Skessuhorn - 06.07.2016, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 201624
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÖLL ALMENN GARÐVINNA
• Fjarlægjum tré og kurlum
• Útvegum sand, mold og möl
• Sláum garða
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Smiðjan í Ólafsvík hefur nú verið
starfandi í tæpt ár. Þar hefur starf-
semin gengið vel og verkefni verið
næg. Að sögn Gunnsteins Sigurðs-
sonar hafa bæjarbúar tekið mjög vel
á móti Smiðjunni og verið duglegir
að koma með efni til þeirra sem eru
endurnýtt. Mest hefur verið unn-
ið í kertagerð og eiga þau í Smiðj-
unni orðið góðan lager af þeim til
sölu. Einnig hafa ýmis önnur verk-
efni verið í gangi. Starfsmenn hafa
t.d. séð um að bera út póstinn fyrir
hádegi undanfarið. Eftir hádegi hafa
þeir svo farið í Vinnuskóla Snæ-
fellsbæjar og unnið við að snyrta og
hreinsa bæjarfélagið. Segir Gunn-
steinn að Smiðjan sé komin til að
vera en þar starfa nú þrír einstak-
lingar fast sem koma alla daga vik-
unnar. Einn einstaklingur kemur
tvisvar í viku og einn kemur ein-
hverja daga eftir hádegi.
Um Smiðjuna ásamt Gunnsteini
sjá þau Ólafur Fannar og Viktoria
Kay sem hefur störf í ágúst. Það
er þó ekki eingöngu vinna sem fer
fram í Smiðjunni og stundum gera
starfsmenn sér glaðan dag, svo sem
hvalaskoðun með LákaTours eða
fara út að borða. Vildi Gunnsteinn í
lokin fá að koma á framfæri þakklæti
til allra þeirra sem sýnt hafa Smiðj-
unni velvild og hlýhug og hafa þeim
m.a. borist margar góðar gjafir. Frá
Kvenfélagi Ólafsvíkur fengur þau
trönur, blindraramma og liti. So-
roptimistar í Snæfellsbæ færðu þeim
þrjár Lenovo spjaldtölvur, gjafabréf
á matsölustaði ásamt peningagjöf.
Lionsklúbburinn Þerna færði þeim
stóran og veglegan verkfærakassa
fullan af verkfærum ásamt fjórum
eldhússtólum og Lionsklúbburinn
Rán færði þeim Brother saumavél.
Er meðfylgjandi mynd einmitt tekin
við það tækifæri. Smiðjan fór í sum-
arfrí 1. júlí en tekur aftur til starfa
8. ágúst. Hlakkar alla starfsmenn þar
til að eiga áframhaldandi gott sam-
starf við bæjarbúa og býður alla vel-
komna. Sendir starfsfólkið í Smiðj-
unni sumarkveðjur.
þa
Starfsmenn Smiðjunnar
komnir í sumarleyfi
Pennagrein
Hafsteinn Sverrisson heiti ég og er
pírati, og stoltur af því. Ég er fædd-
ur og uppalinn á Ísafirði en bý í
Borgarfirði, giftur Margréti Björg-
vinsdóttur frá Siglufirði og saman
eigum við þrjú börn á aldrinum 6
til 16 ára, fyrir átti ég 25 ára gamla
dóttur og á nú eina afastelpu.
Ég hef ákveðið að bjóða Pírötum
krafta mína fyrir komandi alþingis-
kosningar og býð mig því fram í 2.
til 3. sæti í prófkjöri Pírata í Norð-
vesturkjördæmi. Ég vil leggja mitt
af mörkum við að endurreisa traust
fólksins á Alþingi Íslendinga. Það
sem hefur verið drifkraftur minn
í því að láta nú til skarar skríða og
sækjast eftir framangreindu kjöri,
er einlægur áhugi minn á starfi Pí-
rata. Ég hef lokið bakkalársprófi í
viðskiptalögfræði og á þeirri veg-
ferð öðlaðist ég bæði þekkingu og
reynslu og tel ég að styrkur minn
og þekking á sviði stjórnsýslu- og
stjórnskipunar muni nýtast vel, nái
ég kjöri.
Ég hef starfað í stjórn Pírata á
Vesturlandi frá stofnun þess og sit
þar nú sem varaformaður. Frá því
ég hóf að taka þátt í störfum Pírata
hef ég unnið að nokkrum stefnu-
málum. Má þar helst nefna stefnu
um sérstakar hæfisreglur þing-
manna, eftirlit með framkvæmda-
valdinu og löggjafanum, skipun
forseta Alþingis og skipun ráðherra
í embætti.
Ég hef einsett mér í mínum störf-
um og þeim verkefnum sem ég hef
tekið mér fyrir hendur, að hafa að
leiðarljósi jákvætt viðhorf, umburð-
arlyndi og áreiðanleika ásamt gagn-
rýninni hugs-
un undir öll-
um kringumstæðum. Ég hef margt
fram að færa, ásamt þeirri reynslu
sem lífið sjálft hefur fært mér þá
hef ég víðtæka reynslu úr atvinnu-
lífinu og ýmsum félagsstörfum. Sú
reynsla mun hjálpa mér að tak-
ast á við ábyrgðarfull og krefjandi
störf núna og í ókominni framtíð.
Ég tel mig hafa mikla leiðtogafærni
í hópa- og teymisvinnu, það skil-
ar sér í réttum ákvörðunum þegar
unnið er undir pressu. Að auki eru
mannleg samskipti styrkleiki sem
ég er þakklátur fyrir að hafa, enda
alinn upp í stórum systkinahópi.
Að lokum vil ég nefna að með
stjórnarsetu í Pírötum á Vestur-
landi þá tel ég mig vera vel í stakk
búinn til að takast á við þau spenn-
andi og jafnframt krefjandi verkefni
sem eru framundan. Ég mun leggja
mitt að mörkum til að tryggja og
efla starfsemi Pírata sem og að
halda þeirri vinnu áfram sem þeg-
ar hefur verið unnin.
Nánari útlistun á starfsreynslu og
félagsstörfum. Félagsstörf:
Stjórn Neista, starfsmannafélag
slökkviliðsmanna í Borgarbyggð,
Formaður Stjörnuskoðunarfélags
Bifrastar, Fulltrúi laganema í gæða-
ráði við Háskólann á Bifröst, Há-
skólaráð Háskólans á Bifröst, Sjén-
tilmannaklúbburinn á Bifröst.
Starfsreynsla: Ferðaþjónusta,
eigin atvinnurekstur, sjómennska,
verslunarstörf og tæknistörf.
Með bestu kveðju,
Hafsteinn Sverrisson
Tilkynning um
framboð á lista Pírata