Skessuhorn - 06.07.2016, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 25
Getir þú barn
þá birtist það
hér, þ.e.a.s.
barnið!
www.skessuhorn.is
Óska eftir málara til að mála steypt
hús að utan
Húsið er um 120 fm. Óska eftir tilboði í
verkið (hreinsa, laga ef þess þarf, sílan-
bera, mála). Get sent myndir í tölvupósti.
Húsið er staðsett í 301. Vinsamlegast
sendið tölvupóst á 67dagny@gmail.com
eða hringið í síma 865-7133.
Smáfjölskylda leitar að íbúð í Borgar-
nesi eða á Akranesi
Tveggja manna smáfjölskylda (móðir
og barn) leita að tveggja til fjögurra
herbergja íbúð í Borgarnesi eða á
Akranesi frá og með 1. ágúst. Rólyndis-
fólk með meðmæli og fleira sé þess
óskað. Greiðslugeta allt að 120 þúsund
uppgefið. Upplýsingar í tölvupósti á
berglindoskg@gmail.com.
Herbergi óskast til leigu – Borgarnes
eða Akranes
Íslenska gámafélagið óskar eftir að taka
herbergi/stúdíóíbúð á leigu fyrir starfs-
mann sinn sem fyrst. Borgarnes eða
Akranes kemur hvort tveggja til greina,
einnig nærsveitir. Upplýsingar í síma
840-5780, Einar.
Subaru Outback til sölu
Er með 2008 árgerð af Subaru Outback
til sölu. Bíllinn er ekinn 151.500 km.
Svartur, topplúga, sjálfskiptur, bensín,
drif 4x4, 173 hestöfl, útvarp/geislaspilari
og hraðastillir. Ný heilsársdekk fylgja.
Reyklaust ökutæki. Verð 1.950.000
krónur. Upplýsingar í tölvupósti kveld@
simnet.is
Snæfellsbær – fimmtudagur 7. júlí
Einn fremsti uppistandari landsins, Ari
Eldjárn, snýr aftur í Rif með glænýtt
uppistand í Frystiklefanum klukkan 20:00.
Ásamt Ara koma fram Dóra Unnars, Kári
Viðars og mögulega leynigestur. Hitum
upp fyrir Sandaragleði 2016 með top-
klassagríni í klefanum.
Akranes – föstudagur 8. júlí
Pepsi deild kvenna: ÍA – Valur á Akranes-
velli klukkan 18:00.
Dalabyggð – föstudagur 8. júlí
Bæjarhátíðin „Heim í Búðardal“ verður
haldin helgina 8. – 10. júlí. Dagskrá má
finna í auglýsingu hér í blaðinu sem og á
Facebook.
Snæfellsbær – föstudagur 8. júlí
Sandara- og Rifsaragleðin verður haldin
dagana 8. – 10. júlí. Dagskrá má finna á
vefsíðu Snæfellsbæjar www.snb.is.
Stykkishólmur – föstudagur 8. júlí
Kokteilahátíð „Stykkishólmur cocktail
weekend“ verður haldin dagana 8. – 9.
júlí. Helstu barir og veitingastæðir bæjar-
ins taka þátt í gleðinni og verða með
sérstakan kokteil í boði fyrir hátíðina.
Dómnefnd mun fara á milli og leggja
mat sitt á drykkina og hlýtur einn staður
titilinn „Kokteilbar Stykkishólms 2016.“
Borgarbyggð – laugardagur 9. júlí
Hvanneyrarhátíðin 2016 verður haldin
með pompi og prakt. Sjá nánar auglýs-
ingu hér í blaðinu.
Snæfellsbær – laugardagur 9. júlí
Djúpalónssandur – Dritvík. Sjórinn gaf
og sjórinn tók. Gestir hitta landverði
við bílastæðið á Djúpalónssandi kl.
14. Gengið um Djúpalónssand og til
Dritvíkur. Á leiðinni eru völundarhús og
búðarústir, norðan Dritvíkur eru fisk-
reitir. Á Djúpalónssandi eru steintök sem
vermenn reyndu afl sitt á.
Snæfellsbær - sunnudagur 10. júlí
Malarrif – Svalþúfa. Lífið í bjarginu frá
kl. 14 - 16. Gestir hitta landverði við
gestastofuna á Malarrifi. Gengið að
Lóndröngum sem eru glæsilegir útverðir
þjóðgarðsins. Sagt frá minjum um ver-
mennsku fyrri tíma. Gengið á Svalþúfu
þar sem Kolbeinn Grímsson og Kölski
kváðust á forðum.
Akranes – sunnudagur 10. júlí
Pepsi deild karla: ÍA – Breiðablik á Kópa-
vogsvelli klukkan 16:00
Snæfellsbær – sunnudagur 10. júlí
Pepsi deild karla: Víkingur Ó – KR á KR-
vellinum klukkan 16:00
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands
TIL SÖLU
LEIGUMARKAÐUR
ATVINNA Í BOÐI
29. júní. Stúlka. Þyngd 3.915 gr.
Lengd 54 sm. Foreldrar: Unnur
Sigurðardóttir og Bogi Helgason,
Borgarnesi. Ljósmóðir: Erla Björk
Ólafsdóttir.
30. júní. Drengur. Þyngd 3.610
gr. Lengd 54 sm. Foreldrar: Arney
Þyrí Guðjónsdóttir og Kristján
Valur Sigurgeirsson, Akranesi
(Sjá nánar á forsíðu). Ljósmóðir:
Valgerður Ólafsdóttir.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Matráður óskast við Menntaskóla
Borgarfjarðar fyrir næsta skólaár
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 11. ágúst 2016
en skólaárinu lýkur 31. maí 2017.
Möguleiki er á áframhaldandi ráðningu.
Menntaskóli Borgarfjarðar er heilsueflandi skóli og
eru kröfur gerðar um heilsusamlegan og hollan mat.
Matráður ber ábyrgð á:
Að matreiða heilsusamlegan hádegismat•
Gera fjárhagsáætlun og sjá um innkaup•
Þrif í eldhúsi o.fl. •
Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund
og vera sveigjanlegur í starfi.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Björg skólameistari
í síma 894-1076.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu berast skólameistara á netfangið
gudrunbjorg@menntaborg.is í síðasta lagi sunnudaginn 17. júlí.
Öllum umsóknum verður svarað.
MB áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Stykkishólmsbær
Sérkennari
Grunnskólinn í Stykkishólmi óskar
eftir að ráða sérkennara í fullt starf
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst 2016
Helstu verkefni:
Sérkennsla•
Gerð einstaklingsnámskráa og eftirfylgd með námi•
Samst• arf við foreldra og fagaðila vegna málefna
nemenda með sérþarfir
Hæfniskröfur:
Menntun í sérkennslufræðum eða reynsla af kennslu •
nemenda með sérþarfir
R• eynsla af uppeldis- og kennslustörfum í grunnskóla
Leikni í mannl• egum samskiptum og færni í að
umgangast börn og unglinga
Ski• pulagshæfni, stundvísi og frumkvæði
Góð tök á íslensk• ri tungu í ræðu og riti
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Skólastjórafélags Íslands
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Axelsdóttir
aðstoðarskólastjóri í síma 433 8179 eða 895-3828,
berglind@stykk.is
Skriflegum umsóknum skal skilað
til aðstoðarskólastjóra ásamt
ferilskrá fyrir 18. júlí 2016
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Næstu blöð af Skessuhorni
Miðvikudagana 13., 20. og 27. júlí
Vegna sumarleyfa kemur ekki út blað 3. ágúst
Í dag geta allir orðið sérfræðing-
ar, hvort sem það er í almanna-
tengslum eða í skemmtanalífi. Það
eru allir sérfræðingar og eflaust er
það af hinu góða. Að vera flokkað-
ur sérfræðingur er að vera nörd og
hver vill ekki vera nörd! Ég er til
dæmis nörd og skammast mín ekk-
ert fyrir það. Tveir hópar sérfræð-
inga vekja þó ávallt áhuga minn og
eru þeir algerlega í aðskildum flokk-
um; byssum og fæðubótarefnum,
og eru kannski ekki eins og fólk er
flest. Það er hægt að vera vel að sér
í einhverju en þessir hópar snúast í
kringum annan hnött en við hin og
eru alltaf til í að veita manni óum-
beðna sérfræðiaðstoð sína.
Hinn dæmigerði fæðubótarefna-
fræðingur er með allt á hreinu þeg-
ar þú ræðir við hann, um málið hafa
verið heilu bindin skrifuð og auð-
velt að finna það sem manni lík-
ar. Svona eins og þegar maður leit-
ar að ástæðu til að bólusetja ekki
barnið sitt. Ef það er einhver sem
les þennan pistil og er í vafa með
það þá vil ég biðja hann um hringja
á leigubíl og láta skutla sér á Litla-
Hraun til innilokunar. Fæðubót-
arsérfræðingurinn er oftar en ekki
vel stillt líkamsræktarvél sem er
próteinaður, amínósýrustilltur og
vöðvastæltur einstaklingur sem er
ósammála næringarsérfræðingum.
Mögulega vegna þess að yfirleitt
er næringarsérfræðingurinn lopa-
peysufræðimaður sem boðar að-
eins meira en kjúklingaát og duft-
inntöku, bara pæling. Ég ætla samt
ekki að ræða mikið um fæðubót-
arefni því ég í fyrsta lagi nota ekki
kreatín, mögulega útaf því Butter-
cup hætti að spila fyrir 15 árum og
Honda Civic með spoiler kitti sést
ekki lengur. Á samt einhvern pró-
tein dunk sem er enn í plastinu
því einhver sagði mér eftir að ég
keypti hann að próteinmagnið væri
örugglega of mikið á meðan annar
sagði að það væri allt í lagi. Ok, ég
helminga þá bara skammtinn til að
friða samviskuna en ég þarf víst að
stunda reglulega líkamsrækt til að
þetta virki. Ég sé mig ekki endilega
feta tröppurnar upp í Silfursalinn í
sundlaug Borgarness eins og veðr-
ið er nú um þessar mundir og svo er
EM í gangi, sumarfrí og grill.
Allavega, hinn flokkurinn. Skot-
vopnasérfræðingurinn er fyrir-
bæri sem flestir geta tengt við. Það
þekkja eflaust allir eða hafa heyrt
um einhvern geðsjúkling sem þekk-
ir öll kalíberin og ritjúölin sem þarf
að framfylgja áður en tekið er í
gikkinn og kúl-
an send af stað.
Hann er kannski
það mikill sér-
fræðingur að
hann skýtur helst ekki kúlunni af
stað þegar allt er klárt, hann er þá
á því sem kallað er efsta stig veiði-
mennskunnar eins og fluguveiði-
menn kalla það. Þeir veiða á agn-
haldslausa króka og vilja helst ekki
landa fiskinum og sleppa honum
helst aftur þegar hann álpast á land.
Sérfræðingurinn er ekki sammála
þeirri staðhæfingu sem afi minn
sagði mér: „Gott skot er það sem
hittir og fellir bráðina samstundis.“
Hann vill geta skotið í sama gatið
100 sinnum.
Ég hef séð pósta á netinu þar sem
nýgræðingurinn óafvitandi set-
ur af stað styrjöld á spjallþræðin-
um sökum þess eina hlutar að hann
spurði hvaða kalíber af riffli hann
ætti að fá sér. Mitt ráð fyrir þessa
menn er að spyrja helst ekki neinn,
ekki segja neinum að riffilkaup séu
í nánd og helst ljúga þegar þú ert
spurður hvaða kalíber þú keyptir,
sama á við fæðubótarefni. Þá eru
allir ánægðir.
Góðar stundir,
Axel Freyr Eiríksson
Sérfræðiaðstoð
PISTILL