Skessuhorn - 06.07.2016, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 20168
Skotthúfan tókst
mjög vel
STYKKISH: Um síðustu helgi
var þjóðbúningahátíðin Skott-
húfan haldin í Stykkishólmi í
þrettánda skipti. Upphaflega var
fólk hvatt til að mæta í þjóðbún-
ingi í Norska húsið – Byggðasafn
Snæfellinga og Hnappdæla og
þiggja þar kaffi og pönnukökur.
Var þátttaka ávallt mjög góð svo
tekin var sú ákvörðun fyrir tveim-
ur árum að stækka hátíðina og nú
nær hún yfir heila helgi. Í ár var
þemað Jörundur Hundadagakon-
ungur og byrjaði hátíðin á því að
horft var á sjónvarpsleikritið „Þið
munið hann Jörund“ á Eldfjalla-
safninu. Meðal þess sem boðið
var uppá á hátíðinni var ráðgjöf
varðandi þjóðbúninga, þjóðdans-
asýning hjá Þjóðdansahópnum
Sporinu og flutt voru tvö erindi
um Jörund í gömlu kirkjunni og
spiluð tónlist sem tengdist hon-
um. Hátíðin tókst mjög vel og
var þátttaka mjög góð. „Það voru
rúmlega 40 manns sem mættu í
þjóðbúningi, mest konur en líka
nokkrir karlar. Dagskráin gekk
líka mjög vel og var þetta heilt
yfir mjög góð helgi,“ segir Hjör-
dís Pálsdóttir safnastjóri í Norska
húsinu – Byggðasafni Snæfellinga
og Hnappdæla. -arg
Dagur íslenska
fjárhundsins
Haldið verður upp á dag íslenska
fjárhundsins mánudaginn 18. júlí
nk. Meðal þess sem boðið verð-
ur upp á er málþing sem hald-
ið verður í Þjóðminjasafninu í
Reykjavík til heiðurs Íslandsvin-
inum Mark Watson, en hann var
fæddur þennan dag árið 1906. Á
sínum tíma heillaðist Watson af
íslenska fjárhundinum og ákvað
að bjarga honum frá útrýmingu
og er alls óvíst að við ættum þjóð-
arhund ef ekki væri fyrir hans til-
verknað. Fæðingardagur Watson
var því valinn sem dagur íslenska
fjárhundsins. Fundarstjóri á mál-
þinginu verður Guðni Ágústsson.
Þórhildur Bjartmarz fv. formaður
HRFÍ flytur erindi, fjallað verður
um bjargvættinn Mark Watson í
samantekt Sigríðar Sigurðardótt-
urr safnstjóra í Glaumbæ í Skaga-
firði. Þá flytur Albína Hulda Páls-
dóttir dýrabeinafornleifafræðing-
ur erindi um landnámshunda og
kjölturakka. Málþingið hefst kl.
12 og lýkur um kl. 13 og eru all-
ir áhugasamir eru velkomnir. Því
má við þetta bæta að fjallað verð-
ur um íslenska fjárhunda í Grund-
arfirði um kvöldið. -mm
Sameinuðu
Hafró og Veiði-
málastofnun
RVK: Föstudaginn 1. júlí tók til
starfa ný sameinuð stofnun sem
nefnist Hafrannsóknastofnun -
rannsókna- og ráðgjafarstofnun
hafs og vatna. Þar með sameinast
Hafrannsóknastofnun og Veiði-
málastofnun. Starfsstöðvar nýrr-
ar stofnunar er á Skúlagötu 4 í
Reykjavík. Almennar upplýsingar
um hina nýju stofnun má finna á
heimasíðu hennar sem opnuð var
sama dag á slóðinni hafogvatn.is.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
25. júní – 1. júlí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 2 bátar.
Heildarlöndun: 1.981 kg.
Mestur afli: Ísak AK: 1.898 kg.
í tveimur löndunum
Arnarstapi 2 bátar.
Heildarlöndun: 21. 943 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 19.647
kg. í fjórum löndunum
Grundarfjörður 2 bátar.
Heildarlöndun: 122.171 kg.
Mestur afli: Þórunn Sverris-
dóttir VE: 79.019 kg. í einni
löndun
Ólafsvík 15 bátar.
Heildarlöndun: 149.312 kg.
Mestur afli: Egill SH: 37.950
kg. í tveimur löndunum
Rif 9 bátar.
Heildarlöndun: 84.613 kg.
Mestur afli: Örvar SH: 44.933
kg. í einni löndun
Stykkishólmur 13 bátar.
Heildarlöndun: 64.052 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 10.448
kg. í þremur löndunum
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Þórunn Sverrisdóttir VE –
GRU: 79.019 kg. 29. júní.
2. Örvar SH – RIF: 44.933 kg.
28. júní.
3. Steinunn SF – GRU: 43.152
kg. 28. júní.
4. Egill SH – ÓLA: 33.533 kg.
28. júní.
5. Gunnar Bjarnason SH –
ÓLA: 25.210 kg. 27. júní.
Bréf umboðsmanns Alþingis til
Borgarbyggðar vegna afgreiðslu á
erindum Þorsteins Mána Árnason-
ar var lagt fram á fundi byggðarráðs
fimmtudaginn 30. júní síðastliðinn.
Forsaga málsins er sú að Þorsteinn
Máni óskaði eftir svörum og gögn-
um frá Borgarbyggð eftir að úrskurð-
arnefnd umhverfis- og auðlindamála
felldi 24. september 2015 úr gildi
ákvörðun sveitarfélagsins um bygg-
ingarleyfi ferðaþjónustufyrirtækis við
Egilsgötu. Í bréfinu til Borgarbyggð-
ar ávítar umboðsmaður sveitarfélagið
fyrir óeðlilegar tafir á svörum við er-
indum Þorsteins Mána, að sveitar-
félagið hafi beint samskiptum sín-
um við hann til utanaðkomandi lög-
manns, sem og óeðlilegar tafir á svör-
um við fyrirspurnum umboðsmanns
vegna málsins.
Ástæðulausar tafir
Í fyrsta lagi gagnrýnir umboðsmaður
Alþingis sveitarfélagið fyrir óeðlilegar
tafir á svörum við erindum Þorsteins
Mána. Er þar vísað til stjórnsýslu-
laga og þeirrar óskráðu meginreglu
stjórnsýsluréttar að allar ákvarðanir í
stjórnsýslunni skulu teknar svo fljótt
sem auðið er, svokölluð málshraða-
regla. Þá minnir hann enn frem-
ur á þá óskráðu meginreglu íslensks
stjórnsýsluréttar að hver sá sem ber
upp skriflegt erindi við stjórnvald
á almennt rétt á að fá skriflegt svar,
nema erindið beri með sér að svars sé
ekki vænst. Umboðsmaður segir ljóst
á gögnum málsins að þau gefi ekki
fyllilega skýra mynd af samskiptum
Borgarbyggðar og Þorsteins Mána.
„Þannig er í tilteknum bréfum sveit-
arfélagsins vísað til dagsettra erinda
Þorsteins Mána sem ekki er að finna í
þeim gögnum sem sveitarfélagið hef-
ur sent mér,“ segir í bréfinu. Þau gögn
sem þar eru talin upp kveðst umboðs-
maður ekki hafa fengið í hendurnar
þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um.
Hann telur þó ljóst að meðferð og af-
greiðsla erindanna hafi hvorki verið í
samræmi við svokallaða málshraða-
reglu né þá óskrifuðu meginreglu að
skriflegum erindum skuli svara skrif-
lega nema svars sé ekki vænst. Seg-
ir umboðsmaður að ekki hafi ver-
ið sýnt fram á ástæður sem réttlættu
tafir á meðferð málsins á þeim tíma
sem samskiptin áttu sér stað. Þá verði
enn fremur ekki séð að Borgarbyggð
hafi af eigin frumkvæði tilkynnt Þor-
steini Mána um frekari tafir á svörum
við erindum hans. „Ég beini því til
Borgarbyggðar að hafa framangreind
sjónarmið í huga framvegis,“ áréttar
umboðsmaður.
Umboðsmanni torvelt
sitt eftirlitshlutverk
Þá gagnrýnir umboðsmaður Alþing-
is vinnubrögð Borgarbyggðar eft-
ir að embættið sendi sveitarfélaginu
bréf þar sem óskað var eftir upplýs-
ingum um hvað liði meðferð máls
Þorsteins Mána og afgreiðslu. Fyr-
irspurning var síðan ítrekuð tvisvar.
Þykir umboðsmanni svör hafa borist
óeðlilega seint, en svör og gögn bár-
ust að um fimm mánuðum liðnum
frá upphaflegri fyrirspurn embætt-
isins. „Ekki hafa komið fram nein-
ar skýringar á því hvers vegna slík-
ur dráttur varð á svörum til mín eða
af hverju tiltekin gögn hafa enn ekki
borist,“ segir í bréfinu. Vísað er í
lögfestan og víðtækan rétt umboðs-
manns til að krefja stjórnvöld um þær
upplýsingar og sem hann þarfnast til
að geta sinnt því eftirlitshlutverki
með stjórnsýslunni sem honum er
ætlað. Afhendi stjórnvöld umboðs-
manni ekki nauðsynlegar skýringar
og gögn innan hæfilegs tíma frá því
þeirra er óskað er honum gert erfitt
fyrir að sinna því hlutverki. Þær tafir
sem urðu í þessu máli telur umboðs-
maður ekki samræmast þeim sjón-
armiðum sem lög um umboðsmann
Alþingis eru byggð á. „Ég vænti þess
að Borgarbyggð hafi framangreint í
huga í störfum sínum framvegis,“
ritar umboðsmaður.
Villandi að vísa
á lögfræðing
Að lokum er sveitarfélagið gagnrýnt
fyrir að hafa beint samskiptum sín-
um við Þorstein Mána til utanað-
komandi lögmanns. Umboðsmað-
ur segir að slíkt geti ekki talist eðli-
legt í samskiptum þegar um eiginleg
stjórnsýslumál er að ræða. Almennt
skuli þess gætt við meðferð mála
af hálfu stjórnsýslunnar að hún sé
eins skilvirk og einföld og hægt er,
ákvarðanir teknar svo fljótt sem auð-
ið er og að meðferð mála verði ekki
óhóflega kostnaðarsöm eða íþyngj-
andi fyrir borgarana sem eiga í hlut.
Slíkar aðstæður geti villt um fyrir
borgurunum. Mál rekið í stjórnsýsl-
unni á ábyrgð hins opinbera skuli
fara fram með reglum opinbers rétt-
ar. Því tjói ekki að stjórnvöld beri
fyrir sig einkaréttarlegum reglum.
Telur umboðsmaður ástæðu til að
koma þessari ábendingu á framfæri
við Borgarbyggð. „Jafnframt að hafa
þau sjónarmið sem hér hafa verið
rakin í huga í framtíðarstörfum sín-
um.“
kgk
Umboðsmaður setur ofan í við Borgarbyggð
„Ég er kominn hér á einhver aula-
þorskamið, alveg ótrúlegir bolt-
ar sem ég er að fá á línuna núna,“
sagði Alfons Finnsson fréttaritari
Skessuhorns í Ólafsvík þegar rit-
stjórinn sló á þráðinn til hans síð-
degis í gær. Fonsi er á strandveið-
um líkt og hundruðir annarra og
rær þessa dagana á Frosta HS.
Hann segir að menn þurfi að róa
lengra eftir fiski nú, miðað við í
vor þegar fiskað var nánast upp í
harðalandi. Það fylgi árstímanum.
„Nú er ég staddur á Bárðargrunni,
um sjö mílur norðan af Ólafs-
vík. Það er búið að vera tregt, en
sá fiskur sem er að taka er gríð-
arvænn og þarf því ekki marga í
dagsskammtinn.“ Myndin sem hér
fylgir er af þorski sem lá við borð-
stokkinn meðan sjóarinn síkáti
mundaði myndavélina og sendi
ritstjóranum hana til sönnunar um
lýsingarnar. Eftir að Fonsi var bú-
inn að taka fiskinn um borð á ip-
poni, hringdi hann aftur og sagði
að sá guli hefði verið gríðarstór.
„Hann er samt aðeins styttri en
ég, en lengri en frúin,“ sagði hann
og skellihló. mm/ Ljósm. af.
„Sá stóri er aðeins styttri en ég“
Mikil umferð hefur verið um
umdæmi Lögreglunnar á Vestur-
landi að undanförnu enda ferða-
mannatíminn í hámarki og sumar-
veðrið gott flesta daga. Umferðin
hefur að mestu gengið vel fyrir sig,
að sögn Theódórs Þórðarsonar hjá
LVL. Alls urðu níu umferðaróhöpp
í vikunni sem leið, flest minnihátt-
ar. Öll voru óhöppin án teljandi
meiðsla á fólki enda allir í örygg-
isbeltum. Af þessum níu óhöpp-
um voru þrjár útafkeyrslur á Snæ-
fellsnesvegi sem áttu það sameig-
inlegt að ökumennirnir sem lentu
útaf, höfðu allir sofnað undir stýri.
Ökumennirnir voru á svipuðum
aldri, eða um og yfir sextugt. Ekki
er vitað hvað varð til þess að þeim
rann í brjóst en allir sluppu þeir vel
utan þess að „vakna upp við vond-
an draum“.
Bæjarhátíðin „Írskir dagar“ sem
haldin var á Akranesi um liðna helgi
fór að mestu leyti mjög vel fram, að
sögn lögreglu. Nokkuð var um að
laganna verðir væru kallaðir til vegna
pústra og óláta og einnig vegna ung-
menna og fólks á besta aldri, af báð-
um kynjum, sem hafði drukkið of
mikið áfengi í kringum Lopapeysu-
ballið. Nokkrar líkamsárásir voru til-
kynntar en ekki er enn ljóst hvort að
kærumál verða úr þeim tilkynning-
um. Tveir ökumenn voru teknir fyr-
ir meinta ölvun við akstur og einn
grunaður um akstur undir áhrifum
fíkniefna á Akranesi um helgina.
Tilkynnt var um mann á sextugs-
aldri sem veittist að ungum mönnum
á torfæruhjólum við Ölver í Hval-
fjarðarsveit um liðna helgi. Var mað-
urinn sagður hafa barið með grjóti
og unnið skemmdir á hlífðarbúnaði
annars hjólamannsins, hjólinu hans
sem og bifreið sem ungi maðurinn
var á. Virðist sem maðurinn hafi ver-
ið ósáttur við akstur ungu mannanna
á hjólunum eftir vegslóðum á svæð-
inu sem hann hafði þó heimilað þeim
skömmu áður, að þeirra sögn.
Samtals voru 850 ökumenn mynd-
aðir vegna hraðaksturs í síðustu viku
af sjálfvirku hraðamyndavélunum,
þar af um 270 við Fiskilæk sunnan
Hafnarfjalls. Þá tóku lögreglumenn
um 50 ökumenn fyrir of hraðan akst-
ur í umferðareftirliti sínu víðs vegar í
umdæminu.
mm
Annir í umferðargæslu og fleiru