Skessuhorn - 06.07.2016, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 201610
Í frétt frá velferðarráðuneytinu
kemur fram að innleiðingu hreyfi-
seðla er nú lokið um allt land.
Hreyfiseðlum er nú ávísað í með-
ferðarskyni á öllum opinberum
heilbrigðisstofnunum, sjúkrahús-
um, stofnunum utan spítala, þ.e.
á Reykjalundi og Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands, hjá
sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum
og hjá sjálfstætt starfandi heilsu-
gæslulæknum. Notkun hreyfiseðla
eykst hratt.
Hreyfiseðill er meðferðarúrræði
sem læknir skrifar upp á í samráði
við sjúkling og er ávísun á hreyf-
ingu eftir forskrift. Sjúklingi er vís-
að til hreyfistjóra sem útbýr hreyfi-
áætlun í samráði við hann. Sjúkling-
urinn framfylgir áætluninni upp á
eigin spýtur en undir eftirliti hreyf-
istjóra sem fylgist með árangri og
meðferðarheldni. „Sýnt hefur verið
fram á að með markvissri hreyfingu
megi draga úr lyfjanotkun, lækna-
heimsóknum og innlögnum. Mark-
mið með innleiðingu hreyfiseðla er
að taka upp gagnlega og hagkvæma
meðferð við langvinnum sjúkdóm-
um og stuðla að því að hreyfingu
sé beitt á markvissari hátt til for-
varna og meðferðar í heilbrigðis-
þjónustu.
m
Búið að innleiða noktun
Hreyfiseðla um allt land
Hreyfiseðill er nánast eins og lyfseðill. Í stað þess að ávísa á lyf eru þeir hvatning
til að fólk hafi samband við sérstaka hreyfistjóra sem hjálpa svo viðkomandi að
skipuleggja hreyfiáætlun.
Tekin hefur verið ákvörðun um að
á næstu árum muni starfsemi Dval-
arheimilis aldraðra í Stykkishólmi
breytast og verði framvegis hluti af
rekstri Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands. Starfsemin mun þá ekki leng-
ur heyra undir bæjarstjórn Stykkis-
hólms. Unnið er að undirbúningi og
hönnun breytinga á húsnæði til að
það henti sem best rekstri hjúkrun-
arheimilis. Húsnæðið er stórt og að
loknum breytingum getur það hæg-
lega rúmað þá starfsemi sem stefnt
er að, að sögn Guðjóns Brjánsson-
ar forstjóra HVE. Hann segir í sam-
tali við Skessuhorn að rekstrarform
hinna hefðbundnu dvalarheimila,
eins og Íslendingar hafa þekkt þau, sé
sífellt að breytast og rýmum á hjúkr-
unarheimilum að fjölga. Nú þeg-
ar sé til dæmis til staðar á Hólmavík
og Hvammstanga sambærilegt fyrir-
komulag og stefnt er að verði í Stykk-
ishólmi. Víðar um landið megi finna
dæmi um sambærilega þróun.
Í sameiginlegri tilkynningu frá
Guðjóni Brjánssyni forstjóra HVE
og Sturlu Böðvarssyni bæjarstjóra
kemur fram að fyrsti liður í þess-
um breytingum í Stykkishólmi verði
að sameina eldhússtarfsemi þessara
stofnana í húsnæði sjúkrahússins, en
þar verður eldhúsaðstaðan bætt veru-
lega svo sinna megi þessu verkefni
við bestu aðstæður. „Dvalarheimil-
ið mun fyrst um sinn annast rekstur
eldhússins undir yfirstjórn Kristín-
ar Sigríðar Hannesdóttur forstöðu-
konu Dvalarheimilisins. Í sameinuðu
eldhúsi verður því matargerð fyrir
sjúkrahúsið, dvalarheimilið, grunn-
skólann og Ásbyrgi. Matargerð fyr-
ir Leikskóla Stykkishólms mun síð-
an bætast við um næstu áramót. Það
er von okkar að þessi breyting verði
farsæl og breytingin verði mikilvæg-
ur liður í því að bæta starfsaðstöðu og
tryggja til frambúðar alla starfsemi
og þjónustu á þessum stofnunum
sem gegna svo mikilvægu hlutverki,“
segir í yfirlýsingu Guðjóns Brjáns-
sonar og Sturlu Böðvarssonar.
Í frétt Skessuhorns frá maí 2014
kom fram að Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra skipaði þá starfs-
hóp sem gera átti tillögur um sam-
starf Stykkishólmsbæjar, Heilbrigð-
isstofnunar Vesturlands (HVE) og
velferðarráðuneytisins með það að
markmiði að samhæfa stofnanaþátt
öldrunarþjónustu á svæðinu. Starfs-
hópnum var ætlað að styðjast við
skýrslur og samantektir sem unn-
ar höfðu verið varðandi endurskipu-
lagningu öldrunarþjónustu í Stykkis-
hólmi. Þess var jafnframt vænst með
skipan starfshópsins að tillögurnar
tækju mið af því að samþætting öldr-
unarþjónustu styrkti alla starfsemi
HVE í Stykkishólmi. Starfshópur
þessi skilaði af sér skýrslu 29. sept-
ember 2014.
mm
Starfsemi dvalarheimilis breytt og
fært undir hjúkrunarsvið HVE
Árið 2005 gerði Grundarfjarðarbær
samning við Orkuveitu Reykjavíkur
þess efnis að OR myndi hitaveitu-
væða Grundarfjarðarbæ gegn því
að fá að yfirtaka Vatnsveitu Grund-
arfjarðar. Grundarfjarðarbær efndi
sinn hluta samningsins 1. janúar 2006
þegar kaup OR á Vatnsveitu Grund-
arfjarðar gengu í gegn. Hálft ellefta
ár er því frá því að Grundarfjarðar-
bær efndi sinn hluta samningsins en
enn bólar ekkert á hitaveitu í Grund-
arfirði. 14. júní síðastliðinn var hald-
inn fundur í Ráðhúsi Grundar-
fjarðar með fulltrúum bæjarstjórn-
ar Grundarfjarðar og Orkuveitu
Reykjavíkur/Veitum ohf. Á fundin-
um kölluðu fulltrúar bæjarstjórnar
eftir efndum Orkuveitunnar en lít-
ið kom út úr þeim fundi. Á grund-
velli þess að Grundarfjarðarbær tel-
ur OR ekki ætla að standa við samn-
inginn frá 2005 sér bærinn ekki aðrar
leiðir færar en að leita réttar síns með
aðstoð lögmanns. „Það hefur ekkert
gerst í þessum málum frá árinu 2008
að hálfu Orkuveitu Reykjavíkur. Við
höfum fundað ítrekað og ýtt eftir að
eitthvað gerist í málinu en það virð-
ist vera lítill áhugi fyrir því hjá OR,“
segir Þorsteinn Steinsson bæjarstjóri
Grundarfjarðarbæjar í samtali við
Skessuhorn.
Hafa leitað til
jarðfræðinga
„Við höfum reynt að ýta við málinu
með ýmsum hætti. Höfum m.a. rætt
við jarðfræðinga og fengið greiningu
á því hvar væri vænlegast að sækja
heitt vatn. Jarðfræðingar hafa bent á
að hægt sé að virkja í landi Kóngs-
bakka bæjanna og koma upp hita-
veitu. Við höfum bent Orkuveitunni
á þessar lausnir en lítill áhugi virð-
ist á efndum. Kóngsbakki er vissu-
lega aðeins lengra í burtu en upphaf-
lega stóð til að byggja upp hitaveitu
en samt sem áður er það sá kostur
sem þeir jarðfræðingar sem við höf-
um talað við telja vænlegastan til ár-
angurs. Við viljum vinna þetta í góðu
samstarfi við Orkuveituna en starfs-
mönnum þar skortir allan vilja til
að láta þetta mál ganga. Ótækt er ef
samningurinn gengur bara í aðra átt-
ina. Við sjáum því ekki annan kost
í stöðunni en að leita réttar okkar,“
segir Þorsteinn sem segir að Orku-
veitan hafi valdið vonbrigðum í mál-
inu með algeru viljaleysi til úrbóta í
hitaveituvæðingu Grundarfjarðar.
Engin hitaveita er í Grundarfirði og
vatnið því hitað upp með rafmagni.
„Það er mikið hagsmunamál fyrir
bæinn og íbúa hans að fá hitaveitu,“
segir Þorsteinn.
Ekki hægt að finna vatn
fyrir hitaveitu
Inga Dóra Hrólfsdóttir fram-
kvæmdastjóri Veitna ohf. segir í sam-
tali við Skessuhorn að Veitur hafi
reynt til þrautar að koma upp hita-
veitu í Grundarfirði. „Við höfum lagt
hundruð milljóna í að leita að heitu
vatni við Grundarfjörð. Það hafa far-
ið miklu meiri peningar í þetta en við
ætluðum. Upphaflega stóð til, árið
2005, að vatn fyrir hitaveitu kæmi frá
Berserkseyri og tekur samningur við
Grundarfjarðarbæ eingöngu til leit-
ar og nýtingar á heitu vatni þar. Það
kom svo í ljós að vatnið þar var ónot-
hæft. Það voru vissulega vonbrigði en
svona er þetta með náttúruna, það er
alltaf áhætta þegar farið er í jarðhita-
leit. Það hafa verið vísbendingar um
að hægt sé að finna nothæft vatn á
Kóngsbakka en það er þó utan samn-
ings. Við höfum samt skoðað þann
möguleika en komist að þeirri niður-
stöðu að það sé langt frá því að vera
arðbært og rafmagnið því skárri kost-
ur. Við höfum því tjáð Grundarfjarð-
arbæ að við getum ekki hitaveituvætt
bæinn. Við vorum öll að vilja gerð og
saman í liði með Grundarfjarðarbæ
að reyna að láta þetta ganga. Við rák-
umst hins vegar á vegg og getum því
ekki lagt hitaveitu til Grundarfjarð-
ar. Við höfum þegar efnt samninginn
með því að reyna til þrautar að finna
nýtanlegt vatn á Berserkseyri,“ segir
Inga Dóra að endingu. bþb
Grundarfjarðarbær leitar réttar síns í hitaveitumálum
Í frétt Skessuhorns í mars 2007 sagði m.a. að jarðborinn Sleipnir hafi lokið við borun 1.500 metra djúprar skáholu á Berserkseyri. Í fréttinni sagði: „Verkefnið er unnið af
Orkuveitu Reykjavíkur, sem hefur sent frá sér tilkynningu um að árangur sé minni en vænst var. Í ljós kom að sprungan, sem leiðir yfir 80°C heitt vatn til yfirborðs, hallar tals-
vert meira en reiknað var með. Þær æðar sem fundust í holunni liggja því of grunnt í jarðlögunum til að hægt sé að útiloka samgang þeirra við kaldan sjó í langtímavinnslu.
Að auki eru æðarnar vatnsminni en í eldri holum,” sagði í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur.