöll Íslands í gær í 70 milljóna
króna viðskiptum. Stendur gengi fé-
lagsins nú í 8,05 krónum á bréfið. Eftir
lokun markaðar hinn 1. ágúst birti flug-
félagið uppgjör sitt vegna annars árs-
fjórðungs þar sem fram kom að félagið
hefði tapað á fyrstu sex mánuðum árs-
ins 89,4 milljónum Bandaríkjadala, eða
um 11 milljörðum króna. Tap félagsins
vegna kyrrsetningar Max-þotnanna
nemur samkvæmt tölum þess 6,1 millj-
arði króna. Við lokun markaðar 1. ágúst
nam gengi félagsins 9,28 krónum og
því hafa hlutabréf félagsins lækkað um
13,3% á vikutímabili.
Bréf Icelandair hafa lækkað um 13,3% á einni viku