Skessuhorn - 13.01.2016, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 201624
Síðastliðna daga
hef ég orðið
æ meir var við
e inhverskon-
ar lífstílsbreyt-
ingu hjá fólki í
kringum mig,
hvort sem það
er í vinnunni
eða á stræt-
um Borgarness.
Margir virðast
hafa fengið þá
flugu í höfuð-
ið að nú sé tím-
inn til að neita
sér um ákveðna
hluti, það er
kallað að afeitra
sig. En afhverju
ætti maður í
fyrsta lagi að
borða hluti sem
eru hættulegir manni sjálfum gæti
einhver spurt en fengið fá svör.
Allavega, sumir neita sér um sykur
og sumir loka á glúten, sem er gott
og blessað og ekkert hægt að amast
við því ef fólk nennir þessu á ann-
að borð. Í heimildaöflun fyrir þessa
hugleiðingu rakst ég á einum frétta-
vefnum á áhugaverða fréttatilkynn-
ingu. Hún snerist um sykurlausa
áskorun og þetta einhvern veginn
tónaði ekki við ofneysluna sem ég
ólst upp við í æsku minni þar sem
ég gluðaði hvítum sykri frá vin-
um mínum í Dansukker yfir Che-
eriosið (ég varð fyrir persónulegu
áfalli þegar verksmiðjan brann fyr-
ir einhverjum árum því ég sá fram
á skort í landinu), fékk þriggja ára
að smakka hjá afa Jóni kaffibleytt-
an sykurmola hér og þar og fékk að
taka gamlan kryddstauk frá Knorr
fylltann af kakói með í skólann til
að setja í nýmjólkina. Ég verð æv-
inlega þakklátur fyrir það.
En eftir ca. 10.000 ár af stöð-
ugri sykurneyslu mannskepnunn-
ar ákveða einhverjir að segja að nú
sé nóg komið og finna upp snið-
ug orðasambönd eins og „meist-
aramánuður“
og „Sykurlaus
s e p t e m b e r “
vippa því jafn-
vel í hashtagg
eins og #syk-
urlausseptem-
ber, deyja jafn-
vel aðeins inni
í sér þegar þau
stimpla það inn
í orðagluggann
í símanum.
Að lokum fær
það svo þessa
dásamlegu sælu
sem fylgir ret-
weetinu, svona
rétt eins og
s y k u r n e y s l a
gerir manni.
Ég er með til-
lögu: Hvern-
ig væri að sumir hætti að vera með
leiðindi í garð annars fólks. Gætum
kallað það #fávitalausfebrúar til að
halda í stuðlunarhefðina og form-
ið en jafnvel haldið því áfram því
það er hollt að vera góður við ná-
ungann.
En hvers vegna sykurneysla er
svona umdeild er erfitt að segja
til um. Fyrst þegar sykur var upp-
götvaður var hann notaður í trú-
arathöfnum og var sveipaður dul-
úð. Þá var sykur ekki sykur og ekki
búið að troða honum alls stað-
ar og ég meina allstaðar. Fyrst um
sinn var hann mjög óaðgengileg-
ur og einungis fáir útvaldir fengu
að tyggja sig í gegnum harðan börk
sykurreyrsins og upplifðu því sem
næst trúarlega upplifun við vímuna
sem fylgdi. Ég kaupi þessa skýr-
ingu alveg því ég er nefnilega líkt
og margir sykurfíklar, verð að fá
minn skammt af sykurreyrnum frá
Barbados á morgnana með kaffinu.
Ef ég fæ ekki þetta skot af alsælu er
hætt við að ég verði eins og virk-
ur í athugasemdum og þess óska ég
engum.
Kveðja, Axel Freyr
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
DAGLEGIR VÖRUFLUTNINGAR
Stykkishólmur – Reykjavík
B. Sturluson ehf.
Nesvegi 13, Stykkishólmi
438 1626 / 862 1189
Vélsmiðja BA
Nýsmíði • Vélaviðgerðir
Breytingar • Viðhald
Vélsmiðja BA • Sólbakka 25 • Borgarnesi • bhk@vortex.is
Björn Kristjánsson 894 – 3336
Arnar Björnsson 849 – 9341
SMÍÐAVINNA – MÚRVERK RG ehf
Bárugötu 19, Akranesi • Sími 821 2490 • ragnar4646@gmail.com
Kór Akraneskirkju hélt aðventu-
tónleika sína í lok nóvember. Tón-
leikarnir voru haldnir á Kalmans-
völlum en það húsnæði hýsti áður
m.a. verslunina Nettó. Þar hef-
ur kórinn haldið ferna tónleika á
undanförnum árum og hefur tek-
ist vel til enda er góður hljómburð-
ur í húsinu.
Á tónleikunum voru flutt lög við
ljóð eftir kórfélagana Jón Gunnar
Axelsson og Halldór Hallgrímsson.
Einnig átti Akurnesingurinn Guð-
mundur Kristjánsson einn texta.
Frumflutt voru þrjú lög eftir Svein
Arnar Sæmundsson organista við
ljóð eftir Skagakonurnar Brynju
Einarsdóttur, Sigurbjörgu Hall-
dórsdóttur og Sigurbjögu Þrastar-
dóttur. Kórfélagarnir Kristín Sig-
urjónsdóttir lék á fiðlu og Sigrún
Þorbergsdóttir á flautu. Sérstakir
gestir voru þau Guðrún Gunnars-
dóttir söngkona, Gunnar Gunn-
arsson píanóleikari og Gunnar
Hrafnsson kontrabassaleikari.
Í hléi buðu kórfélagar upp á
jólasmárétti. Tónleikarnir voru
afar vel sóttir og var gerður góður
rómur að söng kórsins sem og ann-
arra flytjenda. -fréttatilk.
Hljómburður góður í
fyrrum verslunarhúsnæði
Karlakórinn Söngbræður hélt
sína árlegu sviða- og hrossakjöts-
veislu í félagsheimilinu Logalandi
síðastliðið laugardagskvöld. Að
venju var hlaðborð með söltuðu
hrossakjöti og sviðum frá Kópa-
skeri ásamt meðlæti. Til að næra
andann var svo boðið upp á söng
og skemmtun fyrir og eftir borð-
hald. Vegna mikillar aðsóknar
undanfarin ár var ekki gestakór að
þessu sinni til að sem flestir hér-
aðsbúar gætu sótt skemmtunina.
Engu að síður var uppselt á tón-
leikana og langur biðlisti. Þétt var
því setið í húsinu og áætlað að um
300 manns hafi verið á svæðinu.
Stjórnandi Söngbræðra er Viðar
Guðmundsson, Heimir Klemenz-
son spilaði undir á píanó auk þess
sem Bjarni Guðmundsson strauk
gítarstrengi og Guðbjartur Björg-
vinsson þandi kviðspilið, harm-
ónikkuna. Að endingu brustu svo
allir viðstaddir í fjöldasöng.
mm
Færri komust að en
vildu á Söngbræðraveislu
Sykurskertur
PIstill