Skessuhorn - 29.04.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 18. tbl. 18. árg. 29. apríl 2015 - kr. 750 í lausasölu
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Er þér annt
um hjartað?
Eru bólgur og verkir
að hrjá þig?
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Þrátt fyrir kalt vor og hálfgerða vetr-
arveðráttu síðustu dagana verður
Akranesvöllur tilbúinn fyrir opnun-
arleik Pepsídeildarinnar sunnudag-
inn 2. maí þegar Íslandsmeistarar
Stjörnunnar koma í heimsókn. Þótt
sólin skíni ekki mikið og hitastigið
sé lágt er bati í sverðinum frá degi
til dags, að sögn vallarstarfsmanna.
Engar gróðurskemmdir eru í vell-
inum frekar en oftast áður. Brynjar
Sæmundsson íþróttavallasérfræð-
ingur og verktaki við íþróttasvæði
Akraneskaupstaðar segir að völlur-
inn verði valtaður núna í vikunni og
síðan sleginn í lok vikunnar. Vall-
arstarfsmenn segja Akranesvöll að-
eins seinni að taka við sér núna er
síðasta vor enda kaldara nú en þá.
Þrátt fyrir það verði völlurinn trú-
lega með betri völlum á landinu
þegar Íslandsmótið hefst um næstu
helgi. Völlurinn fær svo hvíld eftir
þennan opnunarleik í mótinu í tvær
vikur þar til næsti leikur Skagaliðs-
ins í Pepsídeildinni fer þar fram.
Sjá nánar umfjöllun um væntan-
legt Íslandsmót á bls. 18-23. þá
Þrátt fyrir að veðráttan minni harla
lítið á vor er sauðburður að hefjast
um allt land. Ærnar spyrja ekki að
veðrinu þegar komið er að burði. Í
fjárhúsunum hjá Andrési og Jens-
ínu á Hellissandi er sauðburð-
ur hafinn. Að vísu eru þau tóm-
stundabændur og halda einungis
tíu kindur, fimm sem þau eiga sjálf
og fimm á Jón Andrésson. Þá eru í
húsunum þrjú hross sem Atli Már
sonur þeirra á. Sauðburðurinn,
þótt ekki sé hann strangur, hófst
hjá þeim síðasta vetrardag þegar
ein ærin bar rígvænum tvílembing-
um, þeim Hörpu sem fékk nafn sitt
eftir mánuðinum sem hófst dag-
inn eftir að hún fæddist og Frosta
sem fékk sitt nafn eftir síðasta vetr-
ardegi. Á myndinni er Jensína með
lömbin tvö.
mm/ Ljósm. þa
Starfsmenn, sérfræðingar og áhugamenn mættir á Akranesvöll í lok vetrar til að
meta ástand vallarins. Jón Þór Hauksson yfirþjálfari hjá ÍA, Brynjar Sæmundsson
íþróttavallafræðingur, Hörður Jóhannsson framkvæmdastjóri íþróttamannvirkja,
Brynjar Þráinsson vallarstjóri og Gunnar Sigurðsson sem lengi var formaður
knattspyrnuráðs á Akranesi.
Akranesvöllur verður
tilbúinn fyrir fyrsta leik
Sauðburður að hefjast
í sveitum landsins
Snæfellskonur kórónuðu frábært tímabil þegar þær fögnuðu Íslandsmeistaratitli í körfubolta í Hólminum á mánudagskvöldið. Þá höfðu þær lagt Keflavíkurstúlkur 3:0 í
úrslitaeinvíginu. Þetta er annað árið í röð sem Snæfellskonur verða Íslandsmeistarar og líkt og í fyrra sópuðu þær til sín titlum á þessu keppnistímabili.
Sjá nánar bls. 39. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson.
Kynning á
Meistaraflokki
karla hjá ÍA
Bls. 18-23
Jakki þrír litir
13.990.-
NÝTT
Bolir frá 1.990.-
Kvart leggingsbuxur 5.990.-
Skyrtur frá 6.990.-
og margt fleira