Morgunblaðið - 15.08.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
Réttindi þvert á skólastig
Þorgerður Laufey Diðriksdóttir,
formaður Félags grunnskólakenn-
ara, segir gleði og eftirvæntingu
ríkja meðal kennara fyrir nýju
skólaári. Hún er nýkomin af ráð-
stefnu í Reykjanesbæ þar sem 300
kennarar mæltu sér mót og stilltu
saman strengi fyrir veturinn.
Um áramót taka gildi breytingar
á lögum um kennararéttindi og
verða réttindi leik-, grunn- og
framhaldsskólakennara þá sam-
einuð þannig að kennarar hafi
starfsréttindi þvert á skólastigin
þrjú. Þorgerður segir að í breyt-
ingunni felist viss áskorun en um
leið sé jákvætt að búið sé að
tryggja að þeir sem gera kennslu
að ævistarfi geti nýtt þekkingu
sína, reynslu og getu til kennslu á
því stigi sem hentar þeim hverju
sinni.
Sú nýlunda verður nú í vetur að
kennaranemar á fimmta ári verða
teknir inn í starfsnám í grunn-
skólum, og kann það að skýra að
auðveldara sé að ráða í stöður
kennara. Þorgerður segir það von
kennara að starfsnemar verði, er
fram líða stundir, ekki hugsaðir í
stað kennara, heldur verði þeir
þeim innan handar í skólastarfinu
og læri þá af kennurunum.
á Seltjarnarnesi,
þar sem grunn-
skólar eru tveir
og leikskólar
reknir undir ein-
um hatti.
Frá Mýr-
arhúsaskóla, sem
heldur úti yngri
bekkjum grunn-
skólans á Sel-
tjarnarnesi, fást
þær upplýsingar að búið sé að
manna öll störf, en eitthvað vantar
upp á í systurskólanum á Val-
húsahæð.
Linda Udengard, fram-
kvæmdastjóri fræðslusviðs Mos-
fellsbæjar, segir að vel gangi að
ráða í grunnskóla bæjarins. Raun-
ar séu tveir þegar komnir í gang,
fullmannaðir. Erfiðara sé þó að
manna leikskólana og segir hún
Mosfellsbæ undir sömu sök seldan
og önnur sveitarfélög. Hlutfall fag-
lærðra af starfsmönnum leikskóla
er aðeins um 30% á landinu öllu.
Akureyrarbær sker sig úr, en
þar er hlutfall faglærðra rúmlega
tvöfalt á við landsmeðaltalið.
Í Garðabæ eru 211 stöðugildi
grunnskólakennara og eru þau öll
fullmönnuð. Eitthvað vantar þó
upp á í leikskólum og á frístunda-
heimilum.
Alexander Gunnar Kristjánsson
alexander@mbl.is
Ráðningar í lausar stöður leik- og
grunnskólakennara ganga vel, ef
marka má svör embættismanna í
stærstu sveitarfélögum landsins.
Sveitarfélög eru mörg hver í
óðaönn að manna síðustu lausu
stöðurnar, og er það mál manna að
betur gangi nú en mörg undanfarin
ár.
Sækja þarf um undanþágu til
Kennarasambandsins ef ráða á
ófaglærðan í starf grunnskóla-
kennara, og er sú undanþága veitt
því aðeins að reynt hafi verið til
þrautar að fá faglærðan í starfið.
Engin slík nefnd er til staðar í leik-
skólum, en faglærðir leikskóla-
kennarar hafa engu að síður for-
gang í störf fram yfir ófaglærða.
Erfiðara á leikskólum
Í Reykjavík liggja tölur um
ráðningar ekki fyrir, en ráðgert er
að leggja þær fyrir borgarráð á
næstu dögum. Sigrún Björnsdóttir,
upplýsingafulltrúi á skóla- og frí-
stundasviði borgarinnar, segist
telja að verkið gangi betur en áður,
en ljóst er að verkefnið er ærið
enda rekur Reykjavíkurborg 36
grunnskóla og fjölda leikskóla.
Fjöldanum er ekki fyrir að fara
Morgunblaðið/Þórður
Hringrás Leikskólar eru flestir opnir, og senn líður að því að grunnskólabörn snúi aftur til náttúrulegra heimkynna.
Gengur vel að manna
lausar stöður kennara
Aðeins 30% starfsmanna leikskóla eru faglærð
Þorgerður Laufey
Diðriksdóttir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég er sannfærður um að mark-
aðurinn á eftir að taka þessu vel
enda hefur verið gríðarleg vitund-
arvakning hér á landi sem annars
staðar um skað-
semi plasts og
plastnotkunar,“
segir Egill Örn
Jóhannsson,
framkvæmda-
stjóri Forlagsins.
Forlagið,
stærsti bókaút-
gefandi landsins,
hefur ákveðið að
hætta að pakka
bókum sínum í
plast. Munar um minna, því að sögn
Egils sendir Forlagið frá sér tæp-
lega 500 þúsund eintök af bókum á
ári hverju. Aðspurður segir hann
litla peninga sparast með þessari
ráðstöfun, ákvörðunin sé tekin út
frá umhverfissjónarmiðum. Egill
kveðst vona að fleiri útgefendur
fylgi í kjölfarið og leggi af þá ára-
tuga löngu hefð að pakka bókum í
plast. Hefðin hafi eflaust myndast
vegna þess að bækur séu vinsæl
gjafavara og því hafi útgefendur
verið helst til tregir að hætta plast-
pökkun.
„Það eru líklega orðin ein tíu ár
síðan við hjá Forlaginu tókum þá
ákvörðun að hætta að plastpakka
kiljum og á síðasta ári tókum við þá
ákvörðun að hætta jafnframt plast-
pökkun á öllum barna- og unglinga-
bókum. Það mæltist afar vel fyrir
og því er engin ástæða til annars en
að fylgja þessu enn frekar eftir. Ég
hugsa að bækur verði hér eftir að-
eins plastaðar í undantekningar-
tilvikum, svo sem þegar um stór-
virki er að ræða eða sérstaklega
viðkvæmar útgáfur,“ segir Egill að
endingu.
Forlagið hættir að
selja bækur í plasti
Gefur út 500 þúsund bækur á ári
Morgunblaðið/Ófeigur
Bækur Jólabókaflóðið verður plast-
laust hjá Forlaginu hér eftir.Egill Örn
Jóhannsson
Þórunn Sveinbjarnardóttir, for-
maður BHM, segir að kjara-
viðræður háskólamanna séu að
skríða af stað eftir sumarleyfi. Ekki
hefur dregið til tíðinda eftir að við-
ræðurnar fóru aftur í gang en hún
segist strax hafa áhyggjur af því að
ekki verði hægt að standa við end-
urskoðaðar viðræðuáætlanir og
ljúka kjarasamningum fyrir 15.
september næstkomandi.
Í viðræðunum við ríkið er að
störfum vinnuhópur um vakta-
vinnustéttir og styttingu vinnuviku
þeirra. Einnig er að störfum hópur
sem leitar leiða til að létta endur-
greiðslubyrði námslána. Sá hópur
skilar vonandi tillögum til ráðherra
í ágústmánuði að sögn hennar.
„BHM hefur árum saman barist fyr-
ir því að LÍN-málin séu skoðuð af
alvöru af hálfu stjórnvalda, m.a.
vegna endurgreiðslubyrðinnar en
líka vegna afnáms ábyrgð-
armannakerfisins. Ég geri mér
vonir um að tillögur þessa hóps
verði uppbyggilegt innlegg í gerð
kjarasamninga,“ segir hún.
Óvíst hvort semst
fyrir 15. september
Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri
Starfsgreinasambands Íslands, segir
það rangt hjá Jóhannesi Þór Skúla-
syni, fram-
kvæmdastjóra
Samtaka ferða-
þjónustunnar, í
frétt Morgun-
blaðsins í gær, að
þau brot gegn
starfsfólki í hótel-,
veitinga- og ferða-
þjónustu, sem
fjallað er um í ný-
útkominni skýrslu
ASÍ, eigi sér oft
stað vegna mistaka. ,,Þetta eru ekki
mistök. Við erum alveg meðvituð um
það að stundum gera menn mistök og
þegar starfsfólk hefur samband við
stéttarfélag vegna mistaka og við höf-
um samband við fyrirtækin vegna
þess, þá leiðrétta menn þau. Það eru
hundruð dæma um slík mistök, sem
eru síðan leiðrétt en þau mál eru ekki
talin með [í skýrslu ASÍ]“ segir Flosi.
Neita að leiðrétta brotin
Haft var eftir Jóhannesi Þór í
blaðinu í gær, þegar hann var inntur
eftir viðbrögðum við skýrslu ASÍ um
brotastarfsemi á vinnumarkaði, að í
ungri atvinnugrein væri stundum um
heiðarleg mistök að ræða eða menn
áttuðu sig ekki á reglum og kjara-
samningum.
Flosi gefur lítið fyrir þessi ummæli
og segir að í skýrslunni sé fjallað um
þau mál þar sem launagreiðandinn
neitar að leiðrétta brotin, ,,neitar að
viðurkenna að mistök hafi átt sér stað
og heldur því til streitu. Þá þarf að
fara með það mál áfram. Sú niður-
staða Jóhannesar að hér sé meira og
minna um mistök að ræða er bara
della,“ segir Flosi
Jóhannes Þór sagði einnig í frétt-
inni að prósentutölur skýrslunnar um
að brot í hótel-, veitinga- og ferða-
þjónustu væru lægri en forseti ASÍ
hefði áður talað um. Flosi segir þetta
einnig vera rangt. Í úttektinni kom
fram að um helmingur launakrafna
vegna brota á starfsfólki kæmi úr
hótel-, veitinga- og ferðaþjónustu.
Flosi segir að Jóhannes sé að vísa til
þess að forseti ASÍ hafi talað um að
70% af tíma starfsmanna og verka-
lýðsfélaga færi í mál tengd ferðaþjón-
ustunni. Í skýrslunni sé hins vegar
talinn fjöldi tilfella auk þess sem
skýrt komi fram í skýrslunni að þau
eru örugglega vantalin.
,,Sú forsenda sem Jóhannes gefur
sér að ástandið sé nú heldur skárra
en áður hefur verið sagt er í fyrsta
lagi röng og í annan stað finnst mér
það vera vond vörn fyrir forystumann
í atvinnulífinu að það sé stolið minna
en einhver hafi áður sagt,“ segir
Flosi.
Mörg fyrirtæki standa sig vel
„Ég hef engar efasemdir um að
mörg fyrirtæki standa sig vel og vilja
standa sig vel en mér finnst Jóhannes
ekki þurfa að fara í þessa miklu vörn
fyrir slúbbertana í greininni. Ég geri
ekki lítið úr því að útfærsla kjara-
samninga getur stundum verið að-
eins flókin en ef menn ætla að stofna
fyrirtæki, verður bara að gera kröfu
til þess að þeir ráði við það. Ef menn
ráða ekki við að borga eftir íslenskum
kjarasamningum þá eiga þeir ekkert
að koma nálægt þessu. Við Jóhannes
hljótum að geta verið sammála um
það.“ omfr@mbl.is
Mistökin ekki talin með
Framkvæmdastjóri SGS gagnrýnir viðbrögð framkvæmdastjóra SAF „Sú
niðurstaða Jóhannesar að hér sé meira og minna um mistök að ræða er bara della“
Flosi
Eiríksson
NÝ VER
SLUN Í
MÖRKI
NNI 3
OG UND
IRHLÍÐ
2 AKUR
EYRI
ÓTRÚLE
G OPNU
NAR-
TILBOÐ
VEISLA
ALLA V
IKUNA
Mörkin 3 • Reykjavík | Undirhlíð 2 • Akureyri