Skessuhorn - 13.04.2016, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 20166
Ýmis óhöpp
í vikunni
VESTURLAND: Síðast-
liðinn fimmtudag fór bifreið
með þrjá erlenda ferðamenn
útaf veginum á Laxárdals-
heiði í Dölum, hafnaði ofan
í vegskurði og stöðvaðist á
freðnum skurðbakka. Virtist
sem ökumaðurinn hafi misst
stjórn á bílnum í lausamöl í
aflíðandi beygju en malar-
vegur er þarna og í ágætu
standi miðað við slíka vegi á
þessum árstíma, að sögn lög-
reglu. Ökumaður og farþegi
í framsæti voru í bílbeltum
og sluppu án meiðsla en far-
þegi í aftursæti var laus og
kastaðist hann fram í bifreið-
ina við höggið og brákaðist á
hrygg og hálsi. Í dagbók lög-
reglu segir að ekið hafi verið
á níu ára dreng á reiðhjóli á
bifreiðastæðinu við íþrótta-
húsið Jaðarsbökkum á Akra-
nesi á fimmtudag. Drengur-
inn var með hjálm og slapp
hann við alvarleg meiðsli en
hlaut mar og rispur á fót-
leggjum. Einn ökumaður var
tekinn fyrir ölvun við akst-
ur og tveir fyrir að aka und-
ir áhrifum fíkniefna í vikunni
sem leið. Þá lagði lögreglan
hald á um 20 gr af kannabis-
efnum sem maður frá Akra-
nesi var með í bakpoka, en
hann var að koma frá Reykja-
vík þegar afskipti voru höfð
af honum. Efnisleifar am-
fetamíns fundust hjá öðrum
manni eftir að sést hafði til
hans við neyslu. Loks hafði
lögreglan afskipti af fjölda
ökumanna í umferðareftirliti
sínu í vikunni. Skráningar-
númer voru klippt af nokkr-
um bílum vegna vanrækslu á
að færa þá til skoðunar. Þá
tók lögreglan 42 ökumenn
fyrir of hraðan akstur og
hraðamyndavélarnar mynd-
uðu um 400 ökumenn sem
óku of hratt. Um 70 þeirra
voru myndaðir við Fiskilæk.
-mm
Keppa í Útsvari á
föstudag
SNÆFELLSBÆR: Snæfells-
bær komst sem kunnugt er í átta
liða úrslit Útsvars, spurninga-
keppni sveitarfélaganna á RÚV,
eftir nauman fjögurra stiga sigur
á Rangárþingi ytra í spennandi
viðureign skömmu fyrir páska. Á
föstudaginn er komið að næstu
orrustu þar sem Snæfellingar
mæta liði Fljótsdalshéraðs, sem
vann einnig nauman sigur í 16
liða úrslitum. Því er ljóst að búast
má við spennandi viðureign um
sæti í undanúrslitum keppninn-
ar. Lið Snæfellsbæjar skipa sem
fyrr þeir Sigfús Almarsson, Örv-
ar Marteinsson og Guðmundur
Reynir Gunnarsson. -kgk
Veiðidagar á grá-
sleppu verða 32
LANDIÐ: Atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytið ákvað í gær
að gefa út reglugerð þar sem leyft
yrði að hámarksfjöldi veiðidaga á
grásleppu á þessari vertíð verði 32
í stað 20 daga eins og útlit var fyr-
ir samkvæmt reglugerð sem ráðu-
neytið gaf út 4. mars sl. Þetta var
gert að ráðgjöf Hafrannsókna-
stofnunar sem ráðlagði einnig
að hámarksveiði yrði 6.800 tonn
á þessari vertíð. Þar með er ljóst
að veiðidagarnir verða jafn marg-
ir og í fyrra, en þá veiddust um
6.400 tonn. -mm
Farið fram á
hámarksrefsingu
AKRANES: Embætti ríkissak-
sóknara hefur farið fram á að
Gunnar Örn Arnarson verði
dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir
að hafa orðið Karli Birgi Þórðar-
syni að bana á Akranesi föstudag-
inn 2. október 2015. Aðalmeð-
ferð fór fram í Héraðsdómi Vest-
urlands á dögunum. Fréttavefur-
inn Vísir.is greindi frá. -mm
Tekur við
formennsku í
stjórn OR
S V- L A N D :
B r y n h i l d -
ur Davíðs-
dóttir, pró-
fessor við Há-
skóla Íslands,
mun taka við
formennsku í
stjórn Orku-
veitu Reykjavíkur á aðalfundi
fyrirtækisins sem haldinn verð-
ur 18. apríl nk. Hún hefur verið
varaformaður stjórnar undanfar-
in ár, tók sæti í stjórninni 2010.
Reykjavíkurborg á um 94%
hlut í OR og kýs fimm stjórnar-
menn af sex. Akraneskaupstaður
á svo einn fulltrúa í stjórn OR,
sem nú er Valdís Eyjólfsdóttir
og Borgarbyggð áheyrnarfull-
trúa, en það er Björn Bjarki Þor-
steinsson. Ný inn í stjórnina fyr-
ir borgina kemur Sigríður Rut
Júlíusdóttir hæstaréttarlögmað-
ur. Aðrir fulltrúar Reykjavíkur-
borgar verða hinir sömu og fyrr;
Gylfi Magnússon, Áslaug M.
Friðriksdóttir og Kjartan Magn-
ússon. Brynhildur er frá Arn-
bjargarlæk í Þverárhlíð, dóttir
Guðrúnar Jónsdóttur og Dav-
íðs Aðalsteinssonr. Hún er dokt-
or í umhverfis- og orkufræðum
frá Boston University. Brynhild-
ur hefur kennt við Háskóla Ís-
lands frá 2006 og verið prófess-
or frá 2013.
-mm
Umhverfisstofnun auglýsti laust
starf þjóðgarðsvarðar í Þjóðgarð-
inum Snæfellsjökli í byrjun síðasta
mánaðar. Leitað var að starfsmanni
með afburðagóða samskiptahæfi-
leika, reynslu og þekkingu á rekstri
og mannaforráðum auk þekkingar
á náttúrufræði eða umhverfisfræði
en þjóðgarðsvörður annast daglegan
rekstur og umsjón þjóðgarðsins og
annarra verndarsvæða á Vesturlandi.
Umsóknarfrestur rann út 21. mars
síðastliðinn og sóttu 24 um starfið.
Umsækjendur um stöðuna eru:
Anna Guðrún Þórhallsdóttir pró-
fessor, Ari Þorsteinsson tækniteikn-
ari, Álfheiður Sverrisdóttir BS nátt-
úru- og umhverfisfræði, Birna Heide
Reynisdóttir sérfræðingur, Dav-
íð Arnar Stefánsson forstöðumað-
ur, Guðbjörg Linda Udengaard há-
skólanemi, Guðrún Elva Hjörleifs-
dóttir veitingastjóri, Guðrún Svava
Viðarsdóttir umsjónarkennari, Haf-
rún Kristjánsdóttir ritari, Hallfríður
Guðný Ragnarsdóttir háskólanemi,
Hákon Ásgeirsson sérfræðingur,
Inga Hrönn Sverrisdóttir háskóla-
nemi, Jóhann Garðar Þorbjörnsson
leiðsögumaður, Jón Björnsson sér-
fræðingur, Jóna Kolbrún Sigurjóns-
dóttir landvörður, Jónína Pálsdótt-
ir bókari, Karl Arnarsson umsjón-
armaður, Marta María Jónsdótt-
ir landslagsarkitekt, Martin Guð-
mundsson verktaki, Rodrigo Adem-
ar Martinez Catalán umhverfis-
fræðingur, Sara Hrund Signýjar-
dóttir músíkmeðferðarfræðingur,
Sævar Hreiðarsson skógarvörður,
Þorsteinn Már Ragnarsson knatt-
spyrnumaður og Þórunn Stefáns-
dóttir háskólanemi. grþ
Fjölmargir sóttu um starf þjóðgarðsvarðar
Símenntunarmiðstöðin á Vestur-
landi, í samstarfi við Svæðisgarð-
inn Snæfellsnes og SSV þróun og
ráðgjöf, hélt 60 kennslustunda nám
sem nefnist: „Snæfellsnes - Ísland
í hnotskurn,“ nú á vorönn 2016.
Náminu lauk um síðustu helgi og
var það styrkt af Sóknaráætlun
Vesturlands. Inga Dóra Halldórs-
dóttir forstöðumaður Símenntun-
armiðstöðvarinnar segir að megin-
markmið námsins hafi verið að efla
heimafólk á Snæfellsnesi í átthaga-
fræði, staðháttum, útivist, ferða-
mennsku, gestamóttöku, upplýs-
ingaöflun og miðlun. Voru þátttak-
endur 14 talsins.
„Námið byggðist upp á þrem-
ur staðlotum og netfundum einu
sinni í viku. Auk þess fengu þátt-
takendur aðgang að fyrirlestrum
og efni á miðlægum vef þar sem
vel valdir leiðbeinendur komu að
með efni eins og t.d. jarðfræðifyr-
irlestra, sögu svæðisins, áhugaverða
staði, söfn og starfsemi þeirra, nátt-
úru og fuglalíf á Snæfellsnesi. Á
lokadegi námsins voru þátttakend-
ur svo með leiðsögn í hringferð um
Snæfellsnes sem endaði með út-
skrift á Kaffi Rjúkandi,“ segir Inga
Dóra. Þær Margrét Björk Björns-
dóttir og Ragnhildur Sigurðardótt-
ir voru aðal leiðbeinendur í náminu
og eru þær sammála um að nám-
skeiðið hafi tekist vel. Námsmatið
sýni ótvírætt að þátttakendur voru
ánægðir með útkomuna.
mm
Fjórtán luku námi í átthagafræði
um Snæfellsnes
Hópurinn við útskriftinga á Kaffi Rjúkandi. Ljósm. Símenntunarmiðstöðin.