Skessuhorn - 06.07.2016, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 13
Hvanneyrarhátíðin 2016 verður
haldin laugardaginn 9. júlí næst-
komandi frá klukkan 13 til 17.
„Þennan dag taka heimamenn vel á
móti gestum og gangandi með fjöl-
breyttri dagskrá fyrir alla fjölskyld-
una, segir í tilkynningu frá undir-
búningshópi hátíðarinnar. „Upp-
haf Hvanneyrarhátíðar má rekja til
Safnadagsins sem Landbúnaðar-
safn Íslands tók þátt í. Þá var vel-
unnurum sem og gömlum nem-
endum boðið að koma á Hvann-
eyri og kíkja á safnið, sér að kostn-
aðarlausu og hitta gamla félaga og
vini. Nú hefur Safnadagurinn verði
færður fram í maí en Hvanneyr-
arhátíðin stendur nú sem sér við-
burður. Hefur henni vaxið fiskur
um hrygg undanfarin ár og fjöldi
gesta margfaldast á milli ára.“
Meðal dagskráliða Hvanneyr-
arhátíðar í ár eru heyvagnaakst-
ur, opið fjós, pönnukökubakstur-
skeppni, leiðsögn um Yndisgarða á
Hvanneyri og markaður í íþrótta-
húsinu. Danshópurinn Sporið tekur
sporið, húsdýr með ungviði verða á
staðnum og andlitsmálun og leikir
verða í boði fyrir börnin.
Frítt á
Landbúnaðarsafnið
Sett verður upp sýning á gömlu
skólaspjöldum Bændaskólans í
skólastofum Gamla skóla ásamt
myndum frá nærri 130 ára skóla-
sögu Hvanneyrar. „Tenging fyrr-
um nemenda Bændaskólans við
Hvanneyri er sterk. Hjá mörgum
er það orðinn fastur liður að sækja
Hvanneyrarhátíðina þar sem gaml-
ir og góðir tímar eru rifjaðir upp,
segir í tilkynningu undirbúnings-
hópsins.
Ókeypis aðgangur verður að
Landbúnaðarsafni Íslands og ætla
konurnar sem standa að Ullarsel-
inu að sýna listir sínar á tröppum
safnsins. Félagar í Fornbílafjelagi
Borgarfjarðar munu sína bifreiðar
sínar, ungum og öldnum til gam-
ans, en innkoma fornbílafélags-
ins er einn af vinsælustu viðburð-
um hátíðarinnar ár hvert. Þá verð-
ur gamli Andakílsskóli opinn ef fólk
vill kynna sér þá starfsemi sem þar
fer fram.
Geitalatté og upplestur
Erfðalindasetur Íslands verður
með upplýsingar um íslensku hús-
dýrin og leggur til geitamjólk frá
Háafelli sem notuð verður í sér-
lagað geitalatté sem selt verður í
kaffihúsinu Skemmunni. Þá mun
Bjarni Guðmundsson, forstöðu-
maður Landbúnaðarsafnsins, lesa
upp úr nýrri bók sinni, Konur
breyttu búháttum saga Mjólkur-
skólans á Hvanneyri og á Hvítár-
völlum. Rjómabúið á Erpsstöðum
í Dölum mun taka þátt í hátíðinni
með kynningu og sölu á vörum
sínum.
Formleg dagskrá hefst klukkan
13 og lýkur klukkan 17, sem fyrr
segir. Allar nánari upplýsingar um
hátíðina og dagskrá má finna á Fa-
cebook-síðu hátíðarinnar www.fa-
cebook.com/hvanneyrarhatid.
kgk/ Ljósm. úr safni.
Fjölbreytt dagskrá á
Hvanneyrarhátíð á laugardaginn
Húsdýr með ungviði verða á staðnum.
Markaðurinn í íþróttahúsinu er fastur liður á Hvanneyrarhátíð.
Bæjarhátíðin Heim í Búðardal
verður haldin um næstu helgi,
dagana 8. – 10. júlí. „Þetta er fyrst
og fremst fjölskylduhátíð þar sem
lögð er áhersla á að hafa nóg í boði
fyrir alla fjölskylduna,“ segir Svana
Hrönn Jóhannsdóttir íþrótta- og
tómstundafulltrúi í Dalabyggð í
samtali við Skessuhorn. „Það verð-
ur allt frítt sem hátíðin býður upp
á, nema dansleikurinn á laugar-
dagskvöldinu en hann er hluti af
fjáröflun fyrir UDN.“
Hátíðarhöldin hefjast á föstu-
deginum klukkan 16 þegar Ein-
ar Mikael töframaður verður
með töfrabragðanámskeið í Dala-
búð. „Við verðum svo með ótrú-
lega skemmtilegan fjölskyldurat-
leik á föstudeginum þar sem fólk
á að safna stigum í Búðardal. Það
verða vonandi margir sem taka
þátt í því,“ segir Svana. Þá verður
boðið upp á kjötsúpu í heimahús-
um og lýkur kvöldinu á kvöldvöku
fyrir alla fjölskylduna í Dalabúð.
Gleðin heldur áfram allan laug-
ardaginn með þéttri dagskrá frá
morgni og fram á nótt. Á laugar-
dagsmorgninum verður boðið upp
á morgunverð í Dalabúð þar sem
gestir hátíðarinnar geta komið
saman og hist. Eftir morgunverð-
inn mæta Solla stirða og Íþróttaálf-
urinn á svæðið. „Hápunkturinn er
líklega Vestfjarðarvíkingurinn en
það verður keppt í tveimur loka-
greinum og kemur því í ljós hver
sigrar,“ segir Svana. Einnig verð-
ur veltibíllinn á svæðinu, kassabíl-
arallý, leirlistarsýning verður opn-
uð, systurnar Steinunn og Dagný
Matthíasdætur verða með ljós-
mynda- og myndlistarsýningu og
Slökkvilið Dalabyggðar setur upp
froðurennibraut. Í lok kvölds-
ins stígur hljómsveitin Goðsögn á
svið í Dalabúð og leikur fyrir dansi
fram á nótt.
Endapunktur hátíðarinnar verða
skemmtilegir tónleikar á Silfur-
túni á sunnudeginum. Það verður
því líf og fjör í bænum alla helgina
og tilvalið fyrir heimamenn, brott-
flutta og aðra gesti að kíkja í heim-
sókn.
arg
Heim í Búðardal um helgina
Kassabílarallý á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal 2014. Ljósm. bae.
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
Starf við aðhlynningu á sjúkradeild HVE í Stykkishólmi
Óskum eftir tveimur starfsmönnum í vaktavinnu frá 8. ágúst 2016 eða eftir samkomulagi.
Um er að ræða gefandi og skemmtilegt starf sem felst í umönnun og almennum störfum á
sjúkradeildinni. Starfshlutfall er samkomulagsatriði og getur verið á bilinu 50 -90%.
Hæfniskröfur
Góð íslenskukunnátta
Jákvæðni og góð samskipthæfni
Snyrtimennska og stundvísi
Umsóknarfrestur er til 18. júlí 2016
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna F. Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á HVE,
netfang: johanna.johannesdottir@hve.is
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu HVE og senda þarf umsóknir á netfangið
johanna.johannesdottir@hve.is
HVE er reyklaus vinnustaður
Nánari upplýsingar um Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi er að finna á http://www.hve.is/islenska/stykkisholmur/
Norðurálsvöllur
Allir á völlinnÍA - Valur
Föstudaginn 8. júlí kl. 18:00
FRÍTT Á VÖLLINN FYRIR ALLA
Aðalstyrktaraðili leiksins er Ferðaskrifstofan Katla-DMI
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÍA – Breiðablik
Aðalstyrktaraðili leiksins er Endurskoðunarstofan Álit,
Smiðjuvöllum 7
PEPSÍDEILD KVENNA