Skessuhorn - 13.01.2016, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 201614
of nærri auðlindinni. „Hér áður
fyrr var reglan sú að veidd voru ár-
lega tíu prósent af því sem áætl-
að var að væri á svæðunum. Haf-
rannsóknastofnun hefur kortlagt
stofninn á hverju svæði með því að
mynda hafsbotninn, telja skeljarn-
ar til að finna þéttleika og reikna
þannig út mat á því hve mikið er
á hverju svæði. Þær tölur eru svo
notaðar til grundvallar. Í þessu
verkefni sem við erum í núna eru
veidd frá sex og upp í tólf prósent
á svæðunum. Eftir nokkur ár ætt-
um við að geta séð hvort við þurf-
um að hafa veiðiregluna almennt
sex prósent eða hvort óhætt sé að
hafa hana hærri, svo sem 12 pró-
sent eða kannski meira.“
Góður markaður
fyrir hendi
Sigurður segir að þó tilraunaveið-
arnar hafi skilað ýmsum jákvæð-
um upplýsingum þá telji hann að
ekki verði ekki gefið grænt ljós á
atvinnuveiðar í öllum Breiðafirði á
einu og sama árinu. „Þetta er ekki á
mínu valdi en ég hugsa þetta muni
frekar gerast í ákveðnum skrefum.
Skelsvæðin eru misjafnlega sterk.
Sum er mjög góð í dag og hafa lít-
ið látið á sjá þrátt fyrir sýkinguna
sem kom upp á sínum tíma. Það er
ekkert óeðlilegt ef það yrðu gefin
leyfi til að veiða á þeim svæðum
fljótlega. Svo eru önnur svæði sem
enn er bið á að nái sér á strik og
þar er ekki annað að gera en sýna
þolinmæði.“
Skelin sem veiðist í tilrauna-
verkefninu fer til vinnslu hjá ag-
ustson ehf. í Stykkishólmi. Þar
var umfangsmikil skelvinnsla áður
en veiðar stöðvuðust 2003. Vél-
um og tækjabúnaði hefur allt-
af verið haldið til staðar þó veið-
ar lægju niðri. „Við héldum þessu
öll þau tíu ár sem alls enga skel var
að hafa. Núna eftir að rannsókna-
verkefnið hófst höfum við sett
vinnsluna aftur í gang í þeirri von
að atvinnuveiðar gætu verið hand-
an við hornið. Við höfum fulla trú
á skelinni. Þetta er eftirsótt afurð
og markaðsmálin eru góðu lagi.
Það fæst mjög gott verð fyrir skel-
ina en við gleymum því þó ekki að
það hafa alltaf verið miklar sveifl-
ur á markaði fyrir hörpuskel. Í dag
fer hún fyrst og fremst til Frakk-
lands.“ Aðspurður segir Sigurð-
ur að þrátt fyrir greinileg bata-
merki í hörpuskelsstofninum þá
séu menn þó ekki farnir að spá í
stærri fjárfestingar svo sem á bát-
um til atvinnuveiða hefjist þær að
nýju. „Ætli það sé ekki best að bíða
og sjá hvað kemur frá Hafrann-
sóknastofnun og hvað stjórnvöld
ætla síðan að gera. Það er þó ekki
spurning að samfélagið hér bíð-
ur þess að skelveiðar hefjist á nýj-
an leik. Við reiknum ekki með að
þetta nái fyrri hæðum en skelveið-
arnar voru á sínum tíma afar þýð-
ingamiklar bæði hér í Stykkishólmi
og í Grundarfirði. Það væri mikill
akkur fyrir þetta svæði að atvinnu-
veiðar færu aftur af stað.“
Ágætis gangur
hjá fyrirtækinu
Að öðru leyti segir Sigurður að
ágætlega gangi hjá agustsson ehf.
Fyrirtækið gerir út línubátinn Gull-
hólma SH sem er nýsmíði sem það
fékk afhent nú í haust. Þorskur-
inn sem Gullhólmi veiðir fer í salt-
fisksvinnslu í Stykkishólmi. „Síðan
vinnum við grásleppu sex mánuði
á ári og á sumrin höfum við fryst
krókaveiddan makríl. Fyrir vertíð-
ina síðastliðið sumar lögðum við
í frekari fjárfestingar til vinnslu á
honum, bæði flokkunar og fryst-
ingar þar sem við keyptum með-
al annars lausfrysti frá Skaganum.
En við fundum vissulega fyrir því
að markílmarkaðurinn er slapp-
ur. Vegna viðskiptabanns er Rúss-
land jú úti sem markaðsland. Það
hefur haft mikil áhrif. Undanfar-
in þrjú ár höfðum við selt makríl
þangað. Ekkert af makrílnum sem
við frystum í fyrrasumar fór þang-
að nú. Við seldum hann inn á Asíu
í staðinn. Okkar makríll er mikil
gæðaafurð. Það er vel hægt að selja
hann en verðið er lægra nú en það
var fyrir viðskiptabannið. Verð-
ið var alltaf að lækka eftir því sem
leið á nýliðið ár.“
Vel heppnuð útrás
Fyrirtækið agustson ehf. rek-
ur einnig vinnslu á sjávarafurð-
um í Danmörku. Vinnslurnar þar
eru þrjár talsins. Þær eru staðsett-
ar á tveimur stöðum, annars vegar
er ein í Hirtshals sem sinnir skel-
fiskvinnslu og svo tvær í Vejle. Þar
er kavíarvinnsla og fyrirtæki sem
reykir fisk, einkum eldissilung.
Þessi útrás hófst 2002 þegar Sig-
urður Ágústsson ehf., sem seinna
varð agustson ehf., keypti Maran
Seafood í Hirtshals. Það fyrirtæki
hafði sérhæft sig í að framleiða
skelfiskafurðir í saltlegi. Árið 2005
keypti Maran Seafood svo fyrir-
tækið í Velje sem stundaði um-
fangsmikla framleiðslu á reyktum
silung fyrir Evrópumarkað. Sama
ár var vinnsla Sigurðar Ágústson-
ar ehf. á kavíar flutt úr Stykkis-
hólmi til Vejle. Í dag er það svo að
um tveir þriðju hlutar ársveltu ag-
ustson ehf. kemur frá dótturfyrir-
tækjunum í Danmörku. Þar starfa
nú um 110 manns á meðan um
45 vinna hjá fyrirtækinu á sjó og
í landi á Íslandi. „Að hefja rekst-
ur í Danmörku er búin að vera vel
heppnuð útrás sem byggir á því að
við erum með gott fólk með okkur.
Það er mjög gott að reka fyrirtæk-
ið í Danmörku vegna þess að leik-
reglurnar þar eru á hreinu. Það er
ekki verið að hringla með þær fram
og til baka á fjögurra ára fresti eins
og hér á Íslandi. Þarna er fyrirsjá-
anleiki sem er nokkuð sem skiptir
máli í svona rekstri,“ segir Sigurð-
ur Ágútsson. mþh
„Alltof oft líta
menn framhjá
þeirri staðreynd
að stærstur hluti
stuðnings við
landbúnað er til
að greiða nið-
ur búvörur til
neytenda. Í um-
ræðunni virð-
ist það oft vera
þannig að með
stuðningi við
bændur sé verið
að rétta bænd-
um einhverja
dúsu,“ skrif-
ar Sindri Sig-
urgeirsson for-
maður Bænda-
samtaka Íslands
á Facebook-síðu sína. Þar er hann
væntanlega að senda Finni Árnasyni
forstjóra Haga, sem rekur m.a. Bón-
us og Hagkaup, ádrepu í sömu mynt
og Finnur skrifaði fyrir áramótin í
Viðskiptablaðið þar sem hann and-
mælir þeirri áætlun íslenskra stjórn-
valda að gera nýjan búvörusamning
við bændur. En Sindri fer nýja leið
til að benda á verðmyndun í verslun-
inni. Í sumarlok á nýliðnu ári kveðst
hann hafa farið í Hagkaup í Kringl-
unni (verslun Haga) og skoðað verð
á ýmsum vörum. „Það var fróðlegt
að bera saman verð á einum lítra
af mjólk annars vegar og átöppuðu
vatni án kolsýru og bragðefna hins
vegar. Niðurstaðan er athyglisverð.
Mjólkin kostar 142 kr/ltr en vatnið
kostar 165 kr/ltr. Semsagt einn lítri
af vatni kostar 23 krónum meira en
mjólkin.“
Sindri segir að verðið sem bændur
fá sé 84 kr/ltr og
verð frá Mjólk-
ursamsölunni
til smásöluversl-
ana fyrir líters-
fernu að há-
marki 121 kr/
ltr. (mögulega
aðeins ódýr-
ara hjá Hög-
um). „Ef öllum
stuðningi hins
opinbera vegna
mjólkurfram-
leiðslu er deilt
niður á inn-
anlandsfram-
leiðsluna reikn-
ast stuðningur
47 kr/ltr. Þetta
lítur því svona
út. Bóndi: 84 kr + 47 kr = 131 kr.
Hagkaup: 121+álagning+vsk = 142.
Er þetta ekki ágæt vísbending um
það hvernig stuðningi við mjólkur-
framleiðslu er varið,“ skrifar formað-
ur Bændasamtakanna.
Hann segir það ekki flókið mál á
Íslandi að tappa vatni á flöskur. Það
er auðvitað ekki fyrirhafnarlaust, en
við eigum sem betur fer gnægð af
vatni. „Til samanburðar tekur nærri
30 mánuði að rækta upp mjólkurkú,
frá því að móðirin er sædd og þar til
að afkvæmi hennar fer sjálf að mjólka.
Allan þennan tíma þarf að huga að
þörfum gripanna upp á hvern einasta
dag, afla fóðurs og tryggja viðunandi
húsakost og beitiland. Það verður því
ekki dregið í efa að framleiðsla á ein-
um lítra af mjólk kostar talsvert meiri
vinnu og fyrirhöfn en að tappa ein-
um lítra af vatni á flösku.“
mm
Vatnið dýrara en mjólkin
Veiðibann var sett á hörpuskel-
veiðar í Breiðafirði árið 2003 eft-
ir að stofninn hrundi að því er tal-
ið var vegna sýkingar sníkjudýra.
Þetta var á sínum tíma mikið áfall
fyrir atvinnulífið bæði í Stykkis-
hólmi og Grundarfirði. Nú loks
eftir um 13 ára stopp eru horfur á
að rofi til að nýju. „Við erum búin
að sinna rannsóknum á ákveðnum
skelmiðum hér í Breiðafirði síð-
an í september á síðasta ári í sam-
vinnu við Fisk Seafood og Haf-
rannsóknastofnun. Þeim kem-
ur til með að ljúka í næsta mán-
uði. Þetta hefur gengið ágætlega.
Skelin sem slík lítur vel út. Hún er
bæði stór og falleg og ekki að sjá
að í henni sé nein sýking. Nýliðun
virðist einnig í góðu lagi. Við finn-
um töluvert af ungri skel á þessum
svæðum sem við höfum verið að
skoða. Heilt yfir þá erum við hóf-
lega bjartsýn á framtíðina varð-
andi nýtingu skeljarinnar í Breiða-
firði,“ segir Sigurður Ágútssson
framkvæmdastjóri sjávarútvegs-
fyrirtækisins agustson ehf. í Stykk-
ishólmi.
Sjálfstætt rann-
sóknaverkefni
Eins og áður hefur verið greint
frá í Skessuhorni þá hefur skel-
veiðibáturinn Hannes Andrésson
SH verið notaður við þessar veið-
ar. „Báturinn hefur farið yfir og
veitt á mjög afmörkuðum svæð-
um. Í þessum rannsóknum eru
okkur settar skorður um það hvar
við megum veiða og hversu mik-
ið magn við getum tekið á hverju
svæði fyrir sig. Við gerðum breyt-
ingar á veiðarfærunum og létt-
um þau umtalsvert með það fyr-
ir augum að fara betur með veiði-
svæðin. Það er mikill tilkostnaður
sem fylgir þessum rannsóknaveið-
um. Við teljum þó að þær séu öðr-
um þræði að skila okkur dýrmætri
reynslu og þekkingu, ekki síst til að
við getum gengið betur um svæðin
í framtíðinni,“ segir Sigurður.
Hann útskýrir að hér sé um að
ræða sjálfstætt rannsóknarverkefni
og fyrir utan allar atvinnuveiðar
sem slíkar. Eitt af því sem skoð-
að er nú er hve mikið veiðiálag
sé talið óhætt að hafa á ákveðn-
um svæðum án þess að gengið sé
Sigurður Ágústsson framkvæmdastjóri agustson ehf. í Stykkishólmi:
Rannsóknaveiðar á hörpuskel í Breiðafirði lofa góðu
Hörpuskel landað úr Hannesi Andréssyni í haust. Sigurður Ágústsson framkvæmdastjóri agustsson ehf. í Stykkishólmi.
Skelveiðibáturinn Hannes Andrésson SH við bryggju í Hólminum á föstudaginn.
Rannsóknaveiðar hans á hörpuskel hafa gengið afar vel í haust og vetur og skilað
dýrmætum upplýsingum um ástandið á skelfiskmiðum í Breiðafirði.