Skessuhorn - 06.07.2016, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 20164
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.700 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.340. Rafræn áskrift kostar 2.120 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.960 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Björn Þór Björnsson bjorn@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Já, ráðherra!
„Kerfið ver sig sjálft,“ sagði þingkonan Vigdís Hauksdóttir í viðtali á sjón-
varpsstöðinni Hringbraut fyrr í vikunni. Þessi ummæli er hún að láta falla
um embættismenn og stjórnmálaflokka, en hún hefur eins og kunnugt er
skipað sér í þann flokk þingmanna sem hyggst hætta þingmennsku og gefur
því ekki kost á sér til framboðs í kosningunum í haust. Þarna er Vigdís að
vísa til þess að henni finnst „kerfið“ standa gegn nauðsynlegum breyting-
um á því sjálfu, það ver sig einfaldlega gegn þeim og þingmenn hafa ekkert
um þróun þess að segja. Í þessu samhengi undanskilur hún ekki eigin þing-
flokk eða samstarfsflokkinn. Allir spila með. Hún segir að ekki hafi verið
farið lengra með tillögur hagræðingarhópsins af þessum sökum og því hafi
ekki náðst raunverulegur sparnaður í ríkisrekstri. „Það er eins og við höf-
um gengið á vegg,“ sagði hún. Þingkonan Vigdís gefst upp og það er sko
saga til næsta bæjar.
Ég viðurkenni fúslega að þarna sjá Íslendingar á eftir litríkum stjórn-
málamanni, svo ekki verði dýpra í árinni tekið. Þessi ummæli hennar núna
koma mér ekki á óvart, ekki síst í ljósi þess að þau koma nokkrum dögum
eftir frétt um ákvörðun kjararáðs þess efni að nú hafi laun ráðuneytisstjóra í
stjórnarráðinu verið hækkuð um tugi prósenta. Nú skal verðlauna þá sem í
mínum huga eru ríkisstjórar kerfisins sem Vigdís er að gagnrýna, afar vald-
mikil en fámenn stétt sem hefur í áranna rás gengið í fararbroddi við heila-
þvott nýrra þingmanna sem í góðri trú taka sæti á Alþingi og ætla sér stóra
hluti, en eru lamdir niður. Kjararáð á samkvæmt lögum að ákveða laun
þeirra sem ekki geta með góðu móti farið í verkfall, samkvæmt ákvörðun
sem annar hópur opinberra embættismanna hafa hefur sett í lög og platað
þingmenn til að samþykkja. Nú ber svo við að laun ráðuneytisstjóra þurfti
að hækka um tæplega fjörutíu prósent á einu bretti. Mestu munar um fasta
og óunna yfirvinnu sem hækkar úr fimmtíu þúsund krónum í fimmhundr-
uð þúsund krónur á mánuði! Já, þið lásuð rétt. Með fastri óunninni yfir-
vinnu fylgir hins vegar engin kvöð um að þeir þurfi að vinna eina einustu
klukkustund í yfirvinnu, ekki eina mínútu.
Eftir þessa ákvörðun kjararáðs verða mánaðarlaun ráðuneytisstjóra tæpar
tvær milljónir króna. Það þýðir að hver þeirra kostar okkur skattgreiðendur
að lágmarki þrjár milljónir á mánuði með launatengdum gjöldum. Svo geta
menn reiknað sér til gamans skatta hve margra láglaunamanna þarf til að
dekka þennan kostnað samfélagsins við einn svona forréttinda pappírspésa.
Það kæmi mér ekki á óvart að skattar fimmtíu láglaunaðra hrykkju ekki til.
En hvað hefur ráðuneytisstjóri við tvær milljónir í mánaðarlaun að gera? Af
hverju þarf hann að fá tíu sinnum hærri laun en maðurinn sem sópar stétt-
ina framan við stjórnarráðið eða konan sem selur honum búsið í vínbúð-
inni? Af hverju eru laun ráðuneytisstjóra orðin hærri en laun ráðherranna,
sem þó eiga að heita ofar í valdapýramídanum? Getur verið að hér á landi
sé kannski komin upp sama staða og sýnd var svo eftirminnilega í bresku
sjónvarpsþáttunum „Já, ráðherra?“ Það skyldi þá aldrei vera.
Nei, ég get ekki sætt mig við svona lagað og ætla ekki að gera það. Þetta
er spilling, misrétti og valdníðsla af sóðalegu sortinni. Ef hið svokallaða
kjararáð tekur svona heimskulegar ákvarðanir, þá á tvímælalaust að láta
meðlimi þess víkja og það strax. Við Íslendingar getum nefnilega aldrei
eygt von um sanngjarnt og siðmenntað þjóðfélag ef valdamikið fólk í opin-
bera geiranum á að komast upp með að haga málum með þessum hætti. Ég
vona að Íslendingar viðurkenni þá staðreynd að opinbera embættismanna-
kerfið er orðið margfalt stærra og kostnaðarsamara en þjóðin stendur und-
ir. Það er kominn tími til að við förum öll að haga okkur eins og fólk.
Magnús Magnússon.
Leiðari
Hollvinasamtök Heilbrigðisstofn-
unar Vesturlands afhentu HVE tvö
ný tæki síðastliðinn fimmtudag við
athöfn sem fram fór á heilsugæslu-
stöð HVE í Borgarnesi. Við þetta
tækifæri sagði Steinunn Sigurðar-
dóttir, formaður hollvinasamtak-
anna, stuttlega frá starfsemi sam-
takanna og tilgangi þeirra. Hún
ræddi um mikilvægi þess að heil-
brigðisstofnunin okkar væri vel
búin tækjum og búnaði. Að ávarpi
loknu afhenti Steinunn Guðrúnu
Margréti Halldórsdóttur, deildar-
stjóra svæfingadeildar, blöðrusk-
anna. Skanninn mun fara á skurð-
og svæfingadeild sjúkrahússins á
Akranesi en hann er nokkurs kon-
ar ómtæki sem getur metið inni-
hald í þvagblöðrunni. Eftir að-
gerðir eða deyfingar í hrygg get-
ur þvagblaðran orðið yfirfull, án
þess að sjúklingurinn verði þess
var, og getur það reynt á nýrun og
því verið varasamt. Getur tækið í
sumum tilfellum komið í veg fyr-
ir að setja þurfi upp þvaglegg með
tilheyrandi óþægindum og sýking-
arhættu. Á sjúkrahúsinu á Akranesi
er gert mikið af þvagrásaraðgerð-
um og er tækið því mikilvæg við-
bót þar.
Gæslutæki
Steinunn afhenti þvínæst Rósu
Marinósdóttur, yfirhjúkrunar-
fræðingi í Borgarnesi, og Lindu
Kristjánsdóttur yfirlækni í Borg-
arnesi, svokallað gæslutæki, Con-
nex-CSM–monitor. Tækið mun
verða staðsett á heilsugæslustöð-
inni í Borgarnesi en það getur
fylgst með blóðþrýstingi, súrefnis-
mettun, hita og púlsi hjá sjúkling-
um. Hægt er að stilla tækið þann-
ig að það taki stöðuna á sjúklingi
reglulega, allt frá mínútu fresti
að tveggja klukkustunda fresti. Ef
ástand sjúklingsins versnar lætur
tækið vita með hljóðmerki sem er
gríðarlega mikilvægt þegar læknir
er einn að sinna sjúklingi og gæti
þurft að skreppa frá. Rósa sagði
tækið vera algjöra byltingu fyrir
starfsmenn á heilsugæslustöðinni í
Borgarnesi. „Þetta er nokkurskon-
ar gjörgæslutæki og því mikið ör-
yggi að fá þetta,“ segir Rósa.
Hollvinasamtökin
Hollvinasamtök HVE voru stofn-
uð 25. janúar 2014 í þeim tilgangi
að safna fyrir sneiðmyndatæki sem
svo var afhent HVE í apríl 2015 en
þá var brýn þörf á slíku tæki enda
hið gamla orðið óstarfhæft. Eftir
þá söfnun óskuðu samtökin eftir
því við framkvæmdastjórn HVE að
fá lista yfir þau tæki sem mest þörf
væri fyrir. Efst á þeim óskalista
voru þessi tvö tæki sem að fram-
an greinir. Að sögn Steinunnar var
ekki sérstök söfnun fyrir þessum
tækjakaupum. „Í samtökunum eru
rúmlega 300 meðlimir sem borga
allir 3000 krónur á ári í félags-
gjöld og sá peningur, auk afgangs
frá söfnuninni fyrir sneiðmynda-
tækinu, dugði fyrir þessum kaup-
um, en tækin kostuðu rétt um tvær
milljónir samtals,“ segir Steinunn
og bætir því við að samtökin séu
þegar farin að huga að næstu gjöf.
Hún segir þau finna fyrir mikl-
um velvilja gagnvart samtökunum
og hvetur alla til að skrá sig í þau,
enda sé þetta málefni sem snertir
okkur öll. Þeir sem hafa áhuga á að
gerast meðlimir geta skráð sig inni
á www.vesturlandsvaktin.is eða
með því að fara á vefsíðu HVE.
arg
Hollvinasamtök HVE afhentu tvö ný tæki
Hollvinasamtök HVE afhentu Heilbrigðisstofnun Vesturlands tvö ný tæki, annars
vegar blöðruskanna og hins vegar Connex-CSM – monitor. Hér eru fulltrúar bæði
gefenda og þiggjenda; f.v. Guðrún Margrét Halldórsdóttir, Linda Kristjánsdóttir,
Rósa Marinósdóttir, Sigríður Eiríksdóttir, Anton Ottesen og Steinunn Sigurðardóttir.
Þessa dagana er verið að ljúka við
hleðslu á nýjum vegg á austurhlið
kirkjugarðsins í Reykholti í Borg-
arfirði. Um talsvert mikla fram-
kvæmd er að ræða þar sem veggur-
inn í heild er um 80 metra langur.
Verktaki var Unnsteinn Elíasson,
en við verkið fékk hann til liðs við
sig föðurbróður sinn og læriföður,
Ara Jóhannesson í Hafnarfirði sem
mætti við þriðja mann. Garðvegg-
urinn er listavel gerður, eins og
sjá má á myndinni, og mun prýða
staðinn nú þegar styttist í hátíðar-
höld í Reykholti í tilefni tuttugu ára
vígsluafmælis Reykholtskirkju og
afmælis ferðaþjónustu í kirkjubygg-
ingunni og Snorrastofu. Vígsluaf-
mælisins verður minnst á kirkju-
degi á lokadegi Reykholtshátíðar
sunnudaginn 24. júlí næstkomandi.
Nánar verður fjallað um þessi tíma-
mót í næsta Skessuhorni.
mm
Hlóðu nýjan kirkjugarðsvegg
Verklok við hleðslu kirkjugarðsveggjarins í Reykholti eru áætluð í dag, miðvikudag. Hér er fólkið sem kom að hleðslunni.
Næstir á mynd eru hleðslumeistararnir Unnsteinn Elíasson og föðurbróðir hans Ari Jóhannesson. Þá Kristín Auður Elíasdóttir
og Grétar Jónsson. Ljósm. bhs.
Undanfarna daga hefur verið
mokafli hjá dragnótabátum sem
róa frá Ólafsvík. Hefur aflinn kom-
ist upp í 32 tonn eins og hjá bátn-
um Agli SH síðastliðinn þriðjudag.
Þá var landað upp úr Agli 32 tonn-
um af þorski sem fengust í aðeins
þremur hölum. Þórður Björns-
son sagði í samtali við Skessuhorn
að þetta góði afli sé óvanalegur á
þessum árstíma en dragnótabát-
urinn Gunnar Bjarnarson SH hafi
einnig verið að landa góðum afla
að undanförnu. Sama dag var bát-
urinn með 26 tonn af stórum og
fallegum þorski. Þórður segir enn-
fremur að mjög góð veiði hafi ver-
ið hjá handfærabátum og til dæm-
is hafi Tryggvi Eðvarðs SH land-
að 8 tonnum og Júlli Páls SH 7,5
tonnum sem er mjög gott, að sögn
Þórðar. Hann segir að afli línubáta
hafi verið minni að undanförnu.
af
Mokafli dragnótarbáta í Ólafsvík
Löndun úr Agli SH í Ólafsvík síðast-
liðinn þriðjudag.