Skessuhorn - 06.07.2016, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 19
Tilvalið með í sumarfríið.
Traust og fagleg þjónusta.
LITHIUM POWER STARTTÆKI
Byltingarkennd nýjung!
Snjalltæki til að bjarga þér ef bíllinn verður rafmagnslaus á bílastæðinu
eða úti á vegum. Bjargvættur sem er fyrirferðalítill (420 gr.) og einfaldur í notkun.
Startar flestum bensínvélum og diesel vélum upp að 2,0 llítra. Hleður alla síma,
ipadinn, fartölvuna og öll tæki með USB tengi. Innbyggt öflugt led ljós.
Straumur út: 5v 2A fyrir síma og ipad, 19v 3,5A fyrir fartölvur, startkraftur
allt að 400 Amper. Lithium rafhlaðan er 12.000 mAh.
Meðal árlegra viðburða á Írskum
dögum á Akranesi allt frá því þeir
voru fyrst haldnir fyrir 17 árum er
keppnin um Rauðhærðasta Íslend-
inginn. Alls tóku 34 þátt í keppn-
inni að þessu sinni. Það var Helga
Guðrún Jónsdóttir sem vann titil-
inn að þessu sinni. Helga Guðrún
verður ellefu ára síðar í mánuðinum
og býr í Keflavík. Hún kom ásamt
fjölskyldu sinni á Akranes til að taka
þátt í keppninni en hún hefur fylgst
með keppninni í mörg ár. Helga
fær að launum ferð til Írlands fyr-
ir tvo með Gaman Ferðum. Í dóm-
nefnd voru Stefanía Sigurðardótt-
ir og Inga Hrönn Óttarsdóttir frá
Mozart Hársnyrtistofu og var dóm-
nefnd einhuga um valið.
Einnig voru veitt verðlaun fyr-
ir írskasta húsið. Samkeppnin var
hörð enda mikill fjöldi húsa sem
skráði sig til leiks. Verðlaunin fékk
fjölskyldan að Vesturgötu 147 og fá
þau einnig ferð fyrir tvo til Dublin-
ar með Gaman Ferðum.
mm/ Ljósm. Akraneskaupstaður.
Helga Guðrún er rauðhærðust og
Vesturgata 147 best skreytt
Helga Guðrún Jónsdóttir er rauðhærðasti Íslendingurinn 2016.
Vesturgata 147 var valið best
skreytta húsið að þessu sinni.
Hljómsveitin Ösp, sem skipuð er
þeim Kristni Braga Garðarssyni
og Eiði Andra Guðlaugssyni, sendi
frá sér sitt fyrsta frumsamnda lag á
dögunum ásamt myndbandi. Báðir
hafa þeir stundað nám við Tónlist-
arskóla Akraness. „Þetta er fyrsta
lagið sem við tökum upp í stúdíói
og gefum út, lagið heitir Simple
Role og er frekar sorgleg saga af
manni sem leiðist út á ranga braut
í lífinu. Við höfum verið starfandi í
eitt ár og eigum fleiri lög sem við
höfum samið og vonandi náum við
að gefa út plötu eða eitthvað slíkt
þegar við teljum okkur vera komna
með nóg af efni,“ segir Kristinn
Bragi.
Kristinn segir að tónlistin sem
þeir semji sé fjölbreytt og ekki sé
hægt að setja hana í ákveðin flokk.
„Ég spila á gítar og syng og Eiður
spilar á saxófón ásamt öðrum hljóð-
færum. Við höfum ekki lagt áherslu
á eina stefnu frekar en aðra. Eina
sem ég legg upp með er að reyna að
segja sögur með lögunum mínum.“
Hljómsveitin gaf lagið út um
miðja síðustu viku og í kjölfar-
ið þurftu þeir að skipta um nafn.
„Við hétum Eik þegar lagið kom
út en við fengum ábendingu um
að önnur hljómsveit sem var starf-
andi rétt fyrir síðustu aldamóta bar
einnig það nafn. Til þess að koma í
veg fyrir rugling og til þess að sýna
þeirri hljómsveit virðingu ákváð-
um við að breyta nafninu. Ég ein-
faldlega fann bara nýja trjátegund
og skírði hljómsveitina eftir henni.
Ösp varð fyrir valinu,“ segir Krist-
inn Bragi.
Hljómsveitin kom fram á Ullar-
sokknum, tónleikum þar sem ungt
tónlistarfólk á Akranesi spilaði, á
Írskum dögum. „Það hefur verið
mikið að gera bæði í vinnu og skóla
síðastliðið ár svo við höfum ekki
náð að spila eins mikið og við vild-
um. Við ætlum að vera eins dugleg-
ir og við getum að spila í sumar. Við
erum tilbúnir að spila við öll tilefni,
við spilum bæði okkar lög og einn-
ig lög eftir aðra,“ segir Kristinn að
endingu.
Hægt er að hlusta á lagið Simple
Role á Youtube.com. bþb
Hljómsveitin Ösp gefur út sitt fyrsta lag
Ösp spilaði á Ullarsokknum á Írskum dögum.
Þessi drengur var meira en tilbúinn í helgina.
Mikil gleði ríkti á brekkusöngnum sem haldinn var af Club71 um kvöldið, áður en
Lopapeysan hófst við höfnina.
Heimafólk og gestir sungu saman á brekkusöngnum.
Leikhópurinn Lotta sýndi leikritið Litaland í blíðskaparveðri í Garðalundi.
Hátíðinni lauk með því að landsleikur Íslands og Frakklands var sýndur á risaskjá
í Garðalundi. Mikill fjöldi safnaðist saman til að horfa á leikinn.