Skessuhorn


Skessuhorn - 29.04.2015, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 29.04.2015, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015 Kuldi hamlar veiðum GRÆNLAND: Miklir vor- kuldar á Grænlandi valda frátöfum frá grásleppuveið- um þar. Flest veiðisvæði við ströndina eru enn undir 50 til 60 sentímetra þykkum haf- ís og því vonlaust að stunda netaveiðar. Greint er frá þessu á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. Í meðalári hefur veiði hafist 1. apríl. Nú í lok apríl hafa milli tvö og þrjú þúsund tunnur af grásleppu- hrognum verið tilbúnar til út- flutnings frá Grænlandi en nú er fjöldinn hverfandi. Þetta gætu orðið ágæt tíðindi fyr- ir íslenska grásleppukarla því minna framboð á hrognum frá Grænlandi ætti að styrkja verðið á mörkuðum. –mþh Atvinnuleysi var 4% í mars LANDIÐ: Samkvæmt Vinnu- markaðsrannsókn Hag- stofu Íslands voru að jafn- aði 190.100 á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í mars 2015, sem jafngildir 82% at- vinnuþátttöku. Af þeim voru 182.400 starfandi og 7.700 án vinnu og í atvinnuleit. Hlut- fall starfandi af mannfjölda var 78,6% og hlutfall atvinnu- lausra af vinnuafli var 4%. Samanburður mælinga fyr- ir mars 2014 og 2015 sýnir að þátttaka fólks á vinnumark- aði jókst um 2,1 prósentustig og fjölgun vinnuaflsins var um 6.900 manns. Starfandi fólki fjölgaði um 10.400 og hlut- fallið jókst um 3,6 prósentu- stig. Atvinnulausum fækk- aði um 3.500 manns og hlut- fall atvinnuleysis er lægra sem nemur 2,1 prósentustigi. Fólki sem stendur utan vinnumark- aðar fækkaði um 4.300. –mm Alþjóðlegur mánuður gegn ofbeldi á börnum LANDIÐ: Apríl er alþjóð- legur mánuður gegn ofbeldi á börnum. „Þennan mánuð og alla aðra mánuði ársins hvet- ur Blátt áfram einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtök til að taka þátt í að gera Ísland að betri stað fyrir börn og fjöl- skyldur þeirra. Það er hægt að gera með því að tryggja að foreldrar hafi þá þekkingu, hæfileika og bjargir sem þeir þurfa til að vernda börn sín. Ein af þeim leiðum sem Blátt áfram hefur valið er gerð nýs kennsluefnis, Verndarar barna II, kennsluefni til að hjálpa fullorðnum að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi, læra á vísbendingar og styrkjast í að taka þau skref sem þarf til að hjálpa barninu. Í lok apríl 2015, eða dagana 27. apríl – 3.maí hefst sala samtakanna á ljósinu/lyklakippunni og mun afrakstur þeirrar sölu aðallega fara í gerð námsefnisins. Vinn- an við gerð nýja kennsluefnis- ins hófst eftir söfnunina 2014 og lýkur vonandi á þessu ári,“ segir í tilkynningu frá samtök- unum Blátt áfram. –mm „Það var aðeins búið að vara okk- ur við hvers væri að vænta fyr- ir um mánuði síðan. Þá heyrð- um við ávæning um að eitthvað svona stæði til. Við áttum allt eins von á uppsagnarbréfum fyrir síð- ustu mánaðamót. Að þetta yrði páskagjöfin. En svo reyndist þetta bara sumargjöfin í staðinn.” Þetta segja konurnar sjö sem búið er að segja upp ræstingastöðum við Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA). Flestar eru búnar að starfa fyrir skólann árum saman svo að ungmenni Vesturlands geti stund- að framhaldsnám í hreinu húsnæði. Þær hafa þriggja mánaða uppsagn- arfrest. Launakjör á undanhaldi Konurnar hafa séð um öll almenn þrif á skólanum. Þær hafa skipt húsnæði skólans niður sín á milli. Hver og ein hefur haft sitt svæði að sjá um og alfarið að halda því hreinu. Svo er greitt ákveðið fyr- ir það. „Við höfum starfað eftir svokallaðri uppmælingu þar sem við fáum greitt ákveðið á fermetr- ann samkvæmt tilteknum reglum í samningi. Síðan eru aukagreiðslur fyrir bón á gólfum, gardínuþvott, gluggaþrif og þess háttar sem oft er unnið áður en skólinn tekur til starfa eftir frí. Þetta kerfi hefur gef- ist afar vel og verið við lýði í ára- tugi. Það er sanngjarnt og veitir okkur þokkaleg laun samanborið við almennt tímakaup verkafólks. Okkur skilst að þetta launakerfi sé nú á undanhaldi hjá ríkinu og kannski er það þáttur í því að okk- ur er nú sagt upp,” segja þær. Hafa tvisvar tekið skerðingum Ræstingakonur FVA segja að þær hafi þegar sem hópur tekið á sig tvær launalækkanir frá efnahags- hruninu haustið 2008. „Árið 2011 var skorin milljón af okkur. Það var gert með okkar samþykki, í samráði og samvinnu við Atla Harðarson þáverandi skólameistara. Þá þurfti að spara og við sýndum því fullan skilning. Það var líka svipuð skerð- ing 2009. Í bæði þessi skipti tókum við hreinlega á okkur launalækk- anir. Þetta var hreinn niðurskurð- ur í launum. Við fórum sjaldnar inn í stofurnar til að þrífa þær þann- ig að fermetrafjöldinn lækkaði. En óhreinindin voru auðvitað þau sömu og þau þurfti að fjarlægja.“ Þær segja að í þetta sinn hafi ekki verið boðið upp á nein samtöl eða samninga. „Skólameistari hef- ur ekki talað við okkur. Við feng- um bara bréfin, afhent af húsverði skólans.” Erfitt að finna önnur störf Ein kvennanna, Hanna Þóra Guð- brandsdóttir sem einnig starfar sem söngkona, brást við uppsagn- arbréfinu með því að fara sjálf á fund skólameistara. „Hún þakkaði mér fyrir að koma og sagði að það væri fínt að sjá mig,“ segir Hanna Þóra. Eins og hinar konurnar má hún mjög illa við því að missa starf sitt við skólann. „Þetta heldur mér fljótandi því ég er í listinni, það er söngnum. Vinnan hér hefur gefið mér fastar tekjur mánaðarlega sem aftur hefur verið forsenda þess að ég gæti sinnt sönglistinni. Í söngn- um eru tekjurnar mjög óvissar frá einum tíma til annars,“ útskýrir hún. Stöllur hennar taka undir að það sé ekki auðhlaupið fyrir þær í önn- ur störf. Akranes hefur löngum verið þekkt fyrir að þar ríkir látlaus skortur á kvennastörfum. „ Sumar okkar erum í öðrum störfum með þrifunum hér en það eru yfirleitt hlutastörf. Hjá öðrum okkar þá er þetta aðalstarfið með því að sinna heimili og börnum.” Mikil spenna innan veggja skólans Þær segjast nú horfa upp á að lifi- brauðið sé tekið frá þeim og börn- um þeirra til að afhenda það öðrum því skólinn sé hvorki að fara að loka né draga úr starfsemi sinni. „Það á auðvitað að fá inn eitthvað fyrir- tæki sem borgar miklu lægri laun. Auðvitað veltum við því fyrir okkur hvort við eigum að láta þetta ganga yfir okkur. Við erum reiðar og sárar. Verkalýðsfélag Akraness segir okk- ur að þessar uppsagnir séu lögleg- ar en siðlausar. Það er líka fleira á seyði en að okkur sé sagt upp. Nú eftir helgina var tilkynnt að búið væri að segja upp skólahjúkrun og forvarnafulltrúa. Það er rætt um að ýmiss frekari niðurskurður sé fyrir- hugaður. Það er allt á suðupunkti í skólanum,“ segja ræstingakonurn- ar í Fjölbrautaskóla Vesturlands. mþh Á föstudag var öllum sjö ræstinga- konum við Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi sagt upp störf- um. Sú með lengstan starfsaldur hefur unnið við ræstingar hjá skól- anum síðan 1987 og var þar áður í afleysingum við þessi störf frá 1979. Sex kvennanna eru búsett- ar á Akranesi og ein í Hvalfjarðar- sveit. Flestar eru með 10 til 20 ára starfsaldur í þrifum framhaldsskól- ans. Konunum var sagt upp með bréfi skólameistara sem húsvörð- ur Fjölbrautaskólans var látinn af- henda þeim á föstudag, daginn eftir sumardaginn fyrsta. Rektor skólans segir að taka verði á uppsöfnuðum rekstrarvanda. Talar um grímulaust ofbeldi Uppsögn kvennanna hefur vakið hörð viðbrögð hjá Vilhjálmi Birg- issyni formanni Verkalýðsfélags Akraness. Á föstudag skrifaði hann pistil um þetta mál á vefsíðu félags- ins. „Eitt það alvarlegasta við þetta mál er að þarna er konum sem eru að starfa innan tiltekinnar stofn- unnar sagt upp á sama tíma og hluti starfsmanna við sömu stofnun eru að fá 30% launahækkun. Það er kennarar, með fullri virðingu fyr- ir þeim. Nú er ég alls ekki að segja að kennarar séu ekki þess makleg- ir að fá sínar launahækkanir, þvert á móti. Það sem ég vil draga fram er hversu ömurlegt það er að sjá að fólkinu sem er á lökustu kjörunum sé sagt upp á meðan hinir fá hækk- að kaup. Þetta sýnir bara grímu- laust ofbeldi og misskiptingu gagn- vart óbreyttu launafólki í þessu landi,“ segir Vilhjálmur Birgisson í samtali við Skessuhorn. Býst við útboðum Vilhjálmur segir mjög líklegt að ræstingavinna við skólann verði nú boðin út. „Mér er kunnugt um að leitað hafi verið ræstingafyrirtækja og þau beðin um að koma með til- boð. Þá er ráðið inn starfsfólk á lágmarkskjörum. Stór hluti af því verður verkafólk af erlendum upp- runa. Starfsmannafjöldinn er síð- an skorinn niður sem þýðir bara að starfsfólkið verður að hlaupa hrað- ar en ella. Þannig ná þessi fyrirtæki fram markmiðum sínum. Það er farið illa með fólk og deilur blossa upp. Maður er farinn að þekkja þetta mynstur. Frægasta dæmið er það sem gerðist með ræstingafólk á Landsspítalanum nú í vetur. Mér finnst dapurlegt að nú þegar kona sé ráðin skólameistari Fjölbrauta- skólans í fyrsta sinn í sögu skólans þá sé hennar fyrsta verk að ráðast svona á þessi kvennastörf sem þarna eru.“ Vilhjálmur bætir því við að þó þessar uppsagnir séu kannski lög- legar liggi siðferðislega ábyrgðin á þeim hjá skólameistara Fjölbrauta- skólans og hún sé þung. Glíma við uppsafnaðan halla Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skóla- meistari Fjölbrautaskóla Vestur- lands, hefur sent frá sér skriflegt svar við fyrirspurn Skessuhorns um ástæður uppsagnarinnar. Það hljóð- ar svo: „Farið hefur verið fram á að Fjölbrautaskóli Vesturlands greiði uppsafnaðan rekstrarhalla fyrri ára og að rekstur stofnunarinnar verði innan fjárheimildar. Samkvæmt reglugerð nr. 1061/2004, um fram- kvæmd fjárlaga og ábyrgð á fjárreið- um ríkisstofnana, ber forstöðumað- ur ábyrgð á því að útgjöld stofnun- ar séu í samræmi við fjárheimildir og að fjárreiður og rekstur stofn- unar sé í samræmi við áætlanir sem gerðar hafa verið. Ástæða uppsagna ræstingafólks við skólann er hag- ræðing í rekstri og endurskipulagn- ing ræstingamála skólans.“ Vilhjálmur Birgisson segist þeg- ar hafa sett sig í samband við þing- menn frá Akranesi, þau Guðbjart Hannesson og Elsu Láru Arnar- dóttur. Þau hafið lofað að kalla eftir skýrum svörum um það frá mennta- málaráðuneytinu hvort þessar upp- sagnir við Fjölbrautaskóla Vestur- lands séu til komnar vegna krafna þaðan. mþh Konurnar sjö sem nú hefur verið sagt upp fyrir framan Fjölbrautaskóla Vesturlands. Frá vinstri: Lilja Birkisdóttir, Fjóla Lúðvíksdóttir, Halldóra Gylfadóttir, Ásta Björk Magnúsdóttir Kristbjörg Kjerúlf, Bryndís Þóra Gylfadóttir og Hanna Þóra Guð- brandsdóttir. Reiðar og sárar vegna uppsagnanna Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA er ómyrkur í máli um uppsagnir ræstingarkvenna. Ljósm. gbh Ræstingarkonum sagt upp til hagræðingar Ágústa Elín Ingþórsdóttir segir að skólinn verði að greiða uppsafnaðan rekstrarhalla.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.