Skessuhorn - 13.01.2016, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 201610
Í tilkynningu frá Alþýðusambandi
Íslands kemur fram að sambandið
fagni þeirri umræðu sem skapast
hefur í framhaldi af ábendingum
ríkisskattstjóra í nýjasta tölublaði
Tíundar um það mikla samfélags-
lega tjón sem skattaundanskot og
þá ekki síst kennitöluflakk veld-
ur. Niðurstaða ríkisskattstjóra er
að það vanti 80 milljarða á ári upp
á þær skatttekjur sem umsvifin í
þjóðfélaginu gefa tilefni til.
„Alþýðusamband Íslands hef-
ur lengi gagnrýnt andvaraleysi
og ótrúlegt langlundargeð stjórn-
valda gagnvart kennitöluflakki
og þeim skaða sem slík starfsemi
veldur.“ Í úttekt ASÍ frá haust-
inu 2013 voru lagðar fram tillög-
ur í 16 liðum um aðgerðir til að
sporna við kennitöluflakki. Til-
lögunum fylgdi ítarleg úttekt á
kennitöluflakkinu í íslensku sam-
félagi og afleiðingum þess. Tillög-
urnar voru sendar ráðherrum rík-
isstjórnarinnar og boðin fram lið-
veisla ASÍ við að uppræta þenn-
an ósóma úr íslensku atvinnulífi.
„Það er skemmst frá því að segja
að engin raunverulegur áhugi hef-
ur komið fram hjá stjórnvöldum á
að taka á kennitöluflakkinu af ein-
hverri festu,“ segir í tilkynningu
ASÍ. „Það er von Alþýðusambands-
ins að umræðan nú verði til að rík-
isstjórnin og Alþingi vakni til vit-
undar um mikilvægi þess að taka
á þeirri alvarlegu meinsemd sem
kennitöluflakkið er. Enn sem fyrr
er ASÍ tilbúið til samstarfs í þeim
efnum.“
Hvað er kenni-
töluflakk?
Í sinni einföldustu mynd má lýsa
kennitöluflakki sem skipulagðri að-
gerð einstaklinga þar sem verðmæti
eru tekin út úr einu félagi (hf./ehf.)
og sett í annað félag en skuldir og
aðrar skuldbindingar skildar eftir
og félagið síðan sett í þrot. Mörg
dæmi eru um keðju slíkra gjörn-
inga vegna sama rekstursins þar
sem sömu einstaklingar eru í for-
svari. Fullyrða má að þetta athæfi
kosti íslenskt samfélag tugi millj-
arða króna á ári.
Kennitöluflakk og misnotk-
un á félögum (hf./ehf.) veldur því
gríðarlegu samfélagslegu tjóni
þar sem forsvarsmenn félaga með
takmarkaða ábyrgð beinlínis valda
skaða. Til dæmis ef starfsmenn
eiga útistandandi launakröfur á
hin gjaldþrota félög auk þess að
tapa starfi sínu og margvíslegum
réttindum. Þá eru kennitöluflakk-
arar að skaða fyrirtæki í hliðstæð-
um rekstri, og starfsmenn þeirra,
sem standa skil á sínu en búa við
skekkta samkeppnisstöðu vegna
þeirra sem hafa rangt við. Ennig
birgja sem fá ekki greidda sína
vöru og þjónustu og geta vegna
ruðningsáhrifa slíks tjóns, sjálfir
orðið gjaldþrota og einstakling-
ar sem eiga viðskipti við félagið.
Loks skaða kennitöluflakkarar
sameiginlega sjóði landsmanna
sem verða af tekjum sem skipta
a.m.k. tugum milljarða á hverju
ári.
mm
Kennitöluflakk veldur miklu
samfélagslegu tjóni
Starfslaunum listamanna fyrir árið
2016 var úthlutað á dögunum.
Frystiklefinn í Rifi fékk úthlutað að
þessu sinni úr launasjóði sviðslista-
fólks til að vinna verkefnið Ferð-
in að miðju jarðar. Fékk Frystiklef-
inn tíu mánaða styrk sem skiptist á
þá fimm sem að verkefninu munu
koma. Það eru ásamt Kára Við-
arssyni eiganda Frystiklefans þau
Árni Kristjánsson, Friðþjófur Þor-
steinsson, Vala Kristín Eiríksdótt-
ir og Víkingur Kristjánsson. Ætl-
unin er að hefjast handa við verkið
í nóvember og stefnt að jóla- eða
nýárssýningu eftir því hvernig tekst
að púsla öllum saman, en mikið er
framundan á árinu hjá Frystiklef-
anum og ekki tími til að byrja fyrr
að sögn Kára. Hann segir einnig
að sér fyndist þetta ákveðin sigur
fyrir leikhúslífið á landsbyggðinni
og sýni að Frystiklefinn sé á háum
standard. Margir hópar sæki um í
sjóðinn og einungis fáir sem fá út-
hlutað og ekki oft lítil leikhús úti á
landi. þa
Frystiklefinn fær úthlutað
úr launasjóði sviðislistafólks
Íbúasamtök Hvanneyrar sendu
í gærmorgun formlegt erindi til
sveitarstjórnar Borgarbyggðar
með ósk um samþykki fyrir stofn-
un sjálfstætt starfandi grunn-
skóla á Hvanneyri. Óskað er eft-
ir að sveitarstjórn taki erindið til
afgreiðslu á fundi sínum fimmtu-
daginn 14. janúar svo að í kjölfarið
megi senda það áfram til mennta-
málaráðuneytisins til afreiðslu.
Íbúarnir vilja leigja eða jafnvel
kaupa núverandi skólahús Grunn-
skóla Borgarfjarðar á Hvanneyri
og stofna einkaskóla um rekstur-
inn eins og heimilt er í lögum að
undangengnu samþykki viðkom-
andi sveitarstjórnar. Farið er fram
á að sveitarfélagið greiði sem nem-
ur 75% af áætluðum kostnaði per
nemanda. Íbúar á Hvanneyri og
nágrenni gera þar með ráð fyrir að
sveitarfélagið geti með þessu móti
sparað enn meira en stefnt var að
með því að skólinn verði lagð-
ur niður og börnum ekið í skóla í
Borgarnes eða á Kleppjárnsreyki. Í
hugmyndum íbúa er gert ráð fyr-
ir að á fyrsta skólaári verði fimm
yngstu bekkjardeildum kennt, en
þeim fjölgi og verði sjö frá og með
skólavetrinum 2018-2019.
Í erindinu segir: „Íbúasamtök
Hvanneyrar og nágrennis óska eft-
ir að sveitarstjórn Borgarbyggð-
ar veiti leyfi til reksturs sjálfstætt
starfandi skóla á Hvanneyri og
samþykki árlegt fjárframlag sem
svarar 75% af reiknuðu meðaltali
heildar rekstrarkostnaðar á nem-
anda skv. útreikningi Hagstofu Ís-
lands á hverju ári. Íbúar á Hvann-
eyri og nágrenni þess telja mjög
mikilvægt að starfræktur verði
skóli á svæðinu þannig að nem-
endur á Hvanneyri og nágrenni
geti sótt skóla sem næst heim-
ili sínu. Fyrir liggur að íbúar lýstu
yfir miklum stuðningi við rekstur á
sjálfstætt starfandi skóla á Hvann-
eyri í leynilegri íbúakosningu sem
fram fór 17. september 2015. Það
er trú Íbúasamtaka Hvanneyr-
ar og nágrennis að sjálfstætt starf-
andi skóli laði að sér nemendur og
fólk til svæðisins. Þannig er stofn-
un skólans um leið samfélagslegt
verkefni.“
Rekstur skólans
Hugmyndir íbúa ganga út á að
skólinn verði rekinn af íbúasam-
tökum Hvanneyrar og nágrennis,
kt. 500915-0720. „Fyrsta starfsár
skólans, 2016-2017, verður boð-
ið upp á nám í 1.-5. bekk. Vetur-
inn 2017-18 verður 1.-6. bekkur
og frá og með haustinu 2018 verð-
ur kennsla í 1.-7. bekk. Öll börn
á grunnskólaaldri í Borgarbyggð
og Skorradal hafa kost á að sækja
nám í skólanum en íbúar úr öðrum
sveitarfélögum geta einnig sótt um
skólavist að því gefnu að fyrir liggi
samþykki viðkomandi sveitarfélags
fyrir því að greitt verði framlag
með viðkomandi nemanda.“
Fjármögnun
Í 1. mgr. 43. gr. laga um grunn-
skóla nr. 91/2008 kemur fram
að ráðherra sé heimilt að við-
urkenna grunnskóla sem reknir
eru af öðrum en sveitarfélögum í
formi sjálfseignarstofnunar eða
hlutafélags eða samkvæmt viður-
kenndu rekstrarformi að því gefnu
að fyrir liggi samþykki sveitarfé-
lags um stofnun skólans og fram-
lög til hans. Í erindi íbúasamtak-
anna segir: „Grein þessi á við í til-
viki sjálfstætt starfandi grunnskóla
á Hvanneyri. Í 3. mgr. sömu laga
kemur fram að grunnskólar sem
uppfylla ákvæði 1. mgr. eiga rétt
á framlagi úr sveitarsjóði til starf-
seminnar vegna þeirra nemenda
sem eiga lögheimili í því sveitar-
félagi sem skólinn starfar í. Fram-
lagið skal nema að lágmarki 75%
af vegnu meðaltali heildar rekstr-
arkostnaðar allra grunnskóla sem
reknir eru af sveitarfélögum í land-
inu á hvern nemanda skv. árlegum
útreikningi Hagstofu Íslands. Um-
rætt framlag er 1,661 m.kr. (sept-
ember 2015). Hlutfall Borgar-
byggðar á nemenda yrði skv. áður-
töldu 1,247 m.kr.“
Bjóðast til að leigja eða
kaupa skólahúsið
Í skýrslu starfshóps Borgarbyggð-
ar um hagræðingu í fræðslumál-
um kemur fram að áætlaður kostn-
aður sveitarfélagsins árið 2015
vegna rekstrar Hvanneyrardeildar
GBF er 52,5 m.kr. (bls. 33). Fyr-
ir liggur að skólaárið 2014-2015
voru 33 nemendur við skólann,
þar af fjórir úr Skorradal. Ef gert
er ráð fyrir sama nemendafjölda
(29) frá Borgarbyggð mun framlag
Borgarbyggðar til hins nýja sjálf-
stætt starfandi skóla nema 36,130
m.kr. Þar með er árlegur sparn-
aður Borgarbyggðar 16,37 m.kr.
m.v. ofangreindar forsendur. Í út-
reikningi Íbúasamtakanna er gert
ráð fyrir að skólinn verði sjálfbær.
Skólagjöld verða innheimt sérstak-
lega en þeim verður haldið í lág-
marki (15.000 á mánuði). Skóla-
gjöldum er ætlað að fjármagna
skólann að hluta á móti fram-
lögum frá Borgarbyggð, Skorra-
dal, öðrum sveitarfélögum og frá
velunnurum Hvanneyrar og ná-
grennis. Hvað húsnæðismál varð-
ar er hinn sjálfstætt starfandi skóli
reiðubúinn til þess að leigja núver-
andi húsnæði skólans að Túngötu
m.v. þá innri leigu sem reiknuð er
á skólahúsnæðið mánaðarlega. Sá
möguleiki er einnig fyrir hendi að
hinn sjálfstætt starfandi skóli kaupi
húsnæðið.“
Stefna skólans
Í erindi íbúasamtakanna segir um
stefnu hins nýja skóla: „Þegar sam-
þykki hefur fengist fyrir rekstri
skólans er gert ráð fyrir að full-
trúar víða úr samfélaginu komi að
gerð stefnu og markmiðasetning-
ar skólans. Stofnaður hefur verið
starfshópur sem mun leiða þessa
vinnu og er hann skipaður fulltrú-
um frá Íbúasamtökunum, starfs-
fólki Hvanneyrardeildar GBF og
Landbúnaðarháskóla Íslands. Til
þess að tryggja að hlustað verði á
sjónarmið allra væri vel við hæfi að
Borgarbyggð og Skorradalshrepp-
ur ættu fulltrúa í þessum hópi.
Skólinn leggur áherslu á samvinnu
nemenda, kennara og samfélags-
ins alls. Áhersla verður á nátt-
úru- og umhverfismennt með úti-
námi og hreyfingu sem samþætt-
ist inn í allar námsgreinar. Stefnt
er að því að vinna áfram og dýpra
með leiðtogafærni í gegnum verk-
efnið ,,Leiðtoginn í mér“. Teym-
isvinna verður meðal nemenda og
kennara þar sem nemendur vinna í
blönduðum aldurshópum og lögð
er áhersla á einstaklingsmiðað
nám. Nemendur fá tækifæri til að
nýta styrkleika sína sem er mikil-
vægur þáttur í að byggja upp já-
kvæða sjálfsmynd og -virðingu.
Áhugasviðum nemenda verða gef-
in rými í skólastarfinu þar sem
þeim gefst tækifæri til að vinna
út frá hæfileikum sínum og verða
besta útgáfan af sjálfum sér. Hald-
ið verður í heiðri og unnið áfram
með þá þætti sem einkennt hafa
grunnskólastarf á Hvanneyri fram
að þessu með grænfánaverkefn-
inu og heilsueflandi grunnskóla.
Áhersla verður lögð á virkt sam-
starf við grenndarsamfélagið með
samstarfi við Landbúnaðarhá-
skóla Íslands, leikskólann Anda-
bæ og aðrar stofnanir og fyrir-
tæki í samfélaginu. Grunnþætt-
ir menntunar fléttast inn í skóla-
starfið sem verður ekki bundið
innan veggja skólans heldur verð-
ur náttúrulegt umhverfi hans nýtt
til hins ýtrasta. Nálægð við nátt-
úruna og vinna úti í snertingu
við hana kveikir áhuga, forvitni
og skerpir athyglina á umhverf-
inu. Þetta eru atriði sem skipta
máli í öllu námi og hafa gagnvirk
áhrif hvert á annað. Unnið verð-
ur með læsi í víðum skilningi þar
sem læsi á umhverfi skipar stóran
sess ásamt tæknilæsi með forrit-
unarkennslu, lestri og lesskilningi.
Sérstaða í kringum skólann er öfl-
ugt samfélag sem hefur sýnt sam-
stöðu um skólahald á Hvanneyri
frá því að Andakílsskóli var stofn-
aður árið 1974. Skólinn er stað-
settur í háskólasamfélagi þar sem
Landbúnaðarháskóli Íslands hef-
ur stutt vel við bakið á núverandi
skóla og hefur lýst vilja sínum um
að gera slíkt hið sama við sjálfstætt
starfandi skóla. Umhverfið býð-
ur upp á fjölbreytta möguleika til
náttúrufræði kennslu og útinám
þar sem göngufæri er í flott úti-
námssvæði.“ mm
Íbúasamtökin vilja
stofna sjálfstæðan
grunnskóla á Hvanneyri