Skessuhorn - 29.04.2015, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015
Rétt er að minna á viðburði víða á Vestur-
landi 1. maí í tilefni dags verkalýðsins og um
leið hvetja fólk til þátttöku í þeim.
Á fimmtudag er spáð hægri austlægri átt,
snjókomu eða slyddu af og til sunnanlands,
annars skýjuðu með köflum og úrkomu-
litlu. Frost verður 0 til 4 stig en hiti að fjór-
um stigum á Suður- og Vesturlandi yfir dag-
inn. Á föstudag er spáð áfram austlægri eða
breytilegri átt. Él um landið austanvert en
bjart með köflum í öðrum landshlutum. Hiti
breytist lítið. Á laugardag er áfram útlit fyr-
ir hæga austlæga átt, skúri eða él austan til,
annars víða bjartviðri. Hiti 0 til 7 stig að deg-
inum, hlýjast á suðvesturlandi. Á sunnudag
og mánudag er útlit fyrir ákveðna austan-
og norðaustanátt. Rigningu eða snjókomu
með köflum austan til, en björtu með köfl-
um á Suður- og Vesturlandi. Hiti 0 til 8 stig
yfir daginn, hlýjast suðvestanlands.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvernig sumri spáir þú?“ Svo virðist sem
fólk sé ágætlega bjartsýnt með gott sum-
ar. „Afburða hlýju og góðu“ sögðu 12,79%,
„frekar góðu“ 27,62% og „miðlungsgóðu“
28,39%. „Frekar slæmu“ var svar 8,44% og
„köldu og votviðrasömu“ sögðu 12,79%. „Er
ekki spámaður“ var svar 9,97%.
Í þessari viku er spurt:
Býstu við langvinnum verkföllum?
Snæfellskonur í körfubolta sem vörðu
glæsilega Íslandsmeistaratitilinn eru Vest-
lendingar vikunnar á þessu sinni.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Veittu afreksstyrk
STYKKISH: „Í tilefni þess að
kvennalið Snæfells hefur náð
þeim einstaka árangri að verða
deildarmeistarar og Íslands-
meistarar kvenna á leiktíðinni
2014 til 2015, hefur bæjarstjórn
Stykkishólmsbæjar samþykkt að
veita Körfuknattleiksdeild Umf.
Snæfells afreksstyrk að upp-
hæð 1.200.000 krónur.“ Þann-
ig hljóðaði bókun sem kynnt
var á heimasíðu Stykkishólms-
bæjar í gær. „Um leið og lið-
inu, þjálfara og öllum þeim sem
vinna með Körfuknattleiksdeild
Snæfells er óskað til hamingju
með einstakan árangur, vill bæj-
arstjórn þakka alla framgöngu
liðsins, sem hefur glatt okkur
öll og hvatt jafnt unga sem eldri
til þess að styðja við kvennalið
Snæfells. Liðið er einstök fyr-
irmynd fyrir ungmenni í bæn-
um.“
-mm
Minni háttar
bruni
HVALFJ: Slökkvilið Akraness
og Hvalfjarðarveitar var kall-
að út í gærmorgun vegna bruna
sem hafði komið upp í gröfu
sem stendur í malarnámu í landi
Litlu Fellsaxlar í Hvalfjarðar-
sveit. Bruninn reyndist aðeins
minniháttar og skemmdir litlar
sem engar.
-mþh
Sex undir
áhrifum
VESTURLAND: Fjórir öku-
menn voru teknir vegna gruns
um akstur undir áhrifum fíkni-
efna í umdæmi Lögreglunn-
ar á Vesturlandi í liðinni viku.
Kannabisefni í neysluskömmt-
um fundust hjá tveimur þessara
ökumanna og voru þau hald-
lögð af lögreglu. Þá voru tveir
ökumenn teknir vegna gruns
um ölvun við akstur.
–þá
Verkfall mun hafa
áhrif á akstur
Strætó
VESTURLAND: Komi til
boðaðra verkfalla aðildarfélaga
Starfsgreinasambands Íslands
falla niður ferðir á ýmsum leið-
um Strætó á verkfallsdögum,
en fyrsti boðaði dagurinn er
á morgun, fimmtudag. Þar á
meðal falla niður flestar ferð-
ir frá Reykjavík til Akraness og
Borgarness á leið 57. Sjá nánar
á staeto.is.
–mm
Samþykkja styrk
til Sjávarsafns
SNÆFELLSBÆR: Bæjar-
stjórn Snæfellsbæjar hefur sam-
þykkt að veita tveggja millj-
óna króna styrk til enduropn-
unar Sjávarsafnsins í Ólafsvík.
Skessuhorn greindi nýlega frá
tillögum sem Ingi Hans Jóns-
son í Grundarfirði hefur unn-
ið sem ganga út á að sjávarrétta-
veitingaaðstaða verði sett upp
í húsakynnum Sjávarsafnsins.
Líkan sem sýnir þessa hugmynd
hefur staðið frammi til sýn-
is á Átthagastofu Snæfellsbæj-
ar. „Þetta eru mjög skemmti-
legar hugmyndir og gæti orð-
ið ansi fínt,“ segir Kristinn Jón-
asson bæjarstjóri Snæfellsbæjar
við Skessuhorn.
–mþh
„Starfsmenn í gjaldskýli Hval-
fjarðarganga leggja niður störf frá
klukkan 12 á hádegi til miðnættis
á fimmtudaginn kemur, 30. apríl,
þegar kemur til boðaðrar vinnu-
stöðvunar Starfsgreinasambands-
ins,“ segir í tilkynningu sem Spöl-
ur sendi frá sér í gær, þriðjudag.
„Göngin verða opin fyrir umferð
en engin veggjöld innheimt á með-
an. Áberandi skilti verða sett upp
beggja vegna gjaldskýlis og allri um-
ferð beint á ytri akreinar þar í báð-
ar áttir. Innri akreinar verða lokað-
ar, enda enginn þar við innheimtu.
Sjálfvirkt öryggis- og eftirlitskerfi
ganganna verður „á vaktinni“ eins
og áður. Öryggisstjóri Spalar get-
ur því fylgst með umferð og tækni-
búnaði ganganna á meðan vinnu-
stöðvunin varir.“ Loks segir að
gera megi ráð fyrir mikilli umferð
í göngunum síðdegis á fimmtudag,
enda löng helgi framundan. „Spöl-
ur beinir því sérstaklega til vegfar-
enda að sýna varúð og tillitssemi í
umferðinni í göngunum sjálfum og
á svæðinu við gjaldskýlið.“
Hrýs hugur við
hugmyndinni
Vilhjálmur Birgisson formaður
Verkalýðsfélags Akranes segir að
öryggi bílferðalanga sé ógnað með
því að hafa Hvalfjarðargöng opin
og gjaldfrjáls á fimmtudag á með-
an starfsmenn gjaldskýlis Spalar eru
í verkfalli. „Grafalvarlegt,“ skrifaði
Vilhjálmur á Facebook-síðu sína í
gær þegar ákvörðun Spalar lá fyrir.
„Í neyðar- og viðbragðsáætlun sem
gildir fyrir Spöl í Hvalfjarðargöng-
um kemur skýrt fram að það er ófrá-
víkjanleg krafa að starfsmenn Spalar
hafi Tetra-talstöð og að gjaldskýlið sé
aldrei skilið eftir mannlaust,“ skrifar
Vilhjálmur og kallar eftir viðbrögð-
um Vegagerðarinnar við því ef Spöl-
ur ætli ekki að uppfylla neyðaráætlun
ganganna. Vilhjálmur segir að sag-
an hafi sýnt að það skipti sköpum að
starfsmenn grípi til skjótra viðbragða
þegar óhöpp eiga sér stað í göngun-
um. „Hver mínúta getur skipt máli
hvað það varðar. Nánast í hverri ein-
ustu viku þurfa starfsmenn Spalar að
aðstoða vegfarendur vegna óhappa
sem verða í göngunum, meðal ann-
ars að draga bilaðar bifreiðar upp og
annað slíkt. Það kemur líka fyrir að
starfsmenn Spalar þurfi að bregðast
hratt við fyrir sjúkraflutningabíla í
neyðarakstri og er þá göngunum lok-
að til að sjúkrabifreiðar hafi greiðan
aðgang í gegn en það er ljóst að þeg-
ar enginn verður í gjaldskýlinu verð-
ur slíkri þjónustu ekki til að dreifa.
Ég tala af reynslu fyrir mikilvægi
þess að öryggismál séu í lagi í göng-
unum enda vann ég hjá Speli í sex
ár áður en ég tók við formennsku í
Verkalýðsfélagi Akraness.“ Vilhjálm-
ur skrifar að Spölur sé nú bæði á gráu
svæði varðandi lög um stéttarfélög
og vinnudeilur um leið og fyrirtækið
ógni öryggi vegfarenda.
mm/mþh
Verkfræðifyrirtækið VSÓ ráðgjöf
hefur skilað til Akraneskaupstað-
ar skýrslunni „Lyktarmengun frá
fiskþurrkun HB Granda. Meng-
unarvarnir.“ Þessi skýrsla var unn-
in að beiðni bæjaryfirvalda í ljósi
fyrirhugaðrar stækkunar á vinnslu-
húsnæði Laugafisks í bænum en
fyrirtækið er í eigu HB Granda.
Íbúar í grennd við fiskþurrkun-
arverksmiðju Laugafisks hafa um
margra ára skeið kvartað undan
lyktarmengun frá verksmiðjunni
sem hefur starfað á Breið á Akra-
nesi síðan 2003.
Mátu varnir gegn
mengun
Markmiðið með gerð skýrslu VSÓ
var að meta þær mengunarvarn-
ir sem HB Grandi hyggst koma
upp til að draga úr lyktarmeng-
un verði af stækkun og endurbót-
um á Laugafiski. Í dag fer vinnsl-
an fram á tveimur stöðum en fyr-
irhugað er að sameina allt vinnslu-
ferli fyrirtækisins á einn stað og
undir einu þaki. Þannig mun hrá-
efnið fara inn í vinnsluhús og í
gegnum framleiðsluferil út í lok-
aðan gám án þess að koma nokkru
sinni út undir bert loft. Áform HB
Granda eru að auka framleiðslu-
getu Laugafisks úr núverandi 170
tonnum á viku í 600 tonn. Þar er
meðal annars litið til möguleika á
því að þurrka fisktegundir á borð
við loðnu og kolmunna. Í dag er
eingöngu unnið úr hausum og
beingörðum úr bolfisktegundum á
borð við þorsk, ýsu og ufsa. VSÓ
ráðgjöf leggur í skýrslu sinni mat
á það hvort nú sé notuð besta fá-
anlega tækni til að lágmarka lykt-
armengun og hvort fyrirhugað-
Starfsmenn gjaldskýla í Hvalfjarðargögnum fara í verkfall á fimmtudag. Á meðan ætlar Spölur að gefa frítt í göngin.
Ljósm. mþh.
Spölur hyggst bjóða frítt í
göng á fyrsta verkfallsdegi
Eftirþurrkunarhús Laugafisks er orðið lúið eins og sjá má á myndinni. Til stendur
að leggja af vinnslu í þessu húsi verði af stækkun Laugafisks. Við gafl eftirþurrk-
unarhússins hefur nú verið settur upp nýr hreinsunarbúnaður sem nú er verið að
prófa.
Verkfræðingaskýrsla um Laugafisk liggur fyrir
ar mengunarvarnir við stækkaða
verksmiðju verði sömuleiðis af því
tagi.
Telja engan vafa á að
lykt minnki
Sérfræðingar VSÓ segja orðrétt í
niðurstöðum sínum: „Samkvæmt
þeim upplýsingum sem liggja fyr-
ir um stækkun fiskþurrkunar er
enginn vafi talinn á því að lykt
muni minnka frá fiskþurrkun HB
Granda á Akranesi.“ Helstu for-
sendur á bak við þessa niðurstöðu
eru að framleiðsluferlið fer und-
ir sama þak og að núverandi óson-
hreinsunarkerfi verið endurnýjað
og stækkað í takt við aukna fram-
leiðslu. Einnig er bent á að laga
þurfi ýmis atriði, svo sem að þétta
vinnsluhúsnæði enn frekar, endur-
nýja viftur og gera þær öflugri og
að svokölluð eftirþurrkun verði al-
gerlega endurnýjuð. Einnig þurfi
að tryggja frárennslis- og úrgangs-
mál þannig að ekki skapist lykt-
armengun af. „Rétt er að benda á
að sama hvaða tækni verður not-
uð verður aldrei hægt að koma al-
gjörlega í veg fyrir lykt frá starf-
seminni. Þurrkun á fiski mun allt-
af fylgja einhver lykt, en með þeim
aðferðum sem HB Grandi hyggst
beita og þeim viðbótum sem hér
eru lagðar til ætti að vera tryggt
að sú lykt valdi ekki óþægindum í
næsta umhverfi við verksmiðjuna,“
segir í niðurstöðum VSÓ.
Íbúafundur í lok maí
Skýrsluna má nálgast í heild á
heimasíðu Akraneskaupstaðar. Þar
er hún í viðhengi við fundargerð
bæjarstjórnar 20. apríl síðastliðinn.
Síðdegis þennan dag var skýrsl-
an kynnt bæjarstjórninni og skipu-
lags- og umhverfisráði Akraness.
Regína Ásvaldsdóttir sagði í sam-
tali við Skessuhorn í lok mars að
boðað yrði til íbúafundar á Akra-
nesi þegar skýrsla VSÓ um starf-
semi Laugafisks yrði tilbúin og
voru síðustu dagar aprílmánað-
ar nefndir í því sambandi. Á þess-
um fundi á að gera grein fyrir nið-
urstöðu VSÓ auk þess sem HB
Grandi kynnir fyrirætlanir sín-
ar. „Það er stefnt á að þessi fundur
verði nú haldinn 26. maí. Ástæðan
er að samtökin „Betri byggð“ hafa
óskað eftir lengri tíma til að fara
yfir skýrsluna. Síðan verður for-
stjóri HB Granda erlendis í maí en
hann hefur óskað eftir að verða á
fundinum. Tími sem hentar öllum
fannst því ekki fyrr en þarna í enda
maímánaðar. Þetta er gert í sam-
ráði við íbúasamtökin,“ segir Reg-
ína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri.
mþh