Skessuhorn - 21.01.2015, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2015
Fylgistu með Snæfelli í
körfuboltanum?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Stykkishólmi)
Arna Snædal:
Ég reyni það en kemst ekki á
marga leiki. Reyni þá stundum
að fylgjast með leikjunum hjá
stelpunum á netinu.
Atli Sigurþórsson með Arney:
Já ég geri það. Stelpurnar hafa
staðið sig mjög vel en strákarnir
mega bæta í.
Pétur Ágústsson:
Já, kvennaliðið hefur staðið sig
sérstaklega vel og strákarnir eru
ágætir líka.
Steinunn María Þórsdóttir:
Voðalega lítið með meistarara-
flokkunum. Ég fylgist meira
með yngri flokkunum.
Gunnar Björn Haraldsson:
Nei, hef lítinn áhuga fyrir körfu-
bolta.
Um tíðina hafa oft komið upp af-
burða efnilegir knattspyrnumenn
á minni stöðum á landsbyggðinni.
Til að mynda er Húsavík fræg fyr-
ir að þaðan hafa komið margir
góðir fótboltamenn. Fyrir nokkr-
um árum tefldi Víkingur Ólafs-
vík fram þremur ungum og mjög
góðum strákum og þar af voru
tveir þeirra úr Grundarfirði. Einn
af þessum þremur er enn eftir hjá
Víkingi og lyfti á dögunum bikarn-
um fyrir Íslandsmeistaratitil í fut-
sal (innanhússfótbolta). Þetta er
Brynjar Kristmundsson sem um
tíma lék í Pepsídeildinni með Val
en sneri síðan heim á Snæfellsnes-
ið að nýju. Brynjar hefur frá síðasta
vori starfað á leikskólanum Sólvöll-
um í Grundarfirði. Þá var fljótlega
komið fyrir mörkum á leikvellin-
um við skólann og fjölgað boltum.
Stelpur og strákar hafa síðan notað
margir stundir í fótbolta á leikskól-
anum og kunna mjög vel að meta
að Brynjar sé með þeim. Kannski
er Grundarfjörður nú um stund-
ir að taka svolítið forskot á önn-
ur bæjarfélög í landinu í uppeldi
ungs knattspyrnufólks. Blaðamað-
ur Skessuhorns kom við á leikskól-
anum Sólvöllum í Grundarfirði á
dögunum og spjallaði við Brynjar.
Hann sagðist ekkert síður en börn-
in hafa gaman af því að mæta í leik-
skólann á morgnana. Brynjar á eft-
ir ár af samningi sínum við Víking í
Ólafsvík og hann segist að minnsta
kosti verða að störfum á Sólvöllum
fram á næsta haust.
Spilaði þrjá leiki 14 ára í
meistaraflokki
Brynjar hefur alið manninn frá
barnsaldri í Grundarfirði. „Fót-
boltinn hefur verið mitt líf og yndi
alla tíð. Við vorum með góðan hóp
hérna þegar ég var í fjórða flokki
og þá lékum við til úrslita á Íslands-
mótinu í sjö manna bolta. Þá um
haustið þegar ég var 14 ára gamall
hafði Ejub þjálfari hjá Víkingi sam-
band og vildi fá mig yfir til liðsins.
Þetta var árið 2006 og ég spilaði
svo þrjá leiki vorið eftir með Vík-
ingsliðinu í fyrstu deildinni. Það
sumar tók ég þátt í átta eða níu
leikjum með meistaraflokknum en
var meira í því að æfa og spila með
öðrum og þriðja aldursflokki. Leik-
irnir með meistaraflokki urðu fleiri
árið eftir en á þessum árum var mér
svolítið hent í ræktina og ætlast til
þess að ég myndi styrkjast og eflast
líkamlega. Ég hef alltaf verið lítill
en bætt það upp með góðri knatt-
tækni, sendingatækni og ýmsum
eiginleikum held ég. Það var síðan
ekki fyrr en 2010 sem ég var orðinn
fastamaður í meistaraflokknum.
Um mitt sumar þar á eftir var ég
svo lánaður til Vals í Pepsídeildina.
Mér gekk ágætlega og var að spila
mikið þetta sumar. Valsliðið dal-
aði reyndar, var við toppinn framan
af sumri en endaði í fimmta sæti í
deildinni. Vorið eftir gekk mér ekki
eins vel, lenti í hálfgerðum öldudal
og leið ekki vel. Skynjaði líka utan-
að komandi pressu og fann þegar
leið á sumarið að þetta var ekki al-
veg að ganga upp. Á sama tíma var
allt á fullu hjá mínu gamla félagi
Víkingi og mig fór að langa vestur.
Það varð til þess að ég var þátttak-
andi í því mikla ævintýri þegar við
fórum upp í efstu deild. Það gleym-
ist held ég aldrei sú mikla stemning
sem myndaðist þegar liðið frá litla
bænum gerði það ómögulega.“
Stefnir á að leggja
þjálfun fyrir sig
Þegar kom að því að Brynjar flutti
vestur að nýju síðasta vor stóð hon-
um ekki margt til boða atvinnu-
lega. „Mér bauðst vinna á leikskól-
anum og fannst það bara fínt. Það
var mikið betra en fiskvinnan. Ég
hef alltaf haft gaman af börnum,
enda er það þannig að ég hlakka
alltaf til að fara í vinnuna á morgn-
ana. Síðan er bara fjör allan dag-
inn. Ég gæti trúað því að þetta sé
ekkert síður skemmtilegt fyrir mig
en börnin,“ segir Brynjar. Spurður
um menntun segir hann að ennþá
sé hann ekki búinn með stúdents-
prófið en það standi til bóta. Það
sé þó ekki á döfinni að verða leik-
skólakennari. „Ég þarf að fara að
drífa mig í að klára framhalds-
skólann og taka stúdentsprófið.
Maður gerir lítið án þess. Ég hef
bara fram til þess ekki vitað hvað
ég vildi leggja fyrir mig í framtíð-
inni. Ég er farinn að sjá að fótbolt-
inn verður áfram mitt líf og yndi
og ég stefni að því að leggja þjálf-
un fyrir mig í framtíðinni, ef til vill
fara í íþróttasálfræði,“ segir Brynj-
ar. Hann hefur þjálfað yngri flokka
hjá Víkingi og var að þjálfa meðan
hann var hjá Val.
Styttist í verunni á
heimaslóðum
Aðspurður segist Brynjar ekki úti-
loka að Víkingur geti endurtek-
ið leikinn að fara aftur upp í efstu
deild. „Mér fannst við vera með
hóp síðasta sumar til að fara upp.
Þá gerðist það eins og oft hjá okkur
að við vorum seinir í gang. Það er
oft sem við erum að fá menn seint
og liðið að mótast í fyrstu leikjum
mótsins. Núna erum við bara níu
og það á eftir að bætast við mann-
skapur svo við höfum í liðið. Að-
stöðuleysið háir okkur og futsalið
er ágætt framan af vetri en þá vilj-
um við fara að spila á stærri völl-
um. Það vantar tilfinnanlega gervi-
grasvöll hjá okkur hérna fyrir vest-
an, kannski er best að aðalvöllurinn
verði með gervigrasi. Ég hef fulla
trú á því að við verðum með sterkt
lið næsta sumar en við strákarnir
sem erum hérna heima erum samt
núna á þessum árstíma meira að spá
í það að bæta okkur sem fótbolta-
menn,“ segir Brynjar. Hann segist
eiga ár eftir af samningi sínum hjá
Víkingi. „Ég er náttúrlega sá eini
eftir af mínum jafnöldrum hérna
fyrir vestan. Ég sé ekki framtíðina
fyrir mig mikið lengur hérna. Eftir
næsta haust veit ég ekkert hvað tek-
ur við hjá mér.“ þá
Skallagrímsmenn börðust vel og
lögðu mikið í sölurnar þeg-
ar Grindvíkingar komu í heim-
sókn í Borgarnes í Dominosdeild
karla í körfuboltanum sl. fimmtu-
dagskvöld. Jafnt var eftir venjulegan
leiktíma 77:77. Það var eins og allt bensín væri
búið á tönkum heimamanna í framlengingunni
sem gestirnir unnu 18:3. Lokatölur því 95:80 fyrir
Grindavík og Skallagrímur sem fyrr í tíunda sæti
deildarinnar með aðeins fjögur stig.
Skallagrímsmenn voru yfir eftir fyrsta leik-
hluta, 25:24. Leikurinn var hnífjafn og gestirnir
voru tveimur stigum yfir í hálfleik 50:48. Grind-
víkingar voru aðeins betri í þriðja leikhlutan-
um og höfðu fjögurra stiga forystu fyrir loka-
fjórðunginn. Þá var hart barist og háspenna á
lokamínútunum, lítið skorað. Skallagrímsmenn
sýndu gríðarlega baráttu og eins og áður segir
jafnt þegar lokaflautið gall við. Tracy Smit skor-
aði 25 stig fyrir Skallagrím, Magnús Þór Gunn-
arsson 24, Davíð Ásgeirsson og Sigtryggur Arn-
ar Björnsson 11 stig hvor, Daði Berg Grétarsson 7
og Egill Egilsson 2.
Vesturlandsslagur verður í Hólminum í næstu
umferð Dominosdeildarinnar sem fram fer á
bóndadaginn, föstudagskvöldið 23. janúar. þá
Lágu eftir
framlengingu
Fyrirliði Íslandsmeistaranna finnur sig vel
við störf á leikskólanum
Brynjar lyftir bikarnum þegar Víkingar urðu Íslandsmeistarar í futsal á dögunum.
Ljósmynd Gunnar Örn Arnarson.
Börnin á leikskólanum eru hænd að Brynjari. Ljósm. þá.
Keppt var til úrslita í Ísleikun-
um svokölluðu í Fjölbrautaskóla
Snæfellinga síðastliðinn fimmtu-
dag. Ísleikarnir eru íþróttakeppni
sem hleypt var af stað í fyrsta
sinn nú í haust og hafa staðið
yfir í vetur. Nemendur skráðu
lið til leiks og kepptu í hverj-
um mánuði fram að jólum í ýms-
um íþróttaleikjum. „Við byrjuð-
um á að keppa í kýló og svo var
keppt í bandí. Eftir það var farið
yfir í brennibolta og þetta endaði
á útsláttarkeppni í blaki,“ segir
Nökkvi Freyr Smárason formað-
ur NFSN. Góð stemning mynd-
aðist í kringum Ísleikana enda
var mikil keppni í gangi. Nökkvi
segir að til standi að gera Ísleik-
ana að árlegri hefð í skólanum.
Í úrslitunum kepptu stigahæstu
liðin í þrautabraut. „Þar kepptu
þau í allskonar þrautum. Þurftu
að snúa sér í hringi og hitta
ofan í körfu og svo framvegis.
Þetta reyndi kannski ekki mikið
á íþróttahæfileika en var fyndið
og skemmtilegt,“ bætir hann við.
Alls tóku átta lið þátt í Ísleikun-
um og var það liðið Pylsuvagninn
sem bar sigur úr bítum.
Nýjungar framundan
Að sögn Nökkva Freys er ýmis-
legt skemmtilegt á döfinni hjá
nemendafélaginu í vetur. „Við
erum á fullu að skipuleggja árshá-
tíðina, sem verður haldin 6.
febrúar. Þetta er tíunda árshátíð-
in í skólanum. Þýski plötusnúð-
urinn Klaas ætlar að spila en hann
gerði garðinn frægan með laginu
Infinity,“ útskýrir hann. Þá seg-
ir Nökkvi að stefnt sé að ýms-
um nýjungum í vetur í bland við
gamalt og gott. „Við stefnum á
að halda góðgerðarviku, þar sem
verða viðburðir til að styrkja góð
málefni. Í lok vikunnar ætlum við
að halda tónleika og reyna að fá
fólk af Nesinu til að mæta. All-
ur ágóði mun renna til góðgerð-
armála. Svo verður hið árlega
þemaball haldið á önninni ásamt
ostakvöldi.“ grþ
Keppt til úrslita í Ísleikunum í FSN
Liðið Pylsuvagninn, sem bar sigur úr
býtum í Ísleikunum. Efri röð frá vinstri:
Friðfinnur, Leví Geir og Benedikt Jens.
Í neðri röð eru Sveinn Pétur, Konráð og
Sanjin Horoz.