Skessuhorn - 29.04.2015, Page 33
33MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2015
Gamla fjárhúsið á menningarsetr-
inu að Kolsstöðum í Hvítársíðu var
fullsetið fólki á þriðjudagskvöld-
ið þegar Jón Proppé heimspeking-
ur flutti erindi sitt um listmálar-
ana sem heimsóttu Húsafell og ná-
grenni á fyrri hluta síðustu aldar.
Alls lögðu um 70 manns leið sína
að Kolsstöðum til að hlýða á fyrir-
lestur Jóns.
Í hópi brautryðjendanna sem
komu að Húsafelli til að sinna list
sinni voru málarar á borð við Ás-
grím Jónsson, Jón Stefánsson,
Guðmund Thorsteinsson (Mugg)
og Júlíönu Sveinsdóttur. Ásgrím-
ur kom fyrst í Húsafell fyrir hundr-
að árum, sumarið 1915, og dvaldi
fjölmörg sumur eftir það í Húsa-
felli þar sem hann varð nánast einn
af heimilisfólkinu. Frá Húsafelli
eru mörg þekktustu verk Ásmund-
ar. Málverk hans þaðan höfðu mikil
áhrif og margir listamenn áttu síð-
ar eftir að leggja leið sína í Borgar-
fjörð og að Húsafelli til að reyna að
fanga stórbrotna náttúruna í verk
sín. Fáir staðir á Íslandi hafa orð-
ið íslenskum málurum jafn oft að
viðfangsefni þegar landslagsmyndir
eru annars vegar nema kannski að
Þingvöllum undanskildum. Íslensk
listasaga ber þess glöggt merki.
Jón Proppé rakti í fyrirlestri sín-
um sögu þessara málara í skemmti-
legri og mjög svo áhugaverðri frá-
sögn þar sem hann sýndi dæmi
um verk þeirra. Jón Proppé hefur
fjallað mikið um íslenska myndlist,
ekki síst í skrifum sínum. Hann er
einn höfunda Íslenskrar listasögu
og hefur sett upp fjölda listsýn-
inga á Íslandi og erlendis. Fjörug-
ar umræður sköpuðust að loknu er-
indi hans á Kolsstöðum og greini-
legt að mjög mikill áhugi er á sögu
málaranna í Húsafelli. Meðal ann-
ars kom upp sú hugmynd að efnt
yrði til listsýningar sem gæfi hug-
mynd um þá merku og fjölbreyttu
listsköpun sem átt hefur sér stað í
Húsafelli og nágrenni. Fyrirlestur-
inn var á vegum Snorrastofu í sam-
vinnu við SÖGU Jarðvang. mþh
Landssamband stangveiðifélaga
sendi í síðustu viku Sigurði Inga
Jóhannssyn, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, bréf þar sem
sjónarmiðum veiðimanna er kom-
ið á framfæri vegna þungra áhyggja
sem forsvarmenn þeirra hafa vegna
dreifingar norskra laxastofna hér á
landi. Þær áhyggjur aukast vegna
fyrirhugaðs laxeldis í Ísafjarðar-
djúpi og Eyjafirði. Fyrir um mánuði
síðan sendi Landssamband veiði-
félaga ráðherra bréf þar sem gerð
var krafa um að lokað verði fyrir
eldi á norskum eldislaxi í Eyjafirði
og Ísafjarðardjúpi. Í bréfinu var
vísað til samkomulags frá október
1988 sem stjórnvöld og allir hags-
munaaðilar stóðu að. Landssam-
band stangveiðifélaga var aðili að
þessu samkomulagi og tekur undir
allar kröfur Landssambands veiði-
félaga sem fram koma í bréfi þeirra.
„Landssamband stangveiðifélaga
krefst þess að samkomulagið verði
virt og að Eyjafirði og Ísafjarðar-
djúpi verði lokað fyrir eldi á laxi af
norskum uppruna,“ segir í bréfinu
til ráðherra.
Nýlegt dæmi þar sem laxar sluppu
úr kvíum á Vestfjörðum og veidd-
ust í Patreksfirði í júlí 2014 sýnir að
lítið má út af bregða ef ekki á illa
að fara. Skýrsla Veiðimálastofnun-
ar frá því í september sama ár stað-
festir að þeir tugir laxa sem voru
rannsakaðir voru allir með nokkuð
þroskaða kynkirtla og virðast flestir
hafa stefnt á hrygningu það haust-
ið. „Þetta eru váleg tíðindi. Ekki
þarf að fjölyrða um afleiðingarnar
ef kynblöndun norskra eldislaxa og
íslenska laxastofnsins yrði að veru-
leika. Fjöldi laxa sem slapp í þessu
tilfelli er á reiki, en ekki er loku fyr-
ir það skotið að þeir skipti þúsund-
um og eigi jafnvel eftir að sjást á
svipuðum slóðum í sumar,“ segir í
bréfinu.
Loks segir í bréfinu til ráð-
herrans: „Oft er sagt að náttúran
eigi að njóta vafans, það á svo sann-
arlega við í þessu efni. Við gerum
þá lágmarkskröfu til stjórnvalda að
ráðuneytið virði það samkomulag
sem við stóðum að í góðri trú og
fulltrúi ráðuneytisins undirritaði
ásamt öllum hagsmunaaðilum. Með
lokun þeirra svæða sem að framan
greinir fyrir eldi á frjóum norskum
laxi er stigið skref í þá átt að vernda
íslenska laxastofna. Sú skylda hvíl-
ir lögum samkvæmt einnig á stjórn-
völdum.“ mm
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig
á að leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni
lausnarorð/in á netfangið: krossgata@skessuhorn.
is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Þeir sem ekki
hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á Kirkju-
braut 56, 300 Akranesi (athugið að póstleggja þarf
lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr
réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn
bókagjöf frá Skessuhorni.
53 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síð-
ustu viku. Lausnin var: „Sumargestur“. Vinnings-
hafi er: Guðrún Hauksdóttir, Ögri, 340 Stykkis-
hólmi.
mm
Flass
Hengi-
rúm
Féll
Bókvit
Hermir
Þýður
Aðstoð
Innskot
Hlið-
stæð
Einnig
Prjál
Nöldur
Gjöld
Flan
Af-
rakstur
Mát
Dtröfn
Tíma-
bil
Glund-
ur
Íhuga
Önd
1
Lána
Hlass
Á fæti
11 Hindra
Ná-
kvæmni
3
Sér-
hljóðar
Hávaði
Hrind-
ing
Fæði
16 Sér-
stök
8 Allsgáð
Fríðar
Reykur
Tóm-
stund
Ein-
leikur
Dráttur
Eldaðir
13
Tónn
1000
Hryssa
Nota
Sérhlj.
Gjálfur
Vær
Laðaði
Tölur
Akrar
Mögl
Vild
Púki
18 Hlut-
verk
Strax
15 Löt
Stöng
Viðmót
Verur
Leir
Fákar
Óhræsi
Svall
Spann
Röst
Örlátur
Suddi
14 Bjarga
Grimm-
ur
6 10
Hugar-
ástand
Skipar
Valdi
Óveður
4
Sund
Góð-
glöð
Finnur
leið
Frægar
Gelt
Fugl
Fag
Öldu-
gjálfur
Hrina
7 Tónn
Reifi
Kl. 3
Mjúk
Þegar
Kvað
Þreyta
Fæddi
Spyrja
Næði
Vafi
Næga
12 Væl
Nögl
Lúsaegg
Svik
Hagnað
9 Temja
Tré
5
Ósvikið
Um-
hugað
2 Ferð
At-
huga
Þófi
Samhlj.
Ras
Beitan
17
Gekk
Sáð-
lönd
For-
feður
Vaskur
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
Fullt hús á Kolsstöðum þegar fjallað var um Húsafell málaranna
Íslenskur lax gerir hér atlögu við uppgöngu í Glanna í Norðurá.
Óttast mjög áhrif þess
að norskir eldislaxar
sleppi úr kvíum
Gamla fjárhúsið og hlaðan á Kolsstöðum í Hvítársíðu sem Helgi Eiríksson hefur
gert upp og breytt í menningarsetur.
Fjöldi fólks lagði leið sína að Kolsstöðum til að hlýða á erindi Jóns Proppé.
Ásgrímur Jónsson kom fyrst í
Húsafell fyrir einni öld síðan. Það
varð upphafið á langri vináttu hans
við heimafólkið þar og nærveru í stór-
brotinni náttúru staðarins.
Mikill áhugi var á verkum gömlu meistaranna sem sóttu Húsafell heim á fyrri
hluta síðustu aldar. Hér tekur meistari mynd af mynd annars meistara.
Páll Guðmundsson listamaður sem býr
á Húsafelli í dag á tali við Jón Proppé
í hléi.