Morgunblaðið - 09.08.2019, Qupperneq 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019
MÍA Tveggja laga regnjakki
Kr. 18.990.-
SALKA Gönguleggings
Kr. 9.490.-
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ást, pólitík, fordómar og frelsi eru
meðal yrkisefna Bubba Morthens á
33. hljóðversskífu hans, Regnbogans
stræti, sem kemur út í dag. Bubbi
fagnar útgáfunni með hófi í Lucky
Records við Rauðarárstíg í dag kl. 17
og mun bæði árita plötuna og taka
nokkur lög.
Regnbogans stræti hefur að
geyma 11 lög af ýmsu tagi, allt frá
valsi yfir í rokk og stjórnaði Guð-
mundur Óskar Guðmundsson bassa-
leikari, nefndur Góskar, upptök-
unum. Einvalalið hljóðfæraleikara
lagði Bubba lið við upptökurnar,
Góskar plokkaði bassa, Hjörtur
Ingvi Jóhannsson lék á hljómborð,
Örn Eldjárn á gítar, Aron Steinn Ás-
bjarnarson á saxófón og Þorvaldur
Þór Þorvaldsson á trommur. Elísa-
bet Ormslev, Zöe, Rósa Björk Óm-
arsdóttir, Valdimar Guðmundsson
og Stefanía Svavars syngja bakradd-
ir á plötunni og Katrín Halldóra Sig-
urðardóttir syngur svo með Bubba í
ástarlaginu „Án þín“ sem notið hefur
mikilla vinsælda undanfarið.
Heilsteypt listaverk
Bubbi er nýkominn úr ræktinni
þegar blaðamaður nær tali af honum
og nefnir fyrst umslag plötunnar
sem Ámundi Sigurðsson hannaði.
Það er litríkt og abstrakt og Bubbi
er spurður að því hvort Ámundi hafi
unnið umslagið út frá titli plötunnar.
„Já, að einhverju leyti og við erum
líka að sækja í fyrri hluta sjöunda
áratugarins og jafnvel þann sjötta,“
svarar Bubbi.
Telur hann útlit plötunnar end-
urspegla innihaldið? Já og nei, svar-
ar Bubbi, sum lögin gætu verið ára-
tugagömul, t.d. „Án þín“ sem gæti
hafa verið samið á árunum ’68-9. „En
aðallega vildi ég búa til litaðan kont-
rast, ekki fara þessa venjulegu leið
sem liggur oft beinast við, ljósmynd
og svo framvegis,“ bætir hann við.
Bubbi segir útlitshönnun platna
ávallt hafa skipt hann máli. „Sér-
staklega þegar þetta er vínyll, þá lít
ég á þetta sem heilsteypt listaverk.
Umslög eru listaverk, vínylumslög
eru listaverk út af fyrir sig,“ segir
hann.
„Best of“ Bubbi
– Talandi um fortíðina þá tengdi
ég við eldri lög eftir þig þegar ég
hlustaði fyrst á þessa plötu, byrjun
„Skríða“ minnir mig t.d. á „Leynd-
armál frægðarinnar“ og titillag plöt-
unnar minnir á
„Silfraðan boga“.
Hefur einhver
nefnt þetta við
þig?
„Nei,“ svarar
Bubbi og bendir á
að hann hafi samið mörg hundruð
laga á ferlinum og því hljóti einhver
að minna á önnur. „Svo hljóta höf-
undareinkenni mín auðvitað að
liggja þarna. „Regnbogans stræti“
er t.d. mjög klassískt Bubba-lag,
stór og mikil ballaða og mikill texti
og gríðarlega mikilvægur, finnst
mér. Ég held að Biggi í Dimmu hafi
sagt að þetta væru ný lög en hljóm-
uðu eins og „best of“ Bubbi,“ segir
Bubbi og segist vera ánægður með
þá upplifun Bigga þar sem ætlun
hans hafi verið að gera plötu þar sem
hann væri að þvælast, að einhverju
leyti, inn og út úr því sem hann hefði
verið að gera. „Eins og „Lífið fyr-
irgefur dauðanum“, það kallast á við
þessa evrópsku músíkhefð sem ég
hef unnið með í lögum eins og „Gula
flamíngóinum“,“ nefnir Bubbi sem
dæmi.
Hinir og þessir stílar
– Nú stýrði Góskar upptökum á
plötunni. Um hvað rædduð þið áður
en þið hófust handa, voruð þið með
ákveðið markmið?
„Ég var með gommu af lögum en
var nokkurn veginn með neglt niður
hvaða lög ég vildi vinna. Síðan
ákváðum við að hafa hana „organic“,
frekar lífræna og hún er því að miklu
leyti spiluð „live“ inn. Við vildum að
það heyrðist að þetta væru alvöru-
hljóðfæri og lifandi tónlist en við
ákváðum líka að hafa þetta suðupott,
að vera ekki bara með einhverja eina
línu eins og á Túngumál sem var
mjög heilsteypt verk. Okkur langaði
að fara í hina og þessa stíla,“ svarar
Bubbi. Þá Góskar hafi langað að
gera heiðarlega plötu.
Mikilvægt að taka afstöðu
Bubbi er spurður að því hvers
vegna hann hafi nefnt plötuna eftir
þessu tiltekna lagi, „Regnbogans
stræti“.
„Fyrir það fyrsta þá fjallar þetta
lag um frelsið og það fjallar um for-
dóma,“ svarar Bubbi. „Það fjallar
um jaðarinn en um leið um okkur öll.
Það er sótt að samkynhneigðum af
meiri hörku en við höfum séð í ára-
tugi og barátta samkynhneigðra er í
rauninni í mörgum löndum komin
aftur fyrir upphafspunkt. Við erum
að tala um Rússland, Pólland, Balk-
anskagann, Úkraínu og Evrópu, við
sjáum þetta gerast í löndunum í
kringum okkur. Svo erum við að tala
um minnihlutahópa sem Donald
Trump er búinn að gefa skotleyfi á
og flóttafólk. Þetta lag fjallar um allt
þetta og um leið griðin sem kærleik-
urinn gefur og hversu mikilvægt það
er að sannleikurinn í hverjum manni
fái að lifa,“ segir Bubbi. Þess má
geta að Bubbi flutti lagið í gær á
opnunarhátíð Hinsegin daga í Há-
skólabíói.
Bubbi segir mikilvægt að lista-
menn taki afstöðu þó að hún sé ekki
endilega vinsæl. „Þó svo að það sé
gargað á okkur eða ráðist á okkur á
netinu eða annars staðar því það
skiptir svo miklu máli að við tökum
slaginn. Þetta lag getur líka fjallað
um Wikileaks-lekann og það sem við
verðum vitni að núna, að maður sem
ljóstrar upp um hryðjuverk Banda-
ríkjanna skuli vera ofsóttur og sitji í
gæsluvarðhaldi eða fangelsi í Lond-
on. Það er sótt að blaðamönnum úti
um allan heim og menn hérna heima
eru byrjaðir af afbaka umræðuna og
það er verið að klípa af frelsinu alls
staðar og lýðræðinu, sótt að okkur
úr öllum áttum,“ segir Bubbi. Fyrir
honum sé lagið því eitt það mikil-
vægasta sem hann hafi samið.
Endalausar hugmyndir
– Ég held að fólk sjái þig fyrir sér
sem mann sem er alltaf að, þú ert
ekki mikið fyrir að sitja í hæginda-
stól aðgerðalaus …
„Nei, nei, ég vaknaði klukkan
fimm í morgun og fór að skrifa og
semja,“ svarar Bubbi að bragði, eld-
hress.
– En færðu aldrei stíflur eins og
rithöfundar og aðrir listamenn?
„Nei, aldrei. Ég held að það sé
eitthvað að mér, ég held að ég sé frá-
vik. Ég er með endalausar hug-
myndir, þær bara stoppa ekki, hvort
sem ég er að semja ljóð eða lög.
Þetta er það skemmtilegasta sem ég
geri og það sem mér finnst mikil-
vægast í mínu lífi, fyrir utan fjöl-
skylduna, er að geta samið og að
hafa eitthvert erindi. Það er ekkert
mál að semja en það sem skiptir máli
er að hafa eitthvað að segja.“
Bubbi segist að lokum hæst-
ánægður með plötuna nýju. „Mér
finnst þetta alveg geggjuð plata!“
segir hann og skellihlær að sjálfum
sér.
Lífrænn suðupottur
Regnbogans stræti nefnist 33. hljóðversskífa Bubba Morthens sem kemur út í dag Titillag plöt-
unnar fjallar um fordóma og frelsi og er að mati Bubba eitt það mikilvægasta sem hann hefur samið
Morgunblaðið/Kristinn
Baráttumaður Bubbi kom fram við opnun Hinsegin daga í Háskólabíói í gær og flutti titillag plötunnar
Regnbogans stræti sem fjallar um frelsi og fordóma og þá meðal annars gagnvart samkynhneigðum.
Það er sannleikur í lífinu menn ljúga
frá æskunni á vængjum vonar fljúga
það er í eðli sumra á ystu brún að standa
fyrst þá sem þeim finnst þeir anda
gefast aldrei upp þó óttinn þeim mæti
í hliðargötum frá regnbogans stræti
Sumar manneskjur sannleikann þrá
og aðrir þola hann ekki vilja aldrei sjá
sumir erfa áföll forfeðra sinna
meðan aðrir hamingju í hjarta finna
sagt er að sáttin öllum mönnum mæti
að morgni dags á regnbogans stræti
Sýndu mér ást í fangi blárra daga
fagnaðu sem væri ég gömul saga
við glugga opinn lesin fyrir löngu síðan
og í brjósti þínu logaði ástríðan
ég trúi einn dag aftur lausnin þér mæti
undir krónum trjánna við regnbogans stræti
Þú saknar eldsins á einhvern skrítinn máta
augun þín brosa en hjartað er að gráta
þó svo lífið feli leyndarmál þín
og öskur sársaukans í hlustum okkar hvín
veit ég að réttlætið mun stíga niður fæti
og tala máli þínu á regnbogans stræti
Þeir settu verðmiða á kærleikann og drógu
um höfuð frelsisins gaddavír og hlógu
byrjuðu að gjaldfella orðin eitt af öðru
og líktu frelsinu við eiturnöðru
og fyrir sannleikann brugðu þeir fæti
sorgin býr líka við regnbogans stræti
Regnbogans stræti
FYRSTU ERINDI TITILLAGSINS