Skessuhorn - 13.01.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2016 19
Íþróttamaður Borgarfjarðar 2015
Ungmennasamband Borgarfjarðar - Borgarbraut 61 - 310 Borgarnesi Sími 437 1411 - www.umsb.is
Laugardaginn 16.janúar kl. 14:00 fer fram í Félagsheimilinu Brún í
Bæjarsveit verðlaunaafhending í kjöri íþróttamanns Borgarfjarðar 2015
Veittar verða ýmsar viðurkenningar og verðlaun til þess íþróttafólks sem náð hefur
góðum árangri á árinu 2015
Tónlistar og skemmtiatriði frá ungmennum úr héraði
Boðið verður uppá veitingar
Ungmennasamband Borgarfjarðar SKE
SS
U
H
O
R
N
2
01
6
Tveggja flokka handavinnukeppni
var haldin í Ljómalind Sveita-
markaði í Borgarnesi á aðventunni.
Annars vegar var keppt um fal-
legasta jólasokkinn og hlaut jóla-
sokkur Ingunnar Jóhannesdóttur
flest atkvæði. Fékk hún gjafabréf
í Ljómalind að upphæð tíu þús-
und krónur að launum. Hins vegar
var keppt í opnum flokki, þar sem
keppendur voru hvattir til að leggja
fram allt það skrýtna, fjölbreytta
og frumlega sem tengist jólum, til
dæmis heimagerða ljótupeysu. Ekki
var það þó ljótupeysa sem sigraði í
opna flokkinum þetta árið, heldur
forláta jólahúfa frá Guðrúnu Krist-
jánsdóttur frá Ferjubakka og hlaut
hún einnig gjafabréf að launum.
grþ
Fallegasti jólasokkurinn
og jólahúfan
Ingunn Jóhannesdóttir eða „Amma Ingunn“ með Jólasokkinn 2015.
Hér má sjá glitta í jólahúfuna og sokkinn sem sigruðu í keppninni.
Þriðjudagskvöldið 19. janúar næst-
komandi fagnar Snorrastofa nýbök-
uðum borgfirskum doktor í heim-
speki, Jakobi Guðmundi Rúnars-
syni, sem flytur fyrirlesturinn „...
og allir gluggar opnuðust...“ Jak-
ob fjallar í fyrirlestri sínum um verk
og áhrif dr. Ágústs í íslensku samfé-
lagi á fyrstu áratugum 20. aldar og
hvaða ímynd hefur verið dregin upp
af honum hin
síðari ár.
Jakob er
fæddur á Þver-
felli í Lundar-
reykjadal 15.
febrúar 1982.
Hann lauk tvö-
faldri B.A.
gráðu í heim-
speki og sagn-
fræði frá Há-
skóla Íslands
árið 2007 og
meistaragráðu
í Intellectual
History frá há-
skólanum í Sus-
sex í Englandi
árið 2008. Fyrir tæpu ári varði Jak-
ob doktorsritgerð sína frá Háskóla
Íslands, „Einhyggja, þróun og fram-
farir. Heimspeki Ágústs H. Bjarna-
sonar“. Doktorsritgerðin greinir frá
niðurstöðum rannsóknar á heimspeki
Ágústs og starfsemi hans sem heim-
spekings í samhengi íslenskrar menn-
ingar á fyrrihluta 20. aldar. Rann-
sóknin miðaði fyrst og fremst að því
að draga fram og greina bæði heim-
spekilegt innihald og sögulegt sam-
hengi verka hans í víðum skilningi.
Leitast er við að benda á þá ann-
marka sem hafa einkennt ráðandi
hugmyndir samtímans um heimspeki
hans og gæða mynd okkar af honum
sem opinberum menntamanni auk-
inni dýpt og skerpu. Hvort sem borið
er niður á sviði siðfræði, þekkingar-
fræði, heimspekisögu eða sálarfræði í
höfundarverki Ágústs kemur í ljós að
verk hans veita markverða sýn á sér-
stakt tímabil íslenskrar og evrópskrar
heimspekisögu. Viðhorf hans til hlut-
verks heimspekingsins og heimspeki-
legrar ástundunar eru könnuð með
hliðsjón af þeim sögulega og menn-
ingarlega veruleika sem hann var
virkur þátttakandi í. Með rannsókn-
inni er varpað ljósi á merkingu og
gildi þeirra heimspekilegu álitamála
sem Ágúst glímdi við á sínum tíma og
við glímum að mörgu leyti enn við.
Fyrirlesturinn hefst að venju kl.
20:30 í Bókhlöðu Snorrastofu þar
sem boðið verður til kaffiveitinga og
umræðna að fyrirlestrinum loknum.
Aðgangur er kr. 500. -fréttatilk.
Fyrirlestur í Snorrastofu um heimspeki
dr. Ágústs H. Bjarnasonar
Rós vikurnar í vetrarkærleik Blóma-
setursins – Kaffi kyrrðar í Borgar-
nesi er Sigríður Valdís Finnboga-
dóttir. Rósina hlýtur hún fyrir að
vera hvunndagshetja, sem aldrei
gefst upp, dugleg og góð mann-
eskja sem kveður niður fordóma
með framgöngu sinni og skrifum.
Áfram kærleikur!
mm
Sigríður Valdís
er rósahafi
vikunnar
Bráðsmitandi magapest er að ganga
yfir landið og leggst hún verst á eldra
fólk. Ekkert sýklalyf gagnast gegn
veirusýkingunni. Samkvæmt upplýs-
ingum frá veirufræðideild Landspít-
ala hefur nóróveira látið á sér kræla
en hún er algeng orsök niðurgangs
og uppkasta. Þetta kemur fram á vef
Embættis landlæknis. Besta vörn-
in við slíkum pestum er handþvott-
ur, sem er ávallt mikilvægur og ár-
angurríkasta leiðin til að koma í veg
fyrir smit. Þá er inflúensan komin til
landsins. Stöku tilfelli hafa nú þegar
greinst á landinu og hefur hún einn-
ig greinst í nágrannalöndum. Virkni
inflúensunnar telst enn vera lítil en
er þó á uppleið. Aldrei hefur meiri
ásókn verið í bóluefni gegn inflú-
ensu líkt og í vetur en í haust seld-
ust 60 þúsund skammtar af bóluefni.
Pantaðir voru fimm þúsund skammt-
ar til viðbótar sem nú eru komnir í
dreifingu til að anna eftirspurn. Enn
er ekki of seint að láta bólusetja sig
gegn inflúensu. Auk þess hefur RS
vírus látið á sér kræla undanfarið en
hann getur valdið alvarlegum öndun-
arfærasýkingum hjá ungum börnum.
Í ljósi þess að hinar ýmsu pestir ganga
manna á milli á þessum árstíma er
rétt að benda á að gæta fyllsta hrein-
lætis og þvo hendur vel til að forðast
smit. grþ
Ýmsar pestir
herja á landann