Morgunblaðið - 15.08.2019, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
Lindsor-málið í Lúxemborg
Tveir af starfsmönnum Kaupthings í Lúx, sem
fengu lán frá bankanum til skuldabréfakaupa,
lögðu næstum eina milljón evra inn á reikning
M/Y Maria Ltd. Samkvæmt gögnum FME, sem
send voru til Fjármálaeftirlitsins í Lúxemborg
(CSSF) í febrúar 2010, voru eigendur M/Y
Maria: Lýður og Ágúst Guðmundssynir, sem
báðir áttu stóran hluta í Kaupþingi. Ásamt
þeim áttu Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður Kaupþings, og Magn-
ús Guðmundsson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Kaupthings í Lúx, einnig hlut í M/Y Maria
Ltd.
Hér er um að ræða tvo starfsmenn Kaup-
things í Lúx. sem leggja inn stórar fjárhæðir í
félag sem er að hluta til í eigu yfirmanns þeirra, Magnúsar. M/Y Maria
Ltd. virðist hafa verið félag sem sá um rekstur á snekkjunni Maria. Sam-
kvæmt farþegaskrá snekkjunnar, sem embætti sérstaks saksóknara
haldlagði, koma nöfn þessara tveggja starfsmanna hvergi fram. Magnús
Guðmundsson segir í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara að „allar
greiðslur inni á Mariu voru bakfærðar til baka“. Hann segir það hafi gerst
í lok árs 2008 eða í byrjun 2009. Spurður um af hverju fjármunirnir voru
bakfærðir, segir hann að það hafi verið gert að beiðni Fjármálaeftirlits-
ins.
Milljón evrur í félag yfirmanns
MILLIFÆRSLUR TIL M/Y MARIA LTD.
Snekkja Myndin tengist
fréttinni ekki beint.
október 2008 rennur gjalddagi Lind-
sor-lánsins upp og ekkert fæst greitt.
Sem fyrr segir rýrnaði eignasafn
Lindsor, sem var í raun ekkert nema
skuldabréfin, um 94%.
„Skjölin virðast útbúin og
undirrituð í desember“
Starfsmenn og stjórnendur Kaup-
þings eru einnig grunaðir um skjala-
fals í tengslum við Lindsor-málið. Þá
er rétt að taka fram að einungis hluti
þeirra er grunaður um skjalafals í
Lúxemborg. „Gögn málsins sýna að
engin skjöl virðast hafa verið til sem
sýndu fram á samningssamband (e.
Legal relationship) á milli Kaupþings
á Ísl., Kaupthings Lux og Lindsor
fyrr en í desember 2008. Skjöl virðast
vera útbúin og undirrituð í desember
2008 en dagsett þannig að þau litu út
fyrir að hafa verið undirrituð í sept-
ember,“ segir í réttarbeiðni sérstaks
saksóknara til yfirvalda í Lúxem-
borg. Hreiðar Már viðurkennir í yf-
irheyrslum að skjölin hafi verið útbú-
in og undirrituð í desember. Hann
hætti hjá bankanum 21. október og
hafði því ekki heimild til að skuld-
binda bankann á þeim tíma. Þá er
rétt að taka fram að meint skjalafals
tengt Hreiðari er ekki til rannsóknar
í Lúxemborg. Að eigin sögn undirrit-
aði hann skjölin á skrifstofu sinni í
Kringlunni eftir að Guðný Arna kom
með þau til hans, að beiðni Magnús-
ar. Hugsanlegt skjalafals í Lúxem-
borg snertir einungis Magnús Guð-
mundsson, Eggert Hilmarsson,
Doriane Rossignol og Andra Sigurðs-
son.
Hvað varðar skjalafalshlið málsins
eru skjölin sem um ræðir:
1. Fundargerðir Lindsor (e. Lindsor
Shareholder’s Resolution)
2. Kaupsamningur um að Kaupþing
Ísl. kaupi Lindsor (e. Acquisition
Agreement)
3. Skjöl sem tilgreina hver er skráður
hluthafi, peningaþvættisathugun
(e. Beneficial Owner – AML)
4. Þjónustusamningur um bankavið-
skipti (e. Corporate Service Agree-
ment)
5. Breytingar á framvirkum samn-
ingum (e. Amended Forward Pur-
chase Agreement)
Hinn 27. nóvember 2008 sendir
Doriane Rossignol, starfsmaður
Kaupþings í Lúx, tölvupóst á Guð-
nýju Örnu, sem á þeim tíma var orðin
starfsmaður í skilanefnd Kaupþings,
sem ber heitið „Urgent Lindsor“ og í
viðhengi eru skjöl 1-4 hér að ofan.
„Dear Arna. Please find enclosed the
documents that need to be signed
urgently regarding Lindsor Holding.
Could you please return it to me duly
signed now by scanned version.
Many Thanks in advance.“ Öll skjölin
eru hér óundirrituð. Á þessum tíma í
nóvember er skráður eigandi Lind-
sor Kaupþing hf. en ekki Otris S.A.
Hinn 28. nóvember 2008 sendir
Andri Sigurðsson póst á Guðnýju
Örnu með Eggert í cc og segir: „Sæl
Arna. Getur þú sent Lindsor-skjalið
á Doriane í dag. Það sem hún hafði
sent þarna áður.“
Guðný svarar Andra 1. desember
2008 og spyr hvort hann sé kominn
með skjölin til sín. Sama dag svarar
Andri og spyr hvort hún hafi sent
honum þetta með tölvupósti eða
DHL.
Mikill áhugi virðist vera á Lindsor
á fullveldisdaginn því 1. desember
2008 er PWC að reyna að komast að
því hver sé eigandi félagsins Otris
S.A. Ragnar Sigurmundsson, þáver-
andi starfsmaður PWC, sendir á
Lilju Stefánsdóttur, úr innri endur-
skoðun Kaupþings, tölvupóst sem
heitir „Otris S.A.“: „Sæl Lilja. Get-
urðu komist að því fyrir okkur hver
er beneficial owner af Otris SA sem
er skráður beneficial owner af Lind-
sor. Sendu svarið á PVC Jóns.
Kveðja Ragnar Sigurmundsson.“
Lilja framsendir þennan póst á
Bjarka Diego og Halldór Bjarkar 1.
desember 2008: „Sælir. Getur annar
hvor ykkar svarað honum þessu?
Kveðja Lilja.“ Bjarki Diego fram-
sendir þennan póst á Guðnýju Örnu
fjórum mínutum seinna og segir „fyi.
[for your information] Otris.“
Guðný spyr Bjarka í kjölfarið
hvort hann sé búinn að svara þessu
en hann segist ekki þekkja þetta.
Hinn 2. desember 2008 sendir
Halldór Bjarkar á Lilju: „Ég er ekki
viss en ég myndi ætla að Otris væri
dótturfyrirtæki Kaupþingsbanka.“
Lilja sendir á endanum póst á Guð-
nýju Örnu sem segir: „Sæl Arna,
veist þú hver er beneficial owner af
Otris SA. Kveðja Lilja.“
Næstu daga ganga tölvupóstar um
skjölin á milli manna. Efnislegar
breytingar voru gerðar á útgáfum
nokkurra skjala, m.a. var lánfsjár-
hæð breytt í fundargerð Lindsor úr
101,2 milljónum evra, í fyrri útgáfu, í
171 milljón evra. FME telur að í
fyrra skjalinu hafi ekki verið gert ráð
fyrir skuldabréfakaupum sem voru í
eigu Marple og tiltekinna starfs-
manna Kaupthing í Lúx sem bankinn
keypti á síðustu stundu og seldi Lind-
sor.
Í tölvupóstssamskiptunum eru
einnig vísbendingar um að lista yfir
eignir (e. Spreadsheet), sem seldar
voru Lindsor 6. október 2008, hafi
verið breytt. Þau skuldabréf sem
Kaupthing í Lúx keypti af starfs-
mönnum bankans og seldi Lindsor
vantar upphaflega á listann, sem er
dagsettur 6. október 2008. Embætti
sérstaks saksóknara telur að listan-
um hafi verið breytt eftir á.
Hinn 12. desember 2008 sendir
Guðný Arna póst á Magnús með
„Kaup Bonds“-excelskjalinu í við-
hengi: „Þarf að bæta á listann hvaða
aðrar eignir voru seldar inn í Lind-
sor, þetta þarf að koma til mín í dag.“
Hér eru liðnir rúmir tveir mánuðir
frá lánveitingu og kaupum og enn er
verið að bæta á skjölin.
Hinn 15. desember 2008 sendir
Doriane Rossignol tölvupóst til Egg-
erts sem hann framsendir á Guðnýju
Örnu. Í póstinum fylgja skjöl tengd
Lindsor sem nú eru dagsett í sept-
ember og undirrituð af Hreiðari Má,
Magnúsi Guðmundssyni, Eggerti
Hilmarssyni, Gabriel Rindone og
Andra Sigurðssyni ásamt einni und-
irskrift sem er ólæsileg. Skjölin sem
fylgdu póstinum eru eftirfarandi:
1. Uppfærð fundargerð Lindsor (e.
Lindsor Shareholder’s Resol-
ution) um að taka 171 milljónar
evru lán. Dagsett 28. september
og undirritað af Hreiðari Má.
2. Kaupsamningur um að Kaupþing
Ísl. kaupi Lindsor (e. Acquisition
Agreement). Dagsettur 24. sept-
ember 2008. Eggert Hilmarsson,
Hreiðar Már og óþekktur aðili
undirrita.
3. Þjónustusamningur um bankavið-
skipti (e. Corporate Service
Agreement). Dagsettur 24. sept-
ember 2008. Eggert Hilmarsson,
Hreiðar Már og óþekktur aðili
undirrita.
4. Framvirkur kaupamningur (e.
Forward Purchase Contract and
Amendment). Þarna er aðeins að
finna samning um bréf í banda-
ríkjadölum en ekki evrusamning-
inn. FME telur að breytingarnar
hafi verið undirritaðar í desember
en þær eru dagsettar 29. septem-
ber 2008. Magnús Guðmundsson,
Gabriel Rindone og Andri Sig-
urðsson undirrita.
Eggert Hilmarsson bar við yfir-
heyrslu hjá sérstökum saksóknara að
framvirki kaupsamningurinn, sem
dagsettur er 25. september 2008,
hefði einnig verið gerður eftir á.
Sem fyrr segir stendur rannsókn
Lindsor-málsins enn yfir í Lúxem-
borg. Að sögn yfirvalda þar mun
rannsóknardómarinn, Ernest Nilles,
bráðlega skila málinu til ríkissak-
sóknara, sem tekur ákvörðun um
hvort gefin verður út ákæra eður ei.
Er stærsti
framleiðandi
sportveiðarfæra
til lax- silungs-
og sjóveiða.
Flugustangir og
fluguhjól í úrvali.
Gott úrval af
fylgihlutum til
veiða stólar, töskur,
pilkar til sjóveiða,
spúnabox margar
stærðir, veiðihnífar
og flattningshnífar.
Abulon nylon
línur.
Gott úrval af kaststanga-
settum, fyrir veiðimenn
á öllum aldri, og úrval af
„Combo“ stöng og hjól til
silungsveiða, lax veiða og
strandveiða. Flugustanga sett
stöng hjól og lína uppsett.
Kaststangir,
flugustangir, kast-
hjól, fluguhjól, gott
úrval á slóðum til
sjóveiða. Lokuð
kasthjól.
Úrval af
flugustöngum,
tvíhendur og hjól.
Balance Lippa, mjög
góður til silungsveiða
„Original“
Fireline ofurlína, gerfi-
maðkur sem hefur reynst
sérstaklega vel,
fjölbreitt gerfibeita
fyrir sjóveiði og
vatnaveiða,
Berkley flattnings-
hnífar í úrvali og
úrval fylgihluta fyrir
veiðimenn.
Flugnanet, regnslár,
tjaldhælar, og úrval af
ferðavörum
Helstu Útsölustaðir eru:
Veiðivon Mörkinni
Vesturröst Laugavegi
Veiðiportið Granda
Veiðiflugur Langholtsvegi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Kassinn Ólafsvík
Söluskáli ÓK Ólafsvík
Skipavík Stykkishólmi
Smáalind Patreksfirði
Vélvikinn Bolungarvík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
SR-Bygginavöruverslun Siglufirði
Útivist og Veiði Hornið Akureyri
Veiðiríkið Akureyri
Hlað Húsavík
Ollasjoppa Vopnafirði
Veiðiflugan Reyðarfirði
Krían Eskifirði
Þjónustustöðvar N1 um allt land.
Axelsbúð Akranesi
Dreifing: I. Guðmundsson ehf.
Nethyl 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.
Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum
„Betri sportvöruverslunum landsins“