Morgunblaðið - 15.08.2019, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins, segir skilyrðum
stofnunarinnar vegna mælinga á
notkun ljósvakamiðla hafa verið
ætlað að auðvelda aðgang nýrra og
smærri aðila að mælingum og
draga úr samkeppnishindrunum
sem gætu tengst þeim.
Vísar hann þar til ákvörðunar
Samkeppniseftirlitsins nr. 13/2014
og fyrri ákvörðunar nr. 61/2008.
Tilefni síðarnefndu ákvörðunar-
innar var ósk um undanþágu frá
ákvæði samkeppnislaga vegna
samnings Capacent, RÚV, 365
miðla og Skjásins miðla um rafræn-
ar mælingar á notkuninni.
Hafði Samkeppniseftirlitinu þá
borist erindi frá Capacent þar sem
óskað var eftir því að eftirlitið stað-
festi að samningurinn bryti ekki
gegn ákvæðum samkeppnislaga.
Samningurinn varðaði rafrænar
mælingar á hlustun og áhorfi á út-
varps- og sjónvarpsrásir.
Rifjað var upp í ákvörðun eftir-
litsins (61/2008) að Capacent hefði
þá lengi sinnt „fjölmiðlakönnunum
með hefðbundnum könnunar-
aðferðum, þ. á m. dagbókarkönn-
unum, fyrir Samstarfshóp um fjöl-
miðlarannsóknir. RÚV, Skjárinn og
365 tilheyri þeim samstarfshópi
ásamt samtökum auglýsenda og
auglýsingastofa.“
Svarhlutfall fór lækkandi
Þær niðurstöður hafi m.a. verið
„notaðar við ákvörðun dagskrár-
efnis, sölu auglýsingatíma, kynn-
ingu á einstökum rásum gagnvart
neytendum o.fl. Þann 28. júní 2006
hafi RÚV, 365 og Skjárinn óskað
eftir tilboði frá Capacent og þýsku
rannsóknarfyrirtæki, GfK í rafræn-
ar áhorfs- og hlustunarmælingar.
Ástæða þess hafi verið takmörkuð
tíðni, lækkandi svarhlutfall og lang-
ur skilatími á niðurstöðum úr dag-
bókarkönnunum,“ sagði í ákvörð-
uninni um hina nýju tækni.
Tæknin bætti kóða, sem manns-
eyrað nemur ekki, í útsendingar
ljósvakamiðla. Sá kóði var numinn
af litlum tækjum á stærð við sím-
boða sem þátttakendur báru allan
daginn. Þeir tengdu boðann í lok
dags við tengikví sem sendi upplýs-
ingarnar í miðlæga tölvu Capacent.
Fyrirtækið skilaði svo samantekt
vikulega til fjölmiðlanna og annarra
kaupenda.
Þá kom fram í ákvörðuninni að
með eldri aðferðum, þar sem notast
var við dagbókarkannanir, hefði
sjónvarpsáhorf verið mælt í tvær til
sex vikur í senn og minnsta mæli-
einingin verið 15 mínútur. Hinn nýi
búnaður hefði hins vegar getað
mælt áhorf á hverri mínútu. Rifja
má upp að símboðar voru lítil tæki
sem sýndu úr hvaða númeri var
hringt í notandann. Þeir hurfu af
markaði með aukinni útbreiðslu far-
síma.
Annars hætta á ruglingi
Í ákvörðun Samkeppniseftirlits-
ins var vikið að sjónarmiðum Capa-
cent varðandi nýja mælibúnaðinn.
Slík tækni væri í notkun víða um
heim og þar sem „þátttaka allra eða
flestra miðla sé forsenda fyrir slík-
um könnunum séu slíkar rann-
sóknir iðulega unnar fyrir samtök
miðla eða keyptar af þeim sameig-
inlega“. Þá væri sú þörf grundvall-
aratriði fyrir markaðinn að koma
upp „sameiginlegum gjaldmiðli um
áhorfstölur“. Annars væri hætta á
að tvær eða fleiri áhorfstölur væru í
gangi, sem aftur gæti ruglað mark-
aðinn. Jafnframt væri rafræn
skráning upplýsinga áreiðanlegri en
eldri aðferðir og brýnt að upplýs-
ingar bærust með tíðari hætti en
áður. Þá kemur það sjónarmið
Capacent fram að tæknin ætti að
gagnast nýjum aðilum á fjölmiðla-
markaði og að stærri aðilar nytu
ekki sérstaks kostnaðarhagræðis
umfram þá minni samkvæmt samn-
ingnum.
Hindri ekki samkeppni
Umsóknin um undanþágu frá
samkeppnislögum (40/2005) varðaði
b-lið 10. greinar á grundvelli 15.
greinar laganna. Tíunda greinin
varðar bann við samkeppnishömlum
og bannar b-liðurinn samninga,
samþykktir og samstilltar aðgerðir
sem „takmarka eða stýra fram-
leiðslu, mörkuðum, tækniþróun eða
fjárfestingu“.
Fimmtánda greinin varðar
undanþágur sem Samkeppniseftir-
litið getur veitt frá ákvæðum 10. og
12. greinar sömu laga. Niðurstaða
eftirlitsins var að forsendur væru
fyrir því að veita undanþágu frá
lögunum með skilyrðum.
Páll Gunnar segir skilyrðunum
hafa verið ætlað að auðvelda að-
gang nýrra og smærri aðila að mæl-
ingum og draga úr samkeppnis-
hindrunum sem gætu tengst þeim.
„Samstarfið kom þannig til að
stóru fyrirtækin tóku höndum sam-
an og óskuðu eftir undanþágu sem
við féllumst á en þó einvörðungu á
þeim grundvelli að fyrirtækin
skuldbundu sig til að fylgja
ákveðnum skilyrðum sem áttu að
tryggja að minni aðilar gætu komist
inn í mælingarnar. Síðar tók Capa-
cent mælingarnar yfir án undir-
liggjandi samstarfssamnings keppi-
nauta. Af því tilefni endurskoðaði
eftirlitið þau skilyrði sem upp-
haflega höfðu verið sett, m.a. að
fenginni reynslu,“ segir Páll Gunn-
ar, en í ákvörðun um þetta er vísað
til þess að félagið GH1 hf. (áður
Capacent hf.) hafi verið tekið til
gjaldþrotaskipta árið 2011. Með því
hafi samningurinn um undan-
þáguna fallið úr gildi.
Tók yfir mælingarnar
Fjallað var um þessi tímamót í
ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
13/2014, sem birt var í maí árið
2014.
Þar sagði að nýtt félag, Capacent
ehf., hefði tekið yfir rekstur gamla
Capacent og gert tvíhliða samninga
við hvern þeirra fjölmiðla sem voru
þátttakendur í rafrænni mælingu.
„Áður hafði Samkeppniseftirlitið
fylgt eftir ábendingum sem gáfu til
kynna að skilyrði í upphaflegri
ákvörðun hefðu verið brotin. Eftir
fyrrgreinda tilkynningu um lok
samstarfs keppinauta um mælingar
hélt eftirlitið áfram athugun á sam-
keppnislegum áhrifum mæling-
anna, þ.e. hvort þær leiddu til að-
gangshindrana og takmörkunar á
samkeppni á fjölmiðlamarkaði,
einkum á markaðnum fyrir auglýs-
ingar í fjölmiðlum. Athuguninni
lýkur með ákvörðun þessari. Hefur
Capacent fallist á að hlíta ítarlegum
skilyrðum við framkvæmd
mælingarinnar sem ætlað er að
auðvelda aðkomu nýrra og minni
ljósvakamiðla og birtingaraðila að
henni,“ sagði þar m.a.
Meðal helstu skilyrða má nefna
sérstakt ákvæði um verðlagningu
til nýrra og minni ljósvakamiðla og
ákvæði um birtingu upplýsinga úr
mælingunni.
Munu hlusta á ábendingar
Páll Gunnar segir aðspurður það
ekki vera til skoðunar á þessu stigi
að endurmeta þau skilyrði sem sett
hafi verið vegna mælinganna.
„Við tókum til greina sjónarmið
og ábendingar sem höfðu borist
vegna reynslunnar og settum þá
endurskoðuð skilyrði. Endurskoðun
á gildandi skilyrðum er ekki í far-
vatninu. Við erum þó að sjálfsögðu
vakandi fyrir því ef fram koma upp-
lýsingar og kvartanir sem kalla á að
þetta verði tekið til athugunar að
nýju.“
Spurður um bréf menntamála-
ráðuneytisins til atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytisins í febrúar
2013, sem fjallað er um á síðu 26 í
blaðinu í dag, segir Páll Gunnar að
sjónarmið ráðuneytisins hafi verið
tekin til ítarlegrar skoðunar og m.a.
hafi verið fundað með ráðuneytinu.
„Það liggur fyrir að aðkoma eftir-
litsins að þessum mælingum hefur
miðað að því að tryggja að þessar
mælingar myndu ekki útiloka aðra
og minni keppinauta. Það er ljóst að
þau skilyrði sem eftirlitið hefur sett
hafa ekki unnið gegn markmiðum
fjölmiðlalaga heldur hafa einmitt
miðað fremur að því að stuðla að
fjölbreytni og fjölræði. Við mótun
núgildandi skilyrða var leitað
sjónarmiða menntamálaráðuneytis
og fjölmiðlanefndar. Hins vegar
getur löggjafinn tekið skipulag
þessara mála til sín og stigið frekari
skref til þess að tryggja jafnan að-
gang allra að fjölmiðlamælingum.“
Felur í sér samkeppnisskekkju
– Hvað með það sjónarmið að það
sé óeðlilegt að RÚV sem ríkis-
stofnun taki þátt í mælingunum?
„Stjórnvöld hér á landi hafa tekið
meðvitaða ákvörðun um að RÚV sé
að hluta til rekið á auglýsinga-
tekjum. Við þær aðstæður getur
Samkeppniseftirlitið ekki gert at-
hugasemdir við það að RÚV taki
þátt í starfsemi sem því tengist,
eins og fjölmiðlamælingum. Eftir-
litið hefur hins vegar um langt
skeið bent á þá samkeppnisskekkju
sem leiðir af því að RÚV með sínar
opinberu tekjur taki þátt í sam-
keppni á auglýsingamarkaði.“
– Í hvaða farvegi eru þau mál?
„Við höfum ítrekað vakið máls á
þessu og beindum m.a. áliti til
menntamálaráðherra haustið 2008
þar sem lögð var til endurskoðun á
þátttöku RÚV á auglýsingamark-
aði. Við höfum svo fylgt þessu eftir
þegar fjölmiðlalög og lög um RÚV
hafa verið til umfjöllunar, m.a. fyrir
Alþingi,“ segir Páll Gunnar.
Hafa gert at-
hugasemdir
við stöðu RÚV
Morgunblaðið/Eggert
Samkeppnismál Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Forstjóri Samkeppniseftirlitsins
segir að hlustað verði á ábendingar
Afgreiðslutímar á www.kronan.is Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Við elskum
gleðina!
899 kr.pk.
Gleði muffins, 4 stk.
Samkeppnin við RÚV