Skessuhorn - 10.06.2015, Qupperneq 28
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 201528
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Pennagrein
Kæru Hvanneyringar!
Þegar Verkfærasafni var með lögum
komið upp hér á Hvanneyri árið 1940,
munu fyrstu verk við það hafa komið í
hlut Guðmundar Jónssonar, þá kenn-
ara hér við skólann. Guðmundur gerði
m.a. fyrstu munaskrá safnsins, og mér
þykir sennilegt, að hann hafi átt mik-
inn þátt í að velja þá gripi, sem til álita
komu, gripi sem nú mynda elsta kjarn-
ann í Landbúnaðarsafninu. Með safn-
inu höfðu menn ekki síst í huga, hvað
gagnlegt væri bændum á þeim gríðar-
lega breytingatíma, sem þá var að hefj-
ast í íslenkum landbúnaði.
Guðmundur verðskuldar því minn-
ingamark hér í safninu, sem og fyrir
það að hafa starfað hér á Hvanneyri, og
stýrt staðnum um langt árabil. Að fjalla
um Guðmund er efni í langan fyrirlest-
ur, en hér ætla ég eingöngu að fjalla í
örstuttu máli um bakgrunn hans, og
hlut að safninu og starfsemi þess.
Guðmundur var mjög vel menntað-
ur búfræðingur, fyrst úr Hólaskóla og
síðan úr danska landbúnaðarháskól-
anum. Það má segja, að hann hafi haft
nokkra sérstöðu meðal ungra búfræð-
inga, er til starfa komu á þessum árum.
Sú sérstaða fólst í áhuga hans á hag-
fræði og búrekstri. Guðmundur varð
brautryðjandi í bókhaldi bænda, þar
sem áhersla var lögð á rekstrarafkomu
búa sem fyrirtækja, með góðri ávöxtun
rekstrarfjármuna búanna og aukinni
framleiðni vinnuafls þeirra.
Nú er hvers konar bútækni, með
vélum og verkfærum, það sem breyt-
ir grunnfræðum náttúrunnar eins og
t.d. efna- og eðlisfræði, jarðvegsfræði,
áburðarfræði og fóðurfræði í nýtanlega
afurðir og verslunarvöru með vinnu-
sparandi hætti. Það nægir að líta í árs-
ritið Búfræðinginn, sem Guðmundur
var maðurinn á bak við, til þess að sjá,
hve honum var sú staðreynd ljós. Fjöl-
margar greinar, fréttir og hugmyndir,
svo og tíðindi frá nemendum hans, sem
birtust í Búfræðingnum, varða einmitt
bútæknilausnir, vélar og verkfæri, sem
talin voru líkleg til þess að létta og
spara bændum og búaliði vinnu.
Það var því ekki tilviljun, að Guð-
mundur sat í Verkfæranefnd ríkisins
um liðlega tveggja áratuga skeið, nefnd
er gegndi mikilvægu forystuhlutverki í
vélvæðingu landbúnaðarins á árunum
eftir síðari heimsstyrjöldina, einkum á
sviði landnáms með nýrækt, en síðar
búvélaprófunum og verktæknitilraun-
um. Í Verkfæranefnd átti Guðmund-
ur strax hlut að merkum athugunum,
m.a. á súgþurrkun heys, sem þá var ný-
mæli, er átti eftir að gerbreyta heyskap
landsmanna.
Guðmundur naut þess líka að sjá son
sinn, Jón Ólaf, sækja sér sérmenntun á
sviði bútækni til Svíþjóðar; sennilega
var það heldur ekki tilviljun. Ólafur
tók síðan við forystu Verkfæranefnd-
ar á miklu breytingaskeiði landbúnað-
ar og leiddi það starf, bændum til mik-
illar farsældar. Því miður féll Ólafur frá
í miðju starfi, en við minnumst verka
hans með virðingu og þakklæti.
Það má velta því fyrir sér, hvað
vakti áhuga Guðmundar á bútækni
og hagræðingu búverka – því sem
þá kallaðist „rationalisering“ í ná-
grannalöndunum? Ég nefni nokkra
þætti, sem í huga minn koma:
1. Skólaumhverfið á Hólum, er Guð-
mundur dvaldi þar ungur, mótað af
hugsjónamanninum Sigurði Sigurðs-
syni skólastjóra og faglegu starfi Rækt-
unarfélags Norðurlands. Sigurður átti
hvað mestan þátt í Búsáhaldasýning-
unni sumarið 1921, sýningu sem Guð-
mundur kenndi okkur löngu síðar að
gríðarmiklu hefði skipt fyrir tækni-
væðingu og framfarir íslensks land-
búnaðar.
2. Sem ungur námsmaður í Dan-
mörku kynntist Guðmundur því vel,
hvernig danskur landbúnaður hafði
orðið að öflugri atvinnugrein, með því
að nýta fagkunnáttu, verktækni, bók-
hald og hagræðingu með markviss-
um hætti til þess að auka framleiðni og
arðsemi greinarinnar þjóðinni allri til
farsældar.
3. Ég hef þegar nefnt starf Guðmund-
ar að búreikningum, stórmerkilegt
brautryðjendastarf, sem sýndi honum
betur en flestum öðrum, hve miklu
varðaði að huga að greiningu á rekstri
búanna og markvissri leit að leiðum til
hagræðingar hans.
4. Á tíð hans, sem skólastjóra hér á
Hvanneyri efldist mjög staðarum-
hverfi, sem nú mætti kalla nýsköpun-
arumhverfi, þar sem margt var reynt
til verkumbóta og framfara í búnaðar-
háttum. Komu þar mjög við sögu hug-
vitsmaðurinn Guðmundur ráðsmaður
Jóhannesson, Ólafur Guðmundsson
með starfi Verkfæranefndar, tilrauna-
stjórinn Magnús Óskarsson og raunar
margir fleiri sem nefna mætti.
5. Loks nefni ég tengslin sem Guð-
mundur var iðinn við að rækta við
nágrannalöndin og stofnanir þar, til-
raunastöðvar og landbúnaðarháskóla,
en þannig kynntist hann ýmsum nýj-
ungum sem hann með beinum eða
óbeinum hætti færði til landsins, m.a.
vélum og verkfærum ...
Þetta var aðeins ágrip þess, sem
tengir nafn Guðmundar Jónssonar við
Landbúnaðarsafnið. Það fer því vel á
því, að hann horfi hér til safnmuna og
sýningarinnar, sem varpar ljósi á þró-
un landbúnaðarins á tuttugustu öld,
muna og gripa sem leiddu til hagræð-
ingar, vinnusparnaðar og vinnuléttis –
og breyttu erfiðri lífsbaráttu í nútíma-
lega og tæknivædda atvinnugrein. Það
var draumur Guðmundar skólastjóra,
sem við getum lesið úr ýmsum skrifum
hans, og sem við minnumst líka úr fjöl-
mörgum kennslustundum hjá honum.
Að endingu vil ég svo fyrir hönd
Landbúnaðarsafnsins þakka ykkur,
búfræðingar vorsins 1963, fyrir þessa
myndarlegu gjöf, og listamannin-
um fyrir verkið. Gjöfin kemur safninu
vel, hún styrkir rætur þess og heldur á
lofti minningu um eljustarf merkilegs
brautryðjanda.
Ég þakka ykkur fyrir að hlusta.
Bjarni Guðmundsson.
Ávarp flutt við afhjúpun lágmynd-
ar af Guðmundi Jónssyni á Hvann-
eyri 6. júní síðastliðinn.
Guðmundur Jónsson
- Við afhjúpun lágmyndar af honum í Landbúnaðarsafni 6. júní 2015
Lágmyndina gerði Pétur Bjarnason.
Gestir við afhjúpun lágmyndarinnar í Landbúnaðarsafninu.
Náttúran er ævintýraheimur. Þar
gerast alls konar ævintýri og þar er
margt skemmtilegt að sjá og upplifa.
Náttúrubarnaskólinn er nýtt verk-
efni á Sauðfjársetrinu í Sævangi á
Ströndum þar sem börn og fullorðn-
ir læra um náttúruna á fjölbreyttum
námskeiðum, með því að sjá, snerta,
upplifa og framkvæma. Námskeiðin
samanstanda af skemmtilegri fræðslu
um það sem er að finna í nágrenninu.
Þar er talað um fjöruna og leyndar-
dóma hennar, rekadrumba og þöng-
ulhausa, einnig fugla, seli og plöntur.
Eins er sagt frá þjóðsagnapersónum
og sögunni sem tengist svæðinu.
Veðrið verður líka skoðað, skráð og
skeggrætt um það með hjálp frá lít-
illi heimatilbúinni veðurstöð sem
verður í Sævangi. Þá verður farið í
gönguferðir og leiki. Eins stendur til
að föndra og skapa listaverk, búa til
jurtaseyði, rannsaka lífríkið, búa til
fuglahræður, senda flöskuskeyti og
margt fleira. Kennslan fer að miklu
leyti fram utandyra og er verkleg, þó
auðvitað verði að haga seglum eftir
vindum og veðri.
Strandir eru tilvalinn vettvang-
ur fyrir námskeiðahaldið, svæðið
er þekkt fyrir fallega og stórbrotna
náttúru og fjölbreytt gróðurfar og
fuglalíf. Því er tilvalið að skella sér á
Strandir á námskeið í sumar. Verk-
efnið er hugsað til að fjölga afþrey-
ingarmöguleikum á Ströndum fyr-
ir fjölskyldur sem vilja skemmta sér
saman. Auðvitað mega börnin samt
líka koma ein í Náttúrubarnaskól-
ann og fullorðnir líka. Margt ann-
að er í boði á Ströndum, þorpið á
Hólmavík er í 12 kílómetra fjarlægð
frá Sauðfjársetrinu í Sævangi. Það er
tilvalið að skoða Galdrasýninguna
á Hólmavík og Kotbýli kuklarans í
Bjarnarfirði, fara í sund í mögnuð-
um sundlaugum og út að borða á
veitingastöðum. Ævintýraferð norð-
ur í Árneshrepp eða hringinn um
Bjarnarfjörð og
út á Drangsnes er
skemmtileg upplif-
un. Eins er hægt að komast í siglingu
og lundaskoðun út í Grímsey, hesta-
ferð með Strandahestum eða skella
sér á golfvöllinn í Skeljavík. Þá er
nóg af gististöðum í grenndinni og
ágæt tjaldsvæði.
Námskeiðin á vegum Náttúru-
barnaskólans verða alla fimmtu-
daga í sumar, en fyrsta námskeið-
ið er 11. júní. Einnig verður boðið
upp á þrjú helgarnámskeið, helgarn-
ar 13.-14. júní, 18.-19. júlí og 22.-23.
ágúst. Náttúrubarnaskólinn mun
líka standa fyrir mörgum minni við-
burðum sem verða auglýstir í sum-
ar til dæmis kvöldgöngum og kvöld-
vökum.
Hægt er að fylgjast með Nátt-
úrubörnunum á Facebook.com/
natturubarnaskoli auk þess sem við
verðum dugleg að nota hashtöggin
#natturuborn og #natturubarnaskoli
á samfélagsmiðlum í sumar. Skrán-
ingar og upplýsingar er hægt að fá í
síma 661-2213 og á netfanginu natt-
urubarnaskoli@gmail.com.
Námskeiðin eru hugsuð fyrir fólk
á öllum aldri og alla sem vilja finna
og komast í samband við sitt innra
náttúrubarn. Verið hjartanlega vel-
komin á Strandir.
Dagrún Ósk Jónsdóttir
Náttúrubarnaskóli á
Ströndum
Pennagrein
Fjöruferð.
Hreiðurskoðun.