Skessuhorn - 13.01.2016, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 20168
Erindi um
kosingarétt kvenna
STYKKISH: Laugardaginn 16.
janúar kl. 14:00 verður fjallað um
kosningarétt kvenna í 100 ár á Ís-
landi í Norska húsinu í Stykkis-
hólmi. Þar mun Kolbrún S. Ing-
ólfsdóttir sagnfræðingur og líf-
eindafræðingur halda erindi um
bók sína „Þær ruddu brautina,“ en
sú bók kom út fyrir jólin. Í henni
er að finna æviágrip kvenna sem
hófu baráttuna víða um heim og
ruddu brautina fyrir kvenfrelsis-
baráttu seinni ára. Segir frá sögu
kvenna sem stóðu í baráttunni
framan af, einkum á 19. öld og
fram yfir heimsstyrjöldina síðari.
Bókin fjallar einnig í stuttu máli
um sögu kvenréttindabaráttu í
ríkjum Evrópu, Ameríku og víðar.
-mþh
Safnað í nýjan
Breiðfirðing
BREIÐAFJ: Á síðasta ári var
tímaritið Breiðfirðingur end-
urvakið úr nokkurra ára dvala
en það kom út óslitið á árunum
1942-2009. Gefið var út eitt hefti í
fyrravor og mun það nú vera upp-
selt. Von er á nýju hefti nú á vor-
dögum. Þar verður sjónum beint
að náttúru Vesturbyggðar. Söfn-
un efnis mun nú vera komin langt
á veg. Svavar Gestsson fyrrv. al-
þingismaður og ráðherra er rit-
stjóri hins nýja Breiðfirðings en
hann er borinn og barnfæddur við
Breiðafjörð. Þeir sem vilja gerast
áskrifendur eru beðnir um að skrá
kennitölu, nafn og heimilisfang á
heimasíðu Breiðfirðingafélagsins
eða senda upplýsingarnar í tölvu-
pósti í netfangið bf@bf.is. -mþh
Aflatölur fyrir
Vesturland
2. - 8. janúar
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 6 bátar.
Heildarlöndun: 39.129 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 16.800 kg í
þremur róðrum.
Arnarstapi 5 bátar.
Heildarlöndun: 63.049 kg.
Mestur afli: Kvika SH: 25.189 kg
í þremur róðrum.
Grundarfjörður 6 bátar.
Heildarlöndun: 260.550 kg.
Mestur afli: Steinunn SF: 97.204
kg í tveimur löndunum.
Ólafsvík 16 bátar.
Heildarlöndun: 290.569 kg.
Mestur afli: Kristinn SH: 49.370
kg í fjórum löndunum.
Rif 15 bátar.
Heildarlöndun: 315.328 kg.
Mestur afli: Örvar SH: 48.961 kg
í einni löndun.
Stykkishólmur 5 bátar.
Heildarlöndun: 43.512 kg.
Mestur afli: Gullhólmi SH:
12.810 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á tímabilinu:
1. Hringur SH – GRU:
69.865 kg. 5. janúar
2. Steinunn SF – GRU:
64.775 kg. 5. janúar
3. Örvar SH – RIF:
48.961 kg. 6. janúar
4. Farsæll SH – GRU:
44.178 kg. 4. janúar
5. Tjaldur SH – RIF:
37.468 kg. 7. janúar
mþh
Styrkjum
úthlutað
STYKKISH: Stjórn Lista-
og menningarsjóðs Stykkis-
hólmsbæjar kom saman til
fundar mánudaginn 4. janúar
til að fara yfir styrkumsóknir
sem höfðu borist sjóðnum fyr-
ir áramót. Stjórnin fór yfir um-
sóknirnar og varð nokkur um-
ræða um þær í ljósi nýrra út-
hlutunarreglna sjóðsins. Til-
lögur voru lagðar fram að út-
hlutun og hefur endanleg nið-
urstaða stjórnar um úthlutan-
ir styrkja verið birt. Sjóðurinn
styrkir lista- og menningarstarf
í Stykkishólmi árlega og var út-
hlutunin að þessu sinni 1.370
þúsund krónum. Hæsti styrk-
urinn að þessu sinni var veitt-
ur vegna ljósmyndabókar St.
Franciskussystra, að upphæð
250 þúsund krónur. Aðrar út-
hlutanir voru eftirfarandi: 160
þúsund kr. hlaut Kór Stykkis-
hólmskirkju og Listvinafélag
Stykkishólmskirkju. 150 þús-
und króna styrk fengu Emblur
og Lúðrasveit Stykkishólms.
Styrk að upphæð 100 þúsund
krónur fengu Frístundabændur
í nágrenni Stykkishólms, Júlí-
ana - hátíð sögu og bóka, Ljúf-
metismarkaður, Skotthúfan -
Norska húsið og sumarsýning
í Norska húsinu. –grþ
Ungt fólk og
krabbamein
LANDIÐ: Kraftur, stuðnings-
félag fyrir ungt fólk sem greinst
hefur með krabbamein og að-
standendur, hefur hrundið af
stað átakinu #ShareYourSc-
ar. Átakið snýst um vitundar-
vakningu allra um ungt fólk
og krabbamein. Krabbamein
er ekki tabú og kemur öll-
um við. Kraftur vill vekja al-
menna athygli á krabbameini
en sér í lagi á krabbameini hjá
ungu fólki en um 70 einstak-
lingar á aldrinum 18-40 ára að
aldri greinast með krabbamein
á hverju ári. „Kraftur vonast til
að landsmenn allir taki þátt í
átakinu en fólk getur tekið þátt
með því að deila sínu öri og
tala opinskátt um sína reynslu.
Þeir sem ekki bera ör geta lagt
átakinu lið með því að fara inn
á www.kraftur.org og deila
þeim myndum sem þar eru.
Þeir sem bera ör vegna annarra
ástæðna geta líka deilt sínu öri
til að styðja við málefnið,“ seg-
ir í tilkynningu. Skessuhorn er
meðal stuðningsaðila og birt-
ir í þessari og næstu viku aug-
lýsingar vegna átaksins, sem
stendur yfir til 27. janúar nk.
–mm
Fleiri skip
og stærri
FAXAFLÓI: Á síðasta ári
komu alls 1.446 skip í hafn-
ir Faxaflóahafna. Það var 40
skipum fleira en árið 2014. Af
einstökum skipaflokkum þá
varð mest fjölgun í komum
skemmtiferðaskipa. Alls komu
108 slík í fyrra og fjölgaði þeim
um 19% frá árinu 2014. Mun
megin skýringin á þessu vera sú
að minni skemmtiferðaskip eru
farin að tíðka komur sínar til
Reykjavíkur meir en áður var.
Á vef Faxaflóahafna má skoða
nánar þróunina á skipakomum
í Faxaflóhafnir í sundurliðuð-
um töflum sem spanna árabilið
2010 til 2015.
-mþh
Sveitarstjórn Grundarfjarðar sam-
þykkti fjárhagsáætlun fyrir árið
2016 ásamt þriggja ára áætlun ár-
anna 2017-2019 á fundi í desemb-
ermánuði. Gert er ráð fyrir að
rekstur sveitarfélagsins verði já-
kvæður um 15,6 milljónir króna
á næsta ári. Þannig verði heildar-
tekjur 945,4 milljónir króna, laun
eru áætluð 462,1 milljónir króna,
önnur rekstrargjöld 336,8 milljón-
ir og afskriftir 46,9 milljónir. Fjár-
magnsgjöld eru áætluð 84 milljónir
króna. Handbært fé í árslok ársins
2016 er því áætlað 34,6 m.kr. gangi
fjárhagáætlun ársins 2016 fram eins
og ráðgert er. Í sjóðsstreymisyfir-
liti áætlunarinnar kemur fram að
veltufé frá rekstri er 115,9 milljón-
ir. „Þessi fjárhæð nýtist síðan til af-
borgana lána og nauðsynlegra fjár-
festinga sem brýnt er talið að ráðast
í á árinu 2016. Ráðgert er að fjár-
festingar nettó verði 72,2 milljón-
ir króna og afborganir lána 108,5
milljónir. Tekin verði ný lán að
fjárhæð 60 milljónir,“ segir í bókun
sveitarstjórnar. Allir fundarmenn
tóku til máls og var fjárhagsáætlun-
in og þriggja ára áætlun samþykkt
samhljóða. grþ
Fjárhagsáætlun samþykkt
samhljóða í Grundarfirði
Fjárhagsáætlun Reykhólahrepps
fyrir tímabilið 2016-2019 hefur
hlotið fullnaðarafgreiðslu í sveitar-
stjórn og var staðfest á fundi henn-
ar um miðjan síðasta mánuð. Í áætl-
uninni er gert ráð fyrir að rekst-
ur sveitarfélagsins verði jákvæð-
ur um 20 milljónir króna á næsta
ári. Heildartekjur verði þannig 458
milljónir króna. Laun eru áætluð
270 milljónir, önnur rekstrargjöld
156,2 milljónir og afskriftir 10,9
milljónir króna. Fjármagnsgjöld
eru áætluð tæp ein milljón. Hand-
bært fé í árslok ársins 2016 er áætl-
að 106 milljónir. Í sjóðstreymisyf-
irliti áætlunarinnar kemur fram að
veltufé frá rekstri er 35 milljónir. Á
næsta ári á að leggja í fjárfesting-
ar, meðal annars við lóðir íþrótta-
húss og skóla og framkvæmdir við
Barmahlíð. Ráðgert er að fjárfest-
ingar verði rúmlega 30 milljónir.
Ekki er gert ráð fyrir neinum lán-
tökum á næsta ári.
grþ
Sveitarstjórn Reykhólahrepps
samþykkti fjárhagsáætlun
Svipmynd frá Flatey, en hún er ein fjölmargra eyja sem tilheyra sveitarfélaginu.
Vöruflutningabíll með
tengivagni lenti á hliðinni
utan vegar mitt á milli Fells-
enda og Erpsstaða í Dölum
rétt fyrir klukkan eitt síðast-
liðinn miðvikudag. Sjúkra-
bíll úr Búðardal fór á slys-
stað ásamt tækjabíl slökkvi-
liðsins og lögregla kom frá
Borgarnesi ásamt tækjabíl
Slökkviliðs Borgarbyggðar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
var strax kölluð á vettvang
og flutti hún hinn slasaða á
bráðamóttökuna í Fossvogi.
Á meðan aðgerðir stóðu yfir
var umferð beint um hjáleið.
Beita þurfti klippum á öku-
tækið til að ná hinum slas-
aða út og tók aðgerðin rúm-
ar tvær klukkustundir. Erfið-
ar aðstæður voru á slysstað
þar sem veður var vont og
gekk á með öflugum vind-
hviðum. Hálkublettir voru
auk þess á slysstað. Öku-
maðurinn slasaðist töluvert
og var eftir komuna á sjúkra-
hús lagður inn á gjörgæslu-
deild en var útskrifaður það-
an daginn eftir.
En þetta var ekki eina um-
ferðaróhappið þennan dag á
svipuðum slóðum. Upp úr
klukkan níu um morguninn
var annað slys þar sem ekið
var á brúarhandrið við bæinn
Fellsenda. Bíllinn skemmdist
talsvart en ökumaður slapp
að mestu ómeiddur.
sm
Vörubíll fór útaf í Miðdölum