Morgunblaðið - 15.08.2019, Side 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
VIÐTAL
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Þjóðleikhúsið mun halda upp á 70
ára afmæli sitt á leikárinu og leik-
árið ber svolítinn keim af því,“ segir
Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri
þegar hann sest niður með blaða-
manni Morgunblaðsins og ræðir
leikárið sem fram undan er.
„Leikárið verður sérstaklega
viðamikið og við leggjum áherslu á
sýningar fyrir börn og ungt fólk. Við
erum með að minnsta kosti tíu sýn-
ingar fyrir þann aldurshóp og þar af
látum við semja fyrir okkur þrjú
leikverk. Við munum fara með þrjár
leiksýningar fyrir börn og ung-
menni um allt land og sýna án að-
gangseyris. Þetta er gert til þess að
styðja við menningu og listir án að-
greiningar út frá búsetu og efnahag.
Það hefur verið mér mikið metnað-
armál að Þjóðleikhúsið þjónusti
landsbyggðina betur en gert hefur
verið og að við gætum sérstaklega
að því að menningunni sé ekki mis-
skipt milli þeirra sem hafa efni á að
kaupa sér miða og hinna. Þetta er
ein af stóru áherslunum á þessu
leikári og í öllu starfi mínu sem
Þjóðleikhússtjóri.“
Ari nefnir einnig að mikil áhersla
sé lögð á íslensk leikverk bæði fyrir
fullorðna og börn. „Við erum með
sautján íslensk leikverk og þar af
eru tólf sem mætti flokka sem nýjar
sýningar. Auðvitað sinnir Þjóðleik-
húsið skyldu sinni gagnvart nýjum
erlendum verkum líka. Við erum
með glæný og spennandi erlend
verk.“ Hann lýsir leikárinu fram
undan með orðunum: „Fjölbreyti-
leiki, stórar og glæsilegar sýningar
og sérstök áhersla á íslensk leikverk
og verk fyrir börn og ungmenni.“
Byggjast á skáldverkum
Glöggir taka eftir því að ýmsar af
sýningum Þjóðleikhússins í ár
byggjast á skáldsögum. Atómstöð-
ina eftir Halldór Laxness og Meist-
arann og Margarítu eftir Míkhaíl
Búlgakov telur Ari hvora um sig
eiga erindi við samtímann. „Atóm-
stöðin fjallar um mjög stór ágrein-
ingsmál sem klufu þjóðina í tvær
fylkingar og varða sjálfstæði þjóð-
arinnar og ég veit ekki betur en að
það sé mjög hatrömm umræða í dag
sem er lík þessari. Svo er Atóm-
stöðin líka á vissan hátt ástar- og
þroskasaga og er spennandi út frá
því. Meistarinn og Margaríta er
uppáhaldsskáldsaga margra. Þar er
mjög spennandi töfraraunsæi. Hún
fjallar að vissu leyti um það þegar
djöfullinn kemur til Moskvu og mað-
ur hefur stundum á tilfinningunni að
djöfullinn sé að koma og hræra í
pottum í pólitík og samfélagi.“
Skáldsaga Kamillu Einarsdóttur,
Kópavogskrónika, verður einnig
gerð að leikverki. „Það er ótrúlega
skemmtilegur tónn í Kópavogs-
króniku. Það verður spennandi að
sjá hvað Silja Hauksdóttir og Ilmur
Kristjánsdóttir gera við þetta, klár-
ar konur báðar tvær.“
Ari vekur athygli á því að Ör eftir
Auði Övu er nýtt leikrit sem hún
byrjaði að skrifa áður en hún skrif-
aði samnefnda skáldsögu. „Þótt
verkin séu skyld þá er þetta algjör-
lega nýtt íslenskt leikverk,“ segir
hann.
Sýningin sjálf skiptir máli
Erlendu verkin Útsending og
Shakespeare verður ástfanginn eru
bæði byggð á kvikmyndum. „Shake-
speare verður ástfanginn er býsna
heitt verk. Þetta er sýning sem öll
stærstu leikhús í Skandinavíu eru
að sýna eða um það bil að fara að
sýna. Það er skemmtilegt verk fyrir
okkur í leikhúsinu því þetta er leik-
verk um skáldskap Shakespeares og
bakgrunninn. Þetta verður líka mik-
il búningasýning og ég held að bún-
ingahönnuðurinn María Ólafsdóttir,
sá mikli snillingur, muni toppa sig ef
hægt er að tala um það.“
Ari segir það í sjálfu sér vera til-
viljun að leikverkin byggist mörg
hver á kvikmyndum og skáldsögum.
„Við sækjum efniviðinn alls staðar
að, í allt sem okkur finnst spenn-
andi. Það er viðfangsefnið sem ræð-
ur för. Umræðan um fyrirbærin
leikrit og leikgerð er áhugaverð en
auðvitað er leikgerð sjálfstætt verk.
Leikritin geta ekki öll verið frum-
samin og byggð á frumheimildum
enda eru þau ekki merkilegri fyrir
vikið heldur er það sýningin sjálf
sem skiptir máli. Við skoðum hvort
við hér í Þjóðleikhúsi Íslendinga
séum á einhverju öðru róli en þjóð-
leikhús í Skandinavíu eða Evrópu
en það er alls ekki.“
Sannarlega trú Þorvaldi
Þjóðleikhúsið setur á svið verkið
Engillinn sem er unnið upp úr verk-
um Þorvaldar Þorsteinssonar. „Ég
lék í tveimur verkum eftir Þorvald
og kynntist honum ágætlega. Hann
var afburðamaður í listum, frábær
höfundur og frábær málari líka. Ég
fékk í hendurnar höfundarverk
hans í heild sinni, var í góðu samtali
við ekkju hans, Helenu Jónsdóttur,
og fékk Finn Arnarsson til þess að
gera úr þessu sýningu. Finnur er
myndlistarmaður og hefur starfað í
leikhúsi í fjöldamörg ár. Hann hef-
ur gert fjölda leikmynda og er mjög
góður dramatúrg. Hann fann
ákveðna leið að þessu þar sem við
getum annars vegar blandað saman
gerningum Þorvaldar og hins vegar
brotum úr verkum hans. Þetta
verður að einhverju leyti óvenjuleg
leiksýning en svo sannarlega trú
Þorvaldi sem listamanni.“
Samstarf stækkar leikhúsið
Óperan Brúðkaup Fígarós verð-
um frumsýnd 7. september. „Við
erum í samstarfi við Íslensku óp-
eruna í fyrsta skipti í marga ára-
tugi og mér finnst frábært að Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir,
óperustjóri, og Bjarni Frímann
Bjarnason hafi viljað koma í sam-
starf við Þjóðleikhúsið. Ég finn það
á söngvurunum að þeim finnst góð-
ur hljómburður hér og finnst þetta
spennandi. Auðvitað er ópera að
mörgu leyti leikhús, við munum
nota hringsviðið og flugkerfið og
það er frábært fyrir Íslensku óp-
eruna að fá að nota það,“ segir Ari
og bætir við: „Þetta hús var auðvit-
að ætlað sviðslistum í víðum skiln-
ingi þess orðs og þess vegna er
gaman að vera í samstarfi við Ís-
lensku óperuna. Það auðgar og
stækkar Þjóðleikhúsið að vera í
svona samstarfi. Þessar stofnanir
styrkja hvor aðra.“
Annað sem Ari segir stækka leik-
húsið er samstarf þess við Bernd
Ogrodnik sem hann kallar „heims-
listamann í brúðuleikhúsi“. „Hann
nýtur mikillar virðingar um allan
heim. Þess vegna er mikill heiður
fyrir Þjóðleikhúsið að hafa hann hér
í húsinu.“ Hann mun sýna Gilitrutt
og auk þess frumsamda verkið
Brúðumeistarinn sem ætlað er full-
orðnum. „Það er mjög persónuleg
„Litríkt og spennandi leikár“
Þjóðleikhúsið fagnar 70 ára starfsafmæli Áhersla á íslensk leikverk og sýningar fyrir börn og
ungmenni „Fjölbreytileiki og stórar og glæsilegar sýningar,“ segir þjóðleikhússtjóri
Morgunblaðið/Eggert
Innblástur „Við sækjum efniviðinn alls staðar að, í allt sem okkur finnst spennandi. Það er viðfangsefnið sem ræður för,“ segir Ari Matthíasson.