Skessuhorn - 06.07.2016, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 21
Vestlendingar áttu marga þátttak-
endur á sjötta Landsmóti UMFÍ
50+ sem haldið var nýverið á Ísa-
firði. Þar var keppt í fjölmörgum
greinum af ýmsum toga, svo sem
sundi, strandblaki, línudansi og
pönnukökubakstri, ásamt fleiru.
Skagamenn áttu til að mynda lið
bæði í boccia og línudanshópur frá
Akranesi tók þátt og vann til gull-
verðlauna. Þá voru nokkrir þátt-
takendur úr Borgarfirðinum, en
sundfólk þaðan vann meðal annars
boðsund á mótinu. Hjördís Hjart-
ardóttir frá Akranesi var ein þeirra
sem keppti á mótinu. Hún setti
saman texta um þátttöku sína á því,
þar sem hún segir frá ánægjulegri
upplifun sinni af keppninni og
ástæðunni fyrir því að hún ákvað
að taka þátt á Landsmóti 50+.
grþ
Hundstressuð og laf-
móð fyrir fyrsta sundið
„Fyrir 50 árum, í maí 1966, fór ég
á mitt fyrsta sundnámskeið í Sund-
höllinni á Ísafirði. Því fannst mér
vel við hæfi að skella mér á UMFÍ
50+ á Ísafirði nú í byrjun júní og
keppa í sundi. Ekki af því að ég sé
svo góð í sundi, fannst það bara svo
viðeigandi vegna þessara tímamóta.
Ég var nú samt á báðum áttum en
eftir að hafa fengið góða hvatningu
frá mæðgunum Guðmundu Ólöfu
(Mummu Lóu) og Hildi Karen
ákvað ég að slá til! Ég ætlaði fyrst
að fara bara í 50 skrið og 50 bak,
en þegar til kom hafði ég skráð mig
í 66,7 fjór, 50 bak, 50 bringu, 50
skrið og 100 skrið!
Undirbúningurinn fólst fyrst og
fremst í því að synda án blaðkna en
það hafði ég ekki gert lengi. Hild-
ur Karen kom með mér einu sinni í
sund og fór yfir stungurnar. Ég fór
því vestur full af sjálfstrausti! En
þegar á hólminn var komið fóru
nú að renna tvær grímur á frúna.
Get ég þetta? Ætli ég geri ógilt?
Verð ég kannski laaaang síðust? Ég
var orðin hundstressuð fyrir fyrsta
sundið, var lafmóð og með hjart-
sláttinn í botni. Náði þó að klára,
skammlaust. Var örlítið minna
stressuð í næsta sundi og svo var
þetta bara skemmtilegt eftir það.
Markmið mín voru þau að synda
gild sund og skemmta mér. Ég fann
mér reyndar líka keppinauta sem
ég vildi vinna; eina sem var í sama
flokki og ég og aðra í næsta flokki
fyrir neðan. Stutt í gamla keppnis-
skapið. Öll þessi markmið náðust.
Ég fékk gull í öllum keppnisgrein-
unum, það voru reyndar ekki alltaf
margir keppinautar, en samt sætt.
Var aldrei laaaang síðust eins og ég
hafði óttast í upphafi. Mér skilst
að einhver ný mótsmet hafi verið
sett, en ekki fylgir sögunni hvort
áður hafi verið synt í þeim grein-
um á UMFÍ 50+! Við skelltum svo
í blandaða boðsundssveit, ég og
þrír sveitungar mínir fyrir vestan,
en lutum í lægra haldi fyrir öflugri
sveit Borgfirðinga. Ég stefni að því
að bæta stíl og auka hraðann fyr-
ir næsta mót, þetta var bara byrj-
unin.
Og fyrst kellan var komin á mót
og í keppnisgírinn þá skellti hún
sér í 1000 metra hlaup og kúlu-
varp! Ég hef heldur aldrei keppt í
þessum greinum, en aðalatriðið að
vera með.
Ég sé svo sannarlega ekki eftir að
hafa tekið þátt í þessu móti, góð-
ur keppnisandi, gleði og samkennd
voru ríkjandi á mótinu. Það var frá-
bært að fylgjast með þessu „eldra“
fólki, sem þó virðist ekkert eld-
ast, frábær fyrirmynd fyrir okkur
hin. Ég ætla pottþétt að vera með
í Hveragerði að ári og treysti á að
fleiri Skagamenn bætist í hópinn.“
Hjördís Hjartardóttir.
Verslunin Nordic Store var opnuð
í Borgarnesi 15. júní síðastliðinn í
húsnæði Arionbanka við Digranes-
götu. Fyrir eru tvær Nordic Store
verslanir, báðar í miðbæ Reykja-
víkur og sú þriðja verður opnuð
þar á næstunni. Steinunn Bjarna-
dóttir var ráðin sem verslunarstjóri
í Borgarnesi en hún er menntaður
grunnskólakennari og var áður að
kenna í Grunnskólanum í Borgar-
nesi. „Ég var spurð hvort ég vildi
taka þetta starf að mér og mér
leist vel á það og ákvað að slá til
og prófa,“ segir Steinunn. „Ég tók
mér ársleyfi frá kennslustörfum og
ætla að sjá til hvernig mér líkar við
þetta. Ég hef mjög gaman að því
að kenna en það er líka skemmti-
legt að prófa eitthvað alveg nýtt,“
bætir hún við. Hún segir starf-
ið leggjast vel í sig. Steinunn ólst
upp í Borgarfirðinum en býr nú í
Borgarnesi með Hákoni Halldórs-
syni og fjórum börnum þeirra.
Steinunn segir opnun verslun-
arinnar fara rólega af stað en það
séu þó alltaf einhverjir að staldra
við. „Við erum mest að selja ull-
arvörur, peysur, húfur, sokka, vett-
linga, teppi og slíkt. Auk þess erum
við með gærur, annan útifatnað og
ýmislegt fleira smálegt. Þetta er þó
mest ullarvörur,“ segir Steinunn.
Það eru helst erlendir ferðamenn
sem versla í Nordic Store enda er
margt sér-íslenskt að finna þar. Ekki
hefur verið tekin endanleg ákvörð-
un um opnunartíma í versluninni í
Borgarnesi. „Núna erum við með
opið frá klukkan 10-20 en við erum
enn að finna út hvaða opnunartími
er bestur. Ef það er eftirspurn fyrir
því gætum við vel hugsað okkur að
lengja opnunartímann en svo gæti
líka farið að við styttum hann,“ seg-
ir Steinunn.
arg
Verslunin Nordic Store
opnuð í Borgarnesi
Steinunn Bjarnadóttir var ráðin verslunarstjóri í nýrri Nordic Store verslun sem opnuð var í Borgarnesi í nýliðnum mánuði.
Í Nordic Store eru seldar margskonar ullarvörur. Neðstu hæðinni í húsnæði Arionbanka hefur verið breytt í verslun.
Vestlendingar stóðu sig vel á Landsmóti UMFÍ 50+
Skagakonurnar Hjördís og Guðmunda Ólöf hlaðnar verðlaunapeningum á Lands-
móti UMFÍ 50+
Hjördís á verðlaunapallinum á Ísafirði.
Hjördís klár í sundið.