Skessuhorn - 13.01.2016, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2016 13
Körfuknattleiksfélag Akraness
Íþróttahúsið við Vesturgötu
1. deild
Fimmtudaginn 14. janúar kl. 19.15
ÍA – Reynir Sandgerði
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
Stykkishólmsbær
Auglýsing um nýtt deiliskipulag
Borgarbraut 8-8a – Hótel Stykkishólmur
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hefur samþykkt á
fundi 10. desember 2015 að auglýsa deiliskipulags-
tillögu samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meginmarkmið deiliskipulags tillögunnar er að
stuðla að markvissri uppbyggingu hótelstarfseminnar,
ákvarða hvar og hvernig má byggja á lóðinni, ákveða
hámarks byggingarmagn á lóð og hámarkshæð bygg-
ingar yfir gólfplötu 1. hæðar. Sjá nánari upplýsingar í
deiliskipulagstillögu.
Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á vef
Stykkishólmsbæjar, www.stykkisholmur.is, og á skrif-
stofu skipulags- og byggingarfulltrúa, Hafnargötu 3
á skrifstofutíma milli 10-15, frá 13. janúar 2016 til
24. febrúar 2016 og eru þeir sem telja sig eiga hags-
muna að gæta, hvattir til að kynna sér breytinguna
og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri,
skriflega til skipulags- og byggingarfulltrúa
Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi,
í síðasta lagi 24. febrúar 2016.
Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmur - Sími: 433-8100
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Sigurbjartur Loftsson, Skipulags- og
byggingarfulltrúinn í Stykkishólmi
Breyting á deiliskipulagi hafnar-,
iðnaðar- og athafnasvæði á
Grundartanga, austursvæði
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti þann 24. nóvember
2015 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi hafnar-,
iðnaðar- og athafnasvæði á Grundartanga, austursvæði frá
2105 samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felur í sér að suðvestur hlið afmörkunar skipu-
lagssvæðisins er hliðrað um 20 m til suðvesturs.
Skilgreindar eru flæðigryfjur fyrir kerbrot og annan úr-
gang á athafnarsvæði hafnar og skilgreindur er skjólgarður
með viðlegu ásamt þjónustuvegi suðaustan hafnsækinnar
iðnaðarstarfsemi.
Tillaga liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að
Innrimel 3. Tillöguna má einni sjá á heimasíðu sveitar-
félagsins, www.hvalfjardarsveit.is frá 11. janúar til og með
29. febrúar 2016.
Athugasemdir við tillögu breytingar deiliskipulags skulu
vera skriflegar og berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi
29. febrúar 2016 á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3,
301 Akranes eða á netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Hvalfjarðarsveitar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Línubáturinn Gullhólmi SH 201 var
afhentur síðastliðið haust sem ný-
smíði frá bátasmiðjunni Seiglu til út-
gerðarinnar agustson ehf. í Stykk-
ishólmi. Báturinn hefur nú stund-
að veiðar um ríflega þriggja mán-
aða skeið. Fyrst var hann á veiðum
undan Norðurlandi en í desember
var skipt yfir á veiðislóðirnar Vest-
anlands út af Snæfellsnesi. Báturinn
er í flokki smábáta og stundar veiðar
með beitningarvél. „Þetta er snilld.
Ég er mjög ánægður með bátinn sem
er miklu líkari stærri bát heldur en
trillu. Allar hreyfingar í honum eru
þannig og hann veltur ekki neitt. Við
erum nú búnir að nota hann við ýms-
ar aðstæður í þrjá mánuði og gengið
mjög vel. Það hefur ekki verið neitt
vesen og allur búnaður virkað frá
upphafi eins og til stóð. Þetta er allt
mjög vel gert frá hendi þeirra sem
smíðuðu bátinn og settu í hann bún-
aðinn,“ segir Pétur Erlingsson skip-
stjóri.
Ótrúlegur bátur
á allan hátt
Þegar við hittum Pétur að máli í
Stykkishólmi var hann ásamt fjög-
urra manna áhöfn sinni að gera klárt
í róður. „Nýi Gullhólmi er bara alveg
ótrúlegur bátur á allan hátt. Maður
hefði kannski átt að halda annað eða
vera með fordóma út af byggingar-
laginu en hann er búinn að sanna
sig. Hann er líka svo hár og stefn-
ið þannig formað að maður losn-
ar við alla ágjöf og pus upp á rúður
þegar siglt er á móti öldunni. Héð-
an úr brúnni er flott útsýni til allra
átta. Öll aðstaða er góð,“ segir þessi
reyndi sjómaður þar sem hann situr í
brúnni sem er afar vel búin tækjum.
Gullhólmi er með allsherjar beitn-
ingarvélarbúnað frá norska fyrirtæk-
inu Mustad. Fullkominn búnaður
til aðgerðar, kælingar og frágangs á
afla er frá 3X Technology. Allur afli
er slægður um borð í Gullhólma og
fiskurinn ísaður í kör. Báturinn rúm-
ar alls 22 tonna afla í 42 plastkörum.
„Við erum yfirleitt úti að veiðum
í þrjá daga og löndum svo á fjórða
degi. Við leggjum alla línuna yfirleitt
tvisvar sinnum í hverri veiðiferð,“
segir Pétur.
Tvær áhafnir
Aðbúnaður fyrir áhöfn er afar góð-
ur fyrir ekki stærri bát. Nýlunda er
að tvær áhafnir eru á bátunum sem
skiptast á að vera með hann tvær vik-
ur í senn. Fimm manns skipa áhöfn-
ina hverju sinni og til sendur að gera
Gullhólma út linnulítið allt árið um
kring. „Það er hálfs mánaðar törn
og svo hálfur mánuður í fríi. Það er
rosalega flott. Við skiptum um áhöfn
annan hvern fimmtudag og þá tekur
við 14 daga vist um borð. Svo eru 14
dagar heima. Þannig á það að vera
allan ársins hring. Þetta er mikill
plús, ekki síst fyrir fjölskyldumenn.
Það er hægt að skipuleggja sig langt
fram í tímann. Menn vita upp á hár
hvenær þeir verða heima. Þeir geta
svo farið lausaróðra á frítímanum ef
þeir vilja og það vantar afleysingu.
En þetta er að koma mjög vel út fyr-
ir okkur. Ég held að svona skiptikerfi
hljóti að vera framtíðin,“ segir Pét-
ur. Hann er þannig annar af tveim-
ur skipstjórum á Gullhólma. Kollegi
hans á móti honum í skipstjórastöð-
unni er Sigurður Arnar Þórarinsson
sem býr í Stykkishólmi.
Pétur bætir við að þó geti ver-
ið strembið að stunda róðrana, sér-
staklega þegar veður eru góð og lítið
um stopp. „Það eru allir niðri á dekki
þegar línan er dregin. Enginn í koju,
allir uppi þegar verið er að leggja og
draga. Það er bara dregið þar til við
erum búnir. Þetta getur verið dálítið
erfitt ef það er blíða dag eftir dag og
við getum róið stanslaust. Við höfum
verið að hugsa um að hafa sex í hverri
áhöfn þannig að við gætum þá skipst
á að hvíla okkur þannig að það væri
alltaf einn í koju á hverjum tíma. Það
munar ekki svo mjög í tekjum talið.
En við sjáum hvernig þetta verður.
Við erum mjög sáttir með þetta allt
saman.“
Fjörutíu ár á sjó
Pétur talar af reynslu þegar hann tjá-
ir sig um sjómennskuna. Þó hann sé
ekki mjög gamall maður þá er hann
er búinn að vera á sjó síðan 1976 eða
í eina fjóra áratugi. Á þeim tíma hef-
ur Pétur prófað öll veiðarfæri sem
dýft er í sjó við Ísland. „Ég kem upp-
haflega úr Vestmannaeyjum, bjó svo
á Sauðárkróki í níu ár og var þar á
togurum og trillum. Síðan er ég bú-
inn að eiga heima í 20 ár í Grundar-
firði. Þar var ég í 13 ár á Sóley SH og
átti trillu með. Ég kom með henni til
Grundarfjarðar frá Hornafirði þegar
hún var keypt þaðan og hætti á henni
þegar henni var lagt í hitteðfyrra.
Mér bauðst svo að taka við nýja Gull-
hólmanum þegar hann var að koma
nýr í fyrra. Þá var ég á togaranum
Bylgju frá Vestmannaeyjum.“
Aðspurður segir Pétur að sér lít-
ist vel á ástand þorskstofnsins nú um
stundir. „Nú erum við að bíða eft-
ir því að göngufiskurinn komi inn í
Breiðafjörðinn. Við höfum ekki séð
mikið af honum enn en hann kem-
ur. En það vantar meiri ýsukvóta á
móti þorskinum. Ýsukvótinn nú er
alltof lítill miðað við það sem hægt
væri að fá af henni. Við reynum bara
að forðast hana eins og við mögulega
getum. Við erum enn með nægan
kvóta á henni þannig að við höfum
ekki þurft að leigja til okkar heimild-
ir. En við erum samt hálfnaðir með
ýsukvótann okkar bara nú á fyrstu
þremur mánuðum fiskveiðiársins.“
Öllum þorskafla Gullhólma er
landað til vinnslu hjá agustson í
Stykkishólmi. „Hitt fer á markað
og við höfum verið að fá ágæt verð.
Þegar við vorum fyrir norðan fyr-
ir jól fengum við ein fimmtán tonn
af grálúðu sem meðafla. Við vorum
ekkert að sækja í hana sérstaklega
en hún kom með. Það var fín búbót
enda grálúðan verðmæt,“ sagði þessi
reyndi sjómaður að lokum.
mþh
Pétur Erlingsson skipstjóri:
Himinlifandi með nýjan Gullhólma SH
Pétur Erlingsson skipstjóri á Gullhólma
SH.
Gullhólmi við bryggju í Stykkishólmi.
Farið yfir málin áður en haldið er í róður. Pétur skipstóri ásamt Sigfúsi Magnússyni
veiðieftirlitsmanni hjá Fiskistofu í Stykkishólmi sem fór út með Gullhólma í róður sem
stóð yfir um síðustu helgi.
Línan sem allt byggir á hangir á rekkum sínum. Alls getur Gullhólmi veitt á 24.900
króka.