Skessuhorn - 06.07.2016, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 201620
mýri II með einkunnina 9,16 og er
Eyrún jafnframt fyrsta konan sem
sigrar A-flokk á Landsmóti og er
það vel af sér vikið. Til gamans má
geta þess að Eyrún Ýr er Borgfirð-
ingur að hálfu, en alin upp í Skaga-
firði. Hlaut hún einnig Gregesen
styttuna sem er veitt fyrir fram-
úrskarandi frammistöðu og prúð-
mannlega reiðmennsku á vel hirt-
um hesti. Jakob Svavar keppti einn-
ig í A-flokki gæðinga á Sólonssyn-
inum Skýr frá Skálakoti. Höfnuðu
þeir félagar í þriðja sæti með ein-
kunnina 8,92. Gamla brýnið Sigur-
björn Bárðarson á Nagla frá Flag-
bjarnarholti, sem vann B-úrslitin og
hlaut þar með keppnisrétt í A-úrslit-
um, hafnaði í 7. sæti með einkunnina
8,80 og Atli Guðmundsson á Þór frá
Votumýri 2 kom næstur með ein-
kunnina 8,65. Engar smá einkunnir
á ferðinni þetta árið og bera tölurn-
ar vott um góðan árangur í kynbót-
um og þjálfun hér á landi.
Stóðhestaval
Það var samdóma álit gesta að kyn-
bótahrossin hefðu verið óvenju-
lega glæsileg og greinilegt að rækt-
unarstarf er sífellt að bera árangur.
Í flokki fimm vetra stóðhesta reið
Flosi Ólafsson frá Breiðabólsstað í
Reykholtsdal Forki frá Breiðabóls-
stað í fyrsta sætið með einkunnina
8,67. Í flokki sjö vetra og eldri stóð-
hesta fór Ölnir frá Akranesi fremst-
ur í flokki með 8,82 og jafnframt
var hann hæst dæmda kynbóta-
hrossið á Landsmótinu. Skaginn
frá Skipaskaga, barnabarn Orra frá
Þúfu, í eigu hjónanna Jóns Árna-
sonar og Sigurveigar Stefánsdóttir
frá Akranesi hlaut svo fjórða sætið
með aðaleinkunn upp á 8,73. Fjöl-
margir fleiri stóðhestar af Vestur-
landi skipuðu sér í röð tíu efstu í
hverjum aldursflokki.
Heimsmet féll
Seinni tveir sprettirnir í 150 og 250
metra skeiðinu hituðu svo brekk-
una vel upp fyrir helgina á föstu-
deginum og sigraði Árni Björn Páls-
son á Korku frá Steinnesi í 150
metra skeiði með tímann 13,86. Í
250 metra skeiði sigraði svo Bjarni
Bjarnason á Heru frá Þóroddsstöð-
um. Gerði parið sér lítið fyrir og
sló bæði heims- og Íslandsmet með
tímann 21,41 sekúndur.
100 metra skeiðið reyndist svo
vera rúsínan í pylsuendanum fyr-
ir skeiðunnendur þar sem Konráð
Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæj-
arhjáleigu II setti besta tíma ársins
hér- og erlendis; 7,42 sekúndur en
heimsmet Carina Mayerhofer og
Frama von St. Oswald stendur enn
óslegið, en það er 6,95 sek. Skeið-
ið steinlá á öllum sviðum og greini-
legt að andinn í Skagafirðinum hef-
ur skerpt á bæði keppnishestum og
knöpum.
Þurfum vonandi ekki að
bíða önnur 50 ár
Mótinu lauk formlega á laugardeg-
inum en sunnudeginum var var-
ið í það sem kallað var dagur fag-
mennskunnar. Fyrirlestrar á Hól-
um og opin hús hrossaræktenda í
Skagafirðinum og voru þó nokkr-
ir sem sóttu þá viðburði en ein-
hver hluti mótsgesta hvarf af brott
á laugardeginum og gekk umferðin
ágætlega. Það sem var einnig eftir-
tektavert við mótið og umgjörð þess
var hversu fljótt var leyst úr vanda-
málum sem komu upp og greini-
legt að mótshaldarar hafa mætt vel
undirbúnir til leiks og björgunar-
sveitarfólkið sem sá um gæsluna sá
til þess að allt gengi smurt fyrir sig.
Lítið var um ölvun á svæðinu þó að
drykkir væru vissulega sjáanlegir í
brekkunni og umgengni gesta var
almennt til fyrirmyndar.
Að sögn Áskels Heiðars Ásgeirs-
sonar framkvæmdastjóra Landsmóts
var fólk almennt mjög jákvætt með
mótið og aðstöðuna í heild sinni og
engin ástæða til að ætla til annars en
að Landsmót verði haldið á Hólum
aftur í framtíðinni. Vonandi þurfum
við ekki aftur að bíða fimmtíu ár eft-
ir því.
Samantekt: Axel Freyr Eiríksson.
Ljósm. Iðunn Silja Svansdóttir.
Límtré Vírnet var með bás í sölu-
tjaldi Landsmóts hestamanna á
Hólum. Þar mátti sjá hurð sem fyr-
irtækið framleiðir en um er að ræða
nýjungar í framleiðslu fyrirtækisins
á sviði yleininga og útfærslu á bási
í hesthús. Það sem stal þó senunni
var það sem starfsmenn Límtrés
Vírnets kölluðu byltingu í neyslu
kældra drykkja. Nú þarf engum
að vera kalt á puttunum þegar ís-
köld dósin hvílir í hönd á manna-
mótum því Límtré Vírnet er komið
með lausn; Neoprene sokkur fyr-
ir dósina eða glerflöskuna og eng-
um verður kalt. Hér má sjá Bjarna
Ingibergsson starfsmann Límtrés
Vírnets sýna stykkið sem sló í gegn
á Landsmóti.
afe
Bylting í neyslu
kældra drykkja
Landsmót hestamanna var haldið í
vægast sagt mögnuðu umhverfi Hóla
í Hjaltadal dagana 27. júní til 3. júlí
og gekk allt vel að sögn bæði gesta og
mótshaldara. Um átta þúsund manns
mættu á svæðið til að horfa á knapa
leika listir sínar með hestum sínum
og var samhljómur meðal mótsgesta
að fyrirkomulagið á keppninni hefði
verið gott. Það má segja að mótið hafi
steinlegið líkt og þegar vel er skeiðað
því dagskráin var vel römmuð inn og
samkvæmt snjallforriti Landsmótsins
sem blaðamaður hlóð í símann fyr-
ir mótið voru skekkjumörk lítil sem
engin hvað varðar tímasetningar við-
burða. Er það einnig að þakka vall-
arþulunum sem gáfu engan afslátt
hvað varðar slór og seinagang, ekki
þó að það hefði verið vandamál, svo
því sé til haga haldið. Einungis smá-
vægilegur kuldaboli undir helgi setti
skugga á annars frábært mót. Hins
vegar búum við á Íslandi og eigum
ekki að vera of góð að klæða af okkur
smá kulda. Vissulega yljuðu því sól-
argeislarnir skagfirsku þegar þeirra
varð vart.
Vesturland átti sína verðugu full-
trúa á mótinu og ber þar helst að
nefna Jakob Svavar Sigurðsson frá
Dreyra sem kom sá og sigraði í B-
flokki gæðinga á Nökkva frá Syðra-
Skörðugili með einkunnina 9,21.
Var keppnin í B-flokknum afar hörð
og mjótt var á munum því Jakob og
Nökkvi höfðu Árna Björn Pálsson
og Loka frá Selfossi undir með 0,03
stigum. Engu að síður vel að sigr-
inum komnir þeir félagar Jakob og
Nökkvi. Hlaut Jakob einnig reið-
mennskuverðlaun félags tamninga-
manna.
Frábær alhliða hross
Í A-flokki gæðinga sigraði Eyrún
Ýr Pálsdóttir á Hrannari frá Flugu-
Fyrirmyndar umgjörð og góð frammistaða
á Landsmóti hestamanna
Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri II sigruðu í A-flokki. Eyrún er fyrsta konan til að vinna
A-flokk á Landsmóti.
Ölnir frá Akranesi varð efstur í flokki stóðhesta sjö vetra og eldri. Hann var jafnframt hæst dæmda
kynbótahrossið á LM 2016.
Jakob Svavar Sigurðsson og Nökkvi frá Syðra-Skörðugili sigruðu B-flokkinn,
Jakob fékk einnig reiðmennskuverðlaun félags tamningamanna.
Forkur frá Breiðabólsstað var hæst dæmdi fimm vetra stóðhesturinn á LM 2016.
Forkur frá Breiðabólsstað og Flosi
Ólafsson.