Morgunblaðið - 09.08.2019, Síða 46

Morgunblaðið - 09.08.2019, Síða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 Ung kona er fallin frá í blóma lífsins. Móðir, eig- inkona og læknir, með mikinn metnað á öllum sviðum. Lífið innihaldsríkt og gefandi, hjónin bæði í krefjandi og áhugaverðum störfum sem þau stunda eftir langt og metn- aðarfullt nám, fjölskyldan stækkandi og lífið er yndislegt. Þangað til sprengjan fellur. Það fá engin orð því lýst hvílíkt áfall reið yfir. Ég kynntist Gunnhildi Völu fyrst þegar hún var læknanemi á 5. ári og hitti fyrir harð- duglega og eldklára unga konu sem vissi alveg hvert hún ætl- aði í lífinu. Hún var búin að marka framtíðarbrautina með maka sínum og hún þekkti leið- ina. Aftur lágu leiðir okkar saman á 6. námsári hennar þeg- ar hún tók að sér verkefni á valnámskeiði hjá okkur á kvennadeildinni, sem var hluti af grunnnámi hennar í lækn- isfræði en hún útskrifaðist vor- ið 2015 frá Læknadeild Háskóla Íslands. Hún sinnti verkefninu af miklum áhuga og dugnaði og hélt því svo gangandi áfram þegar hún kom aftur á kvenna- deildina sem kandídat og síðar sem unglæknir í framhaldsnámi í fæðingarfræði og kvenlækn- ingum. Á þessum tíma var sjúk- dómurinn farinn að hafa áhrif á allt hennar líf en hún vann þó eins og heilsan leyfði og hug- urinn bar hana hálfa leið. Hún átti sér þá einlægu ósk að verða fæðingar- og kvensjúkdóma- læknir og engin önnur sérgrein innan læknisfræðinnar kom til greina. Engar málamiðlanir voru gerðar vegna veikindanna, hún hélt ótrauð áfram og barð- ist sem ljón í baráttunni við sjúkdóminn. Hún upplýsti alltaf samstarfsfólkið um ástand sitt á hverjum tíma, kom hrein- Gunnhildur Vala Hannesdóttir ✝ GunnhildurVala Hannes- dóttir fæddist 3. ágúst 1987. Hún lést 26. júlí 2019. Útför Gunn- hildar fór fram 7. ágúst 2019. skiptin til dyra og vildi að allir væru upplýstir um ástand sitt. Hún bað aldrei um vor- kunn og ég held að samstarfsfólkið hafi fundið það og allir hafi reynt að veita henni stuðn- ing og styrk í bar- áttunni, hver með sínum hætti. Hún sparaði aldrei kraftana en lagði sig alla fram, hvort sem um var að ræða vinnu á göngudeild, við fæðingar eða á vöktum. Allt samstarfsfólkið á kvennadeild- inni studdi Gunnhildi Völu af heilum hug en á sama tíma vissum við öll að skjótt geta skipast veður í lofti. Það er þyngra en tárum taki að kveðja Gunnhildi Völu í dag. Við söknum góðs kollega, félaga og vinar. Mestur er þó miss- irinn fyrir fjölskyldu hennar, fyrir eiginmann hennar Arnar og dæturnar Ragnheiði Elínu og Þorgerði Önnu. Ég sendi þeim og öðrum aðstandendum öllum innilegar samúðarkveðjur og óska þeim velfarnaðar. Elsku Gunnhildur Vala, hvíl í friði. Hildur Harðardóttir læknir. Elsku Gunnhildur. Það er skrýtið hvað það er sárt að kveðja þig, en samt er það ekkert skrýtið. Systir mín. Það var ekkert alltaf þannig að þú værir systir mín. Þú komst fyrst inn í mitt líf fyrir tuttugu árum. Varst þá bara krakki. Elsta dóttir hennar Ellu, seinni konunnar hans pabba. Ég fann enga tengingu. Þó að þú værir tæknilega séð stjúpsystir mín. Ég var fullorð- inn, átti mitt eigið heimili og stuttu síðar mína eigin fjöl- skyldu. Við bjuggum ekki undir sama þaki og þó að ég kæmi stundum í heimsókn til ykkar varðst þú ekkert sjálfkrafa hluti af minni fjölskyldu við það. En þú ert einstök og hrífur með þér alla sem umgangast þig. Það er alltaf gott að hitta þig. Þú ert hlý og skemmtileg, klár og dugleg, og í hvert skipti sem við hittumst varðst þú stærri hluti af mínu lífi. Þú ákvaðst að fara í lækn- isfræði eftir menntaskóla. Þú ert klár og stóðst þig vel í námi. Það kom ekkert á óvart. Við það færðist þú ennþá nær mér. Þú varðst starfssystir mín auk þess að vera stjúpsystir mín. Eftir að við Hildur fluttum aftur til Íslands eftir námið urðuð þið Arnar góðir vinir okkar. Þó að það séu einhver ár á milli okkar í aldri virtist það engu skipta varðandi vinskap- inn. Við áttum öll svo margt sameiginlegt. Svo margt að tala um. Og hlæja að. Við áttum góðar stundir saman þegar við hittumst. Eftir á að hyggja allt of sjaldan, en það er einhvern veginn þannig þegar maður vinnur mikið og hefur börnum að sinna. Maður hittir vini sína allt of sjaldan. Fjölskyldu sína allt of sjaldan. En þið voruð einmitt bæði vinir okkar og fjöl- skylda. Þegar þú veiktist varð það öllum áfall. Þú ákvaðst að láta það ekkert aftra þér. Vissir ekkert hvernig veikindin myndu þróast eða hvað þetta myndi taka langan tíma. Þú vissir hins vegar alveg hvað þú vildir gera. Hvert þú vildir fara. Ætlaðir að verða kvensjúk- dómalæknir. Skurðlæknir. Varst fljótlega farin að gera keisaraskurði og aðrar aðgerðir nánast óstudd. Varst bara svo flink. Svo fær. Svo góður lækn- ir. Þið Arnar giftuð ykkur fyrir tæpum tveimur árum. Fallegri brúðhjón hafa varla sést. Ragn- heiður og Þorgerður fylltu út í fjölskyldumyndina. Litlu fjöl- skylduna ykkar. En þú átt þér stóra fjöl- skyldu. Stóran hóp af fólki sem elskar þig. Og saknar þín. Því eins og ég sagði þér á brúð- kaupsdaginn ykkar eruð þið Arnar svo stór og mikilvægur hluti af okkar lífi að þó svo pabbi minn og mamma þín hafi ákveðið að skilja erum við ekk- ert hætt að vera systkini, þú og ég. Þið og við. Þið eruð fjöl- skyldan okkar. Þið verðið það alltaf. Þú ert systir mín. Og ég sakna þín. Viðar Magnússon og fjölskylda. Elsku vinkona, ég trúi því varla að ég sitji hér og skrifi minningargrein þína. Ég trúi því ekki að þú hafir þurft að lúta í lægra haldi gagnvart krabbameininu. Þú varst svo óendanlega sterk og kljáðist við sjúkdóminn af svo miklu æðru- leysi. Þú náðir að fylla alla sömu einskæru von, jákvæðni og baráttuanda og þú bjóst yfir og orð fá því ekki lýst hversu óréttlátt þetta er. Ég man vel eftir þegar við hittumst fyrst í kór Mennta- skólans í Reykjavík og það er óhætt að segja að þú hafðir ein- staka nærveru og þér tókst að lýsa upp skammdegið með gleði þinni og smitandi hlátri. Leiðir okkar lágu síðan aftur saman þegar þú hófst nám í lækn- isfræði og þar varstu á heima- velli. Þú hafðir alla þá kosti sem góður læknir þarf að bera; nærgætin, umhyggjusöm, ósér- hlífin, klár, dugleg og svo margt fleira. Þú unir þér vel að vinna við kvenlækningar og mikið hefði það verið gaman að fá þig til okkar hér í Svíþjóð. Elsku Gunnhildur, þær minningar sem við eigum um þig eru allar svo frábærar. Minningar um Þingvallarferðir, bústaðarferðir, matarboð og margt fleira. Alltaf tókst þér að gera þessar stundir yndislegar og þú hafðir einstakt lag á að fá það besta fram í öllum við- stöddum. Samband ykkar Arn- ars og stelpnanna ykkar var svo yndislegt og fallegt að það var unun að vera nærri ykkur. Þegar sorgin fyllir hugann get- um við sem eftir stöndum yljað okkur við allar þessar minn- ingar um þig. Mér er það sér- staklega dýrmætt að hafa feng- ið að halda með þér upp á þrítugsafmælið þitt hér í Lundi og brúðkaupið ykkar Arnars á Íslandi í ágúst 2017. Í minning- unni verður þú alltaf svífandi brosandi um í hvíta kjólnum þínum eins og fallegur engill. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endur- gjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Elsku Arnar Jan, Ragnheiður Elín, Þorgerður Anna og ást- vinir allir, ég votta ykkur sam- úð mína á þessum erfiðu tím- um. Minningin um frábæra konu lifir. Þinn vinur, Ómar Sigurvin. Nýja stelpan í 7. bekk kom úr Vesturbænum. Hún hét Gunnhildur og það leið ekki á löngu þar til hún varð órjúf- anlegur partur af vinkvenn- ahópnum, sem svo varð „Há- teigsskólastelpurnar,“ hópur sem hefur verið samferða í yfir 20 ár. Við erum átta vinkon- urnar en þrátt fyrir að við fær- um í mismunandi menntaskóla, veldum hinar ýmsu leiðir í há- skóla, og höfum búið erlendis til skemmri eða lengri tíma, hafa þræðir vináttunnar eingöngu orðið sterkari. Ég sé það nú sem fullorðin manneskja að það er ekki sjálf- gefið að vinátta æsku- og ung- lingsáranna haldi og styrkist eftir því sem við eldumst og Gunnhildur átti svo sannarlega sinn þátt í því að við „Háteigs- skólastelpurnar“ höfum haldið hópinn. Hún var einfaldlega svo skemmtileg, lifandi og gefandi. Svo veiktist hún en þrátt fyrir veikindin náði hún að klára læknanámið með glæsibrag og tók sér einungis hlé frá náminu til að fara í fæðingarorlof. Sannkölluð ofurkona sem átti framtíðina fyrir sér. Hún var langfyrst af okkur vinkonunum til að finna stóru ástina í lífinu, hann Arnar sinn, og eignaðist með honum tvær yndislegar dætur sem voru augasteinar móður sinnar. Arn- ar var ekki bara stóra ástin í lífi Gunnhildar, hann stóð einnig sem klettur við hlið hennar í gegnum súrt og sætt og saman tóku þau slaginn þar til yfir lauk. Það er þyngra en tárum taki að tala núna um hana Gunnhildi mína í þátíð. Við gátum hlegið saman, fíflast saman og grátið saman. Hún var svo falleg og glæsileg, alltaf smart í tauinu, eldklár, traust og góð vinkona. Ég mun sakna hennar í mán- aðarlegu matarboðunum okkar þar sem hún var hrókur alls fagnaðar og lék á als oddi. Sakna þess að eiga hana ekki lengur að, sakna þess að hún sé ekki hér og græt það sem hefði getað orðið og hefði átt að vera. Við vissum svo sem alltaf hvernig þetta myndi enda en það gerir missinn samt ekkert auðveldari. Um leið og ég syrgi kæra vinkonu er ég um leið svo þakklát fyrir að hafa kynnst henni og allar þær stundir sem við náðum þó að eiga saman á hennar allt of stuttu ævi. Hann kemur mér í opna skjöldu þar sem hann blasir við á gamalli ljósmynd. Blikandi ljárinn kemur ekki upp um hann heldur hnausþykk gleraugun. Það hlaut að vera að hann sæi illa eins ómannglöggur og hann getur verið. (Gerður Kristný) Elsku Arnar, Ragnheiður Elín, Þorgerður Anna, foreldr- ar, systkini og fjölskylda, ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð. Anna Sveinbjörnsdóttir. Við Gunnhildur Vala höfum verið samferða undanfarin 15 ár, næstum hálfa ævina. Fyrst sem bekkjarsystur í MR, svo sem bekkjarsystur á síðari stig- um læknanámsins og undanfar- in ár sem samstarfskonur á kvennadeildinni og nánar vin- konur. Gunnhildur var þeim ein- staka hæfileika gædd að hrífa fólk með sér. Flestir sem kynntust henni muna stundina þegar þeir sáu hana fyrst, svo eftirminnileg og sjarmerandi var hún. Afar fögur, með ljóst hrokkið hár, fallega mislit augu, löng augnhár og einlægt og fal- legt bros. Og takmarkalausa út- geislun. Hún var heillandi, hispurs- laus, blátt áfram og ófeimin. Nærveran þannig að fólk sótti í hana, langaði til að umgangast hana og vera nálægt henni. Eldklár, fljót að hugsa, hnyttin og fyndin. Óþrjótandi upp- spretta gleði og hláturs, kald- hæðin sagnakona með mikinn húmor fyrir sjálfri sér. Óhrædd við að gera góðlátlegt grín að samferðafólki sínu án þess þó að vera nokkurn tímann harka- leg eða særandi. Hláturinn svo smitandi að það var ómögulegt að hrífast ekki með, söngröddin undurfögur. Lífsgleðin geisl- andi og aðdáunarverð. Gunnhildur var frábær lækn- ir og það voru forréttindi að fá að starfa með henni. Hún var ósérhlífin, áhugasöm, með ótrú- legt innsæi og hefði orðið frá- bær fæðingarlæknir. Hún kom fram við alla af virðingu og sem jafningja. Var auðmjúk og laus við hroka þrátt fyrir að standa flestum framar á nánast öllum sviðum. Hún bjó yfir ríkri til- finningagreind og var einstak- lega skilningsrík og umhyggju- söm. Setti sig fyrirhafnarlaust í spor náungans og hafði ávallt líðan annarra í forgrunni, sama hvað gekk á í hennar lífi. Hún naut virðingar í leik og starfi, samferðafólk leit upp til hennar og hún varð áreynslulaust leið- togi og fyrirmynd í flestum hópum sem hún tilheyrði. Hún setti viðmiðið. Síðastliðin ár grínuðumst við oft með að hún væri „vinnu- mamma mín“. Hún passaði að ég mætti stundvíslega og minnti mig á mikilvæga fundi og skuldbindingar. Hvatti mig til að fara að sofa á skikkanleg- um tíma, áminnti mig góðlát- lega fyrir slæma borðsiði í há- degismatnum. Kallaði mig unglinginn sinn. Móðurhlut- verkið var henni eðlislægt enda sinnti hún dætrum sínum af natni, festu og kærleika sem þær munu án efa alltaf búa að. Gunnhildur var yndisleg vin- kona. Örlát, traust og nærgæt- in. Alltaf með opinn faðminn, tilbúin að ræða, hlusta, hlæja, hjálpa, styðja og samgleðjast. Hún nálgaðist öll vandamál með djúpum skilningi, yfirveg- un og húmor og tókst undan- tekningalaust að finna eitthvað jákvætt og gott að einblína á í stað þess að dvelja við vondar eða erfiðar tilfinningar. Hún reiddist sjaldan og var ekki langrækin. Fyrirgaf, treysti, sá og trúði á það besta í fólki. Hún var hreinskilin og beinskeytt, veigraði sér aldrei við að ræða erfið mál og sagði alltaf sann- leikann, umbúðalaust. Ótímabært fráfall hennar skilur eftir sig ófyllanlegt skarð og söknuðurinn er ólýsanlega sár. Eftir situr þakklæti fyrir ógleymanlega, ómetanlega og dýrmæta vináttu. Arnari Jan, Ragnheiði Elínu, Þorgerði Önnu og fjölskyldunni allri votta ég einlæglega samúð mína. Margrét Edda Örnólfsdóttir. Í dag fylgjum við til grafar kærum kollega, duglegu, kláru og glöðu Gunnhildi Völu sem kom fyrst til starfa með okkur á kvennadeildinni þegar hún var enn þá læknanemi. Þá eyddi hún valtímabilinu á 6. ári á deildinni og sýndi strax að hún átti erindi í okkar fag, full af áhuga og orku. Síðar sama sumar var hún hjá okkur í tvo mánuði sem kandídat og þá fundum við drifkraftinn sem gerði það að verkum að hún náði að tileinka sér strax það sem aðrir biðu kannski rólegri með að ná tökum á. Hún fór ekki leynt með að hún væri með alvarlegan sjúkdóm, æxli við heila sem ætti eftir að draga hana til dauða fyrr en aðra, þó að hún vissi ekki hvenær það yrði. Við höfðum á tilfinning- unni að einmitt þess vegna væri henni mikilvægt að vera ekki eftirbátur hinna og grípa hvert tækifæri sem gæfist til að læra að meðhöndla flókin tilfelli og ná færni í að framkvæma skurðaðgerðir. Hún hóf síðan störf sem sérnámslæknir í fæð- ingar- og kvensjúkdómum um leið og kandídatsárinu lauk og við fylgdumst með henni þrosk- ast í starfinu og vinna öll verk fljótt og vel. Hún var farin að gera keisaraskurði sem kandí- dat og sýndi mikla færni í skurðaðgerðum. Hún tók þátt í rannsóknarvinnu og var tilbúin að leggja á sig aukavinnu til að fylgja þeim verkefnum eftir. Hún var vel liðin af öllu starfs- fólki, var annt um skjólstæð- ingana en það var stutt í grín og skemmtilega kaldhæðni þeg- ar það átti við. Við tókum þátt í gleðinni þegar hún og Arnar eignuðust seinni dóttur sína og gengu í hjónaband. En við viss- um líka að vágesturinn beið og gerði atlögur að henni þó að hún léti það hafa sem minnst áhrif á störf sín og kvartaði ekki. Hún stóð sínar vaktir meðan hún mögulega gat og lét helst ekki meðferðir við sjúk- dómnum stoppa sig þó að við vissum að stundum hefði það kannski verið betra fyrir heilsu hennar að vera heima. Hún vildi ekki láta dæma sig úr leik. Hún vann hjá okkur meðan þrekið leyfði en varð að láta af störfum í lok síðasta árs. Við tóku aðgerðir og meðferðir sem því miður gátu ekki veitt lækn- ingu. Gunnhildur var á leið með að verða afbragðs fæðingar- og kvensjúkdómalæknir. Minningu hennar fylgir mynd af glaðri, duglegri og fallegri ungri konu og við tregum hana öll. Elsku Arnar Jan, Ragnheiður Elín og Þorgerður Anna, við sam- hryggjumst ykkur og biðjum allar góðar vættir að vera með ykkur á þessum erfiðu stund- um. Við sendum foreldrum Gunn- hildar, systkinum og öðrum ættingjum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd sérfræðilækna á kvennadeild Landspítalans, Hulda Hjartardóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir og tengdadóttir, INGIRÍÐUR BLÖNDAL Rjúpufelli 22, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala 26. júlí. Útför fer fram frá Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 13. ágúst klukkan 15. Við viljum færa innilegar þakkir til allra sem hlúðu að henni í erfiðum veikindum. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Ljónshjarta. Hjálmar Diego Haðarson Soffía Erla, Jónas Bergmann, Hjálmar Arnar Sigríður og Jónas Blöndal Soffía Auður Diego og Höður Guðlaugsson Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, tengdafaðir og afi, RAGNAR S. HALLDÓRSSON verkfræðingur og fyrrverandi forstjóri, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 7. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Margrét K. Sigurðardóttir Kristín Vala Ragnarsdóttir Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna H. Jónsdóttir Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.