Skessuhorn - 29.04.2015, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015
Síðastliðinn miðvikudag undir-
rituðu fulltrúar Faxaflóahafna og
bandaríska fyrirtækisins Silicor Ma-
terials samninga um lóð, lóðarleigu
og afnot af höfn á Grundartanga.
Eins og fram hefur komið í fréttum
þá hyggst Silicor Materials reisa
sólarkísilverksmiðju í landi Kata-
ness norðan tangans. Sólarkísillinn
er notaður til að framleiða sólar-
hlöð til raforkuframleiðslu. „Þetta
verður umhverfisvænsta stóriðja á
Íslandi. Þess vegna er mjög mikil-
vægt að þessi samningur sé undir-
ritaður í dag, á degi Jarðar,“ sagði
Davíð Stefánsson ráðgjafi Silicor
Materials á Íslandi í ávarpi sínu rétt
áður en gengið var til undirritunar
samninganna. Sameinuðu þjóðirn-
ar hafa gert 22. apríl árlega að al-
þjóðlegum degi jarðar þar sem at-
hyglinni skal beint að umhverfis-
vernd. Verksmiðja Silicor á Grund-
artanga á að framleiða hreinan kísil
til sólarorkuframleiðslu með nýrri
og afar umhverfisvænni aðferð.
Í átt að grænna svæði
Það voru þau Theresa Jester for-
stjóri Silicor Materials og Gísli
Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna
sem undirrituðu samningana fyrir
hönd hvors fyrirtækis. Skúli Þórð-
arson sveitarstjóri Hvalfjarðarsveit-
ar og Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri Reykjavíkur vottuðu undirrit-
unina. Dagur fagnaði henni. „Við
erum að þróa Grundartangasvæðið
frá mengunarskapandi iðnaði í að
verða grænna svæði. Þetta verkefni
eins og það hefur verið kynnt fyr-
ir okkur uppfyllir mjög vel skilyrði
fyrir slíku. Það er líka ástæða til að
fagna því sem snýr að hnattrænum
sjónarmiðum í tengslum við þetta.
Í fyrsta sinn í sex mánuði skín sól-
in hér í dag. Það er nokkuð óvænt
að Ísland sé nú að verða land sól-
arhlaða, kannski ekki til notkun-
ar hér innanlands, heldur með til-
liti til útflutnings,“ sagði Dagur B.
Eggertsson borgarstjóri í stuttri
ræðu sinni rétt fyrir undirritunina.
Verið að ganga
frá fjármögnun
„Þetta er mjög mikilvægt skref fyr-
ir okkur að hafa gengið frá samn-
ingum um hafnar- og lóðamál.
Áður höfum við tryggt orku, nú er
búið að ganga frá lóða- og hafn-
armálum. Það hafa verið gerðir
samningar um kaup á tækjabún-
aði og við höfum þegar gert sölu-
samninga um mestan hluta fram-
leiðslu verksmiðjunnar. Allt eru
þetta lykilþættir til að geta geng-
ið frá fjármögnun. Nú er verið að
vinna í fjármögnunarsamningum
við banka í Danmörku og Þýska-
landi. Ég var sjálf í Danmörku
á mánudag þar sem ég átti við-
ræður við fjármálastofnanir. Þeir
hafa samþykkt aðkomu að verk-
efninu með lánum ásamt þýskum
bönkum sem fjármagna að mestu
kaupin á búnaðinum sem er fram-
leiddur í Þýskalandi,“ sagði The-
resa Jester forstjóri Silicor Materi-
als við Skessuhorn eftir undirrit-
un samninganna við Faxaflóahafn-
ir. Að hennar sögn auðveldar það
fyrirgreiðslu bæði í Þýskalandi og
í Danmörku að Silicor Materials
hyggst kaupa stóran hluta af bún-
aði og þjónustu við byggingu verk-
smiðjunnar frá fyrirtækjum í þess-
um löndum. „Við vonumst einn-
ig til að geta gengið frá hluta fjár-
mögnunar í viðskiptum við íslenska
banka,“ bætti hún við.
Mikilvægur fríverslun-
arsamningur við Kína
Theresa Jester sagði að vinna
tengd verkfræðiþáttum við verk-
smiðjuna fari á fullt strax í sumar.
Allri fjármögnun á að vera lokið
endanlega fyrir áramót. „Bygging-
arframkvæmdir myndu þá hefjast á
fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Það
tekur um tvö ár að reisa verksmiðj-
una. Við gætum hafið framleiðslu
á sólarkísil um mitt ár 2018. Það
er búið að semja um sölu á 70%
af framleiðslunni nú þegar til að-
ila í Kína. Yfir 90% af sólarhlöð-
um sem framleidd eru í heiminum
í dag koma frá verksmiðjum í Asíu.
Fríverslunarsamningurinn sem er
í gildi milli Íslands og Kína hef-
ur liðkað mjög mikið fyrir því að
koma útflutningsviðskiptum okkar
þangað á fót. Þetta er einn af þeim
fjölmörgu jákvæðu þáttum sem
hafa gert Ísland að vænlegum kosti
fyrir verksmiðju af þessu tagi.“
Björt framtíð í
sólarhlöð
Í verksmiðjunni á Grundartanga
hyggst Silicor Materials framleiða
hreinan kísil með nýrri aðferð sem
fyrirtækið hefur fengið einkaleyfi
fyrir. Hún byggir á því að hreinsa
kísilinn með því að bræða hann í
fljótandi áli. Við kælingu á bráð-
inni fellur út mjög hreinn kísill
sem nota má í sólarhlöð en óhrein-
indi í kísilnum bindast álinu. Það
fer svo áfram í venjulega iðnfram-
leiðslu þar sem þess málms er þörf.
Kísillinn verður hins vegar steypt-
ur í kubba sem seldir verða er-
lendis til framleiðslu á sólarhlöð-
um. „Framtíðin í þessum iðnaði er
afar björt,“ sagði Theresa Jester
og hló dátt. „Síðustu fimm til sjö
árin hefur vöxturinn í framleiðslu
á kísil í sólarhlöð að jafnaði ver-
ið um 14% árlega. Allt sem bend-
ir til að þetta haldi áfram. Ég vona
að okkur takist með tímanum að
ná forystu á þessum markaði með
okkar aðferð,“ bætir hún við.
Fyrir ári síðan úrskurðaði
Skipulagsstofnun að kísilmálm-
verksmiðja Silicor á Grundartanga
skuli ekki háð mati á umhverfisá-
hrifum þar sem hún sé ekki lík-
leg til að hafa í för með sér um-
talsverð umhverfisáhrif. Finna má
þann úrskurð á vef stofnunarinn-
ar. Talað hefur verið um að verk-
smiðja Silicor skapi um 450 bein
störf, bæði fyrir konur og karla.
Þar af verði um 150 störf fyrir
fólk með menntun á háskólastigi.
mþh
Á þriðjudaginn í liðinni viku var
malbikað nýtt bíla- og athafnasvæði
við höfuðstöðvar Flutningafyrir-
tækis ÞÞÞ við Smiðjuvelli á Akra-
nesi. Að sögn Þórðar Þ Þórðarson-
ar framkvæmdastjóra er nýja hús-
ið nú tilbúið fyrir alla hefðbundna
starfsemi fyritækisins og var sum-
ardagurinn fyrsti nýttur til að flytja
tæki og búnað frá Dalbraut 6. „Við
hófum síðan starfsemi í nýju húsi á
föstudagsmorguninn,“ sagði Þórð-
ur. Húsið við Smiðjuvelli er 1452
m2 að grunnfleti en 1690 m2 með
millilofti. Bílastæðið er 7.000 fer-
metrar að stærð og því með stærri
bílastæðum. Það tók starfsmenn
Hlaðbæjar Colas um tólf tíma að
leggja malbikið en það var lagt í
einni beit. Verkið gekk prýðilega
enda búið að aka efni, slétta og
þjappa um morguninn áður en yf-
irlögn hófst.
Þórður segir að því fylgi bæði
kostir og gallar að fara á nýjan stað
í útjaðri bæjarins. „Það er vissulega
skjólbetra við Dalbrautina þar sem
við höfum verið og á margan hátt
nær helstu athafnasvæðum okk-
ar og viðskiptavinum. Það er því
með ákveðinni eftirsjá sem við för-
um af gamla staðnum enda höf-
um við verið í góðri sátt við um-
hverfið. Nýja húsið og aðstaðan
þar gerir þó gott betur en að bæta
upp gallana,“ segir Þórður í sam-
tali við Skessuhorn. Eins og kunn-
ugt er keypti Akraneskaupstað-
ur húseign og samliggjandi lóð-
ir ÞÞÞ við Dalbraut og verður nú,
þegar búið er að losa húsnæði og
lóð, hafist handa við breytingar á
húsinu til að það geti þjónað þörf-
um eldri borgara á Akranesi og ná-
grenni.
mm
Gengið frá lóða- og hafnasamningum við Silicor Materials
ÞÞÞ flutt með höfuðstöðvar sínar á nýtt athafnasvæði
Á athafnasvæði ÞÞÞ er nú risið og fullbúið 1.690 m2 hús og 7.000 fermetra mal-
bikað bílastæði, eða svipað og löglegur fótboltavöllur. Ljósm. mm.
Yfirlögn malbiks á athafnalóð ÞÞÞ við Smiðjuvelli tók um tólf tíma. Flutt var á
fimmtudaginn og starfsemi hófst svo á nýjum stað í bítið á föstudaginn. Ljósm. mþh.
Samningar undirritaðir í votta viðurvist. Frá vinstri Skúli Þórðarson, Theresa Jester, Gísli Gíslason og Dagur B. Eggertsson.
Sólarkísilverksmiðjan á Grundartanga verður framkvæmd upp á um 122 milljarða króna og þannig eitt stærsta fjárfestingar-
verkefni á Íslandi.
Dagur B. Eggertsson vottaði samningana ásamt Skúla Þórðarsyni sveitarstjóra
Hvalfjarðarsveitar.
Davíð Stefánsson heldur á lofti mola úr hreinum kísil sem verður framleiðsla verk-
smiðjunnar á Grundartanga.