Skessuhorn - 13.01.2016, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2016 21
Það getur verið ansi einfalt að hafa
hamborgara í matinn. Í mörgum
tilfellum þarf ekki að gera annað
en að kaupa þá tilbúna, steikja þá,
bæta við smá áleggi og máltíðin
er tilbúin. En fyrir þá sem eru til-
búnir að leggja á sig örlítið meiri
vinnu má gera dýrindis máltíð úr
hamborgurum. Heimatilbúnir
hamborgarar geta verið einstak-
lega bragðgóðir og safaríkir. Hér
er uppskrift af hamborgurum sem
eru með þeim bestu. Aðferðin
er einföld og auðvelt er að móta
borgara úr kjötinu þegar allt hrá-
efnið er komið saman, sér í lagi
ef búið er að kæla það aðeins fyr-
ir steikingu. Gott er að nota ham-
borgarapressu til að móta borgar-
ana en þó ekki nauðsynlegt, það
má vel móta góðan borgara með
höndunum.
Heimsins bestu hamborgarar:
Innihald
500-600 gr nautahakk
½ laukur, smátt skorinn
½ bolli rifinn mexico ostur
1 tsk. sojasósa
1 tsk. Worcestershire sósa
1 egg
1 pk. lauksúpumix
1 hvítlauksrif
1 msk. hvítlauksduft
1 tsk. þurrkuð steinselja
1 tsk. þurrkað basil
1 tsk. þurrkað oregano
½ tsk. þurrkað rósmarín (má sleppa)
salt og pipar (saltið sett eftir á)
Aðferð:
Byrjið á að saxa laukinn mjög
smátt og merjið hvítlaukinn í
hvítlaukspressu. Blandið síðan
öllum hráefnunum saman í skál og
blandið vel. Setjið inn í ísskáp og
látið kólna vel, þá er auðveldara að
móta þá í borgara. Mótið borgara
úr deiginu og veltið aðeins
uppúr hveiti, þá haldast þeir vel
þéttir. Grillið svo á útigrilli við
meðalhita eða steikið á pönnu.
Setjið ostsneið á borgarana þegar
þeim hefur verið snúið við. Munið
að heimagerðir borgarar þurfa oft
aðeins lengri steikingartíma en
þeir úr búðunum, því þeir eru
þykkari.
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem
vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið:
krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudög-
um. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja
með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti
sendi lausnir á Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (athugið að
póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið
verður úr réttum innsendum lausnum og fær vinnings-
hafinn bókagjöf frá Skessuhorni.
54 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu viku.
Lausnin var: „Áraskil.“ Vinningshafi er: Garðar H Guð-
jónsson, Grenigrund 30, 300 Akranesi.
Í næstu viku verður sagt frá því hver vinningshafi er
fyrir jólakrossgátu Skessuhorns og vinningshafi fyrir
myndagátu.
mm
Tannar
Fiskur
Segja
frá
Fákur
And-
staða
Byrjun
Temur
Ófagur
Askar
Bara
Æti
Slitna
Ný-
næmi
5 3
Tónn
Hróp
Uggði
Hetjur
Vafi
Rödd
Rek-
öldin
Nýárs-
dagur
Óreiða
Risa
Átt
Tár
Auka-
lega
Eimur
Blekk-
ing
Kona
Mylsna
Heilir
Mjóa
Spyr
Fljótið
Fæða
Eldskírn
Morg-
unn
Leit
Gróp
Málæði
Hring-
fari
Fagur
Ferðin
Vesen
51
Spil
Tónn
Rusl
Fljótið
Slump-
ur
Epjast
Tvíhlj.
Tvenna
Röst
7 Út-
vegar
Kvað
Tölur
Sverta
Rót
Eink.st.
Sáldra
Suddi
Vit-
leysa
Ras
Hlaup
Frjáls
Á fiski
Afl
6
Væl
Skinn-
kápa
4 Tunnu
100
Vær
Styrkja
1 Frá
Smá-
alda
Dyggur
Rölt
Vitur
Dína-
mór
Rugl
Dvelja
Kurt
Kúst
Marr
Fim
Sjó
Upphr.
For-
faðir
Nes
Annir
Erfiði
Keyrðu
2
Sífellt
Þreytir
Fjöldi
Tvenna
8
1 2 3 4 5 6 7 8
Freisting vikunnar
Heimagerðir hamborgarar
sem slá í gegn
Á þrettándanum síðastliðinn miðviku-
dag, blés duglega víða um Vesturland.
Á dagskrá víðast hvar var þrettándag-
leði. Á Akranesi var ákveðið að fresta
brennu og álfadansi vegna slæms veð-
urútlits sem og samkomu í íþrótta-
húsinu þar sem lýsa átti kjöri Íþrótta-
manns Akraness. Kveikt í var bálkest-
inum síðasta mánudag. Á öðrum stöð-
um héldu menn sig við dagskrá og
kveiktu í brennum og kvöddu jóla-
sveinana á þrettánda degi jóla.
Jólin kvödd
Þrettándabrenna var í Ólafsvík að kvöldi miðvikudags. Farið var í skrúðganga frá
Pakkhúsinu að Klifi þar sem kveikt var í brennunni. Mátti sjá margar furðuverur
meðal gesta sem létu ekki norðanvind á sig fá. Grýla og Leppalúði voru þarna
ásamt sonum sínum. Lionsklúbbur Ólafsvíkur var með glæsilega flugeldasýningu
sem gladdi augu hinna fjölmörgu gesta. Ljósm. af.
Það var fallegt yfir að líta í Stykkishólmi þegar flugeldasýning fór þar fram á þrettándanum. Ljósm. sá.
Fresta þurfti Þrettándagleðinni á Akranesi í síðustu viku vegna slæmrar veðurspár. Blásið var til leiks síðastliðinn mánudag
með blysför frá Þorpinu. Jólasveinar, álfar og tröll mættu að varðeldi við Þyrlupallinn og Björgunarfélag Akraness stóð fyrir
flugeldasýningu. Hér er svipmynd frá henni. Ljósm. jho.Stjörnuljós skapa réttu stemninguna fyrir þá yngstu. Ljósm. tfk