Skessuhorn - 13.01.2016, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 201612
standi til. „Við ætlum að bæta við
úrvalið og vera með flatbökur og
kjötsamlokur og hafa opið til níu
á kvöldin. Hér eru öflugir ofnar
og allt til alls. Bakaríið er vel búið
tækjum þannig að við eigum ágæta
möguleika á því að gera meira en
verið hefur og auka fjölbreytnina,“
segir hún.
Stöðugur straumur
ferðamanna
Þegar Skessuhorn hitti hina nýju eig-
endur Nesbrauðs að máli voru þeir
nýkomnir af fundi í ráðhúsi Stykk-
ishólms. Sá fundur var haldinn með
ferðaþjónustuaðilum í Stykkishólmi
að frumkvæði Svæðisgarðsins Snæ-
fellsness. Tilgangurinn var að ræða
leiðir til að auka þjónustu við ferða-
menn í Hólminum um vetrartím-
ann með því að hafa fleiri þjónustu-
fyrirtæki opin, ekki síst veitingastaði.
„Hólmarar hafa brennt sig á því
að hafa ekki meira opið á veturna.
Straumurinn af ferðafólki hingað er
orðinn það mikill að það er ekkert
sjálgefið lengur að þau séu hér bara
á sumrin. Ég hugsa að helmingur
þeirra sem versla við okkur núna hér
í bakaríinu í ársbyrjun séu erlend-
ir ferðamenn. Bara síðast í gær tal-
aði ég við erlenda konu sem spurði
mig hvort ég vissi hvenær það færi
að snjóa næst. Hana langaði svo til
að upplifa snjókomu á Íslandi,“ seg-
ir Helgi.
Þau greina frá því að það sé búin
að vera mikil umferð af ferðamönn-
um í Stykkishólmi það sem af er
vetri. „Við ætlum að hafa opið alla
daga í vetur nema á sunnudögum.
Það var opið hér á sunnudögum til 1.
nóvember. Kannski munum við líka
hafa vertraropnun þá daga hjá okk-
ur. Við ætlum að sjá til. En á sumr-
in og haustin verður opið alla daga
vikunnar. Það er greinilegur hugur í
ferðaþjónustuaðilinum, svo sem veit-
ingageiranum, að hafa opið allan árs-
ins hring hér í Stykkishólmi.“
Fjárbændur í
frístundum
Í máli Eiríks kemur fram að hann
titlar sjálfan sig sem útvegbónda.
Hann fæst til að útskýra það nán-
ar. „Ég er trillukarl en svo stundum
við líka lítilsháttar fjárbúskap. Við
erum núna með 39 ær á vetrarfóðr-
um en vorum mest með 140. Við
höfum haft þær á Berserkseyri sem
við höfum haft á leigu en erum að
koma með þær hingað á frístunda-
svæðið svokallaða hér í Stykkis-
hólmi. Þar eigum við fjárhús,“ segir
hann. Í Stykkishólmi er nokkuð al-
gengt að fólk eigi fé. Helgi segir að
í Stykkishólmsbæ séu nú 38 aðilar
skráðir með búsnúmer sem segir að
þetta fólk haldi skepnur. „Ég ætla
svo að róa áfram á trillunni á hand-
færum á sumrin,“ bætir hann við.
„Þetta eru 43 tonn af þorski sem ég
hef. Ég fór eitt árið á strandveið-
ar en konan bannaði mér að halda
áfram á þeim þegar ég var búinn
að keyra einn daginn 120 mílur út
um allan sjó í leit að fiski með til-
heyrandi olíukostnaði. Hún sagði
að svona menn ættu ekki að vera á
strandveiðum og þar með lauk því
ævintýri,“ hlær Helgi Eiríksson og
lítur kankvís á Unni eiginkonu sína.
Hún brosir við, botnar spjallið og
beinir því aftur að Nesbrauði. „Við
höldum ótrauð áfram hér í bak-
aríinu og stefnun á að gera hlutina
vel. Það er besta auglýsingin.“
mþh
Fyrir liggur að gjaldskrár hækkuðu
um áramótin hjá ýmsum sveitarfé-
lögum í landshlutanum. Akranes-
kaupstaður hækkaði þjónustugjald-
skrár um 3,2%, samkvæmt áætl-
aðri vísitöluhækkun neysluverðs. Þá
hækkaði sorphreinsunargjald vegna
íbúðarhúsnæðis og sorpeyðingar-
gjald um 1,5%. Álagt útsvar vegna
launa ársins 2016 verður hámarks-
útsvar, þ.e. 14,48% af útsvarsstofni.
Þá hækkaði Borgarbyggð gjaldskrár
einnig um 3,2% um áramót. Und-
antekning frá því eru þær gjaldskrár
sem eru bundnar vísitölum, til dæm-
is gjaldskrá framkvæmdaleyfis- og
þjónustugjalda skipulagsfulltrúa en
þær breytast í takt við breytingu á
byggingavísitölu.
Afsláttur lækkar í
Hvalfjarðarsveit
Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarð-
arsveitar í desembermánuði sl. var
samþykkt að hækka gjaldskrár félags-
heimila um 25%. Aðrar gjaldskrár
hækka samkvæmt vísitölu. Þá verð-
ur afsláttur á fæðisgjöldum í leik- og
grunnskóla Hvalfjarðarsveitar lækk-
aður 1. mars nk. og verður 25% í
stað 50% áður. Í Dalabyggð hækk-
uðu gjaldskrár Auðarskóla, gjald-
skrá fyrir lengda viðveru og gjald-
skrá Slökkviliðs Dalabyggðar um
2%, eða sem nemur hækkun neyslu-
verðsvísitölu milli 2014 og 2015. Þá
hækkuðu niðurgreiðslur daggjalda
vegna dagvistunar á einkaheimil-
um einnig um 2%. Sorphirðugjald
og sorpeyðingargjald hækkar um
14,2% og er þá Dalabyggð nálægt
meðaltali sveitarfélaga með 300 til
1000 íbúa. Gjaldskrá fyrir móttöku
úrgangs á endurvinnslustöð hækk-
ar um 2%. Gjaldskrá fyrir Silfurtún
hækkar um 4% og bætt er við gjaldi
fyrir hádegismat fyrir eldri borgara
og öryrkja. Þá hækka stofngjöld frá-
veitu og rotþróargjöld um 2%. Aðr-
ar gjaldskrár í Dalabyggð haldast
óbreyttar.
Lítið um breytingar í
Grundarfirði
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar
þurfti að styrkja tekjustofna sveit-
arfélagsins árið 2015 með hækk-
un á gjaldskrám til að standa undir
kostnaði við reksturinn. Samkvæmt
fjárhagsáætlun ársins 2016 eru allir
stuðlar óbreyttir en gjaldskrár hækka
að jafnaði í samræmi við verðlagsspá
eða um 3%. Útsvarshlutfallið lækk-
aði árið 2015 úr 14,52% í 14,37%
og stendur sú lækkun fyrir þetta ár.
Í Reykhólahreppi hækka all-
ar gjaldskrár sveitarfélagsins sem
nemur neysluverðsvísitölu eða
byggingavísitölu, eftir því sem við
á. Sveitarfélagið tekur hámarks-
útsvar og er engin breyting þar á
milli ára.
Í Grundarfirði var lítið um breyt-
ingar. Hámarksútsvar er innheimt
líkt og verið hefur, leikskólagjöld
hækka ekki en fæðisgjald hækk-
ar um verðlag. Sorphirðugjöld eru
óbreytt, sem og gjaldskrár sund-
laugar og tjaldsvæðis. Aðrar gjald-
skrár voru lagfærðar sem nemur
verðlagsbreytingum.
Leikskólagjöld
hækka í Snæfellsbæ
Einhverjar breytingar urðu á gjald-
skrám Snæfellsbæjar um áramótin.
Álagsprósenta fasteignagjalda hélst
óbreytt en afsláttum á fasteigna-
skatti hjá elli- og örorkulífeyris-
þegum var breytt þannig að við-
miðunarmörk voru hækkuð. Sorp-
hirðu- og sorpeyðingargjöld voru
hækkuð um tæplega 3,5% milli ára
og grunngjald fyrir hverja dval-
arstund á leikskóla hækkaði um
2,8%. Þá hækkaði grunngjald fyr-
ir hverja dvalarstund í heilsdags-
skóla um tæp 3% og stakar ferð-
ir fyrir fullorðna voru hækkaðar í
sundlaugum bæjarins, en á móti
hækkaði afsláttur á kortum. Í Snæ-
fellsbæ voru gjaldskrár byggingar-
leyfis- og gatnagerðargjalda einnig
teknar til endurskoðunar um ára-
mótin. Byggingaleyfisgjaldskráin
var samræmd við gjaldskrár ann-
arra sveitarfélaga og voru þar ein-
staka liðir lækkaðir á meðan aðrir
voru hækkaðir. Eina breytingin á
gjaldskrá gatnagerðargjalda var til
lækkunar. grþ
Gjaldskrárhækkanir víðast hvar
Akraneskaupstaður hækkaði þjónustu-
gjaldskrár um 3,2% um áramótin.
Mánudaginn 4. janúar tóku nýir
eigendur við eignarhaldi og rekstri
brauðgerðarhússins Nesbrauðs í
Stykkishólmi. Það eru hjónin Ei-
ríkur Helgason og Unnur María
Rafnsdóttir ásamt Helga syni þeirra.
Helgi á að baki margra ára reynslu
sem matsveinn á sjó og á hótelum í
Stykkishólmi og Grundarfirði. „Við
ákváðum að skella okkur í þetta öll
fjölskyldan. Helgi sonur okkar var
búinn að vera kokkur í ein átta ár á
Sóley SH í Grundarfirði þar til skip-
inu var lagt í hitteðfyrra og það síðan
sett á sölu. Þá fór hann að vinna sem
kokkur á Hótel Framnesi í Grundar-
firði en bjó hér í Stykkishólmi. Hon-
um þótti þetta helst til langt að fara á
milli. Sjálf höfðum við verið að spá í
að setja upp veitingastað hér í Stykk-
ishólmi sem Helgi gæti þá starfað við
og vorum að líta í kringum okkur. Á
endanum keyptum við bakaríið sem
hafið verið til sölu um tíma,“ seg-
ir Eiríkur Helgason útvegsbóndi og
faðir Helga. Hann bætir því við að
dóttir þeirra, sem er lyfjafræðingur,
muni einnig hjálpa til við rekstur-
inn. Þetta verður því sannkallað fjöl-
skyldufyrirtæki.
Helgar og Eiríkar mann
fram af manni
Rekstur bakaría á sér mjög langa
hefð í Stykkishólmi en fyrsta bak-
aríið var stofnað þar fyrir 112 árum,
árið 1904. „Við erum öðrum þræði
að endurvekja bakarann Helga Ei-
ríksson hér í Stykkishólmi. Langa-
langafi Helga sonar okkar sem bakar
hér starfaði sem bakari hér í Stykk-
ishólmi frá 1920 til 1922. Hann hét
líka Helgi Eiríksson og fór héðan til
Reykjavíkur þar sem hann stofnaði
bakarí. Þá voru bakarar látnir merkja
brauðin sín með ákveðnum stimli
með upphafsstöfum þeirra. Þann-
ig var rekjanleikinn tryggður í þann
tíð. Þeir hafa skipst á að heita Helgi
Eiríksson og Eiríkur Helgason sitt á
hvað karlarnir í þessari ætt í marga
ættliði,“ segir Unnur María og lítur
kankvís á Eirík Helgason eiginmann
sinn.
Í sama mund kemur Helgi Eiríks-
son, núverandi bakari, sonur þeirra
og sest hjá okkur. „Ég hefði ekki hætt
á sjónum nema vegna þess að okkur
var öllum sagt upp á Sóleynni. Það
var gott pláss og manni leið vel. Við
vorum á fisktrolli, rækju og síðast á
makríl. En nú er ég kominn í land og
byrja að baka klukkan fimm á morgn-
ana. Við opnum svo bakaríið klukk-
an hálf átta og bökum eingöngu fyrir
það og svo smávegis fyrir hótelin hér
í bænum,“ segir hann.
Hafa uppi ýmis plön
Nú þegar fjölskyldan hefur tekið við
bakaríinu þá hefur hún ýmsar áætl-
anir á prjónunum varðandi rekstur
þess. „Við erum búin að lækka verð-
in hér í bakaríinu til að sjá hvort við-
skiptin við Hólmara glæðist ekki,“
segir Eiríkur og horfir ánægður yfir
afgreiðslusalinn sem er nánast full-
setinn einmitt af Hólmurum um há-
degisbil á föstudaginn í síðustu viku
áður en hann bætir við: „Svo horf-
um við auðvitað til þessarar stöð-
ugu aukningar á fjölda ferðamanna
í Stykkishólmi. Við höfum sótt um
leyfi til að stækka húsnæði bakarís-
ins og bæjaryfirvöld hafa samþykkt
hana. Hún felst í því að reisa 50 fer-
metra sólskála hér við enda húss-
ins. Það veitir ekki af. Fyrri eigend-
ur sem við keyptum af sögðu okk-
ur að þau hefur orðið að vísa við-
skiptavinum, sem vildu setjast niður
og fá sér kaffi og með því, frá hérna
vegna plássleysis þegar ferðamanna-
straumurinn stæði sem hæst.“ Fram-
kvæmdir hefjast á næstu dögum og
þessi sólskáli á að standa fullbúinn
fyrir vorið og sumarið.
Unnur bætir því við að meira
Taka glaðbeitt við eignarhaldi og rekstri Nesbrauðs í Stykkishólmi
Bakaríið er vel búið ofnum og öðrum tækjum sem býður upp á ýmsa sóknarmöguleika og tækifæri. Helgi Eiríksson ásamt
foreldrum sínum þeim Unni Maríu Rafnsdóttur og Eiríki Helgasyni.
Húsið sem Nesbrauð er í við Nesveg 1 blasir við þegar ekið er inn í Stykkis-
hólmsbæ. Það var reist sérstaklega sem bakarí árið 1984.
Mynd af forföðurnum Helga Eiríkssyni sem var bakari í Stykkishólmi fyrir nær 100
árum, trónir í ramma í bakaríinu. Í þá daga voru bakararnir með harðkúluhatt,
stífan flibba og í sjakketi.