Skessuhorn - 06.07.2016, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 15
„Sumarilmur“ er nýtt samstarfsverk-
efni Samtaka ferðaþjónustunnar og
samtaka bænda og fyrirtækja í land-
búnaði. Í verkefninu verður sjónum
beint að þeirri fjölbreytilegu grósku
sem samfléttun ferðaþjónustu og
landbúnaðar hefur gætt þróunina um
land allt. Auglýst verður eftir mynd-
um sem fanga sumarstemninguna og
lýsa samspili ferðaþjónustu og land-
búnaðar. Myndirnar birtast á sum-
arilmur.is og í hverri viku verður sú
mynd valin sem best þykir fanga anda
sumarsins í sveitum landsins. Sá sem
á mynd vikunnar fær glæsileg verð-
laun en á meðal vinninga eru gisting
og afþreying innanlands og alls kyns
upplifun tengd mat og öðru sumar-
legu. Vinningshafar verða kynntir á
Rás 2 og þeir fengnir til að segja frá
sögunni á bakvið myndina.
„Ferðaþjónusta hefur á skömmum
tíma orðið einn mikilvægasti atvinnu-
vegur þjóðarinnar. Vöxtur henn-
ar hefur skipt sköpum fyrir bættan
hag þjóðarbúsins og aukinn kaup-
mátt almennings. Um 1,7 milljónir
ferðamanna munu sækja Ísland heim
í ár. Gjaldeyristekjur vegna þeirra
eru áætlaðar allt að 1,5 milljarður
króna á dag. Ekki er síður mikilvægt
að tekjur myndast víða um land þar
sem aðrir möguleikar eru takmarkað-
ir. Í ár er neysla erlendra ferðamanna
á innlendri matvöru talin verða um
22 tonn á dag. Þessi viðbót stækkar
innlendan markað og eykur tekjur af
innlendum landbúnaði. Neysla á inn-
lendri matvöru, kjöti, fiski og græn-
meti, er órjúfanlegur hluti af upplif-
un ferðamanna og þeim gæðum sem
Ísland hefur fram að færa. Landbún-
aður skapar því hluta af því virði sem
ferðaþjónustan byggir á.
Ferðaþjónusta bænda býður 180
gististaði, sveitahótel, bændagist-
ingu og bústaði víða um land sem
gefa ferðamönnum kost á nálægð
við búskap og húsdýr sem mörgum
er framandi en um leið mjög áhuga-
verð. Bændur bjóða ferðafólki margs
konar afþreyingu sem hundruð þús-
unda nýta sér og má nefna hestaferð-
ir og aðgang að veiði auk sölu á ým-
iss konar heimagerðum varningi og
sveitakrásum. Bændur eru vörslu-
menn landsins og sinna ræktun og
uppgræðslu. Það er öryggisatriði fyr-
ir ferðamenn, ekki síst á veturna, að
búseta sé um landið allt. Sú mikla
þjónusta sem bændur veita ferða-
mönnum um sveitir landsins byggir á
þeirri kjölfestu sem liggur í atvinnu-
starfsemi landbúnaðarins.
Nýjar forsendur eru að skapast
ótrúlega víða fyrir atvinnu í sveitum
landsins, nýsköpun og þróun í vöru
og þjónustuframboði svo og eftirsótt-
um upplifunum fyrir ferðafólk jafnt
sem landsmenn alla. Sjálfbærni, stað-
bundin sérstaða og sterk tenging við
náttúru, heilsu og hollustu eru mik-
ilvægir áhersluþættir sem ferðaþjón-
usta og landbúnaður hafa sameig-
inlega hagsmuni af að rækta og efla
í gagnkvæmu samstarfi,“ segir í til-
kynningu um Sumarilm 2016.
mm
AKRANES • BORGARNES • BÚÐARDALUR • GRUNDARFJÖRÐUR • HÓLMAVÍK • HVAMMSTANGI • ÓLAFSVÍK • STYKKISHÓLMUR
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
1700
Þegar þú hringir í 1700
1700
1700
Ferðaþjónustan og land-
búnaður taka höndum saman
Steinþór Skúlason forstjóri SS, Grímur Sæmundsen formaður SAF, Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri SAF og Sævar
Skaptason framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda hjá sveitahótelinu Kríunesi við Elliðavatn. Ljósm. Árnasynir.
Verkefni ferðaþjónustunnar og bænda
kallast „Sumarilmur.“ Hér er svipmynd
úr sveitinni.
Ljósm. Guðbjörg Ólafsdóttir.
meta,“ segja þeir Elli, Unnsteinn
og Siggi. Þeir eru sammála um
að sakna þjónustu sem þessarar.
„Bensínstöðvarnar sumar eru í dag
meira eins og vélrænar lestarstöðv-
ar í stórborg. Það vantar bara að
einhver segi; „borgaðu og drífðu
þig svo út. Næsti!“,“ segir Elli.
Nýir yfirmenn - aðrar
áherslur
Sigurður Þorsteinsson byrjaði að
vinna á gömlu Essóstöðinni við
Borgarbraut árið 19 a87 og var því
búinn að starfa þar í fjögur ár áður
en Hyrnan var opnuð. Erlend-
ur Samúelsson byrjaði svo 1992
og Unnsteinn tveimur árum síðar.
„Við höfðum gaman af að metast
um hvaða vakt seldi mest eldsneyti
og byggðum upp svona jákvæða
samkeppni milli okkar. Strídd-
um svo hver öðrum þess á milli
og náðum vel saman. Þetta var al-
veg frábær tími og þannig vor-
um við eins og samheldið teymi
fram yfir aldamót. Við höfðum
alltaf kaffi á könnunni og til okk-
ar komu þúsundir manna á hverju
ári í kaffi og spjall um daginn og
veginn,“ segir Elli. Eftir aldamót-
in urðu ákveðnar breytingar inn-
an kaupfélagsins og fóru áherslur
strákanna á Hyrnunni ekki endi-
lega saman við áherslur þeirra sem
tóku við stjórnartaumunum. „Það
voru gerðar tilfærslur innan kaup-
félagsins, menn færðir til og sett-
ir í hlutverk sem voru eins ólík og
hugsast getur þeirri þekkingu sem
þeir höfðu aflað sér í fyrri störf-
um. Þannig fór þetta bara að þær
áherslur sem við höfðum lagt í
þjónustunni, hentuðu ekki endi-
lega nýjum vindum. Ég leit allt-
af svo á að kúnninn væri númer
eitt, tvö og þrjú. Mér var því hent
út árið 2002 í kjölfar þess að hafa
skrifað eldsneytisúttekt hjá við-
skiptavini sem þurfti nauðsynlega
olíu á bílinn eldsnemma að morgni
páskadags. Á annan í páskum
greiddi maðurinn þetta skyndilán
skilvíslega, en skaðinn var skeður
að mati míns yfirmanns. Ég fór og
Unnsteinn hætti síðar sama ár og
Elli nokkru seinna. Þetta fór bara
svona,“ segir Sigurður Þorsteins-
son og ekki er laust við að kenni
beiskju í röddinni.
Enn er þeim þakkað
Þrátt fyrir að hafa hætt störfum
á Hyrnunni fyrir tólf eða fjórtán
árum er enn verið að þakka þeim
félögum. Eru þeir af og til spurð-
ir hvort þeir hafi ekki verið í hópi
karlanna á Hyrnunni. Sigurður og
Elli segja báðir að þeir eigi trygga
vini út um allt land eftir þennan
tíma. Sigurður kveðst vera hættur
störfum, en stendur vaktina sem
dyggur félagsmaður í safni Fornbí-
lafjelags Borgarfjarðar í Brákarey.
Elli starfar við glugga- og hurð-
asmíði á trésmíðaverkstæði Eiríks
J. Ingólfssonar en Unnsteinn er
sjúkraflutningamaður hjá HVE í
Borgarnesi. Unnsteinn kveðst oft
lenda á spjalli við fólk sem hann er
að aðstoða; sjúklinga úr sumarhús-
um eða aðstandendur þeirra. Oftar
en ekki hefjist samtalið á einhverri
sameiginlegri minningu sem fólk á
úr Hyrnunni og minnist þess stað-
ar með hlýju. Fólk þekkir þá frá
þessum tíma. Siggi bróðir hans
segist upplifa það sama. „Nú fyr-
ir nokkrum dögum kom bóndi úr
héraðinu heim til mín og bankaði
uppá gagngert í þeim tilgangi að
segja mér hversu sárt hann saknaði
gömlu Hyrnunnar og starfseminn-
ar þar. Þetta þykir mér afskaplega
vænt um. Við höfum þá kannski
verið að gera eitthvað rétt?“ Spyr
Sigurður að endingu.
mm
Íshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100
Nánari upplýsingar á hedinn.is
Mynd: Slökkvistöðin við Skarhólabraut í Mosfellsbæ.
Þeir sem gera kröfur
velja Héðins hurðir
Fáðu tilboð í hurðina
Fylltu út helstu upplýsingar
á hedinn.is og við sendum
þér tilboð um hæl.