Skessuhorn - 06.07.2016, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2016 27
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Kári nældi sér í
fjögur stig í vikunni
Kári spilaði tvo leiki í liðinni
viku í þriðju deild karla í knatt-
spyrnu. Sá fyrri var gegn liði
Þróttar frá Vogum 29. júní. Kári
sigraði 2 – 1 í leiknum og voru
það Einar Logi Einarsson og
Bakir Anwar Nassar sem skor-
uðu mörk Skagamanna. Síðari
leikurinn fór fram laugardag-
inn 2. júlí og var hann gegn Dal-
vík/Reyni og fór leikurinn fram
á Akranesvelli. Leikurinn var
markalaus þegar tíu mínútur eft-
ir en þá tók Arnar Freyr Sigurðs-
son, varnarmaður Kára, til sinna
ráða og skoraði mark fyrir bæði
lið á lokakafla leiksins. Lokatöl-
ur því 1 – 1. Kári er eftir leik-
ina í fjórða sæti með þrettán stig.
Næsti leikur Kára er gegn Víði
Garði á heimavelli þriðjudaginn
12. júlí. -bþb
Víkingur vann
Skínanda
Miðvikudag-
inn í síðustu
viku lék Vík-
ingur Ó. við
Skínanda í
fyrstu deild
kvenna A –
riðli. Leiknum lauk með 1 – 0
sigri Víkings og markaskorar-
inn Samira Suleman skoraði
eina mark leiksins. Víkingur
er nú í þriðja sæti riðilsins með
15 stig, stigi á eftir ÍR sem er
í fyrsta sæti. Næsti leikur Vík-
ings er í kvöld klukkan 20:00
gegn ÍR á útivelli.
-bþb/ Ljósm. þa.
Á þriðjudagskvöldið í liðinni viku
mættust lið Víkings Ó. og Þrótt-
ar í níundu umferð Pepsi deildar
karla og fór leikurinn fram í Ólafs-
vík. Um fjörugan leik var að ræða
og fimm mörk voru skoruð. Fyrir
leikinn var Víkingur í fimmta sæti
með 14 stig en Þróttar í næst neðsta
með sjö stig. Víkingur vann gríðar-
lega sterkan sigur á Þrótti 3 – 2 þrátt
fyrir að hafa lent tveimur mörkum
undir í upphafi leiksins.
Áhorfendur í Ólafsvík voru sorg-
lega fáir, aðeins 260 talsins, og voru
þeir enn að koma sér fyrir á vellin-
um þegar fyrsta mark leiksins leit
dagsins ljós. Það var ekki mínúta
liðin þegar Thiago Pinto Borges gaf
góða stungusendingu á Brynjar Jón-
asson sem kláraði færið af yfirvegun
fram hjá Cristian Liberato í marki
Víkings. Um mínútu síðar skoraði
Þróttur annað mark þegar Arnar
Darri Pétursson markmaður Þrótt-
ar tók útspark sem endaði á kollin-
um á Brynjari Jónassyni sem fram-
lengdi boltanum á Vilhjálm Pálma-
son sem renndi honum snyrtilega
í markið. Staðan orðin 2 – 0 fyrir
Þrótt eftir aðeins þriggja mínútna
leik og útlitið býsna svart fyrir Vík-
inga. Þróttur spilaði undan sterkum
vindi í fyrri hálfleik og náði að nýta
sér það ágætlega. Á 40. mínútu skor-
aði Hrvoje Tokic virkilega mikil-
vægt mark fyrir heimamenn. Mark-
ið var einfalt; William Dominguez
da Silva tók hornspyrnu sem Tokic
skallaði inn í markið. Staðan því 1 –
2 þegar flautað var til hálfleiks.
Síðari hálfleikur var ekki jafn fjör-
ugur og sá fyrri og lengi vel var lít-
ið sem ekkert að gerast í leiknum.
Þegar komið var á lokamínúturn-
ar fór að færast fjör í leikinn. Á 84.
mínútu jafnaði Alfreð Már Hjalta-
lín metin fyrir Víkinga. Þorsteinn
Már Ragnarsson skallaði boltann
áfram á Alfreð Má sem potaði bolt-
anum fram hjá Arnari Darra. Stað-
an 2 – 2 og markið nokkuð sárt fyrir
Þróttara sem höfðu varist vel í síð-
ari hálfleik.
Dramatíkinni í lokin var þó ekki
lokið. Á lokamínútu venjulegs leik-
tíma skoraði Aleix Egea. Aftur kom
mark upp úr hornspyrnu Domingu-
ez og þar með var stórkostleg end-
urkoma Víkinga fullkomnuð. Vík-
ingar hafa sigrað alla heimaleiki
sína í Pepsi deildinni í ár. Það virð-
ist vera nokkuð erfitt fyrir önnur lið
að sækja sigur í Ólafsvík en heima-
menn hafa ekki tapað síðustu 18
leikjum sem þeir hafa spilað á sín-
um velli. Síðast þegar liðið tapaði á
heimavelli var það gegn Grindvík-
ingum 2 – 0 í ágústbyrjun 2014. Það
eru því að verða tvö ár. Þetta afrek
verður að teljast nokkuð aðdáunar-
vert.
Víkingur komst með sigrinum
upp í þriðja sæti deildarinnar með
17 stig; þremur stigum eftir toppliði
FH. Næsti leikur Víkinga er 10. júlí
gegn KR á útivelli.
bþb
Enn sigrar Víkingur á heimavelli
Hrvoje Tokic var valinn maður leiksins af stuðningsmönnum. Hér er hann ásamt Bríeti
Sunnu Gunnarsdóttur og Eyrúnu Lilju Einarsdóttur sem afhentu honum verðlaunin.
Ljósm. Alfons Finnsson.
Sjöttu umferð Pepsi deildar kvenna
í fótbolta lauk fimmtudaginn síð-
asta þegar Stjarnan og ÍA mættust í
Garðabæ. Fyrir leikinn var Stjarnan í
öðru sæti með þrettán stig en ÍA í því
síðasta með aðeins eitt. Skagakonur
áttu fá svör við öflugum sóknarleik
Stjörnunnar og lauk leiknum með sex
marka sigri Stjörnunnar. Leikurinn
var fremur bragðdaufur fyrsta hálf-
tímann en Skagakonur vörðust vel
þann tíma. Það var svo á 33. mínútu
sem landsliðskonan Harpa Þorsteins-
dóttir skoraði fyrsta mark Stjörnunn-
ar. Einbeitingarleysi í vörninni varð
þess valdandi að Harpa Þorsteins-
dóttir slapp ein í gegn og skoraði. Á
41. mínútu bætti Stjarnan við marki,
þar var að verki Katrín Ásbjörnsdótt-
ir. Donna Key Henry átti fínt skot að
marki Skagamanna sem Ásta Vigdís
í marki Skagamanna varði og Katr-
ín náði að fylgja eftir og skora. Ekki
voru skoruð fleiri mörk í fyrri hálfleik
og Stjörnukonur fóru því með tveggja
marka forystu inn í hálfleikinn.
Á 49. mínútu átti Harpa Þorsteins-
dóttir fínan sprett sem endaði með
því að hún renndi boltanum á Katr-
ínu sem bætti við sínu öðru marki.
Fjórum mínútum síðar fullkomnaði
Katrín síðan þrennuna, markið var
ekki ósvipað því þriðja en að þessu
sinni var það Donna Key Henry sem
renndi boltanum á Katrínu. Á 58.
mínútu var dæmd vítaspyrna þeg-
ar Ásta Vigdís braut á Donnu Key.
Vítaspyrnuna tók markavélin Harpa
Þorsteinsdóttir og skoraði af öryggi.
Tveimur mínútum síðar fór Harpa
illa með vörn Skagakvenna og skor-
aði með föstu skoti. Önnur þrenna
leiksins því fullkomnuð.
Ekki var meira skorað í leiknum og
lokatölur því 6 – 0. Stjarnan endur-
heimti toppsætið með sigrinum en
Skagakonur sitja á botninum með eitt
stig. Næsti leikur ÍA er gegn liði Vals
á Akranesvelli á morgun, fimmtudag
klukkan 18:00. bþb
Skagakonur töpuðu stórt
Úr fyrsta leik Skagans í sumar.
Fimmtudaginn 30. júní síðastlið-
inn fór fram púttkeppni milli eldri
borgara í Borgarbyggð og á Akra-
nesi. Keppt var á púttvellinum að
Hamri í Borgarnesi. Þar var háð
fyrsta keppni þessara aðila í ár um
Húsasmiðjubikarinn en þetta er
fjórða árið sem keppt er um hann.
Bikarinn var gefinn af Húsasmiðj-
unni á Akranesi. Þátttaka frá félög-
unum er ótakmörkuð en árangur sjö
bestu hjá hvoru liði telur. Keppnin
er með þeim hætti að liðið hittast
þrisvar yfir sumarið og leiknar eru
36 holur hverju sinni. Borgfirðing-
ar unnu keppnina 2013 og 2014 en
Akurnesingar 2015.
Þrjátíu karlar og konur öttu kappi
á Hamri á 18 holu velli. Keppnin fór
vel fram í nokkurri golu og rigning-
arúða. Keppnin gat ekki orðið jafn-
ari. Akurnesingar léku á 495 högg-
um en Borgfirðingar á 496. Næst
hittast þessi vösku púttlið á Akranesi
fimmtudaginn 21. júlí.
ii
Akurnesingar unnu fyrstu lotu í púttkeppni eldri borgara
Hópurinn að lokinni keppni við Hótel Hamar. Ljósm. Þórhallur Teitsson.
Síðastliðið miðvikudagskvöld lauk
níundu umferð í Pepsi deild karla í
knattspyrnu með leik ÍA og Stjörn-
unnar á Akranesvelli. Leikurinn
var líflegur og lauk með 4 – 2 sigri
Skagamanna þar sem Garðar Gunn-
laugsson skoraði þrennu en þetta var
um leið fyrsta þrenna Skagamanna í
efstu deild í 12 ár. Skagamenn lyftu
sér upp fyrir KR í níunda sæti deild-
arinnar með sigrinum og eru komn-
ir með tíu stig. Stjörnumenn sitja
enn í því fimmta með fjórtán stig.
Leikurinn fór af stað með mikl-
um látum. Á fimmtu mínútu skor-
aði Hilmar Árni Halldórsson fyr-
ir Stjörnuna. Hann skapaði markið
algjörlega sjálfur þar sem hann fékk
boltann við miðlínu vinstra meg-
in og hljóp með hann að vítateign-
um þar sem hann kom sér í skot-
færi og lagði boltann snyrtilega í
nærhornið. Tveimur mínútum síð-
ar kom fyrirgjöf frá Ólafi Val Valdi-
marssyni í teig gestanna. Fyrirgjöfin
var hættulítil þar sem Jóhann Lax-
dal komst í boltann en þegar hann
ætlaði að hlaupa með hann úr víta-
teignum skoppaði boltinn á blautu
grasinu upp í hönd hans og víta-
spyrna dæmd. Mjög klaufaleg mis-
tök hjá Jóhanni. Vítaspyrnuna tók
Garðar Gunnlaugsson og skoraði
hann úr henni líkt og á móti KR í
síðustu umferð. Leikurinn var op-
inn og skemmtilegur í fyrri hálf-
leik en fleiri mörk voru ekki skoruð
í honum og staðan því 1 – 1 þegar
Gunnar Jarl ágætur dómari leiksins
flautaði til hálfleiks.
Stjörnumenn komu sprækari til
leiks eftir hlé og bættu við öðru
marki sínu á 55. mínútu. Eftir klafs
í teig Skagamanna eftir aukaspyrnu
Heiðars Ægissonar barst boltinn
á Brynjar Gauta Guðjónsson sem
skaut boltanum í stöngina og inn.
Fallegasta mark leiksins.
Eftir að hafa fengið á sig ann-
að markið vöknuðu Skagamenn og
sýndu mikla baráttu. Á 63. mínútu
fengu Skagamenn hornspyrnu. Ár-
mann náði góðum skalla á markið
sem endaði í stönginni en eins og
hrægammur hirti Garðar boltann
þegar hann barst aftur út og skoraði
af stuttu færi.
Skagamenn voru komnir á bragð-
ið og fannst þeim ekki vera ástæða
til að hætta úr því sem komið var. Á
66. mínútu fékk Tryggvi Hrafn Har-
aldsson boltann vinstra megin á vell-
inum og lék með hann að vítateign-
um þar sem hann renndi boltanum í
hlaupaleið Darren Lough sem kom
á ferðinni og setti boltann fram hjá
Kerr í marki Stjörnunnar.
Á 72. mínútu fullkomnaði Garð-
ar síðan þrennuna þegar hann fékk
góða sendingu inn fyrir frá Ólafi Val;
hann náði góðu skoti sem skoppaði
fyrir framan Kerr í markinu svo erf-
itt var fyrir hann að verja boltann.
Staðan orðin 4 -2.
Ekki voru skoruð fleiri mörk í
leiknum og reyndist 4 – 2 verða
lokatölur. Garðar Gunnlaugsson var
valinn maður leiksins en hann hefur
verið sjóðandi heitur í markaskor-
un og skoraði fimm mörk í síðustu
tveimur leikjum. Næsti leikur ÍA er
gegn Breiðabliki á útivelli sunnu-
daginn 10. júlí.
bþb
Garðar skoraði þrennu í sigri Skagamanna
Garðar Gunnlaugsson skoraði fyrstu
þrennu Skagamanna í tólf ár.