Skessuhorn - 29.04.2015, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015
Í Fjöliðjunni, vinnu- og hæfingar-
stað í Borgarnesi, eru níu einstak-
lingar í virkri starfshæfingu og sjö
aðrir starfa á vernduðum vinnustað
Borgarbyggðar við móttöku á skila-
gjaldsskyldum umbúðum. Einnig
starfa í Fjöliðjunni þrír leiðbein-
endur og Lilja Gissurardóttir er
forstöðuþroskaþjálfi og segir hún
að þar sé gaman að vinna.
Sauma fyrir öll heimili
Strandabyggðar
„Hér erum við að halda úti vett-
vangi fyrir fólk að koma saman, fara
út úr húsi og halda áfram og vinna
eitthvað við hvers hæfi,“ útskýr-
ir Lilja þegar blaðamaður Skessu-
horns leit í heimsókn. „Við tökum
að okkur allskyns verkefni og erum
núna að vinna hörðum höndum að
skila af okkur stórri pöntun. Leik-
skólinn Lækjarbrekka á Hólma-
vík leitaði til okkar og pantaði ríf-
lega 160 fjölnota innkaupapoka
sem þau ætla að gefa öllum heim-
ilum í Strandabyggð í tilefni að því
að leikskólinn fær senn Grænfána
viðurkenninguna. Þetta verkefni er
búið að vera mjög skemmtilegt og
við leituðum til hagsmunasamtaka
verndaðra vinnustaða á Íslandi eft-
ir samstarfsaðilum. Það fór svo að
Fjöliðjur á Siglufirði og Sauðár-
króki vinna þetta verkefni með okk-
ur. Hér og á Siglufirði eru pokarn-
ir saumaðir en þau á Sauðárkróki
sjá um að skreyta þá.“ Lilja segir að
það skipti mjög miklu máli að vera
í samstarfi við fyrirtæki í héraði og
þau fagni fjölbreyttum verkefnum.
Nýverið hafi til að mynda Gróðrar-
stöðin Sólbyrgi í Reykholtsdal fal-
ið Fjöliðjunni að líma merkingar
á umbúðir fyrir jarðarberin góm-
sætu. „Það verkefni er alveg tilval-
ið og gott að vinnan okkar kemur
að gagni. Við fréttum að áður hafi
öll fjölskyldan sem stendur að Sól-
byrgi setið og límt á umbúðirnar á
kvöldin yfir sjónvarpinu. Nú spara
þau sér ófá handtökin sem Helga
Björg Hannesdóttir vinnur af stakri
nákvæmni,“ segir Lilja glaðlega.
Fjölbreytt endurvinnsla
Í Fjöliðjunni fer fram mikil endur-
vinnsla og allt virðist nýtt. Starf-
seminni berst efni úr fatasöfnun
Rauða kross Íslands en einnig er
þar tekið við allskyns afgöngum
og efnivið. „Ég vil bara segja fólki
að henda ekki neinu. Við getum
nýtt svo mikið, ekki henda afgangs
garni eða tvinna.“ segir Ölver Þrá-
inn Bjarnason sem saumar fjölnota
taupoka. Hann og Oddrún Ragna
Elísabetardóttir vinna hörðum
höndum að því að klára að saum-
ar upp í pöntunina fyrir leikskólann
á Hólmavík. Angela Gonder vinnur
að því að hanna fjölnota taupoka úr
bómullar t-bolum og hefur saum-
að nokkrar útgáfur nú þegar. Í Fjöl-
iðjunni leynist svo Kertasníkir allt
árið um kring. „Ég er svona yfir –
Kertasníkir,“ segir Ásta Birna Ein-
arsdóttir aðspurð um hennar verk-
efni innan Fjöliðjunnar. „Ég bræði
kertaafganga og steypi svo upp ný
kerti. Nýjasta framleiðslan kallast
Aurora því litunum svipar til norð-
urljósanna.“ Helgi Sævar Sveinsson
býr til nýja kveika úr tvinna sem
hann dýfir í kertavax og endurvinn-
ur álplötuna úr notuðum spritt-
kertum. Þetta festir hann svo sam-
an með töng og Ásta Birna notar
nýju kveikana í kertin.
Frekara samstarf
æskilegt
Í móttöku skilagjaldsskyldra um-
búða voru þeir Garðar Freyr Íris-
arson, Árni Jónsson og Guðmund-
ur Ingi Einarsson að flokkar dósir
á verndaða vinnustað Fjöliðjunnar.
„Hingað kemur fólk með dósir og
við teljum og flokkum fyrir það,“
segir Lilja. „Borgarbyggð borg-
ar starfsfólkinu okkar og sölutekjur
renna svo til að styrkja stoðir rekst-
ursins. Við gerum einnig samninga
við fyrirtæki á almennum mark-
aði, svokallaða örorkuvinnusamn-
inga. Þá greiðir Tryggingastofn-
un ríkisins laun starfsmanns upp að
70% og fyrirtæki greiða einstaklingi
með skerta starfsgetu svo upp í lág-
markslaun. Þetta fyrirkomulag get-
ur gagnast fyrirtækjum sem og okk-
ar fólki. Reyndar er það sem helst
vantar fleiri snertifletir samfélagsins
við fólk með skerta starfsgetu. Einn-
ig mættu fleiri vita af starfsemi Fjöl-
iðjunnar og að þar sé hægt að líta
inn, koma með efnivið fyrir okkur
að endurvinna, kaupa vörur sem við
framleiðum eða bara skoða hjá okk-
ur,“ segir Lilja að endingu.
eha
Fjöliðjan í Borgarnesi er fjörugur vinnustaður
Helgi þræðir nýja kertakveika. Ásta Birna er yfir-Kertasníkir Fjöl-
iðjunnar.
Helga Björg sér um að líma á umbúðir
fyrir Sólbyrgi.
Ölver er hestakall og yfir-saumari
Fjöliðjunnar.
Garðar flokkar dósir á verndaða
vinnustað Fjöliðjunnar.
Árni flokkar í sundur gler og ál.
Guðmundur Ingi sér um stóru sekkina af áldósum.
Angela hannar og saumar fjölnota poka.
Oddrún saumar fjölnota poka fyrir
leikskólann Lækjarbrekku á Hólmavík.