Skessuhorn - 13.01.2016, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2016 11
Iðnfyrirtækin Þorgeir & Ellert og
Skaginn á Akranesi hafa stækkað við
sig í húsakosti með því að byggja tvö
ný hús, samtals um fjögur þúsund
fermetra, á athafnasvæði fyrirtækj-
anna við Krókalón á Akranesi. „Við
byggjum til þess að geta átt þess kost
að auka starfsemi okkar hér á Akra-
nesi. Við ætlum að nota annað hús-
ið til framleiðslu okkar á sjálfvirk-
um plötufrystum fyrir matvælaiðnað.
Hún hefur gengið afar vel en mjög
þröngt var orðið um hana þar sem
hún hefur átt sér stað fram til þessa
í gamla skipasmíðahúsi Þorgeirs &
Ellerts,“ segir Ingólfur Árnason,
framkvæmdastjóri Þorgeirs & Ellerts
og Skagans, í samtali við Skessuhorn.
Horfir til álvinnslu
á Akranesi
Ingólfur segir hálf sorglegt að vita til
þess að á Grundartanga sé mjög mik-
ið af áli sem íslenskur iðnaður fái ekki
nýtt sem skyldi. „Ísland er eitt stærsta
álframleiðsluland í heimi. Samt auðn-
ast okkur Íslendingum ekki að byggja
upp einn einasta iðnað hér á landi í
tengslum við alla þessa hrávöru sem
við erum þó að búa til í formi alls
þessa áls.“
Nú þegar nýbyggingarnar eru risn-
ar mun framleiðsla plötufrystanna
flytjast yfir í aðra þeirra. Ingólfur sér
þó fyrir sér að allir fjögur þúsund fer-
metrarnir verði í framtíðinni helgaðir
þessari starfsemi. „Við keyptum fram-
leiðsluréttinn á þessum plötufrystum
hingað frá Ítalíu fyrir nokkrum árum.
Þeir hafa síðan þá verið framleidd-
ir hér á Akranesi. Við erum þó enn
að kaupa ótrúlega mikið af íhlutum
í þessi tæki frá Ítalíu. Við viljum að
flytja eins mikið af þessari framleiðslu
til okkar og kostur er. Meðal annars
erum við að flytja ál sem hugsanlega
kemur frá Grundartanga hingað til
okkar svo skiptir hundruðum tonna á
hverju ári með bílum og skipum upp-
haflega frá Ítalíu, um Lúxemborg og
hingað á Akranes.“
Stefna á söluaukningu
á plötufrystum
Hérna segist Ingólfur sjá tæki-
færi sem hann útskýrir frekar. „Ál-
vinnslan fer í fyrsta lagi fram á Ít-
alíu og síðan er álið áfram unnið í
Lúxemborg. Á Ítalíu fer fram sér-
stök þrýstisteyping á álinu í gegn-
um ákveðin mót. Í Lúxemborg er
síðan beitt sérstakri suðutækni til
að sjóða einingarnar saman í plötur.
Það er gert með ákveðinni tækni.
Hér á Akranesi tökum við þessar
plötur svo og fræsum og vinnum
frekar, þrýstiprófum og notum svo
í plötufrystana.“
Hluti af framtíðarsýninni í
tengslum við nýbygginguna við
Krókalón er að Skaginn hefur hug á
að fara út í þessa áframvinnslu á áli
sem nú er framkvæmd á Ítalíu og í
Lúxemborg. „Hugur okkar stendur
til þessa. Við höfum þó enga fjárhags-
lega burði til þess nema yfir langan
tíma. Fyrsta skrefið í þá átt er að út-
búa aðstöðu til að eiga þess kost að
geta gert þetta og það erum við að
gera núna með þessari nýju bygg-
ingu. Þarna verður pláss,“ segir Ing-
ólfur Árnason. „Við þurfum að gera
þetta á tvennan hátt. Framtíðarsýn-
in er að taka þessa starfsemi, sem er
öll framleiðslan í kringum plötufryst-
ana, í sem mestum mæli hingað heim
til Íslands. Til þess að geta gert það
þá þurfum við líka að auka söluna þó
við séum mjög ánægð með það sem
við höfum náð í þeim efnum fram til
þessa. Það hefur þó fyrst og fremst
verið í einum anga matvælaiðnað-
ar, sem er í landvinnslu á uppsjávar-
fiski. Næstu skref eru að fara um borð
í frystiskipin og síðan áfram í alla aðra
matvælavinnslu.“
Mikil margfeldisáhrif
Ingólfur segist sjá geysimikla mögu-
leika í framleiðslu á plötufrystum fyr-
ir matvælaiðnaðinn um heim allan.
„Við erum bara rétt að byrja að klóra
í markaðstækifærin á þessu sviði. Ef
við gætum tekið meira af öllu fram-
leiðsluferlinu til okkar þá gætum við
búið þessa frysta til með hagkvæm-
ari hætti sem aftur leiddi af sér að
við gætum selt meira og þannig orð-
ið sterkari framleiðsluaðili á heims-
vísu. Ef við aukum svo söluna með
því að samþætta eigin tæknivinnu og
hagkvæmni þá er það nokkuð sem
gerir þetta allt fýsilegt. Það er líka
annað sem er mikilvægt við þessi
tæki, plötufrystarnir einir og sér eru
kannski tíu til fimmtán prósent af
okkar framleiðslu en þeim fylgir ann-
ar búnaður og lausnir sem við smíð-
um. Frystarnir eru kjarnavaran. Að
mínu mati eru við með bestu fryst-
ana í dag en við ráðum líka við allar
lausnir í kringum þá, svo sem fram-
leiðslulínur, mötunarkerfi og allt þess
háttar. Frystarnir hafa margföldunar-
áhrif og ekki aðeins hér hjá Þorgeir &
Ellert og Skaganum á Akranesi þeg-
ar við fáum stóra samninga í kringum
þá, heldur líka hjá öðrum fyrirtækj-
um hér á Akranesi, Ísafirði og Akur-
eyri. Það er til mjög mikils að vinna í
að auka framleiðsluna á frystunum,“
segir Ingólfur að endingu. mþh
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Mannbroddar
-öryggisins vegna
Smur- og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
Vélabær ehf. bíla- og búvélaverkstæði
Borgarbyggð óskar eftir starfsmanni
Reynsla af viðgerðum á bílum, dráttar-
vélum og vélum tengdum landbúnaði er
skilyrði
Þarf að geta hafið störf sem fyrst
Starfsmaður á verkstæði
Upplýsingar í síma 435-1252 og
velabaer@vesturland.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Laust starf hjá Akraneskaupstað
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Eftirfarandi starf eru laust til umsóknar:
Starf á Sambýlinu við Laugarbraut•
Sótt er um rafrænt á heimasíðu
Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði
Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Þorgeir & Ellert hf. byggja
fjögur þúsund fermetra
Nýbyggingarnar er alls fjögur þúsund fermetrar sem skiptast í tvö jafnstór rými. Hér er Ingólfur í rýminu þar sem framleiðslan
á plötufrystunum á að fara fram. Við hlið hans eru plötur úr áli sem eiga að fara í nýja frysta.
Ingólfur Árnason við nýbyggingar Þorgeirs & Ellerts hf. sem búið er að reisa á
athafnasvæði fyrirtækisins við Krókalón. Nýju húsin eru við norðurhlið gamla
skipasmíðahússins.