Skessuhorn - 13.01.2016, Side 16
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 201616
Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveit-
ar Íslands hafa um árabil verið allra
vinsælustu og fjölsóttustu tónleikar
hljómsveitarinnar, enda nær hin sí-
græna og tímalausa Vínartónlist að
heilla og kæta mannshjartað kyn-
slóð eftir kynslóð. Jafnvel þeir sem
lítt hrífast af sinfóníutónlist hafa
gaman að hinni léttu og skemmti-
legu Vínartónlist. Að þessu sinni
komu tveir Vestlendingar fram með
hljómveitinni á tónleikunum sem
fram fóru í Hörpu um síðustu helgi,
en svo skemmtilega vill til að bæði
eiga þeir rætur á Hvanneyri. Hér er
rætt um Dalamanninn Elmar Gil-
bertsson tenór, sem rætt var við í
Aðventublaði Skessuhorns, og Guð-
rún Ingimarsdóttir sópransöngkona
frá Fífusundi á Hvanneyri.
Elmar Gilbertsson tenórsöngvari
kom, sá og sigraði í hlutverki Daða
Halldórssonar í óperunni Ragn-
heiður eftir Gunnar Þórðarson
en fyrir frammistöðu sína uppskar
hann Grímuverðlaunin í flokknum
söngvari ársins og Íslensku tónlist-
arverðlaunin 2014 sem söngvari árs-
ins í flokki sígildrar og samtíma-
tónlistar. Elmar starfar í óperuhús-
um víðsvegar um Evrópu en kom
fram á tónleikum Sinfóníunnar um
liðna helgi. Áhugi hans fyrir söng
kviknaði af alvöru eftir að hann söng
með karlakórnum Söngbræðrum á
námsárum sínum á Hvanneyri. Það-
an er einmitt Guðrún Ingimarsdótt-
ir sópransöngkona.
Guðrún er nokkuð eldri, stendur
á fimmtugu en hefur mörg undan-
farin ár búið í Þýskalandi og sung-
ið í óperu- og tónleikahúsum víða
um heim. Flutningur óperettutón-
listar hefur verið fyrirferðamik-
ill þáttur í starfi Guðrúnar og hef-
ur hún meðal annars sungið á rösk-
lega hundrað Vínaróperettu-tón-
leikum víða um Þýskaland, Aust-
urríki og Sviss og farið í tónleika-
ferðir með afkomendum Strauss-
fjölskyldunnar. Í stuttu spjalli blaða-
manns við Guðrúnu milli tónleika í
Hörpunni kvaðst hún alsæl með að
fá þetta tækifæri að koma heim og
syngja með sinfóníunni og hinum
skemmtilega Elmari. Stopp henn-
ar hér á landi var hins vegar stutt að
þessu sinni því strax morguninn eft-
ir síðustu tónleikana var hún flogin
út til Þýskalands þar sem ný verkefni
biðu hennar.
mm
Slógu í gegn á Vínartónleikum
Guðrún og Elmar á æfingu fyrir fyrstu Vínartónleikana.
Sýningin Nála var opnuð á Bókasafni
Akraness síðastliðinn miðvikudag að
viðstöddum um hundrað börnum úr
2. bekk í grunnskólum bæjarins. Nála
er gagnvirk farandsýning og var fyrst
opnuð á torgi Þjóðminjasafnsins fyr-
ir tæpu ári. Í febrúar lýkur hringferð
sýningarinnar um landið en Akranes
er síðasti viðkomustaður. Nokkur þús-
und gestir hafa sótt sýninguna og tek-
ið þátt í að móta hana. Það hafa þeir
gert með því að sauma, kubba, gera
mynstur og teikna myndir í öllum
regnbogans litum á 90 metra papp-
írsrefil. Það kemur í hlut Akurnesinga
og nágranna þeirra að ljúka gerð ref-
ilsins en sýningin stendur í bókasafn-
inu til 20. febrúar. Pappírsrefillinn
verður svo sýndur síðar í Sögusetrinu
á Hvolsvelli þar sem Njálurefillinn er
til húsa.
Nála er byggð á samnefndri barna-
bók eftir Evu Þengilsdóttur sem kom
út hjá Sölku í október 2014 og var til-
nefnd til íslensku bókmenntaverð-
launanna. Sagan er óður til íslensks
/ norræns menningararfs og um leið
ævintýri um valið milli góðs og ills,
stríðs og friðar. Höfundurinn sótti
innblástur í hið 300 ára gamla Ridd-
arateppi, sem varðveitt er á Þjóð-
minjasafninu. Nemendur úr 2. bekk
grunnskólanna á Akranesi fengu að
heyra söguna og var að lokum skipt
í hópa, þar sem þau fengu tækifæri
til að fá sér hressingu, teikna, sauma
með sverðum og fara í ratleik á bóka-
safninu. grþ
Líkt og fram hefur komið hef-
ur Biskup Íslands ákveðið að skipa
mag. theol. Hildi Björk Hörpudótt-
ur í embætti sóknarprests í Reyk-
hólaprestakalli. Hildur Björk, sem
er borinn og barnfæddur Reykvík-
ingur, sagði í samtali við blaðamann
Skessuhorns að hún hlakki til að
flytja vestur og taka við nýja starf-
inu. Aðspurð segist hún ekki áður
hafa haft neina tengingu við svæð-
ið. „Ég bjó í ár og ár úti á landi sem
barn en hef enga tengingu við Reyk-
hólahrepp sem slíkan. Ég sit þó með
Elínu Hrund, fyrrverandi sóknar-
presti í Reykhólum, í stjórn áhuga-
félags um guðfræðiráðstefnur. Hún
bar mikið lof á svæðið og samfélagið
þar og mér þótti því spennandi að
sækja um starfið.“
Hefur sinnt margvís-
legum verkefnum
Hildur Björk lauk BA-prófi í guð-
fræði við Háskóla Íslands árið 2007
og meistaraprófi í guðfræði á síð-
asta ári. Á árunum þar á milli stund-
aði hún einnig nám af ýmsu tagi.
Hún hlaut diplómagráðu í hag-
nýtum jafnréttisfræðum 2008, lauk
meistaraprófi í mannauðsstjór-
nun árið 2010 og fékk kennslurétt-
indi árið 2012. Síðustu þrjú ár hef-
ur Hildur Björk verið framkvæmda-
stjóri og eigandi Vinasetursins, sem
er heimili og vettvangur fyrir börn
sem þurfa á stuðningsfjölskyldum
að halda að mati félagsþjónustunnar
og Barnverndarnefnda. Hildur hef-
ur verið í ýmsum öðrum verkefnum
undanfarin ár, meðal annars annast
ráðgjöf við frumkvöðla og nýsköp-
unarfyrirtæki. Þá hefur hún einnig
tekið að sér verkefni fyrir Biskups-
stofu og Þjóðkirkjuna og kennt fé-
lagsfræði við Keili, Háskólabrú. „Ég
hef einnig unnið í þágu kirkjunn-
ar, þar á meðal í sunnudagaskóla-
fræðslu í Lindarkirkju og Lang-
holtskirkju, ásamt fermingarfræðslu
í Langholtskirkju. Ég sá um rit-
stjórn á vefnum barnatru.is og vann
að uppsetningu á nýjum vef og nýrri
efnisveitu fyrir Þjóðkirkjuna á síð-
asta ári,“ segir Hildur. Hún bæt-
ir því við að hafa auk þess annast
gerð nýs námsefnis fyrir fermingar-
fræðslu Þjóðkirkjunnar. „Ég hef líka
skrifað pistla á vefinn ferming.is og
flutt fyrirlestra á námskeiðum á veg-
um kirkjunnar, ásamt fleiru.“
Ævintýri -
út fyrir rammann
Eiginmaður Hildar Bjarkar er Eg-
ill Rúnar Erlingsson hugbúnað-
arsérfræðingur og eiga þau þrjú
börn, Auði Emilíu 14 ára, Mark-
ús Pál Bjarma 13 ára og Bjart Stef-
án 7 ára. Fjölskyldan ætlar öll að
flytjast búferlum vestur. „Við ætl-
um að fara í smá ævintýri út fyr-
ir rammann. Það eru allir mjög
spenntir yfir þessu, meira að segja
unglingarnir. Reyndar held ég að
þau sjái þetta svolítið í hillingum -
eins og að við séum að fara í langa
og góða sumarbústaðarferð,“ seg-
ir Hildur Björk og hlær við. Fjöl-
skyldan flytur vestur í Reykhóla-
hrepp í kringum næstu mánaða-
mót. „Þegar Biskup hefur vígt mig
munum við fjölskyldan flytja vest-
ur strax í vikunni þar á eftir. Við
hlökkum mikið til að fá að taka
þátt í þessu samfélagi og ég hlakka
til að taka við embættinu.“ Að-
spurð um helstu áherslur í starfinu
segir Hildur Björk að hún telji lif-
andi safnaðarstarf vera mikilvægt.
„Og að vera til staðar fyrir sókn-
arbörnin mín. Eins tel ég sterkt og
gott barna- og æskulýðsstarf vera
hornstein kirkjunnar og það skipt-
ir miklu máli.“
grþ
Hildur Björk er nýr sóknarprestur á Reykhólum:
Telur lifandi safnaðarstarf mikilvægt
Hildur Björk ásamt dóttur sinni Auði Emilíu. Fjölskyldan hlakkar til að flytja vestur á Reykhóla. Hér er Hildur ásamt börnum
sínum þremur.
Um hundrað börn sóttu opnun sýningar
Nemendur 2. bekkjar í Grundaskóla á Akranesi fylgdust spennt með þegar Eva
Þengilsdóttir las úr bók sinni.
Á sýningunni gátu börnin prófað að sauma með litlum sverðum.
Þessar stöllur fengu sér safa og piparkökur.
Ratleikurinn endaði með því að börnin
fundu gamla bók sem þau fengu að
handleika og lykta af.