Skessuhorn


Skessuhorn - 17.08.2016, Side 2

Skessuhorn - 17.08.2016, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 20162 Æðarodda. Gamla efnið í vellin- um var fjarlægt og völlurinn réttur af en síðan var lagt nýtt efni ofan á. Það er 0-8 mm brotið efni sem er leirkennt og virðist ætla að setjast vel. Loks var upphitunarvöllurinn einnig skafinn og sett á hann þunnt lag af 0-25 mm efni og hann loks valtaður. Að sögn Ásu Hólmars- dóttur formanns Dreyra hafði efni sem sett var á völlinn fyrir tveimur árum ekki verið að reynast vel. Það hafi orðið blautt og sleipt í vætutíð en glerhart í þurrkum. Hún vonast til að nýtt efni og þessi vinna eigi eftir að gera keppnisvöllinn þann- ig að allir geti orðið sáttir; hestar og menn. Ása segir að nánast öll vinna við endurgerð reiðvallarins hafi verið unnin í sjálfboðavinnu, en félagið staðið straum af kaupum á efni og olíu á vélarnar. Nýi keppnisvöllurinn verður síð- an vígður um næstu helgi þegar Norðurálsmótið í hestaíþróttum verður haldið á Æðarodda. Opið er fyrir skráningar á mótið og öllum frjálst að keppa. mm Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- ráðherra tók á föstudaginn fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðgarðs- miðstöð á Hellissandi. Við athöfn- ina sagði ráðherra að með byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar yrðu innviðir þjóðgarðsins Snæfellsjökuls styrktir, þetta yrði lyftistöng fyrir ferðaþjón- ustu á svæðinu og að með henni yrði þjóðgarðurinn betur í stakk búinn til að taka á móti ferðamönn- um sem heimsækja svæðið allt árið um kring. Þjóðgarðurinn Snæfells- jökull var stofnaður árið 2001 og fimm árum síðar var efnt til opinnar samkeppni um þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Hönnun hefur því legið fyrir um nokkurt skeið og er bygg- ingunni ætlað að uppfylla allar þarf- ir þjóðgarðsmiðstöðvar, bæði hvað varðar upplýsingagjöf, þjónustu og fræðslu til gesta, auk starfsaðstöðu fyrir rekstur þjóðgarðsins sjálfs. Eftir skóflustunguna var efnt til ráðstefnu í Röst. Yfirskrift henn- ar var „Þjóðgarður á leið til fram- tíðar.“ Þar tók ráðherra til máls, sem og Kristinn Jónasson bæjastjóri Snæfellsbæjar, Sturla Böðvarsson bæjastjóri Stykkishólms, Ragnhild- ur Sigurðardóttir hjá Svæðisgarðin- um Snæfellsnesi, Kristín Huld Sig- urðardóttir frá Minjastofnun, Jón Björnsson þjóðgarðsvörður og Sæ- mundur Kristjánsson sagnaþulur og svæðisleiðsögumaður. af Nú eru skólarnir að hefjast og mörg börn sem ganga eða hjóla í skólann. Bílstjórar þurfa því að muna að sýna sérstaka aðgát í umferðinni og fara varlega á tímum sem skólabörn eru á leið til og frá skóla. Á morgun verður hæg suðlæg eða breyti- leg átt. Skýjað með köflum og sums stað- ar lítisháttar væta, hiti 12-20 stig. Á föstu- dag verður hæg breytileg átt eða hafgola og víða léttskýjað, hiti 12 til 19 stig, hlýjast í innsveitum. Á laugardag; hæg norðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum en létt- skýjað inn til landsins. Hiti 10-18 stig, hlýj- ast á Vesturlandi. Á sunnudag má búast við austlægri átt, 3-10 m/s. Dálítil væta verður í fyrstu, annars skýjað með köflum og sums- staðar þokuloft við ströndina. Hiti 10 til 16 stig. Á mánudag er útlit fyrir vaxandi norð- austanátt með rigningu, heldur kólnandi. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns „Fylgist þú með Ólympíuleikunum?“ Flest- ir virðast fylgjast með Ólympíuleikunum en 48% svöruðu „Já, af og til“ og 29% sögðu „Já, reglulega á hverjum degi.“ 23% sögðust hins vegar ekki hafa áhuga á því að horfa á leikana. Í næstu viku er spurt: Á ríkið að auka vegaframkvæmdir með sérstakri gjaldtöku? Starfsfólk skólanna á Vesturlandi vinnur nú hörðum höndum að því að gera allt klárt fyrir kennsluveturinn. Skólarnir á Vesturlandi eru góðir og eru að vinna gott starf. Vest- lendingar geta verið stoltir af skólunum sín- um og fólkinu sem þar starfar. Það er Vest- lendingar vikunnar. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Fleiri útlendingar í óhöppum VESTURLAND: Alls urðu ell- efu umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í lið- inni viku, öll án teljandi meiðsla, enda fólk almennt með öryggis- beltin spennt. Erlendum ferða- manni á bílaleigujeppa fipaðist við aksturinn við Leirá í Hval- fjarðarsveit og var bíllinn „út um allan veg“ að sögn vegfaranda, áður en hann skældist yfir vegrið með miklum skruðningum. Ekki urðu meiðsl á fólki en bíllinn var fjarlægður stórskemmdur með kranabíl. Annar erlendur ferða- maður missti fólksbíl sinn út af á Holtavörðuheiði í vikunni sem leið. Þrennt var í bílnum sem valt en engan sakaði enda all- ir í öryggisbeltunum. Þriðji er- lendi ökumaðurinn missti stjórn á jepplingi sínum í lausamöl á holóttum malarvegi í Hvítár- síðu. Fór bíllinn út af og valt en ökumaður og farþegi sluppu án teljandi meiðsla. Komu erlend- ir ferðamenn við sögu í átta af þessum ellefu umferðaróhöpp- um sem að urðu í umdæmi LVL í sl. viku. Að sögn Theódórs Kr. Þórðarsonar yfirlögregluþjóns er það að líkindum hæsta hlutfall ferðamanna í þessum málaflokki til þessa, en á þessum árstíma hefur þetta hlutfall verið um eða upp undir helmingur slysa og óhappa á undanförnum árum. Verkefni lögreglunnar á Vest- urlandi vegna erlendra ferða- manna eru þó ekki að fullu talin því þeir koma einnig vaxandi við sögu í öðrum málaflokkum, svo sem í ökuhraðamælingum. -mm Útgáfutónleikar í kvöld AKRANES: Söngkonan Inga María Hjartardóttir heldur út- gáfutónleika á Akranesi í til- efni af útgáfu nýs efnis. Einn- ig eru tónleikarnir hennar leið til að kveðja að sinni, en hún heldur bráðlega aftur til Boston í Bandaríkjunum þar sem hún stundar nám við Berklee Collage of Music. Tónleikar Ingu Maríu fara fram á Gamla kaupfélaginu í kvöld, miðvikudaginn 17. ágúst og hefjast klukkan 20:00. Á efn- isskránni er nýtt frumsamið efni í bland við eftirlætis lög söng- konunnar. Fram koma, auk Ingu Maríu, þau Heiðmar Eyjólfs- son og dansararnir Mirra Björt Hjartardóttir, Almar Kári Ás- geirsson og Demi van den Berg. Þá mun Ingi Björn Róbertsson bregða sér í gervi DJ Red Ro- bertsson og leika danstónlist. Aðgangseyrir er 1.500 kr. en frítt er fyrir 12 ára og yngri. -kgk Þúsund og fimm of hratt LANDIÐ: Alls voru 1005 öku- menn myndaðir fyrir hraðakst- ur af hraðamyndavélum lög- reglunnar víðs vegar um land- ið í vikunni sem leið, en þar af voru 132 myndaðir af hraða- myndavélunum sem eru við Fiskilæk sunnan við Hafnarfjall og við Hagamel sunnan Laxár í Hvalfjarðarsveit. Þá mældu lög- reglumenn í umferðareftirliti á Vesturlandi 32 ökumenn fyr- ir of hraðan akstur víðs vegar í umdæminu. Einn ökumaður var tekinn fyrir ölvun við akstur í vikunni sem leið. -mm Skóflustunga tekin að nýrri Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi Sædís Heiðarsdóttir aðstoðaði Sigrúnu Magnúsdóttur umhverfisráðherra við að taka fyrstu skóflustunguna. Hér má m.a. sjá Jón Björnsson þjóðgarðsvörð, Sædísi Heiðarsdóttur, Kristinn Jónasson, Kristínu Lindu Árnadóttur forstjóra Umhverfisstofnunar, Sigrúnu Magnúsdóttur umhverfisráðherra og Guðbjörgu Gunnarsdóttur fyrrverandi þjóðgarðsvörð. Á sínum tíma var það teiknistofan Arkís í Reykjavík sem bar sigur úr býtum í hönnunarsamkeppni um þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi með húsi sem nefnt er Jökulhöfði. Hönnun hússins hefur því legið fyrir um árabil, en var sett á ís vegna hrunsins. Húsið kemur til með að þjóna hlutverki þjóðgarðsmiðstöðvar, sem móttökustaður fyrir ferðamenn og starfsmannaaðstaða þjóðgarðsins. Búið er að gera miklar endur- bætur á æfinga- og keppnisvelli hestamannafélagsins Dreyra á Á fundi byggðarráðs Dalabyggðar þriðjudaginn 9. ágúst síðastliðinn var farið yfir stöðu mála varðandi lagningu ljósleiðara um Hörðu- dal og Skógarströnd. Þar kemur fram að 28 fasteignaeigendur bæði í Hörðudal og á Skógarströnd hafa undirritað umsókn um að fá heim- taug, þar af 17 lögheimili. Byggð- arráð samþykkti að gera ráð fyrir tveggja milljóna króna framlagi frá Dalabyggð til verkefnisins að því gefnu að önnur fjármögnun verði tryggð. Eins og Skessuhorn greindi frá á vormánuðum fékk Dalabyggð ekki úthlutað peningum úr Fjar- skiptasjóði í ár í tengslum við verk- efnið Ísland ljóstengt. Staða ljós- leiðaravæðingar um Hörðudal og Skógarströnd er því sú, að sögn Sveins Pálssonar sveitarstjóra, að um þessar mundir er unnið að því að tryggja fjármagn til verkefn- isins. „Það liggur fyrir vilji með- al íbúa og vilji sveitarstjórnar er að koma þessu til leiðar og að þetta verði gert. Á sama tíma eru fjár- munir sveitarfélagsins takmarkað- ir og við þurfum meira til,“ seg- ir Sveinn. „Við erum að reyna að ná í fjármagn til verkefnisins. Það er enn von en á þessari stundu er óvíst hver niðurstaðan verður. Það ætti þó að skýrast á næstu vikum.“ kgk Miklar endurbætur á reiðvellinum á Æðarodda Reyna að afla fjár til ljósleiðaravæðingar Horft heim að bænum Geirshlíð í Hörðudal. Ljósm. úr safni.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.