Skessuhorn - 06.07.2016, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 20166
Ruglast á
nöfnum bræðra
BORGARNES: Í frétt um
Brákarhátíð í Borgarnesi á bls.
26 í síðasta Skessuhorni var
mynd af ungum manni í vík-
ingaklæðum ræða við börnin
í Skallagrímsgarði. Þar er Ei-
ríkur Þór Theódórsson sagð-
ur hafa verið á ferð. Það var
hins vegar ekki rétt, heldur
var þetta mynd af bróður hans
Geir Konráð Theódórssyni.
Þetta leiðréttist hér með og
hlutaðeigandi beðnir afsök-
unar.
-mm
Oddvitaskipti í
Reykhólasveit
REYKHÓLAHR: Vilberg
Þráinsson á Hríshóli hef-
ur tekið til starfa sem nýr
oddviti í sveitarstjórn Reyk-
hólahrepps. Vilberg var áður
varaoddviti sveitarstjórn-
ar og hafði hann sætaskipti
við fráfarandi oddvita, Karl
Kristjánsson á Kambi. Þetta
gerðist á sveitarstjórnarfundi
23. júní síðastliðinn að hálfn-
uðu kjörtímabili. -grþ
Lionskonur
færðu leikskól-
unum gjafir
SNÆFELLSB: Leikskól-
anum Krílakoti og Foreldra-
félagi leikskólans Kríubóls
í Snæfellsbæ bárust góðar
gjafir í júní síðastliðnum frá
Lionskonum í Rán í Ólafsvík.
Færðu þær Krílakoti peninga-
gjöf að upphæð 50.000 vegna
lestrarátaks. Foreldrafélagi
Leikskólans Kríubóls færðu
þær einnig peningagjöf að
upphæð 50.000 krónur upp í
kaup á kastala á útisvæði sem
foreldrafélagið hefur verið að
safna fyrir undanfarið.
-þa
Harma
hægagang við
raflagningu
BORGARBYGGÐ: Byggð-
arráð Borgarbyggðar lýsir
yfir áhyggjum sínum vegna
hægagangs við lagningu
þriggja fasa rafmagns um
héraðið, meðal annars á Mýr-
um. Fram kom á fundi ráðs-
ins síðastliðinn fimmtudag
að samkvæmt upplýsingum
frá RARIK liggi fyrir að það
muni að óbreyttu taka um 20
ár að ljúka þessu verki. „Það
er verri staða en víða annars-
staðar á landinu. Þetta er óá-
sættanleg framtíðarsýn fyr-
ir margháttaða atvinnustarf-
semi í dreifbýli sveitarfélags-
ins. Byggðarráð Borgar-
byggðar skorar á þingmenn
kjördæmisins og ríkisvaldið
að taka þessa stöðu til um-
fjöllunar og leita allra leiða
til að flýta lagningu þriggja
fasa rafmagns um héraðið
til að tryggja búsetu og gera
stórum og tæknivæddum
fyrirtækjum kleyft að starfa í
dreifbýli Borgarbyggðar eins
og í öðrum héruðum lands-
ins,“ segir í ályktun byggðar-
ráðs sem samþykkt var sam-
hljóða.
-mm
Sveitarstjórn Reykhólahrepps af-
greiddi á fundi sínum 23. júní síð-
astliðinn erindi Bjarkar Stefáns-
dóttur og Herdísar Ernu Matth-
íasdóttur, íbúa á Reykhólum, um
umferðaröryggi gangandi veg-
farenda í Reykhólahreppi. Sam-
þykkti sveitarstjórn samhljóða að
festa kaup á tveimur umferðareyj-
um til að mynda eina hraðahindr-
un á Hellisbraut á Reykhólum, en
sá vegur heyrir undir sveitarfélagið.
Þá var sveitarstjóra enn fremur fal-
ið að koma erindinu á framfæri við
Vegagerðina og kanna möguleika
þess að koma fyrir hraðahindrun á
Karlseyjarvegi þar sem hann liggur
við íbúabyggð, en Karlseyjarvegur
heyrir undir Vegagerðina. Leyfi-
legur hámarkshraði á umræddum
stöðum er 35 km/klst. „Umferð-
areyjunum hefur þegar verið kom-
ið fyrir á Hellisbraut. Þær voru
pantaðar daginn eftir fundinn og
strax farið í að koma þeim á sinn
stað,“ segir Ingibjörg Birna Er-
lingsdóttir sveitarstjóri í samtali við
Skessuhorn. Þar með er komin upp
fyrsta hraðahindrunin á Reykhól-
um og innan skamms kemur í ljós
hvenær næsta hindrun verður sett
upp. „Vegagerðin er búin að koma
í vettvangsferð og ætlar að skila
niðurstöðum bráðlega varðandi
Karlseyjarveg,“ segir hún. Vega-
gerðin vinnur samkvæmt samgön-
guáætlun og þess því ekki að vænta
að sú hraðahindrun verði sett upp
á þessu ári. Ingibjörg Birna kveðst
hins vegar vonast til þess að verk-
efnið komist inn á samgönguáætl-
un næsta árs.
kgk
Fyrsta hraðahindrunin komin upp á Reykhólum
Umferðareyjurnar á Hellisbraut sem mynda fyrstu hraðahindrunina á Reykhólum.
Enn á eftir að skrúfa hámarkshraðaskiltin á eyjurnar, en reikna má með að starfs-
menn Vegagerðarinnar gangi í málið innan tíðar. Ljósm. Ágúst Már Gröndal.