Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
✝ SigurvinBjarnason
fæddist hinn 22. júlí
1955 í Reykjavík.
Hann lést af slys-
förum 27. júlí 2019.
Foreldrar hans eru
Ólöf Sigríður Sig-
urðardóttir og
Bjarni Kristmunds-
son. Sigurvin á þrjú
hálfsystkini. Sam-
mæðra er Guð-
mundur Benedikt Hallgrímsson
og samfeðra Einar Þór Bjarna-
son og Helga Jóhanna Bjarna-
dóttir.
Sigurvin kvæntist eiginkonu
sinni Svanhildi Jónsdóttur hinn
10. júlí 1976. Svanhildur fæddist
4. mars 1955, foreldrar hennar
ina 1977 og prófi í hagnýtri
ensku frá Háskóla Íslands 2004.
Hann lauk atvinnuflugmanns-
prófi 1980, blindflugsprófi 1981,
flugkennaraprófi frá Flugskóla
Helga Jónssonar 1982 og flug-
stjóraprófi 1987.
Sigurvin starfaði sem flug-
kennari og flugmaður hjá Flug-
skóla Helga Jónssonar og sem
flugmaður hjá Arnarflugi. Hann
var flugmaður hjá Icelandair
frá 1986, flugstjóri frá 1998 og
þjálfunarflugmaður og eftirlits-
flugstjóri frá 2003.
Sigurvin sinnti ýmsum félags-
störfum, m.a. trúnaðarstörfum
fyrir Félag íslenskra atvinnu-
flugmanna. Hann tók þátt í
starfi KFUM og KFUK um ára-
bil og Gídeonhreyfingarinnar
ásamt því að syngja með Karla-
kór KFUM. Hann var einnig fé-
lagi í Flugklúbbnum á Hauka-
dalsmelum.
Útför Sigurvins fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag, 15. ágúst
2019, klukkan 15.
eru Sigurbjörg
Björnsdóttir og Jón
Sturluson. Börn
Sigurvins og Svan-
hildar eru: 1) Jón
Þór, f. 1978, eig-
inkona hans er
Guðrún Þorgeirs-
dóttir, börn þeirra
eru Svanhildur
Kristín, Þórdís
Björk og Kristín
Birna. 2) Berglind
Ólöf, f. 1984, eiginmaður hennar
er Jón Ómar Gunnarsson, börn
þeirra eru Sigurvin Elí og Matt-
hías Kári. 3) Kristín Björg, f.
1992, eiginmaður hennar er Ív-
ar Elí Sveinsson.
Sigurvin lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við Tjörn-
Pabbi var einstakur maður.
Hann var bæði hlýr og opinn, já-
kvæður og lífsglaður. Hann hafði
mikla persónutöfra og húmor,
var vinmargur og alltaf tilbúinn
að rétta hjálparhönd. Hann lagði
ríka áherslu á að láta gott af sér
leiða og kom fram við alla af virð-
ingu.
Honum var margt til lista lagt,
orti ljóð, samdi lög og söngtexta
ásamt því að spila á gítar og
syngja. Fyrir brúðkaup okkar
allra samdi hann og flutti ásamt
fjölskylduhljómsveitinni frum-
saminn texta við uppáhaldslög
hvers og eins.
Þegar barnabörnin komu hafði
hann einstakt lag á þeim og við
fundum svo sterkt hvað hann
naut þess að leika við þau. Um
þessa helgi áttum við fjölskyldan
góða samverustund með honum í
sumarbústaðnum þar sem við
settum meðal annars upp tram-
pólín og pabbi lék og hoppaði með
barnabörnunum sínum.
Við áttum mjög gott samband
við pabba og hann var duglegur
að segja og sýna hvað hann væri
stoltur af okkur og hvað honum
þótti vænt um okkur. Hann var
meira en pabbi því hann var líka
einn besti vinur okkar. Við gátum
alltaf leitað til hans og þá var
hann tilbúinn með kærleiksríkt
knús og hjálpaði okkur að sjá já-
kvæðu hliðarnar. Pabbi fyllti lífið
af svo mikilli gleði, umhyggju, ör-
yggi og ást. Við erum endalaust
þakklát fyrir hann og allt sem
hann gerði fyrir okkur.
Pabbi var einstök fyrirmynd
og ljós í lífi okkar. Hans er sárt
saknað.
Jón Þór Sigurvinsson,
Berglind Ólöf Sigurvins-
dóttir og Kristín Björg
Sigurvinsdóttir.
Sigurvin Bjarnason, pabbi
Berglindar, afi strákanna minna
og tengdafaðir minn var einstak-
ur maður sem með jákvæðni,
húmor, umhyggjusemi og ein-
staka skapgerð lét öllum líða vel í
kringum sig. Hann var prýddur
ótal mörgum mannkostum sem
ómögulegt væri að telja hér upp.
Hann var heiðarlegur, duglegur,
einlægur, hjálpfús, trúfastur,
ráðagóður og góðviljaður svo fátt
eitt sé nefnt. Hann kynntist
trúnni á Jesú ungur og lagði
áherslu á mikilvæg gildi kristinn-
ar trúar og vildi láta gott af sér
leiða.
Þegar ég kom fyrst á heimili
Svanhildar og Sigurvins upplifði
ég strax þann mikla kærleika
sem ríkti á heimilinu. Ég fann
strax fyrir þeirri miklu hlýju og
ljúfmennsku sem stafaði frá þeim
hjónum og að ég væri velkominn í
fjölskylduna. Við Berglind áttum
eftir að leita oft ráða hjá Sigurvin
og Svanhildi og bera undir þau
hin mörgu hugðarefni okkar.
Hjónaband þeirra var einstakt og
kærleiksríkt og er það okkur
hjónum mikilvæg fyrirmynd. Sig-
urvin var einstakur faðir og átti
mjög gott samband við börnin sín
og veitti okkur tengdabörnunum
líka hlutdeild í því sambandi.
Hann sinnti barnabörnum sínum
vel og átti með þeim margar
gæðastundir og það er óendan-
lega sárt að hugsa til þess að þær
verði ekki fleiri. Ég er þakklátur
fyrir þann tíma sem synir okkar
áttu með afa Sigurvin.
Sigurvin var alltaf tilbúinn að
hjálpa og það þurfti ekki einu
sinni að biðja hann um hjálp.
Hann var einn af þeim sem bjóða
hjálpina að fyrra bragði. Þegar
við keyptum okkar fyrstu íbúð
mætti hann með flutningabíl og
flutti búslóðina okkar, þegar við
máluðum var Sigurvin mættur
með málingardótið sitt til að
hjálpa tengdasyninum sem fædd-
ist með 10 þumalfingur. Þegar
við ákváðum að framkvæma í
nýja húsinu okkar í haust spurði
ég hann hvort það væri mikið mál
að brjóta niður steinveggi og þá
svaraði hann „ég á sleggju“ og
skipulagði sumarfríið sitt þannig
að hann gæti hjálpað okkur að
laga heimilið okkar.
Sigurvin kunni þá list að leið-
beina öðrum í kærleika. Ég lærði
svo ótal margt af honum í stóru
og smáu. Hann kenndi mér að
bóna bíl almennilega, að tengja
ljós á réttan hátt, að mála og
sparsla almennilega og að léleg
vinnubrögð eða fúsk eru aldrei
valmöguleiki. Með því að fylgjast
með honum í hlutverki afa, föður
og eiginmanns eignaðist ég ein-
staka fyrirmynd fyrir lífið. En
það dýrmætasta sem hann
kenndi mér með fordæmi sínu
var að með jákvæðu hugarfari og
kærleika er hægt að mæta sér-
hverri áskorun. Þess vegna fékk
frumburður okkar Berglindar
nafnið hans og ber hann það með
stolti og af þakklæti í dag.
Sigurvin Bjarnason er nú kom-
inn heim til Drottins, hans verður
sárt saknað af ástvinum öllum, en
minning hans er okkur ljós. Það
eru engin orð sem megna að lýsa
því hvers konar maður sem hann
var. Hann var sá besti maður sem
ég hef á ævinni kynnst og skarð
hans verður aldrei fyllt. Ég er
óendanlega þakklátur fyrir að
hafa átt Sigurvin Bjarnason að
tengdaföður og vin. Far þú í friði,
kæri vinur, friður Guðs þig blessi
og hafðu þökk fyrir allt og allt!
Jón Ómar Gunnarsson
Afi minn var besti maður sem
ég hef þekkt. Það var alltaf gam-
an í kringum hann og hann var
alltaf tilbúinn að leika. Afi sagði
aldrei bíddu eins og aðrir full-
orðnir, hann kom alltaf strax. Við
gerðum svo mikið saman, við
tálguðum saman spýtur, klippt-
um tré í sumarhúsinu, hann fór
með mig á fjórhjól, hann flaug
með mig í flugvélinni sinni, hopp-
aði með mér á trampólíninu og
við spiluðum fótbolta saman. Afi
sagði mér sögur og kenndi mér
lög. Það var svo mikið meira sem
við ætluðum að gera saman. Afi
Sigurvin var svo góður. Ég er
glaður að ég sé nafni hans og ég
ætla að vera frábær eins og hann.
Ég elska hann mikið og sakna
hans mjög mikið. Takk elsku afi
fyrir allt!
Í bænum okkar, besti afi
biðjum fyrir þér
að Guð sem yfir öllu ræður,
allt sem veit og sér
leiði þig að ljóssins vegi
lát’ þig finna að,
engin sorg og enginn kvilli
á þar samastað.
Við biðjum þess í bænum okkar
bakvið lítil tár,
að Guð sem lífið gaf og slökkti
græði sorgarsár.
Við þökkum Guði gjafir allar
gleði og vinarfund
og hve mörg var ávallt með þér
ánægjunnar stund.
(Sigurður Hansen)
Sigurvin Elí Jónsson,
átta ára.
Ég leit upp til bróður míns frá
því ég man fyrst eftir honum. Það
hefur verið um það leyti sem
systir okkar fæddist. Sigurvin
mætti í heimsókn með brosið sitt
og trompaði strax fjögurra ára
snáðann. Áhuginn og vináttan
sem hann sýndi mér og lítill rauð-
ur Willys-plastjeppi sem hann
skildi eftir greyptist í minn-
inguna. Við ólumst ekki upp sam-
an og samverustundir okkar á
þeim árum voru ekki margar en
alltaf var eftirvænting að fá að
hitta stóra bróður.
Í kringum 10 ára aldurinn var
vinsælt að fara í sumarbúðir í
Vatnaskógi. Eftir mikið suð fékk
ég loks að fara í tvær vikur og var
mikil eftirvænting að fá að hitta
Sigurvin, sem var foringi þar.
Tíminn var fljótur að líða og
margt að gera en ég fann þá að
hann passaði vel upp á mig. Vin-
sældir Sigurvins sem foringja
voru ómældar og var ég ótrúlega
stoltur af stóra bróður. Ekki
minnkaði það þegar Sigurvin
bauð mér með í sendiferð á hvíta
Land Rovernum niður að Fer-
stiklu.
Á þessum árum hittumst við
alloft í bænum, hann á leið í skóla
eða vinnu og ég að selja blöð.
Alltaf gaf hann sér tíma til að
spjalla án þess að ég fyndi fyrir
aldursmun.
Á fullorðinsárum fékk ég aftur
tækifæri til að vera með Sigur-
vini í sinni vinnu. Það var ekki
bara gaman að sitja frammí held-
ur var einstakt að sjá hvernig
hann hélt utan um og stýrði
áhöfninni og þá virðingu sem fyr-
ir honum var borin. Dagurinn
okkar í Boston með göngutúrum,
reddingum og koddahjali gaf mér
mjög mikið og styrkti samband
okkar.
Eitt sinn hringdi Sigurvin í
mig til Noregs og spurði hvort við
gætum hist daginn eftir, en þá
átti hann þriggja tíma stopp. Við
hjónin sóttum hann út á Fornebu,
borðuðum og spjölluðum á fínum
útiveitingastað í nágrenninu og
skutluðum honum svo aftur út á
völl. Um kvöldið varð ég að
hringja í hann og játa að hann
hefði haldið upp á sjö ára
brúðkaupsafmælið okkar án þess
að við áttuðum okkur á því. Okk-
ur var mjög skemmt.
Í minningunni tengi ég flug-
áhuga Sigurvins við Vatnaskóg.
Hann lýsti því svo lifandi fyrir
mér þegar DC8 skreið í lágflugi
yfir Eyrarvatn með gírinn niðri
og það sá gegnum gluggana.
Reyndar áttu öll farartæki hug
hans, hvort sem þau tengdust
lofti, láði eða legi. Hann stýrði
strætó, rellu, þotu eða Sómabát
af mikilli innlifun en um leið af
einstöku öryggi og yfirvegun.
Vandvirkni hans var áberandi og
kom það svo vel fram í smíðum,
sem hann hafði unun af.
Brosið, kveðjan og opinn faðm-
urinn voru einkenni Sigurvins.
Hlýhugur, umhyggja, nærgætni
og áhugi eru allt í senn orð og
kenndir sem koma upp í hugann
þegar ég hugsa til hans. Hann
hafði þann eiginleika að öllum
leið vel í návist hans og hann
sýndi öllum áhuga. Það var aðdá-
unarvert að sjá hvernig hann
hlúði að fjölskyldu sinni ásamt
því að hugsa svo vel um mömmu
sína og Gumma bróður sinn.
Það er því ekki furða að að-
dáun lítils peyja á stóra bróður
hafi breyst með tíð og tíma. Stóri
bróðirinn varð að fyrirmynd sem
heilsteypt og kærleiksrík per-
sóna, góður vinur, bróðir og
frændi en umfram allt um-
hyggjusamur og elskaður fjöl-
skyldufaðir.
Elsku Svanhildur, Jón Þór,
Berglind, Kristín Björg og fjöl-
skyldur. Fá orð eru til huggunar
en minningar um einstakan mann
lifa að eilífu í hug okkar og hjarta.
Sofðu vinur vært og rótt
verndi þig Drottinn góður.
Dreymi þig vel á dimmri nótt
dýrð þíns Jesú bróður.
(Þorkell G. Sigurbjörnsson)
Einar Þór.
Í dag kveðjum við ástkæran
bróður og mág eftir sviplegt og
hörmulegt flugslys.
Sigurvin var einstakur maður
á svo marga vegu, mikil fyrir-
mynd okkar, einstaklega ljúfur,
duglegur, hjálpsamur og glað-
vær. Hann hafði lag á því að sýna
samferðafólki sínu einlægan
áhuga og vingjarnleika. Ávallt
tók hann á móti okkur með opn-
um faðmi, brosi á vör og ætíð var
stutt í smitandi hláturinn hans.
Gaman var að ræða við hann um
heima og geima eða um sameig-
inleg áhugamál okkar og einnig
að hlusta á skemmtilegar frá-
sagnir hans.
Sigurvin var mikill fjölskyldu-
maður. Hann kvæntist Svanhildi
sinni fyrir 43 árum á sólbjörtum
sumardegi, hinn 10. júlí 1976.
Þau voru einstaklega samhent
hjón og kærleikurinn, væntum-
þykjan og vinskapurinn leyndi
sér ekki þeirra á milli. Hlýjan og
kærleikurinn sem fylgdi Sigur-
vini hefur smitast til allrar fjöl-
skyldunnar og lætur hann eftir
sig fríðan og samstilltan hóp
barna, tengdabarna og barna-
barna. Sigurvini var mjög annt
um hag allra í fjölskyldunni og
var hann óþreytandi við að hjálpa
til hvar sem þörf var á aðstoð.
Við yljum okkur nú við allar
þær fallegu minningar um góðar
samverustundir sem birtast í
huga okkar og kveðjum þig nú
með miklum söknuði, elsku Sig-
urvin.
Þótt sólin nú skíni á grænni grundu,
er hjarta mitt þungt sem blý.
Því burt varst þú kölluð á örskammri
stundu,
í huganum hrannast upp sorgarský.
Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga
og góða,
svo gestrisin, einlæg og hlý.
En örlög þín ráðin – mig setur hljóða,
við hittumst ei framar á ný.
Megi algóður Guð þína sálu nú geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó komin sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Sigríður Hörn Lárusdóttir)
Elsku Svanhildur, Jón Þór og
Guðrún, Berglind og Jón Ómar,
Kristín Björg og Ívar og barna-
börn. Hugur okkar er hjá ykkur.
Megi góður Guð gefa ykkur styrk
til að takast á við þessa miklu
sorg.
Helga Jóhanna og Kristján.
Maður hittir ekki marga á lífs-
leiðinni sem maður getur sann-
arlega litið upp til, þú varst einn
af þeim, Sigurvin. Það er eitt sem
er ekki meðfætt í fari einstak-
lings heldur áunnið, það er virð-
ing. Þú vannst þér inn mikla virð-
ingu meðal samferðamanna í
gegnum lífið.
Við kynntumst fyrir tæplega
40 árum. Byrjuðum að vinna á af-
greiðslu innanlandsflugs Flug-
leiða á svipuðum tíma. Ég man
eftir jákvæða og hressa and-
rúmsloftinu sem fylgdi þér þegar
við kynntum okkur. Það þurfti
ekki langan tíma til þess að sann-
færast um þína fölskvalausu kosti
og hrífast með.
Ég, sem alltaf var sjóveikur og
flugveikur, fór í fyrsta flugtím-
ann minn með þér í júní 1982. 45
mínútna flug og ég ældi tvisvar
en kyngdi ælunni, kannski sem
betur fer fyrir okkur báða. Eftir
lendingu var ég frekar lítill í mér
og sagði við þig að þetta væri
ekki fyrir mig. Ég man þú sagðir.
„Óli, þetta er að byrja með stæl.
Nú verður ekki aftur snúið, það
versta er búið. Ég bóka flug fyrir
okkur á morgun.“ Og hér er ég
enn, takk Sigurvin.
Í gegnum árin höfum við hist á
förnum vegi og tekið mislangt
spjall. Fengið fréttir af högum
hvor annars. Það sem stendur
upp úr er hversu stoltur þú varst
af fjölskyldunni þinni. Þið Svan-
hildur hélduð ótrúlega vel utan
um fjölskylduna og voruð sam-
stiga í gegnum lífið. Síðast þegar
ég hitti þig varstu farinn að
hlakka til starfsloka og hafðir
stór plön varðandi framtíðina
með fjölskyldunni þinni. Það er
sárt að þau plön skuli ekki geta
gengið eftir.
Svanhildur og fjölskylda, ég
votta ykkur mína dýpstu samúð.
Óli Braga.
Elsku frændi, það er erfitt að
trúa því að þú sért farinn frá okk-
ur svona skyndilega. Ég man eft-
ir þér frá því við vorum þriggja til
fjögurra ára. Þú varst alltaf svo
góður og skemmtilegur og aldrei
vantaði brosið þitt.
Það var alltaf svo gaman þegar
við hittumst, hvort sem það var
heima hjá mér eða þér, eða ömmu
eða Gauju frænku, þá var alltaf
fjör. Stundum brotnaði eitthvað í
fjörinu og systurnar, mæður okk-
ar, skömmuðust en fjörið fór
fljótt af stað aftur. Einu sinni ætl-
aðir þú að kenna mér á skíði þeg-
ar ég kom í heimsókn til ykkar í
Granaskjól með mömmu og
pabba. Við fórum út á KR-völl og
það sem við hlógum að klaufa-
skap mínum og ekki vantaði þig
þolinmæðina. Á unglingsárunum
hittumst við sjaldnar, þú fórst í
KFUM og reyndir að fá mig til að
fara í KFUK, en ég passaði ein-
hvern veginn ekki þarna þótt við
hefðum örugglega fengið svipað
kristilegt uppeldi. Svo urðum við
fullorðin og þú fórst í flugnámið,
við eignuðumst börn á svipuðum
aldri, og barnabörn, og alltaf hitt-
umst við eitthvað á hverju ári. Ég
var svo heppin að hitta þig á
kaffihúsi í apríl og man svo vel
fallega brosið þitt. Svo hittumst
við í afmæli í júlí, það er gott að
hugsa til þess að ég fékk að knúsa
þig, en ekki datt mér í hug að það
væri síðasta skiptið sem við hitt-
umst.
Elsku Svanhildur, Jón Þór,
Berglind, Kristín Björg og fjöl-
skyldur, Lóa og Gummi og
Bjarni, megi góður Guð styrkja
ykkur í sorginni.
Björk Þorsteinsdóttir.
Sigurvin Bjarnason var gull af
manni og hinn mesti öðlingur.
Traustur, einlægur, jákvæður,
brosmildur, skemmtilegur og
fannst Pepsi ansi gott eru orð
sem koma strax upp í hugann
þegar við hugsum um okkar ein-
staka vinnufélaga. Hann kom
ávallt til dyranna eins og hann
var klæddur, hlýja og umhyggja
fyrir öllum var ómetanleg, maður
vissi alltaf hvar maður hafði
hann.
Við undirrituð vorum sam-
starfsfélagar Sigurvins og vorum
svo lánsöm að fara í heimsferð á
vegum Icelandair, Loftleiða, þar
sem Sigurvin var leiðangurs-
stjóri okkar. Það er skemmst frá
því að segja að ferðin var mikið
ævintýri og heppnaðist í alla staði
mjög vel. Við urðum lítil fjöl-
skylda og ævintýrið ógleyman-
legt. Kostir Sigurvins nutu sín og
hefðum við ekki getað verið
heppnari að fá að deila þessum
tíma með honum og eiga minn-
ingar sem aldrei gleymast. Það
var alltaf stutt í að hann gripi í
gítarinn og sprellaði með okkur
og farþegunum. Okkur er sér-
staklega minnistætt í Abu Dhabi
þegar hann stökk á svið og lék
Charlie Chaplin og sveiflaði
stafnum á meðan áhorfendur
veltust um af hlátri. Að ævintýri
loknu héldust vinaböndin og sam-
an höfum við átt góðar stundir,
meðal annars á yndislegu heimili
þeirra hjóna Sigurvins og Svan-
hildar.
Að ferðalokum er ómetanlegt
að ylja sér við minningar um ein-
stakan félaga.
Eiginkonu og fjölskyldu send-
um við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Steinar, Björn Óttar,
Björg, Kristín Ingva, Kristín
Helga, Birgitta María, Emil,
Jón Vil. (Nonni) og Loftur
(Bassi).
Í dag kveðja Skógarmenn í
Vatnaskógi góðan vin, Sigurvin
Bjarnson. Sigurvin var mikill
Skógarmaður og bar ávallt hlýj-
an hug til starfsins í Vatnaskógi.
Hann starfaði í Skóginum árin
1972-1973 þá ungur en frábær
foringi og mikil og góð fyrirmynd
drengjanna sem kynntust hon-
um. Sigurvin með sinni ljúfu og
glaðlegu framkomu, var einn af
þeim mönnum sem fengu unga
drengi til að hrífast af starfinu í
Vatnaskógi og eru undirritaðir í
þeirra hópi.
Þrátt fyrir annasöm störf sem
flugstjóri þá átti starfið í Vatna-
skógi alltaf stóran stað í hjarta
Sigurvins. Hann kom í Skóginn
þegar færi gafst, þar var hann
hvetjandi, styðjandi og uppörv-
andi, alltaf jákvæður. Seinna
unnu börn Sigurvins í Vatnaskógi
við góðan orðstír. Í byrjun júlí
síðastliðinn kom Sigurvin í
Vatnaskóg þar sem nafni hans og
dóttursonur dvaldi á staðnum
sem dvalargestur í fyrsta skipti.
Hvern hefði grunað að það yrði
hans síðasta heimsókn í Skóginn?
Minningin um þá stund er sem
greypt í huga þeirra sem hana
upplifðu.
Starfsemin í Vatnaskógi hefur
byggst upp á mönnum eins og
Sigurvini Bjarnasyni og það er
með mikilli sorg en líka þakklæti
sem við kveðjum góðan dreng og
biðum algóðan Guð að blessa
minningu hans og styðja þá sem
eftir sitja.
Skógarmenn KFUM senda
fjölskyldu Sigurvins innilegar
samúðarkveðjur.
F.h. Skógarmanna KFUM,
Ársæll Aðalbergsson
og Ólafur Sverrisson.
Kær vinur og félagi er fallinn
frá. Við í Höfðalæk, fjölskyldan á
Haukadalsmelum, drúpum höfði
Sigurvin
Bjarnason