Skessuhorn - 06.07.2016, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 201612
Margmenni var við opnun gesta-
stofu Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls
í endurgerðu húsnæði á Malarrifi
síðastliðinn þriðjudag. Kemur hún í
stað gestastofnunnar sem verið hef-
ur á Hellnum. Flutninginn bar upp
á 15 ára afmæli þjóðgarðsins. Við
þetta tilefni var enduropnuð sýn-
ing um náttúru og nýtingu svæð-
isins og sögu þjóðgarðsins. Sigrún
Magnúsdóttir umhverfis- og auð-
lindaráðherra opnaði gestastofuna
formlega. Flutt voru ávörp fulltrúa
þjóðgarðsins, Umhverfisstofnun-
ar og Snæfellsbæjar. Í þessum fyrr-
um fjárhúsum á Malarrifi rúmast
nú gestastofa með fyrrgreindri sýn-
ingu, upplýsingamiðstöð, vinnu-
og fundaaðstaða, starfsmannaað-
staða, geymsla og vinnurými. Nú
hefur aðstaða þjóðgarðsins, starfs-
manna og gesta, batnað til muna
og ber t.d. að nefna að nú eru að-
gengileg salerni allan sólarhring-
inn í húsinu en verulega hefur skort
upp á að sú frumþörf ferðamanna
hafi verið uppfyllt.
Kristín Linda Árnadóttir for-
stjóri Umhverfisstofnunar segir
að með opnuninni sé stofnunin að
bregðast við auknum ferðamanna-
straumi inn á svæðið og sinna bet-
ur þeirri frumskyldu þjóðgarða að
fræða um náttúru og sögu svæðis-
ins, bæði fræða gesti og ekki síður
nærsamfélagið sem er grunnurinn
að öflugum þjóðgarði. Jón Björns-
son tók nýverið við starfi þjóðgarð-
svarðar og var eitt fyrsta verk hans
að vinna að flutningi gestastofnnar.
Gestastofa þjóðgarðsins hef-
ur verið opin stærstan hluta ársins
en stefnt verður að heilsársopnun
alla daga ársins enda talið nauðsyn-
legt að bregðast við vaxandi fjölg-
un ferðamanna árið um kring með
bættri þjónustu. Í sumar verður
opið frá klukkan 10 til 17 alla daga.
mm/ Ljósm. Umhverfisstofnun.
Laugardaginn 29. júní árið 1980
vakti Ísland athygli umheimsins,
líkt og nú. Þá var Vigdís Finnboga-
dóttir kjörin forseti Íslands. Í þess-
um kosningum bar hún sigurorð af
þremur körlum. Dagana fyrir kosn-
inguna starfaði Ólafur Jóhannesson
bóndi og vélamaður á Hóli í Lund-
arreykjadal að jarðvinnslu fyrir
bændurna Jón og Auði í Ausu. Við
það verk var hann vopnaður jarðýt-
unni Caterpillar D 6B frá fyrirtæki
hans og félaga; Jörva á Hvanneyri.
Kaustu kerlinguna?
Áður en verkið hófst spurði ýtumað-
ur Jón bónda hvernig hann vildi að
spildan liti út að verki loknu, þ.e.a.s.
hvaða paragrafi í gæðahandbókinni
skyldi fylgt. Jón gaf skýrt svar, en þó
í véfréttarstíl: „Ég vil að spildan verði
þannig úr garði gerð að nemendur á
Hvanneyri þurfi ekki á aðra bæi að sjá
vel mótaða túnspildu.“ Ólafur vann
að verkinu í nokkra daga og lagði sig
fram um að verða við óskum Jóns. Að
hans sögn runnu 800 lítrar af diesel-
olíu gegnum spíssa vélarinnar meðan
á vinnslunni stóð. Á kjördag brá Ólaf-
ur sér frá og kaus sér nýjan forseta. Er
hann kom til baka spurði Jón hann
formálalaust þessarar frómu spurn-
ingar: „Kaustu kerlinguna?“ Gekkst
ýtumaður greiðlega við því.
Þessi kosningaspilda hefur nú góð-
an ávöxt borið starfstíma tveggja for-
seta og er ekkert lát þar á. Enn er
kjörinn nýr forseti og enn er færður
út „akurlendis jaðar“ í Ausu. Og þótt
Jón sé ekki lengur í kallfæri, var reynt
að fylgja gamalli forsögn hans. „Að
þurfa ekki á aðra bæi..“ Jarðýtunni, að
vísu nokkru yngri vél en Ólafur forð-
um, stýrði að þessu sinni Haukur Júlí-
usson Jörvamaður, sem jafnframt rifj-
aði upp þá frásögn sem að framan
greinir. mm
Vigdísarvöllur og Guðnagrund í Ausu
Vigdísarvöllur sem Ólafur Jóhannesson vann að kosningasumarið 1980. Kosningasumarið 2016 færði Haukur út „akurlendis jaðar“ í Ausu, sú spilda heitir
nú Guðnagrund.
Gestastofa Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls flutt að Malarrifi
Velgengni karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu á Evrópumótinu í Frakk-
landi hefur vakið heimsathygli.
Mönnum leikur forvitni á að vita
hvernig svo fámenn þjóð geti náð
slíkum árangri. Á miðvikudaginn
síðastliðinn lauk níundu umferð
Pepsi deildar karla með leik ÍA og
Stjörnunnar á Akranesvelli. Leikn-
um var sjónvarpað á Stöð2 sport en
þeir voru þó ekki einu sjónvarps-
mennirnir á svæðinu. Franska sjón-
varpsstöðin TF1 var einnig að taka
upp á meðan á leik stóð. TF1 vann
að innslögum í dægurmálaþátt á
stöðinni. Meginþema innslaganna
er fótboltamenningin á Íslandi og
hvernig stemningin er í kringum
EM. Ástæðan fyrir að ÍA – Stjarnan
varð fyrir valinu er sú að sjónvarps-
stöðin ætlaði að reyna að fanga
hvernig umgjörðin og stemningin
í kringum leiki hérlendis væri. Auk
þess að taka upp á meðan leik stóð
voru tekin viðtöl við m.a. Helgu
Sjöfn Jóhannesdóttur formann
ÍA og Gunnlaug Jónsson þjálfara.
Frönsku sjónvarpsmennirnir höfðu
einnig mikinn áhuga á Akraneshöll-
inni og telja að svo góð inniaðstaða
til æfinga og keppni hafi mikið að
segja um velgengni knattspyrnunn-
ar hér á landi.
bþb
Frönsk sjónvarps-
stöð tók upp leik
ÍA og Stjörnunnar
Augu heimsins beinast um þessar mundir að Íslandi. Á miðvikudaginn í síðustu
viku mætti frönsk sjónvarpsstöð á Skipaskaga og tók upp atriði í leik ÍA og
Stjörnunnar í Pepsi deild karla, auk þess að ræða við heimafólk. Hér er hins vegar
þjálfari íslenska liðsins í viðtali við fréttamenn á franskri grund.