Skessuhorn - 13.01.2016, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2016 27
Bikarinn á loft.
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Óhætt er að segja að Víking-
ur Ólafsvík beri höfuð og herðar
yfir önnur lið þegar kemur að Fut-
sal hér á landi. Liðsmenn Víkings
unnu sinn þriðja Íslandsmeistaratit-
il síðasta sunnudag þegar þeir unnu
Leikni/KB 13-3 í Laugardalshöll-
inni. Víkingur var einnig meistari
2013 og 2015. Þessi sömu lið öttu
kappi á síðasta ári og þá hafði Vík-
ingur einnig betur. Kenan Turudija
og Alfreð Már Hjaltalín skoruðu
þrennu fyrir Víkinga í úrslitaleikn-
um og þeir Þorsteinn Már Ragnars-
son, Emir Dokara og Heimir Þór
Ásgeirsson voru allir með tvö mörk
hver. Óttar Ásbjörnsson skoraði eitt
mark. Kristinn Magnús Pétursson
átti fjórar stoðsend-
ingar og Þorsteinn
Már Ragnarsson gaf
tvær stoðsendingar
og þeir Admir Kubat,
Óttar Ásbjörnsson og
Leó Örn Þrastarsson
með eina stoðsend-
ingu, en liðið vann
alla níu leiki sína á Ís-
landsmótinu í ár og
markatalan var 68
mörk í plús; 83-15.
Næst leikur Vík-
ingur deildarleik við
Breiðablik laugar-
daginn 16. janúar í
Fífunni. þa
Víkingur enn einu sinni
Íslandsmeistari í Futsal
Sigursælt lið Víkings í Futsal.
Síðastliðinn föstudag
tók Skallagrímur á móti
Fjölni í 1. deild karla í
körfuknattleik. Gestirn-
ir úr Grafarvogi byrjuðu
betur og náðu snemma yfirhönd-
inni í leiknum. Leikmenn Skalla-
gríms minnkuðu muninn í tvö
stig snemma í öðrum leikhluta en
Fjölnismenn svöruðu með góðum
leikkafla og höfðu 17 stiga forskot
í hálfleik, 49-32.
Leikmönnum Skallagríms tókst
ekki að komast inn í leikinn eft-
ir hléið. Fjölnismenn stjórnuðu
ferðinni og héldu heimaliðinu í
skefjum allt til leiksloka. Þegar
lokaflautan gall munaði 20 stigum
á liðunum. Lokatölur í Borgarnesi
urðu 72-92, Fjölni í vil.
J.R. Cadot var atkvæðamestur
leikmanna Skallagríms. Hann sko-
raði 24 stig og tók 17 fráköst. Sig-
tryggur Arnar Björnsson kom ho-
num næstur með 15 stig og þeir
Davíð Guðmundsson og Atli Aðal-
steinsson skoruðu ellefu stig hvor.
Hamid Dicko, sem nýverið gekk
til liðs við Skallagrím frá ÍR, spilaði
15 mínútur í leiknum. Hann náði
hins vegar ekki að skora í þes-
sum fyrsta leik sínum fyrir Borgar-
nesliðið.
Skallagrímur situr eftir leikinn í
fimmta sæti deildarinnar með tólf
stig eftir níu leiki. Næst leikur liðið
gegn Val í Borgarnesi föstudaginn
15. janúar.
kgk
Skallagrímur mátti sætta sig við tap
Skagamenn tóku á móti Þór frá Ak-
ureyri í 1. deild karla í körfuknatt-
leik föstudaginn 8. janúar. Jafnt
var á með liðunum í upphafi leiks.
Þórsarar höfðu þó heldur yfirhönd-
ina en leikmenn ÍA fylgdu fast á
hæla þeirra. Með góðum kafla und-
ir lok annars leikhluta tókst gestun-
um þó að tryggja sér tíu stiga for-
ystu í hálfleik, 28-38. Skagamenn
náðu að minnka forskot gestanna
lítið eitt í öðrum leikhluta en höfðu
ekki erindi sem erfiði. Hægt og ró-
lega náðu leikmenn Þórs fyrra for-
skoti á ný og unnu að lokum 23.
stiga sigur, 56-77.
Sean Tate skoraði 21 stig fyr-
ir ÍA í leiknum. Næstur honum
kom Fannar Freyr Helgason með
19 stig og ellefu fráköst og þá Jón
Orri Kristjánsson með níu stig og
tíu fráköst.
ÍA er sem stendur í sjötta sæti
deildarinnar með átta stig eftir níu
leiki. Í næsta leik heimsækja Skaga-
menn Reyni suður í Sandgerði
fimmtudaginn 14. janúar. kgk
ÍA þurfti að
lúta í gras
fyrir Þór
Miðherjinn Jón Orri Kristjánsson sýndi norðanmönnum takmarkaða gestrisni
þegar hann gerði atlögu að körfunni. Ljósm. jho.
Þessa dagana standa
yfir átta liða úrslit
Powerade-bikars karla
og kvenna í körfuknatt-
leik, þar sem þrjú Vest-
urlandslið eru með-
al þátttakenda. Leikið
var í átta liða úrslitum
kvenna um helgina.
Á sunnudaginn
mættust Íslandsmeist-
arar Snæfells og Val-
ur á Hlíðarenda í Reykjavík. Eft-
ir erfiða byrjun náði Snæfell foryst-
unni um miðjan fyrsta leikhluta og
lét hana aldrei af hendi. Gestirnir
úr Stykkishólmi höfðu tíu stiga for-
skot í leikhléi og unnu jafnt og þétt
að því að breikka bilið milli liðanna
í síðari hálfleikinn. Þegar flautað var
til leiksloka var munurinn orðinn 20
stig. Lokatölur urðu 58-78 og Snæ-
fell þar með komið í undanúrslit bik-
arsins.
Haiden Palmer fór fyrir liði Snæ-
fells í leiknum. Hún skoraði 20 stig
og tók níu fráköst. Gunnhildur
Gunnarsdóttir skoraði tólf stig og
Bryndís Guðmundsdóttir tíu.
Skallagrímur mætti
ofjarli sínum
Á laugardag háði Skallagrímur hetju-
lega baráttu á útivelli gegn úrvals-
deildarliði Keflavíkur í bikarkeppni
kvenna, í leik sem var jafnari en loka-
tölurnar gefa til kynna. Leikmenn
Skallagríms fylgdu Keflvíkingum
eins og skugginn all-
an leikinn. Það var
ekki fyrr en á enda-
sprettinum að heima-
liðið stakk af og vann
24 stiga sigur, 93-69
og batt þar með enda
á þátttöku Skalla-
gríms í bikarnum.
Sólrún Sæmunds-
dóttir skoraði 20 stig
fyrir Skallagrím og
tók átta fráköst, Kristrún Sigurjóns-
dóttir skoraði einnig 20 stig og tók
fimm fráköst og Erikka Banks skor-
aði 20 stig og tók níu fráköst.
Níu stiga tap gegn
Grindavík
Á mánudagskvöld tók Skallagrímur
á móti úrvalsdeildarliði Grindavík-
ur í bikarkeppni karla. Liðin fylgd-
ust að fyrstu mínútur leiksins áður en
Grindvíkingar náðu forystunni und-
ir lok fyrsta leikhluta og létu hana
aldrei af hendi. Skallagrímur átti
mjög góðan lokafjórðung og minnk-
aði forskot gestanna jafnt og þétt en
það dugði ekki til. Lokatölur í Borg-
arnesi urðu 96-105 og Skallagrímur
því úr leik.
J.R. Cadot var nálægt frá þrenn-
unni með 22 stig, níu fráköst og
átta stoðsendingar. Sigtryggur Arn-
ar Björnsson skoraði 23 stig og stal
boltanum fimm sinnum og Arnar
Smári Bjarnason skoraði 18 stig og
tók fimm fráköst. kgk
Snæfell í undanúrslit en bæði
Skallagrímsliðin úr leik
Snæfell tók á móti
Haukum í úrvals-
deild karla í körfu-
knattleik fimmtudag-
inn 7. janúar. Leikur-
inn fór hægt af stað
og hvorugu liðinu
tókst að skora stig
fyrstu tvær mínúturn-
ar. Fyrstu stigin voru
Snæfells og tók liðið
frumkvæðið í leikn-
um. Haukar jöfn-
uðu snemma í öðrum
leikhluta en stjórn
leiksins var áfram
í höndum heima-
manna sem leiddu í
hálfleik, 41-34.
Leikmenn Snæ-
fells mættu ákveðn-
ir til síðari hálfleiks,
tóku góðan sprett og
stóðu vaktina í vörn-
inni. Haukar neituðu
hins vegar að játa sig
sigraða og minnkuðu
muninn í fimm stig
fyrir lokaleikhlutann.
En nær komust þeir
ekki og Snæfell vann
að lokum 14 stiga sig-
ur, 79-65 og tryggði sér mikilvæg
stig í botnbaráttunni.
Sherrod Wright átti sannkall-
aðan stórleik í liði Snæfells, hann
skoraði 42 stig og tók 21 frákast.
Næstur honum kom Austin Bracey
með ellefu stig og sex fráköst.
Með sigrinum lyfti Snæfell sér
upp í áttunda sæti deildarinnar með
tíu stig eftir tólf leiki. Næst leik-
ur Snæfell fimmtudaginn 14. janú-
ar þegar liðið sækir Njarðvíkinga
heim.
kgk
Mikilvægur sigur
Snæfells í Hólminum
Sherrod Wright átti stórleik þegar Snæfell vann
mikilvægan sigur á Haukum. Ljósm. eb.