Skessuhorn - 06.07.2016, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 9
Reykholtskirkja
Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
- L
jó
sm
. G
Ó
Messa sunnudaginn 10. júlí
kl. 14.00
Jökulmílan er ein lengsta hjólreiða-
keppni fyrir einstaklinga sem hald-
in er hér á landi. Hún er haldin á
Snæfellsnesi ár hvert. Hjólaðar eru
rétt rúmlega 100 enskar mílur, eða
162 km. Lagt er af stað frá Grund-
arfirði, hjólað til vesturs gegnum
Rif og þaðan fyrir Snæfellsjökul, til
baka eftir suðurströnd Snæfellsness
og norður Vatnaleið áður en kom-
ið er í mark í Grundarfirði. Einnig
er hjóluð hálf Jökulmíla, 80 km leið
frá Grundarfirði í Stykkishólm og
til baka, sem og Mílusprettur, ætl-
aður yngri þátttakendum.
Keppnin er haldin í nánu sam-
starfi við Stykkishólmsbæ, Grund-
arfjarðarbæ og Snæfellsbæ. Sveit-
arfélögin styrkja verkefnið og seg-
ir Örn Sigurðsson, einn skipuleggj-
enda keppninnar, að þeir peningar
hafi farið í að styrkja viðveru björg-
unarsveitanna í brautinni á með-
an keppni stendur. Það kom sér vel
þegar keppnin var haldin þetta árið,
síðasta laugardag, því vegna veðurs
neyddust skipuleggjendur til þess
að fella niður hina eiginlegu Jökul-
mílu. Hættulegir sviptivindar gerði
hjólreiðaköppum erfitt fyrir. Þrátt
fyrir það ganga aðstandendur við-
burðarins og keppendur sáttir frá
borði. Keppt var í hálfri Jökulmílu
og Míluspretti, og þátttakan var
prýðileg, alveg sambærileg við síð-
asta ár. „Þetta gekk ágætlega úr því
sem komið var,“ segir Örn. „Hálfa
Jökulmílan gekk vel. Veðrið á norð-
anverðu nesinu var alveg ágætt og
allir kláruðu. Þeir krakkar sem tóku
þátt í Mílusprettinum voru glaðir
og voru með verðlaunapeningana á
sér langt fram á kvöld,“ segir hann
ánægður. „En hvað varðar heilu
Jökulmíluna þá voru vindstrengir
til staðar á sunnanverðu nesinu sem
voru illviðráðanlegir. Þegar tveir
hjólarar höfðu fallið í götuna að-
eins vegna vinds þá var ákveðið að
blása hana af, en örfáir kláruðu þó
hringinn,“ útskýrir Örn.
Þegar keppnin hafði verið blásin
af hófust aðgerðir við að ná kepp-
endum í hús. Örn segir að það hafi
gengið vel. „Það gekk alveg ótrú-
lega vel með hjálp heimamanna á
Snæfellsnesi og björgunarsveitanna
Lífsbjargar og Berserkja, sem voru
með viðveru í brautinni. Allir voru
af vilja gerðri að koma öðrum til
aðstoðar,“ segir hann.
Almenn ánægja
meðal keppenda
Að keppni lokinni var öllum hjóla-
görpum boðið upp á kjötsúpu, en
Golfklúbburinn Vestarr sá um veit-
ingarnar sem og drykkjarstöðvarn-
ar í brautinni. Keppendur voru að
sögn Arnar almennt sáttir, þrátt fyrir
að fella hafi þurft niður keppni. „Við
höfum ekki fengið að heyra annað frá
keppendum en þeir hafi verið ánægð-
ir með ferðina vestur. Einnig er al-
menn ánægja með að keppni í Jökul-
mílunni hafi verið blásin af. Það var
það eina skynsamlega í stöðunni og
góð ákvörðun,“ segir hann og bætir
því við að stefnan sé að halda keppn-
ina aftur á næsta ári. „Snæfellsnesið
er rosalega fallegur staður að koma á
og heimsækja. Við Hjólamenn, sem
erum að skipuleggja þennan viðburð,
erum með Þingvallakeppnina líka,
þar sem hjólaðir eru nokkrir hringir í
þjóðgarðinum. Við erum alveg á því
að þetta séu tveir fallegustu hringir
á landinu til að hjóla á. Það er allt-
af tekið vel á móti okkur á Snæfells-
nesi og við erum farin að hlakka til
næsta árs,“ segir Örn Sigurðsson að
lokum.
kgk/ Ljósm. sk.
Fella þurfti niður Jökulmíluna vegna veðurs
Hluti þeirra hjólreiðamanna sem tók þátt síðasta laugardag.
GAMLI SKÓLI
SKÓLA-
STJÓRAHÚS
F
R
Ú
A
R
G
A
R
Ð
U
R
HALLDÓRSFJÓS
SKEMMAN
KAFFIHÚS GRUNNSKÓLI
LANDBÚNAÐARSAFN
B
Ú
T
Æ
K
N
I-
H
Ú
S
GAMLA-BÚT
HVANNEYRI
PUB
ULLARSEL
LEIKFIMIHÚS
MARKAÐUR
HVANNEYRARHÁTÍÐ
9.júlí KL. 13 - 17
#HVANNEYRARHATID / NÁNARI DAGSKRÁ Á FACEBOOK
KONUR BREYTTU BÚHÁTTUM Bjarni Guðmundsson les úr bók sinni um sögu Mjólkurskólanna / Ókeypis í LANDBÚNAÐARSAFN Íslands /
Heimsókn Fornbílafjelags Borgarfjarðar / TÓVINNA á vegum Ullarselsins / ERPSSTAÐIR með íssölu / afurðir frá HÁAFELLI
VEITINGASALA & MARKAÐUR á Hvanneyrartorfunni / SKEMMTIDAGSKRÁ kerruferðir, ratleikur, andlitsmálun og leiktæki fyrir börn,
TÓNLIST OG SÖNGUR í kirkjunni / keppni í pönnukökubakstri / HÚSDÝR með ungviði til sýnis / og fleira / Allir velkomnir!