Skessuhorn - 13.01.2016, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 201620
leggist í svokallaða fósturvísaflutn-
inga, sem eru í raun ekkert annað
en staðgöngumæðrun. Þá er egg
verðlaunahryssu frjóvgað en kom-
ið fyrir í legi annarrar hryssu, sem
gengur með folaldið. Erfðafræðileg
móðir trippisins verður þá auðvitað
verðlaunahryssan sem lagði til egg-
ið, en hún þarf ekki að ganga með
það. Hana má því þjálfa til sýningar
á þeim tíma sem hefði annars far-
ið í meðgönguna. Fósturvísaflutn-
ingar eru hins vegar kostnaðarsam-
ir og því ekki almennt að fólk nýti
sér þá tækni.
Fyrst og fremst
ánægjulegt
Aðspurð hvað þau fái út úr hrossa-
ræktinni brosa þau bæði og líta
á hvort annað. „Það er nú aðal-
lega bara ánægjan, ekkert annað.
Við höfum lítið sem ekkert selt
í gegnum tíðina,“ segir Siggi en
Ína viðurkennir að breyting gæti
orðið á því á næstunni. „Núna
erum við komin með nokkuð
mörg hross og það gengur ekki að
vera að safna,“ segir hún en bæt-
ir því við að ánægjan sé aðal hvat-
inn. „Það er alltaf jafn spennandi
að sjá hvernig hrossin koma út,“
segir hún. „Þetta er kannski svip-
að og að kaupa lottómiða og bíða
svo í fimm ár eftir tölunum,“ bætir
Siggi við og brosir.
Ánægjan felist einnig í því að
fylgja hrossunum frá upphafi ævi
þeirra. Að sjá kynið fyrst eftir kast-
ið, litinn og fleira slíkt. Fljótlega
komi svo í ljós hvernig karakter
viðkomandi hross hefur að geyma.
„Svo erum við með folaldsmerarn-
ar á heimatúninu yfir veturinn og
fylgjumst með þeim út gluggann,“
segir Ína og brosir.
Stefnan sett á
Landsmót
Þau segjast munu koma til með
að halda fimm hryssum á næsta
ári, þar á meðal Hamingju, þeirri
frægu hryssu, sem varð efst fjög-
urra vetra hryssa á síðasta lands-
móti. Hún hefur eignast folald
sem Olil og Bergur eiga. „Þau
héldu henni undir fjögurra vetra
stóðhest, heimsmethafa, og fengu
gullfallegt mertrippi,“ segir Siggi.
Hyggjast þau láta sýna hryss-
una aftur á næstunni. „Hamingja
er nýfarin til þeirra aftur ásamt
stóðhesti undan Vöku og Kiljan
frá Steinnesi, sem ekki var tilbú-
inn síðasta vor,“ segir hann. „Það
verður gaman að sjá hvernig hann
kemur út,“ bætir Ína við.
Er endurþjálfun Hamingju lið-
ur í undirbúningi fyrir Landsmót
hestamanna, sem haldið verður
á Hólum í Hjaltadal næsta sum-
ar. Vonast þau Ína og Siggi til
að koma hrossum þangað. „Við
stefnum á að sýna fjögur hross á
kynbótasýningum fyrir Lands-
mót,“ segir Siggi. „Það eru Ham-
ingja í flokki sex vetra hryssa, Váli
í flokki fimm vetra stóðhesta og
svo Víðátta og Heiðrún í flokki
fjögurra vetra hryssa,“ segir Ína.
Reglum um þátttöku á Lands-
móti hefur verið breytt frá því sem
verið hefur og verður fyrsta sinni
farið eftir nýju reglunum á móti
komandi sumars. „Það er ekki
lengur einkunnalágmark heldur
verður bara ákveðinn fjöldi hrossa
sem keppir í hverjum flokki,“ segja
þau. „Þannig að við vitum ekki
fyrr en eftir að öllum kynbótasýn-
ingum er lokið hvort hrossin okk-
ar komast inn,“ segir Ína.
Ástæðuna segja þau vera miklar
framfarir í hrossarækt almennt á
undanförnum árum. Stöðugt fleiri
hross hafi komist að á hverju ári
og mótið stækkaði jafnt og þétt,
síðasta Landsmót var til dæmis
átta dagar að lengd. „Það var ann-
að hvort að hækka lágmörkin eða
gera þetta svona.“ Þau segja reglu-
breytingarnar hafa fallið misjafn-
lega í kramið meðal hrossarækt-
enda. „Réttilega hefur verið bent á
að breytingarnar muni auka kostn-
að, sem þær gera vissulega. Ef
menn eiga hross sem gengur illa
á kynbótasýningu vilja þeir líklega
sýna það aftur. Þá getur verið um
að ræða mánuð aukalega í þjálf-
un og kostnaðinn sem því fylgir,“
segir Ína. „En það verður spenn-
andi að sjá hvort hrossin okkar
komast á mótið og svo í kjölfarið
að spá í undir hvaða graðfola á að
halda hryssunum,“ bætir hún við
að lokum.
kgk
Starfsárið 2016 í Safnhúsi Borg-
arfjarðar verður helgað listrænni
ljósmyndun í héraði og verða ýmis
glæsileg verkefni því tengd á dag-
skrá hússins. Fyrsti áfanginn er
opnun sýningar laugardaginn 23.
janúar þar sem Ómar Örn Ragn-
arsson sýnir ljósmyndir. Sýning-
in hefur hlotið heitið Norður-
ljós og vísar það til myndefnisins,
en myndirnar hefur Ómar tekið í
Borgarnesi og nágrenni og segir
Borgarnes vera afar vel í sveit sett
til slíks.
Ómar hefur rekið versl-
un á tæknisviði í Borgarnesi um
margra ára skeið en er lærður vél-
virki og starfaði hjá Borgarplasti
og Límtré Vírneti áður en hann
hóf eigin rekstur. Hann er fædd-
ur á Drangsnesi í Strandasýslu
árið 1959, bjó lengst framan af
á Akranesi og fluttist í Borgar-
nes 1992. Sýning Ómars Arnar er
því gott dæmi um ljósmyndalist á
Vesturlandi, en hann hefur verið
mikill áhugamaður um ljósmynd-
un með hléum frá æskuárunum.
Skemmtilegt er að segja frá því að
hann vann sem vélvirki við smíði
á listaverkinu Brákinni í Borgar-
nesi á sínum tíma með Bjarna Þór
Bjarnasyni listamanni sem hannaði
verkið. Nú er Brákin orðin eitt af
einkennistáknum fyrir Borgarnes
og sannar gildi listarinnar fyrir um-
hverfi bæja og sveita.
Sýning Ómars stendur til 26.
febrúar. Opið verður 13.00 til
16.00 á opnunardaginn og eftir
það kl. 13.00 - 18.00 virka daga;
aðgangur er ókeypis.
-fréttatilkynning
Ómar Örn opnar brátt
ljósmyndasýningu í Safnahúsinu
Að Hellubæ í Hálsasveit búa Gísl-
ína Jensdóttir og Sigurður Einars-
son, Ína og Siggi. Hún er bóka-
vörður í Snorrastofu í Reykholti
en hann er sjómaður. Hafa þau á
undanförnum árum vakið verð-
skuldaða athygli fyrir annað, nefni-
lega hrossarækt, en hryssur þeirra
þykja afbragðsgóðar og eftirsótt-
ar til kynbótaræktunar. Ína er upp-
alin á Hellubæ og þangað fluttust
þau árið 1985, en þar hafði þá eng-
inn búið um tveggja ára skeið. „Það
togaði í mig að koma heim,“ seg-
ir Ína. „Siggi fékk vinnu í fiskeld-
inu á Laxeyri og við keyptum svo
af pabba árið 1989,“ bætir hún við.
„Við komum okkur upp kjúklinga-
rækt með starfinu á Laxeyri og
strax örfáum kindum,“ segir Siggi.
„Fyrir áttum við eina hryssu, Golu
frá Hellubæ, ættmóðurina. Allt sem
við höfum ræktað er undan henni,“
segja þau.
Ekki sama
hver temur og sýnir
Markvissa kynbótaræktun segjast
þau hins vegar ekki hafa stundað
lengur en frá árinu 1997 og segja
það helst hafa verið vegna kunn-
ingsskapar við Gísla Gíslason og
Olil Amble, sem þá bjuggu í Stang-
arholti. „Þau tömdu fyrir okkur og
beindu okkur eiginlega inn á rækt-
unarbrautina eftir að við fengum
hryssuna Væntingu, undan Golu
og Degi frá Kjarnholtum. Vænting
hefur gefið okkur mörg góð reið-
hross,“ segja þau.
Árið 2002 var hryssan Þula sýnd
í fyrsta skipti. Hún náði 1. verð-
launum, hafnaði í öðru sæti í flokki
fjögurra vetra hryssa á Landsmóti
hestamanna það sama ár. Tveimur
árum síðar var Vaka sýnd og fékk
hún einnig góð 1. verðlaun. „Þar
með vorum við komin með tvær
góðar hryssur til að rækta und-
an. Undan Vöku eigum við tvær 1.
verðlauna hryssur og undan Þulu
eigum við eina, fengum sitt hvora
verðlaunahryssuna. Alls áttum við
þá núna fimm 1. verðlauna hryss-
ur,“ segir Ína. Eftir að Olil og Gísli
skildu héldu þau áfram samstarfi
sínu við hana og hafa alla tíð látið
vel af því. „Við höfum verið ótrú-
lega heppin með samstarfið við Olil
og Berg Jónsson, núverandi mann
hennar. Það er ekki sama hver tem-
ur og sýnir hrossin, það skiptir máli
upp á árangurinn,“ segir Ína.
Minni vinna kringum
hryssurnar
En hvers vegna leggja þau áherslu
á að rækta góðar hryssur í stað
stóðhesta? „Flestir vonast nú til
að eignast góða ræktunarhryssu.
En það er kannski ekki rétt að við
leggjum áherslu á að rækta hryss-
ur, við höfum bara verið svo heppin
að hjá okkur hafa fæðst fleiri hryss-
ur en hestar. Það er miklu meiri
vinna sem fylgir stóðhestunum og
það er bara til svo mikið af góð-
um stóðhestum í landinu að að-
eins örfáir fá fulla notkun,“ segja
þau. „Hryssurnar eru miklu með-
færilegri og þægilegri,“ bæta þau
við. Hluti ástæðunnar er að hryss-
urnar eru ekki sýndar jafn oft og
stóðhestarnir. „Sumir segja reyndar
að það borgi sig að sýna þær oftar,
kannski fjögurra vetra og svo strax
aftur eftir að þær eignast sitt fyrsta
folald,“ segja þau. „En það myndi
samt þýða tap því það er ekki hægt
að láta þær eignast afkvæmi meðan
verið er að undirbúa þær fyrir sýn-
ingu,“ bætir Ína við.
Af þeim sökum segja þau að sumir
Ína og Siggi á Hellubæ rækta afbragðsgóðar hryssur
Hjónin á góðri stundu með bikarinn í brekkunni á síðasta Landsmóti.
Ína með verðlaunahryssuna Hamingju
frá síðasta Landsmóti hestamanna.
Knapinn er Bergur Jónsson, eigin-
maður Olil Amble, en þau temja og
sýna hrossin frá Hellubæ.
Ína og Siggi á Hellubæ í Hálsasveit.