Morgunblaðið - 15.08.2019, Side 48

Morgunblaðið - 15.08.2019, Side 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019 ✝ Einar Óli Rún-arsson fæddist á Egilsstöðum 8. nóvember 1968. Hann lést 6. ágúst 2019 á sjúkrahús- inu í Neskaupstað. Hann var sonur hjónanna Jónínu Sigrúnar Ein- arsdóttur, f. 14. ágúst 1945, og Rún- ars Pálssonar, f. 8. febrúar 1950. Systur Einars Óla eru Ása Heiður, f. 1. mars 1973. Hún á tvær dætur, Birtu og Ísabellu; Arna Rún, f. 17. júlí 1983. Hún á soninn Þór Francis og dótturina Erin Bríet. Eiginkona Einars Óla er Helga Jónsdóttir, f. 23. nóvember 1964. Synir Einars Óla og Helgu eru: Ágúst Þór, f. 4. júní 1995, Ármann Örn, f. 30. apríl 1997, Ás- berg Logi, f. 15. nóvember 2002, og Ársæll Ómar, f. 19. júní 2004. Unnusta Ármanns er Nikó- lína Sól Sigurð- ardóttir. Sonur Helgu og Ásgeirs Þrastar Bentssonar, sem lést af slysförum 1. apríl 1988, er Jón Geir, f. 3. júlí 1988. Útför Einars Óla fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag, 15. ágúst 2019, klukkan 13. Elsku Einar Óli minn. Nú er komið að leiðarlokum og þú hverf- ur á braut. Vissan um að við hitt- umst á ný er huggun harmi gegn. Þá verðum við hraust og getum haldið okkar striki. Ég tel víst að þið Einar Óla, afi þinn, farið fljót- lega á fjöll og heimsækið meðal annars Einarsskála í Grágæsadal. Þið voruð alveg skemmtilega líkir og áttuð mjög lík áhugamál. Alltaf voruð þið ráðagóðir og allt lék í höndunum á ykkur. Kannski varst þú samt enn meiri smiður en hann og er ég þá að hugsa til ferðabíls ykkar hjóna. Þú keyptir litla rútu sem hafði verið skólabíll. Áður hafðir þú tryggt þér hjólhýsi sem lenti í foki og varð ónothæft. Því næst tókstu til við að innrétta bíl- inn og úr varð forláta ferðabíll sem hýsti alla fjölskylduna. Þið fóruð út um allt land á þessum bíl, m.a. upp á heiðar í veiði og þar veiddi hver sem betur gat og þið skelltuð afrakstrinum því næst á grillið. Að því búnu settust menn að snæðingi og mér skilst að allt hafi verið lostæti, meira að segja roð og bein. Þaðan eigið þið áreiðanlega minnisstæðar og dásamlegar minningar. Eitt sinn mæltum við okkur mót í Stykkishólmi. Mér er minn- isstætt þegar „10 litlir negra- strákar“ komu út úr rútunni og ég var svo stolt af ykkur. Þið voruð svo agaðir og ánægðir. Auðvitað þurfti samt að sletta úr klaufunum og klifra og príla svolítið. Að því búnu var farið að skoða sig um og það var auðséð að þið höfðuð van- ist því að skoða eitthvað skemmti- legt. T.d. fórum við að skoða minjasafn og Helga er hafsjór og útskýrði og sagði skemmtilega frá. Sem barn fór sonur minn ekki alltaf troðnar slóðir. Hann var fremur einmana barn eftir að hann fór að ganga í skóla. Hann gat til dæmis alls ekki skilið áhuga strákanna á fótbolta. Hann var meira fyrir að taka í sundur og setja saman ýmislegt dót. Hann þurfti að skoða öll tæki sem hann fékk í hendur yst sem innst, til að átta sig á hvernig allt virkaði. Hann var svo heppinn að kynnast Jóa Elíesers sem hafði álíka áhugamál. Elli, faðir Jóa, var þeim svo hjálpsamur og góður í þessu grúski þeirra. Ég kann Ella mínar bestu þakkir og sendi honum kær- ar kveðjur þangað sem hann er núna. Ungur að árum fékk hann sér vélsleða og seinna vélhjól að ógleymdum rússajeppa, sem Fúsi á Staffelli lét hann hafa og skilmál- arnir voru bara þeirra á milli. Jeppinn varð mikill dýrgripur og hann setti á hann blæju og gerði hann fínan. Verslunarmannahelgi eina tóku Einar Óli og Þórir Gísla. sig upp og skruppu á ball norður í Skaga- firði. Á því balli voru örlög Einars Óla og Helgu Jónsdóttur frá Hofi í Hjaltadal ráðin. Þau byrjuðu bú- skap á Króknum en komu því næst austur í Arnhólsstaði í Skrið- dal. Búskapur hefur alltaf heillað þau og er það kannski ekki svo skrítið. Einar Óli var í mörg sum- ur í sveit á Hafrafelli hjá Brynjólfi og Sigrúnu. Þá urðu þeir Berg- steinn vinir og voru næstum eins og bræður. Eftir nokkur ár og mikla uppbyggingu á Arnhóls- stöðum brugðu þau búi enda kom- in með stóra fjölskyldu. Þá fluttu þau í Egilsstaði og Einar Óli fór að vinna við sitt fag en hann var lærð- ur rafeindavirki. Árið 2014 frétti hann fyrir tilviljun að jörðin Refs- mýri væri til sölu hjá bankastofn- un á Egilsstöðum. Það varð úr að þau hjónin slógu til og skrifuðu undir kaupsamning. Skömmu seinna greindist hann með bráða- hvítblæði svo nú var úr vöndu að ráða. Þau ákváðu að halda sínu striki og þar með urðu þau bænd- ur í annað sinn og nú með stórt fjárbú. Þau þurftu að heyja á mörgum jörðum til að dæmið gengi upp. Ég vil leyfa mér að þakka öllum þeim er lögðu þeim lið á þessum árum. Elsku Einar Óli minn. Hjartans kveðjur fyrir öll árin okkar saman. Guð varðveiti þig ástin mín. Þín mamma. Eftir fimm ára baráttu við ill- vígan sjúkdóm er Einar Óli fallinn frá. Einar Óli var einn af okkur sem hófum skólagöngu á Egilsstöðum haustið 1974. Strax þá kom í ljós að hann var hæglátur og rólegur að eðlisfari og einkenndi það hans persónu öll grunnskólaárin. Einar Óli kom vel fram við alla og var vinur vina sinna. Eftir útskrift úr grunnskóla tvístraðist hópurinn og samskipt- in urðu minni okkar á milli. Á full- orðinsárum vaknar gjarnan löng- un til að endurvekja tengsl við gamla félaga og það gerðist líka í okkar hópi. Skiptin sem hópurinn hefur hist eru þó ekki mörg en þegar við komum saman fyrir sjö árum var glatt á hjalla og Einar Óli var hrókur alls fagnaðar. Þá minningu munum við geyma í hjörtum okkar. Haustið 2008 urðum við svo lán- samar að fá að tengjast Einari Óla á annan hátt, þegar við urðum um- sjónarkennarar Ásbergs Loga, við upphaf grunnskólagöngu hans. Þá fengum við að kynnast yndislegri fjölskyldu og umhyggjusömum foreldrum auk þess sem við end- urnýjuðum kynnin við Einar Óla. Fyrir það erum við þakklátar. Helga, Jón Geir, Ágúst Þór, Ár- mann Örn, Ásberg Logi, Ársæll Ómar, foreldrar, systur og aðrir aðstandendur, við vottum ykkur innilegra samúð við fráfall þessa góða manns. F.h. bekkjarsystkina, Álfheiður Ingólfsdóttir og Helga Magnúsdóttir. Jæja kæri vinur, þá er sam- fylgd okkar síðustu 45 árin eða svo lokið í bili og margt hefur á daga okkar drifið á þessum árum. Báðir vorum við komnir með vélsleða um fermingu sem við keyrðum að- allega upp á Fjarðarheiði. Í fram- haldi af þeim voru það skellinöðr- ur sem við keyrðum um hálendið þvert og endilangt þegar við höfð- um aldur til. Þá voru það bílarnir, en þú gerðir upp gamla Volvoinn sem foreldrar þínir áttu og ég keypti mér SAAB, þetta voru bíl- arnir sem við byrjuðum með þeg- ar bílprófið kom. Þú hefur alltaf verið mikill bílamaður og bara haldið þig við eina bíltegund í gegnum árin, Mercedes Benz, fyr- ir utan gamla Rússajeppann sem þú keyptir af Fúsa á Staffelli. Þú, Einar Óli, varst einstaklega bóngóður maður og vildir allt fyrir alla gera, hvort sem það voru bíla- viðgerðir eða eitthvað tengt raf- magni. Þú sagðir alltaf að þeir sem ekki reyndu að bjarga sér til verka væru glataðir. Mig langar að rifja upp þegar við fórum með flugi til Reykjavík- ur vorið 1983 og gistum hjá Að- alheiði ömmu þinni, og fórum við í þessari ferð að sjá bíómyndina Flashdance. Þegar ég heyri titil- lagið úr myndinni, What A Feel- ing, þá kemur þessi ferð alltaf upp í hugann. Að lokum langar mig að þakka þér fyrir allar samverustundirnar, spjall yfir kaffibollum um lífið og tilveruna, hvort sem það var á fjöllum eða við eldhúsborðið. Heilsu þinni hrakaði ört síðustu mánuði og þegar ég heimsótti þig síðast, í byrjun júlí, var heilsa þín á þrotum og ljóst í hvað stefndi. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Elsku Helga, synir, foreldrar og systur, innilegar samúðar- kveðjur. Þinn vinur, Jóhann. Elsku Einar Óli. Við skrifum nokkur kveðjuorð til þín kæri vin- ur og frændi, nú þegar þessu langa stríði sem þú háðir við alvar- legan sjúkdóm er lokið. Að standa í slíkri baráttu sem þú máttir þola árum saman er ómannlegt. Bar- áttan var háð af miklum hetju- skap. Það er hins vegar þyngra en tárum taki fyrir fjölskyldu þína og vini að sjá á eftir þér á miðjum aldri. Einar Óli var alltaf hluti af okk- ar nánustu fjölskyldu á sama aldri og elstu börnin okkar og systkina- barn við þau, hann fæddist á Eg- ilsstöðum og ólst þar upp hjá for- eldrum sínum, þeim Jónínu Sigrúnu Einarsdóttur og Rúnari Pálssyni. Það fór ekki hjá því að leiðirnar lægju saman hjá fjöl- skyldum okkar í þessu litla sam- félagi og ótaldar eru jóla- og fjöl- skyldumyndirnar af frændsystkinunum á barnsaldri. Síðan lágu leiðirnar í ýmsar áttir eins og gerist í lífinu. Það kom fljótt í ljós að sveitalíf höfðaði til Einars Óla, og strax á barnsaldri lá leiðin í Hafrafell í Fellum þar sem hann átti góðar stundir og tók af lífi og sál þátt í sveitastörfum af öllu tagi. Það kom líka fljótt í ljós að hann var líkur afa sínum og nafna, Einari Ólasyni. Hann hafði yndi af útivist og ferðalögum og var einstakur verkmaður og allt lék í höndunum á honum, hvort sem það voru smíðar, bílaviðgerðir eða enn flóknari verkefni. Þar kom að Ein- ar Óli lærði rafeindavirkjun og starfaði við hana hjá Landsíma Ís- lands og Launafli á Reyðarfirði, auk þess sem hann starfaði á af- greiðslu Flugfélags Íslands á Eg- ilsstaðaflugvelli um tíma. Hins vegar kom að því að hann festi ráð sitt og kvæntist Helgu Jónsdóttur frá Hofi í Hjaltadal í Skagafirði. Helga var og er sveita- kona í húð og hár og hafði yndi og áhuga fyrir búskap. Í fyrstu bjuggu þau á Sauðárkróki og Helga vann sem sjúkraliði við Sjúkrahús Skagfirðinga, en Einar Óli í sínu fagi hjá Kaupfélagi Skagfirðinga sem rafeindavirki. Sveitin freistaði þeirra hins vegar og eftir stutta dvöl á Króknum tryggðu þau sér ábúð á Arnhóls- stöðum í Skriðdal á Fljótsdalshér- aði og bjuggu þar í nokkur ár og unnu að uppbyggingu þar. Dugn- aður þeirra beggja leyndi sér ekki, hvort sem var við búskapinn eða byggingarframkvæmdir og lag- færingar á jörðinni. Þar kom að þau fluttu í Egilsstaði og bjuggu þar um nokkurra ára skeið, en aft- ur togaði sveitalífið í þau, og flutt var í Refsmýri í Fellum. Þá bilaði heilsa Einars Óla og hið mikla stríð hófst við hvítblæðið og afleið- ingar þess, með langri baráttu bæði hér heima og erlendis. Helga stóð með sínum einstaka dugnaði eins og klettur við bakið á honum í hinni grimmu og miskunnarlausu viðureign. Elsku frændi og vinur, blessuð sé minning þín. Við vottum Helgu og fjölskyldunni þinni allri inni- lega samúð í þeirra mikla missi. Megi góður guð veita þeim styrk í sorginni. Margrét Einarsdóttir, Jón Kristjánsson. Einar Óli Rúnarsson Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐRÚNAR BENEDIKTSDÓTTUR frá Hólmavík. Ólafur Reykdal Guðrún Björk Reykdal Sigurður Sigurðsson Sigrún Edda Reykdal Þórarinn, Auðunn, Alexander og Sara Xiao Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁLFHEIÐAR UNNARSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirhamra og hjúkrunarheimilisins Hamra. Ingólfur Jóhannsson Unnur V. Ingólfsdóttir Guðjón Magnússon Jóhann Ingólfsson Jónína Daníelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar kæra JÚLÍANA SIGURÐARDÓTTIR lést sunnudaginn 21. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Ragna Pálsdóttir Páll Þorsteinsson Sigurður Pálsson Erla Þorsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn SIGURJÓN JÓHANNESSON, fyrrverandi skólastjóri á Húsavík, andaðist 6. ágúst, á 94. aldursári. Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 17. ágúst klukkan 14. Jóhanna Antonsdóttir Jóhannes Sigurjónsson Sigríður Sigurjónsdóttir Guðmundur Örn Ingólfsson Guðrún Sigurjónsdóttir Einar Hrafnkell Haraldsson Guðmundur Sigurjónsson Haraldur Sigurjónsson Sif Gylfadóttir og aðrir aðstandendur Okkar ástkæra móðir, dóttir, systir, tengdamóðir, mágkona og amma, KARÍTAS JÓHANNSDÓTTIR, lést á heimili sínu í Þorlákshöfn 9. ágúst. Jarðarförin fer fram í Grafarvogskirkju föstudaginn 23. ágúst klukkan 13. Blóm vinsamlegast afþökkuð, þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Thelma Eyfjörð Jónsdóttir Þór Rúnar Þórisson Jóhanna Helga Gunnlaugsd. Örvar Elíasson Jóhann Helgason Helga Þórey Jónasdóttir Jónas Jóhannsson Helgi Jóhannsson Selma Dröfn Birgisdóttir Kristjana Laufey Jóhannsd. Pétur Óli Pétursson Jóhann Jóhannsson Katrín Ósk Björnsdóttir Tinna Jóhannsdóttir Alexandra Guðný og Thelma Björk Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, sonur og bróðir, SIGVALDI PÁLL GUNNARSSON frá Ólafsfirði, lést 8. ágúst. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 23. ágúst klukkan 13. Bjarnheiður Erlendsdóttir Adam Bjarki Sigvaldason Freydís Björk Sigvaldadóttir Þorbergur Atli Þorsteinsson Gunnar Þór Sigvaldason Eva María Oddsdóttir Gunnar Þór Sigvaldason Bára Finnsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.